Fréttablaðið - 04.11.2017, Blaðsíða 92
Um miðja fjórtándu öld gekk skelfileg farsótt yfir Evrópu. Plágan eða svarti-dauði eins og far-aldurinn var síðar
kallaður meðal nokkurra norður-
evrópskra þjóða, olli gríðarlegum
hamförum. Nær útilokað er að
áætla mannfallið með nákvæmni,
en sagnfræðingum telst til að á bil-
inu 30-60% af íbúum álfunnar hafi
látið lífið.
Lýðfræðilegar breytingar af þess-
ari stærðargráðu hlutu að hafa
miklar og víðtækar afleiðingar og
hafa fræðimenn keppst við að rekja
hvers kyns þjóðfélagsbreytingar á
síðmiðöldum til plágunnar. Þannig
hafa sumir viljað rekja galdrafárið í
Evrópu til svartadauða, aðrir leita í
faraldrinum orsaka gyðingaofsókna
í álfunni. Enn aðrir álíta að þar sé
að finna ástæður þess að lénskerfið
leið undir lok, landnámi norrænna
manna lauk í Norður-Ameríku,
sigurför Ottómanaveldisins í Mið-
austurlöndum, hrun Mongólaríkis-
ins, upphaf vísindahyggju og svo
mætti lengi telja.
Kenningarnar eru margar og
misvinsælar, en öllum ber saman
um að miðaldaplágan hafi verið
einn áhrifamesti atburður sög-
unnar. Sömu sögu megi segja um
plágu Jústaníusar, sem kennd var
við keisarann sem ríkti í Konstan-
tínópel þegar faraldur reið yfir
um miðja sjöttu öld. Sú farsótt var
að líkindum viðlíka mannskæð
og hefur verið notuð til að skýra
margvíslegar menningarlegar og
samfélagslegar breytingar í Evrópu
næstu aldirnar á eftir.
Fyrir nútímalesendur kunna
slíkar orsakaskýringar að virðast
svo augljósar að tæpast þurfi að
skýra þær sérstaklega. Að sjálf-
sögðu hljóta hamfarir sem þurrka
út allt að helming mannfjöldans á
einu bretti að hafa gríðarleg áhrif
jafnt á hugarfar, trúarbrögð, vísindi,
atvinnuhætti og stjórnmál.
Nema hvað?
Vanrækt svið
Þessi sögusýn hefur þó
ekki alltaf verið ríkjandi.
Sagnfræðingar á átjándu öld
og í byrjun þeirrar nítjándu
gátu varla um farsóttir nema
í framhjáhlaupi í verkum
sínum og það þá helst ef þær
höfðu lagt að velli höfðingja
og stórmenni. Sjúkdómar og
náttúruhamfarir voru álitin
fyrirbæri sem mannlegur
máttur fengi engu um ráðið
og því óæskilegt að grípa til
þeirra sem orsakaskýringa í
sagnfræði, sem ætti að fela í
sér siðferðislegan boðskap.
Það var ekki fyrr en komið
var fram á nítjándu öldina að
heilbrigðis- og farsóttasaga
varð viðurkennd sem alvöru
fræðigrein og um leið kvikn-
aði áhuginn á sjúkdómum og
afleiðingum þeirra í sögunni. Ef
nefna ætti upphafsmann þess-
arar nýju hreyfingar, kemur
aðeins einn til greina – Þjóð-
verjinn Justus Friedrich Carl
Hecker.
Hecker var Berlínarbúi,
fæddur árið 1795 og fetaði í
fótspor föður síns með því að
læra til læknis. Þegar á námsár-
unum hneigðist áhuginn þó
fremur til sagnfræði og tungu-
mála. Fyrir vikið sökkti hann
sér ofan í sögu læknisfræðinnar,
sem heita mátti órannsakað svið.
Rannsóknirnar vöktu áhuga yfir-
manna læknadeildar Berlínar-
háskóla og hlaut hann kennara-
stöðu í greininni skömmu eftir
útskrift og varð prófessor fáein-
um árum síðar.
Það var engin tilviljun að Háskól-
inn í Berlín væri í fararbroddi í
rannsóknum á þessu nýja viðfangs-
efni sagnfræðinnar. Ný og áhrifa-
mikil sýn á markmið og viðfangs-
efni sagnfræðinga var að koma fram
í Þýskalandi um þessar mundir.
Einn skeleggasti talsmaður hennar
var Leopold von Ranke, sem bjó
til það slagorð að sagnfræðingum
bæri að segja söguna eins og hún
gerðist í raun (þ. „wie es eigentlich
gewesen“).
