Fréttablaðið - 04.11.2017, Síða 92

Fréttablaðið - 04.11.2017, Síða 92
Um miðja fjórtándu öld gekk skelfileg farsótt yfir Evrópu. Plágan eða svarti-dauði eins og far-aldurinn var síðar kallaður meðal nokkurra norður- evrópskra þjóða, olli gríðarlegum hamförum. Nær útilokað er að áætla mannfallið með nákvæmni, en sagnfræðingum telst til að á bil- inu 30-60% af íbúum álfunnar hafi látið lífið. Lýðfræðilegar breytingar af þess- ari stærðargráðu hlutu að hafa miklar og víðtækar afleiðingar og hafa fræðimenn keppst við að rekja hvers kyns þjóðfélagsbreytingar á síðmiðöldum til plágunnar. Þannig hafa sumir viljað rekja galdrafárið í Evrópu til svartadauða, aðrir leita í faraldrinum orsaka gyðingaofsókna í álfunni. Enn aðrir álíta að þar sé að finna ástæður þess að lénskerfið leið undir lok, landnámi norrænna manna lauk í Norður-Ameríku, sigurför Ottómanaveldisins í Mið- austurlöndum, hrun Mongólaríkis- ins, upphaf vísindahyggju og svo mætti lengi telja. Kenningarnar eru margar og misvinsælar, en öllum ber saman um að miðaldaplágan hafi verið einn áhrifamesti atburður sög- unnar. Sömu sögu megi segja um plágu Jústaníusar, sem kennd var við keisarann sem ríkti í Konstan- tínópel þegar faraldur reið yfir um miðja sjöttu öld. Sú farsótt var að líkindum viðlíka mannskæð og hefur verið notuð til að skýra margvíslegar menningarlegar og samfélagslegar breytingar í Evrópu næstu aldirnar á eftir. Fyrir nútímalesendur kunna slíkar orsakaskýringar að virðast svo augljósar að tæpast þurfi að skýra þær sérstaklega. Að sjálf- sögðu hljóta hamfarir sem þurrka út allt að helming mannfjöldans á einu bretti að hafa gríðarleg áhrif jafnt á hugarfar, trúarbrögð, vísindi, atvinnuhætti og stjórnmál. Nema hvað? Vanrækt svið Þessi sögusýn hefur þó ekki alltaf verið ríkjandi. Sagnfræðingar á átjándu öld og í byrjun þeirrar nítjándu gátu varla um farsóttir nema í framhjáhlaupi í verkum sínum og það þá helst ef þær höfðu lagt að velli höfðingja og stórmenni. Sjúkdómar og náttúruhamfarir voru álitin fyrirbæri sem mannlegur máttur fengi engu um ráðið og því óæskilegt að grípa til þeirra sem orsakaskýringa í sagnfræði, sem ætti að fela í sér siðferðislegan boðskap. Það var ekki fyrr en komið var fram á nítjándu öldina að heilbrigðis- og farsóttasaga varð viðurkennd sem alvöru fræðigrein og um leið kvikn- aði áhuginn á sjúkdómum og afleiðingum þeirra í sögunni. Ef nefna ætti upphafsmann þess- arar nýju hreyfingar, kemur aðeins einn til greina – Þjóð- verjinn Justus Friedrich Carl Hecker. Hecker var Berlínarbúi, fæddur árið 1795 og fetaði í fótspor föður síns með því að læra til læknis. Þegar á námsár- unum hneigðist áhuginn þó fremur til sagnfræði og tungu- mála. Fyrir vikið sökkti hann sér ofan í sögu læknisfræðinnar, sem heita mátti órannsakað svið. Rannsóknirnar vöktu áhuga yfir- manna læknadeildar Berlínar- háskóla og hlaut hann kennara- stöðu í greininni skömmu eftir útskrift og varð prófessor fáein- um árum síðar. Það var engin tilviljun að Háskól- inn í Berlín væri í fararbroddi í rannsóknum á þessu nýja viðfangs- efni sagnfræðinnar. Ný og áhrifa- mikil sýn á markmið og viðfangs- efni sagnfræðinga var að koma fram í Þýskalandi um þessar mundir. Einn skeleggasti talsmaður hennar var Leopold von Ranke, sem bjó til það slagorð að sagnfræðingum bæri að segja söguna eins og hún gerðist í raun (þ. „wie es eigentlich gewesen“). Fylgjendur Ranke lögðu litla áherslu á að leggja fram heildar- kenningar eða draga saman niður- stöður rannsókna sinna, heldur kappkostuðu