Fréttablaðið - 04.11.2017, Blaðsíða 48
Sérfræðingur á
stjórnsýslusviði
Ríkisendurskoðun auglýsir laust til umsóknar starf sér-
fræðings á stjórnsýslusviði stofnunarinnar. Á sviðinu starfar
fólk með margvíslega menntun. Meginviðfangsefni þess
eru stjórnsýsluúttektir, þ.e. að meta frammistöðu þeirra
aðila sem ríkisendurskoðandi hefur eftirlit með. Einkum er
horft til þess hvort hagkvæmni og skilvirkni sé gætt í rekstri
stofnana og fyrirtækja í eigu ríkisins og hvort framlög ríkisins
skili þeim árangri sem að er stefnt. Um er að ræða fjölbreytt
og krefjandi starf. Leitað er að metnaðarfullum einstaklingi
sem hefur reynslu af úttektarvinnu og skýrslugerð, er mjög
vel ritfær, vandvirkur og með góða greiningar- og ályktunar-
hæfni.
Helstu verkefni og ábyrgð
Starf sérfræðings felst í úttektarvinnu og skýrslugerð auk
almennrar þátttöku í innra starfi sviðsins. Hann starfar
sjálfstætt að verkefnum sínum í samræmi við gæðakröfur
stjórnsýslusviðs og starfsáætlanir og þarf að geta leitt þau til
lykta í samvinnu við sviðsstjóra / deildarstjóra.
Hæfnikröfur
• Háskólamenntun (meistarapróf) sem nýtist í starfi
• Reynsla af vinnu við úttektir / skýrslugerð
• Þekking á ríkisrekstri og opinberri stjórnsýslu
• Samviskusemi, frumkvæði og sjálfstæði í starfi
• Sveigjanleiki og hæfni í mannlegum samskiptum
• Gagnrýnin og lausnarmiðuð hugsun
• Færni í greiningu, úrvinnslu og miðlun tölulegra gagna
• Mjög góð kunnátta í íslensku og geta til að skrifa hnit-
miðaðan, vandaðan og læsilegan texta
• Gott vald á Word og Excel og hæfileiki til að tileinka sér
ný tölvukerfi
• Góð enskukunnátta er nauðsynleg og kunnátta í einu
Norðurlandamáli æskileg
Frekari upplýsingar um starfið
Um fullt starf er að ræða og skal sótt um á vef Starfatorgs,
starfatorg.is. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem
fyrst. Nauðsynlegt er að umsókn fylgi starfsferilskrá, kynn-
ingarbréf, afrit af staðfestum prófskírteinum og upplýsingar
um umsagnaraðila. Konur jafnt sem karlar eru hvött til að
sækja um starfið. Um launakjör fer samkvæmt kjarasamn-
ingi Starfsmannafélags Ríkisendurskoðunar.
Öllum umsóknum verður svarað þegar tekin hefur verið
ákvörðun um ráðningu.
Umsókn getur gilt í sex mánuði frá lokum umsóknarfrests.
Umsóknarfrestur er til og með 13.11.2017
Nánari upplýsingar veitir Þórir Óskarsson - thorir@rikisend.is
Ríkisendurskoðun er sjálfstæð stofnun sem starfar á vegum
Alþingis. Stofnunin endurskoðar ríkisreikning og reikninga
ríkisaðila, hefur eftirlit með og stuðlar að umbótum á fjármála-
stjórn ríkisins og nýtingu almannafjár. Hún gerir grein fyrir
niðurstöðum úttekta í skýrslum sem sendar eru Alþingi og birtar
opinberlega. Ríkisendurskoðandi ræður starfsfólk stofnunarinnar.
Ríkisendurskoðun er til húsa í Bríetartúni 7, 107 Reykjavík.
Starfsmenn eru nú samtals 47.
Sjá nánar: www.rikisendurskodun.is
Bifvélavirki óskast
Aðalskoðun hf. óskar eftir að ráða bifvélavirkja til starfa við
skoðun ökutækja á höfuðborgarsvæðinu. Um framtíðarstarf er að
ræða. Umsóknarfrestur er til 18. nóvember.
Sveinspróf í bifvélavirkjun skilyrði.
Aðalskoðun leggur áherslu á fagleg vinnubrögð við skoðun
ökutækja og ríka þjónustulund, en í starfinu felast eðlilega mikil
samskipti við viðskiptavini.
Nánari upplýsingar veita Árni Stefánsson þjónustustjóri
og Hörður Harðarson fagstjóri. Sími 5906900.
