Fréttablaðið - 04.11.2017, Side 2
Veður
Norðan 5-15 m/s og él fyrir norðan
og austan, en jafnvel bjart annars
staðar. Nokkuð svalt í veðri, hiti um
og undir frostmarki. sjá síðu 54
Stund milli stríða í Syðra-Langholti
„Vá, hvað þetta er girnilegt!“ sagði Smári McCarthy um pitsurnar úr golfskálabistróinu Seli í Hrunamannahreppi, enda orðinn svangur eftir samtal
morgunsins. Hlé var gert á stjórnarmyndunarviðræðum á heimili Sigurðar Inga og Elsu í Syðra-Langholti í gær til að samningamenn gætu fyllt á
tankinn enda ekki vænlegt til árangurs að mynda ríkisstjórn á fastandi maga. Viðræður ganga ágætlega og vel fer á með mönnum. Fréttablaðið/ErNir
Verslun Aðsókn gesta og við-
skiptavina Smáralindar jókst um
31 prósent í september, miðað við
sama mánuð í fyrra, og 24 pró-
sent í október eða fyrstu mánuð-
ina eftir opnun fatarisans H&M.
Framkvæmdastjóri verslunarmið-
stöðvarinnar finnur fyrir mikilli
aukningu í kaupgleði landans.
Fasteignafélagið Reginn, eigandi
Smáralindar, kynnti í gær upp-
gjör sitt fyrir fyrstu níu mánuði
ársins. Þar segir að samkeppnis-
staða verslunarmiðstöðvarinnar
hafi gjörbreyst með komu H&M
í lok ágúst og opnun á nýrri tísku-
vöruverslun Zöru. Árið hafi ein-
kennst af miklum fjárfestingum
vegna breytinga í húsinu og leigu-
tekjur því verið lægri en áætlað
var og rekstrarkostnaður hærri á
stórum hluta hússins. Nú sé útlit
fyrir að tekjur muni aukast umfram
fyrri spár.
„Við finnum að verslun í Smára-
lind hefur verið að glæðast sem er
mjög jákvætt og leigutakar mjög
ánægðir með breytingarnar. Þessi
aukna aðsókn er í samræmi við
okkar væntingar og við vissum
að með öflugu akkeri myndi hún
aukast," segir Sturla Gunnar
Eðvarðsson, framkvæmdastjóri
Smáralindar.
Stóraukin netverslun og gjör-
breytt kauphegðun nýrrar kyn-
slóðar eru risavaxnar áskoranir fyrir
verslunarmiðstöðvar, eins og kom
fram í Markaðnum, fylgiriti Frétta-
blaðsins um viðskipti og efnahags-
mál, í lok ágúst. Á sama tíma spáir
Hagstofa Íslands, í nýrri Þjóðhags-
spá sem birtist í gær, því að einka-
neysla verði enn meiri á þessu ári en
í fyrra þegar hún jókst um 7,1 pró-
sent. Hún muni aukast um 7,8 pró-
sent, eða meira en á árinu 2007, og
kaupmáttur halda áfram að aukast.
Sturla Gunnar svarar aðspurður
að kærkomið hafi verið að utan-
kjörfundaratkvæðagreiðsla á höfuð-
borgarsvæðinu fyrir alþingiskosn-
ingarnar 2017 hafi verið haldin í
Smáralind. Þar kusu um 23.200
manns en Sturla bendir á að 30 þús-
und hafi mætt á miðnæturopnun
Smáralindar síðasta miðvikudag.