þeir að tína til sem mestar upplýsingar úr heimild- Saga til næsta bæjar Stefán Pálsson skrifar um sögu sjúkdóma unum, skýra sem nákvæmast frá viðfangsefninu og láta staðreynd- irnar tala sínu máli. Nálgun þessi var mjög innblásin af rómantísku stefnunni, sem horfði á margt í fortíðinni, svo sem alþýðumenn- ingu og þjóðhætti, með jákvæðari augum en tíðkast hafði. Ein birt- ingarmynd þess var áhugi á hvers kyns þjóðsagnaarfi. Viðfangsefni sagnfræðinga tóku því breytingum. Í stað þess að fjalla einungis um kónga og höfðingja, urðu híbýli, atvinnuhættir og heilsufar að viður- kenndum rannsóknarefnum. Plága hinna vanþróuðu Það voru þó ekki bara ferskir straumar í sagnfræðirannsóknum sem urðu til þess að koma farsóttum miðalda á kortið hjá sagnfræðing- um, heldur einnig ógn sem steðjaði að íbúum Vestur-Evrópu: kóleran. Þótt margir hafi þá staðalmynd af fyrri öldum að þá hafi fólk í sífellu mátt þola hinar skelfilegustu far- sóttir, var raunveruleikinn nokkuð flóknari. Eftir svartadauða var plága landlæg í Evrópu um aldir og gekk í litlum og staðbundnum faröldrum á fáeinna ára fresti. Á sautjándu öld hafði máttur plágunnar farið mjög þverrandi og á átjándu öld mátti Vestur-Evrópa að mestu heita laus við stórar farsóttir. Þessi staðreynd skýrðist af miklu leyti af heppni og bágum samgöng- um, en í huga upplýsingarmanna átjándu aldar var það órækt dæmi um framfarir og yfirburði samtím- ans. Bjartsýnir evrópskir læknar freistuðust jafnvel til að lýsa því yfir að tími mikilla farsótta væri liðinn í hinum þróaðri svæðum álfunnar. Ítrekaðar fregnir af drepsóttum í fjarlægum löndum, svo sem í Mið- Austurlöndum væru því öðru frem- ur til marks um lágt menningarstig fólks þar um slóðir. Svo rammt kvað að þessum kenn- ingum að ríkisstjórn Katrínar miklu keisaraynju harðneitaði að viður- kenna tilvist skæðs plágufaraldurs í Rússlandi á árunum 1770-75 og reyndi að koma í veg fyrir að fregnir um hann bærust út fyrir landstein- ana. Það var einfaldlega talið álits- hnekkir fyrir ríkið ef spyrðist út að þar í landi gætu enn komið upp far- sóttir. Vitaskuld var átjánda öldin ekki laus við sjúkdóma og fjöldi fólks dó úr sóttum sem í dag teljast auð- læknanlegar, en þær hjuggu stærst skörðin í raðir fátæklinga. Óheil- næm húsakynni, slæm fæða, meng- un og léleg vatnsból minnkuðu við- námsþrótt alþýðunnar í borgunum, en þeir efnameiri höfðu litla ástæðu til að óttast, þrátt fyrir að búa jafn- vel undir sama þaki og lágstéttirnar. Ýmsir barnasjúkdómar drápu þó jafnt afkvæmi ríkra og snauðra, en barnadauði var talinn óumflýjan- legur og því ástæðulaust að fárast yfir slíku. Sú sannfæring Vestur-Evrópu- búa að farsóttir væru bundnar við afskekkt og vanþróuð lönd, olli því að fáir kipptu sér upp við fréttir af kólerufaraldri sem braust út í Bengal árið 1817. Næstu árin var sóttin bundin við Indlandsskaga, en mjakaðist með tímanum vestur á bóginn. Árið 1829 varð kóleru vart syðst í Evrópuhluta Rússlands og þá loks tóku viðvörunarbjöllurnar að hringja í stórborgum álfunnar. Skyndilega stóðu góðborgarar Vestur-Evrópu frammi fyrir alveg nýjum veruleika. Nývæðingin og tækniframfarirnar, sem taldar höfðu verið vörn fyrir drepsóttum fyrri alda höfðu skyndilega snúist upp í andhverfu sína. Kólera er skæður meltingarfærasjúkdómum sem veldur miklu vökvatapi á skömmum tíma. Ganghraði hennar er mikill, sem lengst af takmarkaði útbreiðslugetuna. Þeim sýktu gafst einfaldlega ekki tími til að flytja sjúkdóminn um langan veg áður en þeir lögðust í bælið. Nýjar