Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.2017, Side 4
4 Helgarblað 22. september 2017fréttir
H
ann hefði getað stór
slasast. Eða dáið,“ segir
Hugrún Ásta Óskarsdóttir.
Þann 30. ágúst síðast
liðinn lenti 17 ára sonur henn
ar í alvarlegu atviki á Hellisheiði.
Vinstri hjólabiti bifreiðarinnar,
sem hefur það hlutverk að halda
dekkjunum á sínum stað, gaf sig
með þeim afleiðingum að vinstra
afturhjólið nánast brotnaði af.
Drengurinn slapp með skrekkinn
en hann náði að sveigja út af veg
inum, í tæka tíð, og stöðva úti í
kanti. Hugrún gagnrýnir harðlega
að bíllinn, sem fór síðast í skoðun
í maí, hafi fengið skoðun með svo
alvarlega bilun. Hún segir Frum
herja, sem sá um skoðunina, bera
ábyrgð á óhappinu.
Virtist í toppstandi
Bifreiðina, sem er af
gerðinni Hyundai
Tucson, árgerð 2005,
keypti Hugrún, fyrir
son sinn, á Face
booksíðunni Brask
og brall í byrjun júlí
á þessu ári. Hugrún
vandaði valið við
kaupin þar sem son
ur hennar stundar
nám á höfuð
borgarsvæðinu,
en þau eru búsett í
Hveragerði. Hann
þarf því að keyra
yfir Hellisheiði á
hverjum degi til að
komast í skólann.
„Þetta virtist vera
bíll í toppstandi. Það var búið að
gera mikið við hann en það sem
skipti mestu máli var að bíllinn
var síðast skoðaður, hjá Frum
herja á Dalvegi, í mars 2017. Bíll
inn fékk boð í endurskoðun og í
maí var græni miðinn fjarlægð
ur og bifreiðin fékk fulla skoðun.
Auðvitað gerir maður sjálfkrafa
ráð fyrir að nýskoðaðir bílar séu
í góðu standi,“ segir Hugrún, en
eftir að bíllinn var dreginn á verk
stæði kom í ljós að grindin var öll
sundurryðguð.
„Bíll á alls ekki að fá skoðun
þegar ástandið er svona“
Hallgrímur Stefánsson, við
gerðarmaður hjá MS vélar og stál
smíði í Hveragerði, sem skoðaði
bílinn eftir að mæðginin komu
með hann á verkstæðið, staðfesti
í samtali við DV að vinstra aftur
hjólið hafi nánast verið dottið
undan bílnum. Þá rétt hékk hægri
hjólabitinn uppi en var við að fara
í sundur. „Þetta sést mjög vel og
er eitt af þeim atriðum sem á að
yfirfara þegar bifreið er skoðuð.
Bíll á alls ekki að fá skoðun þegar
ástandið er svona. Hvað þá að
vera á götunni. Í þessu ástandi
var hann ekkert annað en dauða
gildra.“ Hallgrímur er þess fullviss
að það taki ryðgun sem þessa
marga mánuði að myndast. Þá
telur hann allar líkur á því að
þegar bíllinn var skoðaður í vor
þá hafi bitarnir þegar verið orðnir
mjög götóttir. Þá strax hefði átt að
taka bifreiðina úr
umferð.
Hallgrímur
kallaði svo til
skoðunarmann
frá Frumherja
sem myndaði bíl
inn í bak og fyrir á
meðan hann var
enn á verkstæðinu
í Hveragerði. Hug
rún kveðst enn vera mjög reið
vegna atviksins og finnst skrít
ið að hafa ekkert heyrt frá Frum
herja þrátt fyrir að hafa sent ótal
skilaboð vegna málsins. „Ég vil að
einhver svari fyrir þetta. Þá langar
mig að vita af hverju fólk er skyld
að til að láta skoða bílana sína, og
borga fyrir það háar upphæðir, ef
stórhættulegum bílum er hleypt í
gegn.“
Mannleg mistök
Karl Svavar Sigurðsson, sviðstjóri
hjá Frumherja, staðfestir í skrif
legu svari til DV að umrædd bif
reið hafi verið skoðuð í mars og
sett hafi verið út á fjölda atriða.
„Oft getur verið erfitt að koma
auga á tæringu þar sem burðar
virkið getur tærst innan frá og
út eins og í þessu tilviki. Einnig
var til að mynda óvenju snjó
þungt í mars og getur snjór og ís
ing á undirvagni hafa villt fyrir,“
segir Karl Svavar. Að hans sögn
harmar fyrirtækið þessa yfirsjón
í mars og verður þetta mál not
að til þess að hnykkja enn betur á
skoðunarferlinu til að koma í veg
fyrir að ökutæki sem þetta komist
í gegnum skoðun.
„Fyrirtækið er með gæða
eftirlitskerfi sem tekur á
skoðunarferlinu í heild sinni.
Þetta eru mannleg mistök og
verður aldrei hægt að koma al
gjörlega í veg fyrir slíkt. Hins
vegar tekur gæðakerfið á svona
yfirsjónum og er fræðsla, upplýs
ingagjöf og eftirfylgni hluti af því
ferli sem sett hefur verið í gang.
Starfsmenn Frumherja hf. eru í
sambandi við eiganda og öku
mann bifreiðarinnar og munu
leiða málið til lykta með þeim,“
segir Karl Svavar. n
Kristín Clausen
kristin@dv.is
„Ég
vil að
einhver svari
fyrir þetta
Hallgrímur Stefánsson og Hugrún Ásta Óskarsdóttir Sonur Hugrúnar var hætt
komin eftir að alvarleg bilun kom upp í nýkeyptri bifreið sem hann ók. Bíllinn hafði nýlega fengið
skoðun hjá Frumherja hf. og segir Hugrún Ásta að skoðunarfyrirtækið beri ábyrgð á óhappinu.
Hjólagrindin Hér sést gatið í gegnum grindina
hægra megin að framanverðu. Mynd Úr einKaSafni
Umrædd bifreið Líkt og sjá má er næsta skoðun í janúar 2018. Mynd Úr einKaSafni
„EkkErt annað
En dauðagildra“
n Bifreið komst í gegnum skoðun hjá Frumherja í vor þrátt fyrir alvarlega bilun
n 17 ára drengur var undir stýri á Hellisheiði þegar hjólabúnaðurinn gaf sig
Vinstri hjólabitinn
Ryðgaður í sundur.
Mynd Úr einKaSafni