Fréttablaðið - 04.11.2017, Blaðsíða 24
Um helgina
Sigrún Guðný Markúsdóttir
Hafdís Huld
Þrastardóttir.
Sigurður Þór Óskarsson.
Lestu
Mistur eftir
Ragnar Jónasson
sem fjallar um
flókið og erfitt
mál sem lög-
reglukonan Hulda
Hermannsdóttir
þarf að kljást við
skömmu eftir að
hafa sjálf lent í
fjölskylduharm-
leik sem skilur
eftir sár sem
aldrei gróa.
tónLeikar og bakstur
Ég ætla að byrja
helgina á því að
halda tónleika
á Söguloftinu
í Landnáms-
setrinu í
Borgarnesi á
föstudags-
kvöldinu. Laugar-
dagsins ætla ég svo
að njóta heima í
faðmi fjölskyldunnar og mér finnst
ansi líklegt að við mæðgur bökum
eitthvað gott saman og fáum góða
vini í heimsókn. Á sunnudaginn er
svo stefnt á að leggja lokahönd á
myndband við lagið Dream Small
sem kemur út í lok mánaðarins.25 ára afmæLi kvennaþingsins fagnað
Ég ætla að fara í ræktina á laugardaginn og chilla
aðeins með stelpunum mínum. Kvöldinu ætla ég
síðan að verja með um 60 flottum vinkonum á 25 ára
afmæli Kvennaþingsins. Á sunnudeginum ætla ég að
standa vaktina í búðinni minni, Akkúrat, og taka vel á
móti gestum og gangandi.
Stella Rósenkranz
aLLt annað
en róLeg
heLgi
Mig langar að
taka það rólega
um helgina en
það stefnir allt
akkúrat í hina
áttina. Afmæli,
surprise-partí
og Airwaves!
Það eru margir
íslenskir artistar
sem ég ætla að
mæta á og
styðja.
hLustaðu
Kynntu þér fjöl-
breytta off-venue
dagskrá Iceland
Airwaves há-
tíðarinnar. Þar
ættu allir tón-
listarunnendur að
finna eitthvað við
sitt hæfi, alveg
ókeypis!
fjöLL og fjarskaLand
Ég ætla að ganga á fjöll um helgina
og kannski veiða nokkra rjúpur ef
ég sé þær. Svo er sýning á Fjarska-
landi á sunnudaginn sem gengur
hverja helgi fyrir fullu húsi í Þjóð-
leikhúsinu.
Góði Úlfurinn hefur slegið rækilega í gegn með lagi sínu Græða peninginn. Góði Úlf-urinn er listamanns-nafn, en hann heitir í
raun Úlfur Emilio. Úlfur er nýorðinn
tíu ára gamall og er nemandi í fimmta
bekk í Austurbæjarskóla. Það hefur
verið nóg að gera hjá honum síðustu
daga og hann tekur þátt í ýmsum
uppákomum sem tengjast Iceland
Airwaves. Hann kemur til dæmis
fram á atburði Airwaves fyrir unga
fólkið og foreldra þess sem verður
haldinn í Norræna húsinu á morgun,
sunnudag, frá kl. 13-15.
Daginn sem blaðamaður hittir
hann á heimili hans í Norðurmýri er
starfsdagur í skólanum, hann hefur
nóg að gera og það stendur til að spila
á tvennum tónleikum þennan sama
dag. Síminn stoppar ekki að sögn
móður hans, Tinnu Þórudóttur Þor-
valdar, sem þarf að takmarka vinnu-
semi sonarins til að gæta að skóla-
göngu og heimanámi.
Úlfur segist alls ekki geta svarað því
hvers vegna honum gangi svona vel.
Það sé ógjörningur að vita af hverju
fólki finnst það sem því finnst. „Nei,
ég get sko ekki svarað þessu,“ segir
hann og hnyklar brúnir.
Hann segist ekki setjast niður til
að semja texta við lögin sín. „Þetta
er bara það sem ég geri í alvörunni.
Þetta er bara svona minn dagur. Ég
syng bara um það,“ segir hann. Hann
er byrjaður á nýju lagi og er til í að
segja blaðamanni hvað það heitir:
„Hvenær kemur frí?“ segir hann að
lagið heiti. „Það er sko bara þannig,“
segir hann og móðir hans segir hann
spyrja ansi oft hvenær sé frí næst!
