Fréttablaðið - 04.11.2017, Blaðsíða 88
Lífið og tilveran án bílprófs
Guðný
Hrönn
gudnyhronn@365.is
Nokkrir aðrir sem
eru ekki með bíl-
próf eða tóku bíl-
prófið seint:
Ágúst Bent, rappari og leikstjóri.
Hrafn Jónsson, pistlahöfundur.
Þórunn Antonía, tónlistarkona.
Bubbi Morthens, tónlistarmaður.
Inga Sæland, þingkona.
Saga Sigurðardóttir
ljósmyndari
Saga er nýkomin með bílpróf. Aðspurð af hverju hún fékk bílprófið tiltölulega seint segir
hún: „Ég átti kærasta þegar ég var í
menntaskóla sem var með bílpróf
svo ég var ekkert að flýta mér að fá
próf. Svo flutti ég til London og þar
er óþarfi að vera með bílpróf. Svo
kom ég til Íslands og tók þá loksins
prófið, 30 ára gömul.“
Hvernig gekk svo að taka bíl-
prófið? „Ég var hræðilega stressuð.
Það verður held ég erfiðara, eftir því
sem maður eldist, eins og að kenna
gömlum hundi að sitja,“ segir Saga
sem náði bæði verklega og bóklega
prófinu í fyrstu tilraun. „Ég var alveg
viss um að ég myndi falla í verk-
lega þegar ég var í prófinu, ég hafði
ekki verið svona stressuð lengi. En
ég náði og ég hef sjaldan verið jafn
glöð!“
Sögu þótti ekkert sérlega spenn-
andi tilhugsun að vera með bílpróf
þegar hún var unglingur að eigin
sögn. „En ég tók nokkra ökutíma og
fór í Ökuskóla 1. En ég bjó niðri í bæ
þar sem ég gat gengið hvert sem er.“
Hvernig fórst þú leiðar þinnar
þegar þú varst ekki með bílpróf? „Í
London er snilld að taka strætó og
lestina, þú þarft ekki bíl. Svo kom ég
heim og hingað til hef ég hjólað og
gengið allt enda bý ég í 101. Ég tók
taxa og var dugleg að sníkja far hjá
vinum. Mér finnst ekkert sérstak-
lega gott strætókerfið hérna heima,
en það hefur lagast og núna er frekar
auðvelt að fylgjast með í gegnum
appið. Miðað við kerfið í London
finnst mér almenningssamgöngur
hér lélegar,“ segir Saga.
Hefur bílprófsleysið aldrei valdið
þér vandræðum? „Jú, ég var mjög
háð öðrum og gat ekki skroppið
neitt. Ég þurfti að plana allt t.d. ferð
í Kópavog með fyrirvara, redda fari
o.s.frv. Mér fannst aðallega leiðin-
legt að vera háð öðrum og geta ekki
bara skroppið þangað sem ég vildi,“
útskýrir Saga sem er ekki búin að
kaupa sér bíl. Hún segir það hafa
sína kosti þar sem hún hreyfi sig
mikið vegna þess. Það er þó á dag-
skránni hjá henni að fjárfesta í bíl.
„Mig langar helst í rafmagnsbíl.“
Guðmundur Bjarki Ólafsson
þjónusturáðgjafi hjá Vodafone
Guðmundur er einn af þeim sem var ekkert að flýta sér að taka
bílprófið en hann tók
það í kringum þrítugt.
Hvað kemur til að
þú fékkst þér bílpróf
tiltölulega seint? „Það
kemur til af ýmsum
ástæðum, þyngst vegur
án efa staðreyndin að
foreldrar mínir ráku ekki bíl
svo ég ólst ekki upp við að það
væri keyrt neitt að ráði. Ég er fæddur
og uppalinn á Akureyri, en þar er án
erfiðleika hægt að komast upp með
að eiga ekki bíl. Ég kunni líka ágæt-
lega við að labba bara eitthvað einn
með sjálfum mér, flestar mikilvægar
ákvarðanir í lífi mínu hafa verið tekn-
ar á röltinu.“
Á unglingsárunum fékk Guð-
mundur gjarnan far með vinum og
félögum þegar hann þurfti að komast
á milli staða. „Einum allra besta vini
mínum kynntist ég þegar við sóttum
báðir nám í Verkmenntaskólanum
á Akureyri. Við sátum stærðfræði-
tíma í síðasta tíma á föstudögum, en
skutlið heim eftir kennslustund sem
hann bauð mér varð smám saman
að lengri rúntum um bæinn þar sem
við bundumst órjúfanlegum böndum
þeirra sem geta ekki lært stærðfræði.“
Hefur bílprófsleysið aldrei valdið
þér vandræðum? „Í raun ekki.
