Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.2017, Síða 60
36 menning Helgarblað 15. september 2017
B
láköld lygi er fyrsta glæpa
saga breska rithöfundarins
Quentin Bates sem kemur
út í íslenskri þýðingu. Aðal
persóna bókarinnar er hin íslenska
Gunnhildur sem er varðstjóri í lög
reglunni. Bláköld lygi er þriðja bók
in í bókaflokki um Gunnhildi en
Quentin hefur skrifað sjö bækur
um hana og er að vinna að þeirri
áttundu sem hann vonast til að
komi út í Bretlandi um áramótin.
Söguþráðurinn í Blákaldri lygi er á
þá leið að skipaeigandi finnst lát
inn. Rannsókn Gunnhildar leiðir
í ljós skuggalegan heim kynlífsóra
og fjárkúgunar.
„Gunnhildur birtist bara allt í
einu,“ segir Quentin þegar hann
er spurður hvernig hann hafi
fengið hugmyndina að þessari ís
lensku aðalpersónu sinni. „Fyrsta
glæpasagan mín kom út árið 2011
og aðalpersónan átti að vera karl
maður. Ég var ekki komin mjög
langt með að skrifa bókina þegar
ég komst að því að hann væri frek
ari leiðinlegur. Önnur persóna
bókarinnar, Gunnhildur, var mun
áhugaverðari og ég ákvað því að
gera hana að aðalpersónu.
Þegar ég byrjaði að skrifa ætlaði
ég ekki að nota Ísland sem sögu
svið, en fljótlega kom í ljós að
annað var ekki hægt. Upphaflega
átti Gunnhildur að vera lögreglu
maður í sjávarþorpi en varð síðan
lögreglumaður í höfuðborginni.
Það var bókaforlagið sem vildi fá
borgarumhverfi inn í söguna. Ég
veit ekki hvort það var rétt eða rangt
hjá þeim, en þeir fóru fram á þetta.
Ég fékk nokkrar kvartanir út af
fyrstu bókunum, sérstaklega frá
Ameríkönum. Nöfnin þóttu svo
erfið. Það er ekki hægt að láta Ís
lendinga heita Jim og Mary. Það
fauk í mig og ég hugsaði: „Já, ég
skal gefa ykkur nöfn sem enginn
getur borið fram.“ Glæpamað
urinn í bókinni sem ég er nú að
skrifa um Gunnhildi heitir Hró
bjartur Bjartþórsson, sem er
erfiðasta nafnið sem ég gat fundið.
Ég bjóst við að ritstjórinn myndi
kippa því út og breyta því en það
var ekki gert. Mér þykir óskaplega
vænt um Hróbjart þótt það fari illa
fyrir honum.“
Hvernig kona er Gunnhildur?
„Hún er jarðbundin, venjuleg
íslensk kona. Ég ætla ekki að segja
að hún eigi sér fyrirmynd úr raun
veruleikanum, en það gæti samt
verið.“
Kom til Íslands sem táningur
Quentin þekkir vel til Íslands. „Ég
kom hingað sem táningur. Ég ætl
aði bara að vera í nokkra mánuði
en ég féll í menntaskóla og gat
þessa vegna ekki farið í háskóla
heima þannig að ég ákvað að
dvelja lengur á Íslandi. Svo hitti
ég íslenska konu sem varð konan
mín og við bjuggum hérna í ára
tug. Nú bý ég í Englandi með fjöl
skyldunni.“
Quentin talar afar góða ís
lensku. Hann er spurður hvort
það hafi ekki verið erfitt að læra
málið. „Það var erfiðast í byrjun,“
segir hann. „Íslendingar tala svo
hratt að það er eins og þeir séu að
segja eitt langt orð. Það tók mig
tíma að greina á milli orðanna en
þegar það var komið þá fór þetta
að ganga. Þegar ég hitti konuna
mína lærði ég íslensku mjög hratt
því við töluðum íslensku saman og
gerum enn.“
Af hverju fórstu að skrifa glæpa-
sögur?
„Til að vita hvort ég gæti það. Ég
var að vinna á blaði hjá afar sér
vitrum ritstjóra. Hvert einasta orð
í blaðinu átti að vera eins og hann
hefði skrifað það. Þetta er fínn
karl og við erum góðir vinir enn
þá, en það var ansi erfitt að vinna
með honum. Það var ákveðið frelsi
að skrifa utan vinnutíma eitthvað
sem mig langaði til að skrifa.“
Hvernig hafa bækurnar gengið?
„Bækurnar hafa gengið þokka
lega en það mætti samt ganga
betur. Það hefur gengið nógu vel
til að forlagið vilji halda áfram að
gefa þær út en ekki nógu vel til að
ég geti hætt að vinna.“
Vinnur að þýðingu á 79 af
stöðinni
Quentin starfar sem blaðamaður
á Englandi og skrifar einkum um
sjávarútveg. Hann starfar einnig
sem þýðandi, hefur meðal annars
þýtt glæpasögur Ragnars Jónas
sonar og Lilju Sigurðardóttur á
ensku. Hann vinnur nú að enskri
þýðingu á 79 af stöðinni eftir
Indriða G. Þorsteinsson sem kem
ur út á næsta ári hjá litlu forlagi í
Bretlandi. Um það þýðingarverk
efni segir hann: „Það er virki
lega skemmtilegt og um leið mikil
áskorun. Þetta er erfitt en ég er
ekki mikið fyrir að gera hluti sem
eru auðveldir. Bókin er á eldri ís
lensku, þetta er hrein, skýr og
falleg íslenska og það er áskorun
að koma henni yfir á nútímaensku
án þess að tapa tilfinningunni fyrir
tímabilinu.“ n
Gunnhildur varðstjóri
er mætt til Íslands
n Aðalpersónan í glæpasögu Quentins Bates er íslensk n Er að þýða 79 af stöðinni yfir á ensku„Önnur
persóna
bókarinnar,
Gunnhildur, var
mun áhugaverðari
og ég ákvað því
að gera hana að
aðalpersónu.
Kolbrún Bergþórsdóttir
kolbrun@dv.is
Quentin Bates „Gunnhildur
birtist bara allt í einu.“ Mynd Brynja