ógnir Með sífellt öflugri samgöngum og auknum milliríkjaviðskiptum tóku dreifingarleiðir sjúkdóma miklum breytingum. Með eim- reiðum og hraðskreiðum skipum styttist ferðatíma milli fjarlægra borga verulega, jafnt á varningi, fólki – og sjúkdómum. Við þessar aðstæður máttu landamæri sín lít- ils og helstu verslunarborgir voru í verulegri hættu. Næstu misserin breiddist kóleran út um Evrópu og herjaði einkum á stórborgir. Og öfugt við hefðbundna fátæk- lingasjúkdóma eirði faraldurinn engum. Efnafólk var í sömu hættu og alþýðan. Það var við þessar aðstæður sem Justus Hecker flutti tíma- mótafyrirlestra sína í Berlín um farsóttir miðalda, sem gefnir voru út á bók árið 1832. Þar fjallaði Hecker um þrjár mið- aldasóttir: hina sérkennilegu svitasótt, sem lýsti sér í ofsa- fengnum svitaköstum; dans- fárið, þar sem þau sem veiktust brutust í trylltan og óstöðvandi dans jafnvel svo dögum skipti og miðaldapláguna. Hecker notað- ist við hugtakið svartadauða, sem ekki hafði verið sérstaklega útbreitt og má eigna honum vinsældir þess í þýsku og Norðurlandamálunum. Í huga Heckers þjónaði rannsókn- in á sögu farsótta miðalda öðru og mikilvægara hlutverki en að svala fróðleiksfýsn sagnfræðigrúskara. Að hans mati fælu frásagnir af gömlum faröldrum í sér mikilvægar upplýs- ingar fyrir læknavísindi samtímans. Óþarft væri að gera lítið úr læknum fyrri alda, sem hafi um margt vitað sínu viti og af þeim mætti ýmislegt læra. Þá áleit Hecker að með því að kortleggja nákvæmlega útbreiðslu miðaldaplágunnar, mætti sjá fyrir mögulega framvindu sjúkdóma í framtíðinni. Brýnast taldi fræði- maðurinn þó að fá úr því skorið hvort forfeðrunum hefði tekist að verjast plágu með því að setja sæfar- endur í sóttkví, en hart var deilt um hvort grípa skyldi til slíkra ráða gegn kólerunni. Í dag hljómar það sérkennilega að reyna að fræðast um eðli kól- eru með því að rannsaka plágu, en á fyrri hluta nítjándu aldar var sú tenging ekki eins fráleit. Vitneskjan um bakteríur sem sóttkveikjur var ekki fyrir hendi, heldur voru sjúk- dómar taldir smitast vegna stað- bundinna jarðgufa eða jafnvel fyrir tilstilli stjörnumerkjanna. Sjúk- dómshugtakið var allt annað en við þekkjum í dag. Sú hugmynd var til að mynda útbreidd að plága væri ekki sjálfstæður sjúkdómur, heldur gætu allar farsóttir breyst í plágu við réttar aðstæður. Næstu áratugina kom það í hlut heilbrigðisyfirvalda í Evrópu að kljást við kóleru og tókst að lokum að ráða niðurlögum hennar. Það gerðist ekki með lestri á læknakver- um miðalda heldur með umbótum á sviði lýðheilsumála og þá einkum með gerð nútímavatnsveitna. En áhugi fólks á farsóttum fyrri tíma var vakinn og heilbrigðissagan komin á kortið. …þau Sem veiktuSt brutuSt í trylltan og óStöðvandi danS. Ógnin úr austrinu ERTU LÖNGU HÆTTUR AÐ TAKA Í NEFIÐ EN SITUR UPPI MEÐ SKEMMDIRNAR! Hlíðasmára 9 • Kópavogi • S. 893 0098 • snyrt@snyrt.is • www.snyrt.is Snyrtistofan Ha lik Okkar sérsvið er háræðaslitsmeðferðir. Fyrir þá sem vilja alvöru árangur ! 4 . n ó v e m b e r 2 0 1 7 L A U G A r D A G U r44 H e L G i n ∙ F r É T T A b L A ð i ð 0 4 -1 1 -2 0 1 7 0 4 :3 3 F B 1 2 0 s _ P 1 0 1 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 9 2 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 2 0 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 E 2 5 -A 1 7 8 1 E 2 5 -A 0 3 C 1 E 2 5 -9 F 0 0 1 E 2 5 -9 D C 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 1 2 0 s _ 3 _ 1 1 _ 2 0 1 7 C M Y K
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.