Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.2017, Síða 8
8 Helgarblað 22. september 2017fréttir
vafasöm síða býður
upp á víkingaþjálfun
n Fölsuð íslensk nöfn n Eigandinn dæmdur í Kanada
V
ið erum bræðralag víkinga
og úlfhéðna sem lifum eftir
norrænum hefðum frá
tímunum fyrir kristnitöku,
þar með talið lögmáli víkinganna:
Hugrekki, heiðri, styrk, bræðralagi,
trúnaði, heiðarleika, aga, staðfestu
og einfaldleika. Við deilum okk-
ar fornu hefðum, hæfileikum og
visku til að gera þig að sönnum vík-
ingi, til að tryggja að þú getir bjarg-
að þér í harðneskjulegum aðstæð-
um, til að leiðbeina þér í könnun
óbyggða, til hefðbundinna lækn-
inga og til að hugsa um skegg þitt
og líkama … meðal annars“.
Þetta stendur á vefsíðu fyrir-
tækisins Norskk sem segist bjóða
upp á sjálfsbjargarnámskeið sem
geri þátttakendur að mönnum á
engum tíma. Samkvæmt heima-
síðu fyrirtækisins hefur Norskk
starfsemi í nokkrum löndum og
samkvæmt Facebook-síðu fyrir-
tækisins eru höfuðstöðvar þess í
Reykjavík.
Námskeið í óbyggðaþjálfun og
norrænni menningu
Á heimasíðu Norskk er boðið upp
á þrenns konar námskeið sem
kennd eru af svokölluðum Úlf-
héðnum. Fyrsta stigið, Hirðmaður,
er alfarið kennt á netinu og gjaldið
fyrir það eru 195 dollarar (um
21.000 krónur). Þeir sem taka
þátt í námskeiðinu fá aðgang að
reglunni Víkingaherr og geta haft
samband við aðra víkinga víðs
vegar um heim. Námskeiðið er
ekki kennt á ákveðnum tíma held-
ur geta menn farið yfir efnið á eigin
hraða.
Það sem kennt er á nám-
skeiðinu er útlistað í þaula á
heimasíðunni. Fyrsti hlutinn
snýr að menningunni. Þar er
kennt fornnorrænt mál, íslenskur
framburður, nafnakerfi og rúnir.
Ýmsar fornbókmenntir eru lesn-
ar, svo sem Hávamál, Eddukvæði,
Snorra-Edda og Íslendinga-
sögurnar, en þær má þó lesa í
enskri þýðingu. Þátttakendur læra
um norræna siði og menningu,
réttlæti, dauðann, söngva, galdra
og ásatrú. Þeir læra meira að segja
að bölva að norrænum sið (and-
fullrettirsorð). Þá er horft á leikn-
ar kvikmyndir og heimildamyndir
um víkingatímann.
Annar hlutinn snýr að óbyggða-
og sjálfsbjargarþjálfun. Þar er kennt
hvernig á að nota vopn til veiða og
verkfæri til byggingar skýla, bjálka-
kofa og snjóhúsa. Einnig hvar sé
hægt að finna drykkjarhæft vatn
og nytsamar plöntur, hvernig á að
kveikja eld, helstu atriði úr skyndi-
hjálp og sálfræðinni að baki því að
vera einn í náttúrunni. Á síðunni er
ekki farið ítarlega í þriðja hlutann
sem snýr alfarið að hernaði en þar
er litið til margra þjóða, þar á með-
al Norðmanna, Bandaríkjamanna
og Spartverja til forna.
Þegar þessu námskeiði lýkur er
hægt að sækja um þriggja vikna
verklegt námskeið, Hersir, sem
er ókeypis samkvæmt heimasíð-
unni. Þar er sú kunnátta sem Hirð-
mennirnir lærðu í fyrsta nám-
skeiðinu nýtt í óbyggðunum en
tekið er fram að námskeiðið sé
gríðarlega erfitt. Aðeins um 10 pró-
sent hirðmanna sæki Hersisnám-
skeiðið og þar af útskrifist aðeins
65 prósent. Útvaldir fá svo boð um
að taka þátt í þriðja námskeiðinu,
Berserkur, þar sem menn eiga
þess kost að verða „brjálaðir vík-
inga stríðsmenn“. Einungis 10 pró-
sent Hersa verða Berserkir. Verk-
legu námskeiðin eru kennd víða,
til dæmis hér á landi við Ölfusá og
á Svínafellsjökli.
Á vefsíðu Norskk er einnig hægt
að kaupa ýmsar vörur fyrir sanna
víkinga. Má þar nefna Víkingablóð
(berjate), Skeggsmjör (skeggolía),
Víkingasmjör (húðkrem) og ýmsar
lækningajurtir.
Útlendingaandúð og
kvenfyrirlitning
Ef Facebook-síða Norskk er
skoðuð má sjá ýmsar færslur
frá fyrirtækinu sjálfu sem ein-
kennast af útlendingaandúð og
stækri kvenfyrirlitningu. Á vef-
síðu Norskk er hlekkjað á frétta-
síðu sem rekin er af sama fyrir-
tæki, Hellulands útvarpið (HÚV).
Á þessari fréttasíðu má finna ýms-
ar greinar sem tengjast víkingum
og norrænni menningu. En einnig
margar greinar af sama meiði og
færslurnar á Facebook-síðunni.