Í stóra samhenginu er ég
ekki mikilvægur og fáa
vantaði fulltingi mitt
með litlum fyrirvara á
þeim tíma. Allavega lá
fáum það mikið á að
fá mig í heimsókn að
ekki mætti hinkra eftir
að ég skilaði mér með
almenningssamgöngum,“
útskýrir Guðmundur sem
hefur í gegnum tíðina komist að
því að það er ekki gulltryggt að strætó
skili farþegum á áfangastað á réttum
tíma.
Aðspurður hvernig gekk að taka
bílprófið segir Guðmundur það hafa
gengið ljómandi vel. „Ég hafði góðan
ökukennara sem kunningjakona
mælti með, og hann dró mig í gegnum
ferlið af þolinmæði og fagmennsku.
Ég er stressaður einstaklingur að
eðlisfari og er þeirri náttúru gæddur
að ég get sannfært mig um að allt sem
aflaga fer skrifist beint á mig og van-
hæfni mína til að takast á við hindr-
anir daglegs lífs. Til allrar hamingju
talaði ökukennarinn rólega og virtist
ekki vera stressaður sjálfur yfir því að
vera í bíl þar sem ég var við stjórn-
völinn svo á endanum hafðist þetta,“
útskýrir Guðmundur. Hann keyrir
töluvert nú til dags en reynir að nota
strætó á veturna.
Helgi Hrafn Gunnarsson þingmaður Pírata
Helgi Hrafn fékk bíl-prófið í kringum tvítugt. „Nær
alfarið til að losna við
hópþrýsting og sífellt
hjal nærstaddra um
hvað það væri mikil-
vægt frelsi og allt það.
Hins vegar endurnýjaði
ég það aldrei og það rann
út,“ segir Helgi sem hafði ein-
faldlegan engan áhuga á að fá bíl-
próf þegar hann náði bílprófsaldr-
inum.
Spurður út í hvort hann sé dug-
legur við að nota almenningssam-
göngur segir hann: „Ég myndi ekki
segja „duglegur“ því það er ekkert
endilega neinn sérstakur dugnaður
fólginn í því. Almenningssamgöng-
ur eru ágætar, hvað sem fólk segir.
Ég nota strætó mjög mikið
og finnst það bara ljóm-
andi fínn kostur. Maður
getur lesið í símanum,
hlustað á podcast eða
jafnvel notað tölvuna
í lengri ferðum. Ég tók
reglulega 45 mínútna
strætóferðir í vor og for-
ritaði bara á meðan.“
Hefur bílprófsleysið aldrei
valdið þér vandræðum? „Ekki svo
ég muni, nema því að nærstöddum
finnst það gjarnan vera heilagur
réttur þeirra að ég sé með bílpróf.
Það er mikil tilætlunarsemi gagn-
vart þessu í íslensku samfélagi.“
Er planið að fá sér bílpróf á næst-
unni? „Ekki nema ég eignist barn, en
þá myndi ég meira að segja einungis
gera það fyrir konuna mína.“
Margt fólk kannast
við að hafa beðið
með eftirvæntingu
eftir að ná 17 ára
aldri og fá bílpróf.
En það á ekki við
um alla. Á meðan
mörgum þykir al-
gjörlega ómissandi
að fara allra ferða
sinna keyrandi þá
eru aðrir sem eru
ekkert að flýta sér
að taka bílpróf. Helgi
Hrafn, Saga Sig og
Guðmundur Bjarki
eru á meðal þeirra.
Margir unglingar bíða ofurspenntir eftir að ná 16 ára aldri því þá er hægt að byrja að læra á bíl fyrir alvöru. Svo eru sumir sem eru lítið að velta sér upp úr þessum málum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Ég var alveg viss um
að Ég myndi falla í
verklega þegar Ég var
í prófinu, Ég hafði ekki
verið svona stressuð
lengi.
Saga sigurðardóttir.
4 . n ó v e m b e r 2 0 1 7 L A U G A r D A G U r40 H e L G i n ∙ F r É T T A b L A ð i ð
0
4
-1
1
-2
0
1
7
0
4
:3
3
F
B
1
2
0
s
_
P
0
8
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
8
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
E
2
5
-C
D
E
8
1
E
2
5
-C
C
A
C
1
E
2
5
-C
B
7
0
1
E
2
5
-C
A
3
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
1
2
0
s
_
3
_
1
1
_
2
0
1
7
C
M
Y
K