Fylgjendur Ranke lögðu litla
áherslu á að leggja fram heildar-
kenningar eða draga saman niður-
stöður rannsókna sinna, heldur
kappkostuðu þeir að tína til sem
mestar upplýsingar úr heimild-
Saga
til næsta
bæjar
Stefán Pálsson skrifar
um sögu sjúkdóma
unum, skýra sem nákvæmast frá
viðfangsefninu og láta staðreynd-
irnar tala sínu máli. Nálgun þessi
var mjög innblásin af rómantísku
stefnunni, sem horfði á margt í
fortíðinni, svo sem alþýðumenn-
ingu og þjóðhætti, með jákvæðari
augum en tíðkast hafði. Ein birt-
ingarmynd þess var áhugi á hvers
kyns þjóðsagnaarfi. Viðfangsefni
sagnfræðinga tóku því breytingum.
Í stað þess að fjalla einungis um
kónga og höfðingja, urðu híbýli,
atvinnuhættir og heilsufar að viður-
kenndum rannsóknarefnum.
Plága hinna vanþróuðu
Það voru þó ekki bara ferskir
straumar í sagnfræðirannsóknum
sem urðu til þess að koma farsóttum
miðalda á kortið hjá sagnfræðing-
um, heldur einnig ógn sem steðjaði
að íbúum Vestur-Evrópu: kóleran.
Þótt margir hafi þá staðalmynd af
fyrri öldum að þá hafi fólk í sífellu
mátt þola hinar skelfilegustu far-
sóttir, var raunveruleikinn nokkuð
flóknari. Eftir svartadauða var plága
landlæg í Evrópu um aldir og gekk í
litlum og staðbundnum faröldrum
á fáeinna ára fresti. Á sautjándu öld
hafði máttur plágunnar farið mjög
þverrandi og á átjándu öld mátti
Vestur-Evrópa að mestu heita laus
við stórar farsóttir.
Þessi staðreynd skýrðist af miklu
leyti af heppni og bágum samgöng-
um, en í huga upplýsingarmanna
átjándu aldar var það órækt dæmi
um framfarir og yfirburði samtím-
ans. Bjartsýnir evrópskir læknar
freistuðust jafnvel til að lýsa því yfir
að tími mikilla farsótta væri liðinn
í hinum þróaðri svæðum álfunnar.
Ítrekaðar fregnir af drepsóttum í
fjarlægum löndum, svo sem í Mið-
Austurlöndum væru því öðru frem-
ur til marks um lágt menningarstig
fólks þar um slóðir.
Svo rammt kvað að þessum kenn-
ingum að ríkisstjórn Katrínar miklu
keisaraynju harðneitaði að viður-
kenna tilvist skæðs plágufaraldurs
í Rússlandi á árunum 1770-75 og
reyndi að koma í veg fyrir að fregnir
um hann bærust út fyrir landstein-
ana. Það var einfaldlega talið álits-
hnekkir fyrir ríkið ef spyrðist út að
þar í landi gætu enn komið upp far-
sóttir.
Vitaskuld var átjánda öldin ekki
laus við sjúkdóma og fjöldi fólks
dó úr sóttum sem í dag teljast auð-
læknanlegar, en þær hjuggu stærst
skörðin í raðir fátæklinga. Óheil-
næm húsakynni, slæm fæða, meng-
un og léleg vatnsból minnkuðu við-
námsþrótt alþýðunnar í borgunum,
en þeir efnameiri höfðu litla ástæðu
til að óttast, þrátt fyrir að búa jafn-
vel undir sama þaki og lágstéttirnar.
Ýmsir barnasjúkdómar drápu þó
jafnt afkvæmi ríkra og snauðra, en
barnadauði var talinn óumflýjan-
legur og því ástæðulaust að fárast
yfir slíku.
Sú sannfæring Vestur-Evrópu-
búa að farsóttir væru bundnar við
afskekkt og vanþróuð lönd, olli því
að fáir kipptu sér upp við fréttir
af kólerufaraldri sem braust út í
Bengal árið 1817. Næstu árin var
sóttin bundin við Indlandsskaga,
en mjakaðist með tímanum vestur
á bóginn. Árið 1829 varð kóleru vart
syðst í Evrópuhluta Rússlands og þá
loks tóku viðvörunarbjöllurnar að
hringja í stórborgum álfunnar.
Skyndilega stóðu góðborgarar
Vestur-Evrópu frammi fyrir alveg
nýjum veruleika. Nývæðingin og
tækniframfarirnar, sem taldar
höfðu verið vörn fyrir drepsóttum
fyrri alda höfðu skyndilega snúist
upp í andhverfu sína. Kólera er
skæður meltingarfærasjúkdómum
sem veldur miklu vökvatapi á
skömmum tíma. Ganghraði hennar
er mikill, sem lengst af takmarkaði
útbreiðslugetuna. Þeim sýktu gafst
einfaldlega ekki tími til að flytja
sjúkdóminn um langan veg áður
en þeir lögðust í bælið.