Greinarnar á Hellulandsút-
varpinu eru allar á enskri tungu en
þrír höfundar bera íslensk nöfn.
Þar á meðal Þórólfur Björnsson
sem skrifar um „afrek kvenna“ og
hvernig feitar konur hafi gert offitu
að sjálfsögðum hlut. Hann segir:
„Hvað hafa menn áorkað í
mannkynssögunni til þessa? Til að
byrja með þá höfum við byggt upp
og varið siðmenningu okkar … en
það er í hættu vegna uppgangi ný-
feminisma og frjálslyndi. Þurfum
við fleiri afrek kvenna á þessum
tíma?“ (Orðrétt af umræddri síðu).
En það eru ekki Íslendingar sem
standa á bak við þessi skrif. Einn
þeirra, Þór Þórðarson, sem einnig
er titlaður Úlfhéðinn hjá Norskk
er með símanúmer sem skráð er í
Norður-Ameríku. Uppruna Norskk
og Hellulandsútvarpsins má
finna í kanadíska fylkinu Bresku-
Kólumbíu.
Allt í plati
Árið 2014 auglýsti norsk/kanadíska
ferðaþjónustufyrirtækið Amaruk,
sem sérhæfir sig í ferðum um
norður slóðir, bitastætt starf til um-
sóknar. Lucie Clermont var nýút-
skrifuð úr háskóla og ákvað að slá til
og sækja um starfið. Frá fyrir tækinu
fékk hún hins vegar einungis rætin
svör með kynferðis legum undir-
tón. Henni var svo hafnað á þeim
grundvelli að hún hefði numið við
kaþólskan háskóla.
Clermont kærði ákvörðunina
og fréttamenn í Kanada rannsök-
uðu málið. Ekki náðist í neinn af
þeim 217 skráðu starfsmönnum
Amaruk og ekki var hægt að sjá að
fyrirtækið hefði neina starfsemi.
Ráðningarstjórinn Olaf Amundsen
sem Clermont hafði samband við
í gegnum tölvupóst var uppdikt-
uð persóna. Eina manneskjan
sem hægt var að finna á bak við
fyrirtækið var kanadískur maður
að nafni Christopher Fragassi-
Bjørnsen. Í marsmánuði árið 2016
var hann dæmdur til að greiða
Clermont 8.500 dollara (750.000
krónur).
Eftir dóminn birtist grein í Hellu-
landsútvarpinu skrifuð af „Þórólfi
Björnssyni“ þar sem Clermont er
nídd. Í greininni er vitnað í Háva-
málin: „Hvars þú böl kannt kveðu
þat bölvi at ok gefat þínum fjánd-
um frið“ (ef þú ert beittur órétti
skaltu tala um það og ekki gefa
óvinum þínum nein grið).
Fáklæddir karlmenn
Fragassi-Bjørnsen er skráður fyrir
fjölmörgum fyrirtækjum sem
tengjast meðal annars herþjálfun,
óbyggðaþjálfun, öryggismálum,
vopnaburði og norðurslóðunum.
Norskk og Hellulandsútvarpið
eru bæði í eigu hans.
Eitt af fyrirtækjunum heitir
Norealis, erótísk síða þar sem sjá
má fáklædda karlmenn. Margar
myndirnar eru teknar í óbyggðum
og fyrirsæturnar eru oft og tíðum
vopnaðar. Myndirnar af þessari
síðu hafa verið notaðar á öðrum
vefjum í eigu Fragassi-Bjørn-
sen, svo sem Norskk, Amaruk,
Spartic, Militis og Call of the Wild
Expeditions.
Sums staðar kemur fram að
fyrirtækin eigi í samstarfi við heri
ýmissa landa, til dæmis Noregs
og Bandaríkjanna. Því uppfylli
námskeiðin svokallaðan PAWGI-
staðal um óbyggðaþjálfun og
sjálfsbjörgun. Þessi staðall er
hins vegar ekki til nema hjá sam-
nefndu fyrirtæki í eigu Fragassi-
Bjørnsen. Þá eru margar mynd-
ir og myndskeið frá heræfingum
notaðar í óleyfi undir merkjum
þessara fyrirtækja.
Ekki eru til neinar vís-
bendingar um að raunveru-
leg starfsemi sé á bak við þessi
fyrir tæki, ef undan er skilin hin
erótíska myndasíða. Christoph-
er Fragassi-Bjørnsen notar þetta
net gervifyrirtækja til að hafa fé af
fólki og samtímis breiða út boð-
skap sinn um skaðsemi innflytj-
enda og femínista. Fyrirtækin eru
flest frekar lítið þekkt og fáir sem
falla fyrir svikunum. Íslendingar
eru þó sannarlega skotmark hins
kanadíska svikahrapps. n
„Hvað hafa menn
áorkað í mann-
kynssögunni til þessa? Til
að byrja með þá höfum
við byggt upp og varið
siðmenningu okkar …
en það er í hættu vegna
uppgangi nýfeminisma
og frjálslyndi. Þurfum við
fleiri afrek kvenna á þess-
um tíma?
Kristinn Haukur Guðnason
kristinn@dv.is
Christopher Fragassi-Bjørnsen
Dæmdur í Kanada.
Norskk Býður upp á víkingaþjálfun.