„U t a n k j ö r f u n d a r a t k v æ ð i n
voru mikilvæg í sjálfu sér en ein-
ungis dropi í hafið. Í síðasta mán-
uði komu um 400 þúsund manns
hingað. Við sjáum svo stærri daga
í húsinu en það er töluvert meira
að gera hér fyrir jólin en miðnæt-
uropnunin var mjög stór dagur,"
segir Sturla Gunnar.
haraldur@frettabladid.is
Vinsældir Smáralindar
aukast í kaupgleðinni
Viðskiptavinum og gestum Smáralindar fjölgaði um 31 prósent í september
eftir opnun H&M. Framkvæmdastjórinn finnur fyrir aukinni kaupgleði land-
ans. Um 23.000 manns kusu utankjörfundar í verslunarmiðstöðinni.
raðir mynduðust þegar H&M opnaði í Smáralind í lok ágúst. Fréttablaðið/Eyþór
Við finnum að
verslun í Smáralind
hefur verið að glæðast sem er
mjög jákvætt
Sturla Gunnar
Eðvarðsson,
framkvæmdastjóri
Smáralindar
fólk „Þetta var það sem Vigga þráði
og leitaði að; hjartahlýja og kær-
leikur frá sveitungum sínum – hún
þurfti á því að halda,“ segir Jóna Sig-
ríður Jónsdóttir, ein kvennanna sem
safna fyrir legsteini á ómerkta gröf
förukonunnar Vigdísar Ingvadóttur
í Mýrdal.
Auk tveggja steinsmiðja sem
nefndar voru í Fréttablaðinu í
gær hefur S. Helgason boðist til að
leggja til legstein á leiði Vigdísar í
Skeiðflatarkirkjugarði. Fjöldi ein-
staklinga hefur líka haft samband
við Jónu og söfnunin hefur gengið
ótrúlega vel að hennar sögn.
„Ég er búin að fá ótal kveðjur
og þakkir. Það sem mér finnst svo
ánægjulegt við þetta sérstaklega, er
að þetta fólk sem er að gefa sig fram
og leggja til peninga gerir það af svo
mikill hlýju og gleði. Það er alveg
dásamlegt að Vigga skuli fá legstein
með þessum hætti. Hún stóð ein í
lífsbaráttunni og var svo
mikill einstæðingur
alla ævi,“ segir Jóna.
Fram undan er
að velja stein og
s k i p u l e g g j a
málið nánar.
„Það er að
minnsta kosti
ljóst að það er
hægt að hafa
steininn veg-
legan og fal-
legan og per-
s ó n u l e g a n , “
segir Jóna Sig-
ríður Jónsdóttir.
– gar
Vigga gamla
finnur loks
hjartahlýjuna
Það sem mér finnst
svo ánægjulegt við
þetta sérstaklega, er að þetta
fólk sem er að gefa sig fram
og leggja til peninga gerir það
af svo mikill hlýju og gleði.
Jóna Sigríður Jónsdóttir
Vigga eins og Jóna
Sigríður sér hana.
Bandaríkin Forkosningum Demó-
krata fyrir forsetakosningar í Banda-
ríkjunum á síðasta ári var hagrætt.
Þetta fullyrti Elizabeth Warren, öld-
ungadeildarþingmaður flokksins, í
gær. Warren var opinber stuðnings-
maður sigurvegarans Hillary Clin-
ton.
Fréttamaður CNN spurði þing-
manninn hvort Clinton hefði notið
stuðnings á bak við tjöldin í barátt-
unni við Bernie Sanders og svaraði
hún játandi.
Warren er ekki sú eina sem full-
yrðir þetta en svar hennar var við-
bragð við nýrri bók sem Donna
Brazile, fyrrverandi formaður mið-
stjórnar Demókrata, gaf út á dög-
unum.
Í bók Brazile kemur fram að hin
fjársvelta miðstjórn hafi gert sam-
komulag um sameiginlega fjáröflun
miðstjórnarinnar og framboðs Clin-
ton. – þea
Forvali hagrætt
í þágu Clinton
4 . n ó V e m B e r 2 0 1 7 l a u G a r d a G u r2 f r é t t i r ∙ f r é t t a B l a ð i ð
0
4
-1
1
-2
0
1
7
0
4
:3
3
F
B
1
2
0
s
_
P
1
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
1
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
2
5
-8
3
D
8
1
E
2
5
-8
2
9
C
1
E
2
5
-8
1
6
0
1
E
2
5
-8
0
2
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
1
2
0
s
_
3
_
1
1
_
2
0
1
7
C
M
Y
K