Vinum hans finnst að sjálfsögðu
árangurinn ansi góður. „Þeim finnst
þetta flott hjá mér. Flott að ég sé að
gera þetta, þeir styðja mig.“
Hann á sér margar fyrirmyndir
Góði úlfurinn
á Airwaves
Úlfur emilio er tíu ára gamall og tekur þátt í
uppákomum tengdum Iceland Airwaves í ár
og kemur fram í Norræna húsinu á morgun.
Úlfur Emilio, „Góði úlfurinn“, fyrir framan heimili sitt í Norðurmýrinni. FRéttablaðið/VilHElM
Bæjarlistamaður
Seltjarnarness 2018
Menningarnefnd Seltjarnarness auglýsir eftir umsóknum frá
listamönnum búsettum á Seltjarnarnesi og/eða rökstuddum
ábendingum um nafnbótina Bæjarlistamaður Seltjarnarness
2018.
Bæjarlistamaður Seltjarnarness skal vera reiðubúinn að vinna
með menningarsviði bæjarins að því að efla áhuga á list og
listsköpun á Seltjarnarnesi og taka þátt í viðburðum bæjarins
með það að leiðarljósi.
Í umsókninni skulu koma fram ítarlegar upplýsingar um
náms- og starfsferil viðkomandi og hugmyndir um á hvern
hátt nýta eigi styrkinn við listsköpun.
Nafnbótinni fylgir starfsstyrkur að upphæð einni milljón króna.
Umsækjendur eru beðnir um að haga umsóknum í samræmi
við reglur um Bæjarlistamann sem finna má á heimasíðu
bæjarins www.seltjarnarnes.is.
Umsóknum og/eða ábendingum skal skilað fyrir 25. nóvember
n.k. í gegnum heimasíðu bæjarins (umsóknir/eyðublöð), með
tölvupósti á netfangið maria.b.oskarsdottir@seltjarnarnes.is
eða bréfleiðis á Bæjarskrifstofur Seltjarnarness, Austurströnd 2,
170 Seltjarnarnesi merkt: „Bæjarlistamaður 2018“.
Menningarnefnd Seltjarnarness
www.seltjarnarnes.is
í íslensku rappsenunni og nefnir
Emmsjé Gauta, Herra hnetusmjör
og Jóa Pé og Joey Christ.
Góði úlfurinn er rappnafn með
rentu því hann segist alls ekki koma
fram til að vera frægur eða fá athygli.
„Ég vil bara hafa skemmtilegt. Ég vildi
finna mér eitthvað að gera og þetta
er það sem mér finnst langskemmti-
legast að gera.“
Að sjálfsögðu fær Úlfur borgað
fyrir að koma fram. Hvað skyldi hann
ætla að gera við peningana? „Ég ætla
að setja þá alla inn á bankabók. Svo
þegar ég er orðinn fullorðinn kaupi
ég mér bíl, hús, húsgögn og föt.“ krist-
janabjorg@frettabladid.is
þetta er bara það sem
ég geri í aLvörunni.
þetta er bara svona
minn dagur. ég syng
bara um það.
Iceland Airwaves fyrir fjölskylduna
Á sérstökum fjölskyldudegi í
tengslum við Iceland Airwaves
hátíðina verður boðið upp á
lifandi tónlist í Norræna húsinu
á morgun, sunnudag.. Þá verður
kynning á tónlistarleiknum Mus-
sila Musical monster adventure.
Aðgangur er ókeypis og allir vel-
komnir.
Dagskráin hefst á tónlistarat-
riði fyrir yngstu kynslóðina með
Lögunum af vísnaplötunum, Einu
sinni var og Út um græna grundu
í útsetningum Gunnars Þórðar-
sonar. Eftir pásu stígur á svið
Góði Úlfurinn sem flytur tvö lög,
því næst tekur Vegan Klíkan við
sviðinu og flytur músíkalskt rapp.
Dagskrá í Sal
13:00 Lögin af Vísnaplötunum
14:00 Góði Úlfurinn
14:30: Vegan Klíkan
4 . n ó v e m b e r 2 0 1 7 L A U G A r D A G U r24 H e L G i n ∙ F r É T T A b L A ð i ð
helgin
0
4
-1
1
-2
0
1
7
0
4
:3
3
F
B
1
2
0
s
_
P
0
9
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
9
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
2
5
-C
8
F
8
1
E
2
5
-C
7
B
C
1
E
2
5
-C
6
8
0
1
E
2
5
-C
5
4
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
B
F
B
1
2
0
s
_
3
_
1
1
_
2
0
1
7
C
M
Y
K