Nýjar ógnir
Með sífellt öflugri samgöngum
og auknum milliríkjaviðskiptum
tóku dreifingarleiðir sjúkdóma
miklum breytingum. Með eim-
reiðum og hraðskreiðum skipum
styttist ferðatíma milli fjarlægra
borga verulega, jafnt á varningi,
fólki – og sjúkdómum. Við þessar
aðstæður máttu landamæri sín lít-
ils og helstu verslunarborgir voru
í verulegri hættu. Næstu misserin
breiddist kóleran út um Evrópu
og herjaði einkum á stórborgir.
Og öfugt við hefðbundna fátæk-
lingasjúkdóma eirði faraldurinn
engum. Efnafólk var í sömu hættu
og alþýðan.
Það var við þessar aðstæður
sem Justus Hecker flutti tíma-
mótafyrirlestra sína í Berlín um
farsóttir miðalda, sem gefnir
voru út á bók árið 1832. Þar
fjallaði Hecker um þrjár mið-
aldasóttir: hina sérkennilegu
svitasótt, sem lýsti sér í ofsa-
fengnum svitaköstum; dans-
fárið, þar sem þau sem veiktust
brutust í trylltan og óstöðvandi
dans jafnvel svo dögum skipti og
miðaldapláguna. Hecker notað-
ist við hugtakið svartadauða, sem
ekki hafði verið sérstaklega útbreitt
og má eigna honum vinsældir þess
í þýsku og Norðurlandamálunum.
Í huga Heckers þjónaði rannsókn-
in á sögu farsótta miðalda öðru og
mikilvægara hlutverki en að svala
fróðleiksfýsn sagnfræðigrúskara. Að
hans mati fælu frásagnir af gömlum
faröldrum í sér mikilvægar upplýs-
ingar fyrir læknavísindi samtímans.
Óþarft væri að gera lítið úr læknum
fyrri alda, sem hafi um margt vitað
sínu viti og af þeim mætti ýmislegt
læra. Þá áleit Hecker að með því að
kortleggja nákvæmlega útbreiðslu
miðaldaplágunnar, mætti sjá fyrir
mögulega framvindu sjúkdóma í
framtíðinni. Brýnast taldi fræði-
maðurinn þó að fá úr því skorið
hvort forfeðrunum hefði tekist að
verjast plágu með því að setja sæfar-
endur í sóttkví, en hart var deilt um
hvort grípa skyldi til slíkra ráða
gegn kólerunni.
Í dag hljómar það sérkennilega
að reyna að fræðast um eðli kól-
eru með því að rannsaka plágu, en
á fyrri hluta nítjándu aldar var sú
tenging ekki eins fráleit. Vitneskjan
um bakteríur sem sóttkveikjur var
ekki fyrir hendi, heldur voru sjúk-
dómar taldir smitast vegna stað-
bundinna jarðgufa eða jafnvel fyrir
tilstilli stjörnumerkjanna. Sjúk-
dómshugtakið var allt annað en
við þekkjum í dag. Sú hugmynd var
til að mynda útbreidd að plága væri
ekki sjálfstæður sjúkdómur, heldur
gætu allar farsóttir breyst í plágu við
réttar aðstæður.
Næstu áratugina kom það í hlut
heilbrigðisyfirvalda í Evrópu að
kljást við kóleru og tókst að lokum
að ráða niðurlögum hennar. Það
gerðist ekki með lestri á læknakver-
um miðalda heldur með umbótum
á sviði lýðheilsumála og þá einkum
með gerð nútímavatnsveitna. En
áhugi fólks á farsóttum fyrri tíma
var vakinn og heilbrigðissagan
komin á kortið.
…þau Sem veiktuSt
brutuSt í trylltan og
óStöðvandi danS.
Ógnin úr austrinu
ERTU LÖNGU HÆTTUR AÐ TAKA Í NEFIÐ
EN SITUR UPPI MEÐ SKEMMDIRNAR!
Hlíðasmára 9 • Kópavogi • S. 893 0098 • snyrt@snyrt.is • www.snyrt.is
Snyrtistofan Ha lik
Okkar sérsvið er
háræðaslitsmeðferðir.
Fyrir þá sem vilja
alvöru árangur !
4 . n ó v e m b e r 2 0 1 7 L A U G A r D A G U r44 H e L G i n ∙ F r É T T A b L A ð i ð
0
4
-1
1
-2
0
1
7
0
4
:3
3
F
B
1
2
0
s
_
P
1
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
9
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
E
2
5
-A
1
7
8
1
E
2
5
-A
0
3
C
1
E
2
5
-9
F
0
0
1
E
2
5
-9
D
C
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
1
2
0
s
_
3
_
1
1
_
2
0
1
7
C
M
Y
K