Umsóknir sendist til Árna Stefánssonar, arni@adalskodun.is.
Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál og öllum
umsóknum verður svarað að loknum umsóknarfresti.
Aðalskoðun hf. er faggild óháð skoðunarstofa sem starfrækir í dag
fjórar skoðunarstöðvar á höfuðborgarsvæðinu ásamt skoðu-
narstöð í Reykjanesbæ. Aðalskoðun sinnir einnig skoðunum í
Grundarfirði, Ólafsfirði og Reyðarfirði.
U M S Ó K N I R :
I S AV I A . I S/AT V I N N A
S TA R F S S T Ö Ð :
K E F L AV Í K U R F L U G V Ö L L U R
V I L T Þ Ú V E R Ð A H L U T I
A F G Ó Ð U F E R Ð A L A G I ?
Hjá Isavia starfar öflugur hópur fólks sem allt hefur það að markmiði að vera hluti
af góðu ferðalagi þeirra sem fara um flugvelli félagsins og íslenska flugstjórnarsvæðið.
Nú vantar okkur fleiri til að vera hluti af góðu ferðalagi með okkur.
K E N N S L U R Á Ð G J A F I
Kennsluráðgjafi sér um gerð og þróun kennsluefnis, hæfnismats
og kennsluleiðbeininga og aðstoðar leiðbeinendur við kennslu.
Kennsluráðgjafi starfar með námsbrautarstjóra við útfærslu
og samræmingu þjálfunarmála á öllum flugvöllum Isavia.
Hæfniskröfur
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi er skilyrði,
t.d. kennaramenntun
• Reynsla af kennslu og/eða fullorðinsfræðslu og gerð
námsefnis er nauðsynleg
• Reynsla af skipulagningu þjálfunar innan
fyrirtækja er kostur
• Reynsla af skipulagningu fjarnáms og utanumhalds
í fjarnámskerfi (Moodle) er kostur
• Góð almenn tölvukunnátta
• Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti
Umsóknarfrestur: 19. nóvember
Nánari upplýsingar veitir Gerður Pétursdóttir,
fræðslustjóri, gerdur.petursdottir@isavia.is.
Sif er flugumferðarstjóri í
flugturninum á Keflavíkurflugvelli.
Hún er hluti af góðu ferðalagi.
Isavia hefur hlotið gullmerki PwC fyrir launajafnrétti í jafnlaunaúttekt PwC árlega frá 2015.
Við erum stolt af þeirri niðurstöðu og er hún í takt við jafnréttisáætlun félagsins sem
hefur það að markmiði að nýta hæfni, krafta og kunnáttu starfsmanna til fulls án þess að
kynbundin mismunun eigi sér stað.
Umsóknarfrestur: 19. nóvember
V I Ð S K I P T A S T J Ó R I V E I T I N G A -
O G V I Ð B Ó T A R Þ J Ó N U S T U
Viðskiptadeild Isavia á Keflavíkurflugvelli leitar að framsæknum
einstaklingi til framtíðarstarfa í krefjandi og alþjóðlegu starfs-
umhverfi. Viðskiptastjóri vinnur með veitinga- og þjónustuaðilum
að því að tryggja öllum sem eiga leið um Keflavíkurflugvöll sem
besta upplifun og þjónustu.
Helstu verkefni eru stuðningur og dagleg samskipti við veitingaaðila,
eftirlit og greiningar á rekstrar- og þjónustuárangri, þátttaka í þróun
á veitingaframboði og utanumhald viðbótarþjónustu.
Hæfniskröfur
• Háskólanám sem nýtist í starfi
• Framúrskarandi samskiptahæfileikar
• Góð þekking og reynsla í meðhöndlun gagna, tölfræði
og útfærslu árangursmælikvarða
• Nákvæmni, frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
Nánari upplýsingar veitir Gunnhildur Vilbergsdóttir,
deildarstjóri viðskipta, gunnhildur.vilbergsdottir@isavia.is.
www.hagvangur.is
Sterk tengsl
í íslensku atvinnulífi
6 ATVINNUAUGLÝSINGAR 4 . N óV e m b e R 2 0 1 7 L AU G A R DAG U R
0
4
-1
1
-2
0
1
7
0
4
:3
3
F
B
1
2
0
s
_
P
0
7
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
7
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
2
5
-D
C
B
8
1
E
2
5
-D
B
7
C
1
E
2
5
-D
A
4
0
1
E
2
5
-D
9
0
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
1
2
0
s
_
3
_
1
1
_
2
0
1
7
C
M
Y
K