Fréttablaðið - 04.11.2017, Blaðsíða 114
V inkonurnar Apríl Harpa Smáradóttir og Arna Rín Ólafs-dóttir eru konurnar á bak við Hugar-Op. „HugarOp sér
um viðburði, fræðslu og kennslu
sem er sett saman af hinum ýmsu
heildrænu aðferðum. Í viðburðum
leggjum við áherslu á að losa okkur
við símana, stíga út í náttúruna og
tengjast inn á við,“ segir Apríl um
HugarOp. „Jóga og önnur sams
konar iðkun hefur umturnað lífi
okkar og okkur langar að miðla því
áfram.“
Þeim Apríl og Örnu fannst vanta
upp á aukið aðgengi að leiðsögn í átt
að betri andlegri heilsu. Þær tóku
því málin í sínar hendur og halda
nú fjölbreytta heilsuviðburði. „Við-
burðirnir okkar eru mismunandi
eins og þeir verða margir. Dags-
ferðirnar samanstanda aðallega af
jóga, hugleiðslu, pranayama, svetti,
fræðslu og æfingum sem taka þig í
leiðangur inn á við. Lengri viðburð-
irnir verða þó með aðeins öðru móti
með enn meiri persónulegri vinnu.“
„Okkur langar aðallega að kynna
fólki þessar ýmsu aðferðir sem eru
í boði til þess tengjast betur inn á
við. Engin leið er réttari en önnur en
okkur langar að varpa ljósi á nokkr-
ar sem geta hjálpað. Andleg vellíðan
er lífsstíll eins og allt annað.“
Spurð út í hvort þeim þyki fólk
almennt gleyma að huga að and-
legri heilsu segir Apríl: „Upplifunin
er ekki sú að fólk gleymi að huga
að heilsunni, heldur þekki ekki
til þeirra tóla sem eru í boði til að
hjálpa okkur að finna kyrrðina í
amstri dagsins. Og góð andleg heilsa
kemur ekki á einum degi heldur
þarf maður sífellt að styrkja og við-
halda.“
Þær benda áhugasömum svo á að
kanna málið betur á hugarop.com.
gudnyhronn@365.is
Andleg vellíðan er
lífsstíll
Vinkonurnar Apríl Harpa Smáradóttir og
Arna Rín Ólafsdóttir deila með lesendum
góðum ráðum í átt að góðri andlegri heilsu
með hugleiðslu og núvitund.
Í viðburðum leggj-
um við áherslu á Að
losA okkur við sÍmAnA.
ráð AprÍlAr og Örnu
fyrir þá sem viljA
hugleiðA dAgs dAg-
legA
1. Notaðu hugsanir og orð. Dæmi: „ég er lognið í
storminum“ eða „ég kem aftur
í kyrrðina sem hvílir innra með
mér.“ Segðu þessar setningar í
huganum aftur og aftur þegar þú
finnur fyrir miklu álagi og stressi.
Hugsanir verða að orðum og orð
verða að verki. Hugsaðu fallega
til þín sjálfs.
2. Nýttu tímann á meðan þú keyrir á milli staða.
Teldu djúpa öndun. Andaðu inn
á fjórum talningum. Andaðu
út á fjórum talningum. Það er
magnað hvað öndun getur byggt
góðan grunn fyrir daginn.
3. Finndu tíma án raftækja: Við erum alls ekki nógu dugleg
að jarðtengja okkur og tíminn
sem við eyðum með raftækjum
er gígantískur! Tími án raftækja
gefur þér tækifæri til þess að róa
hugann og auka fókus.
4. Tileinkaðu þér núvitund í daglegu lífi. Fyrsta æfingin
gæti verið að einbeita sér að því
að gera ekki tvo hluti í einu eins
og t.d að borða og lesa á sama
tíma, eða keyra og hlusta á tón-
list á sama tíma. Það er æðisleg
upplifun að finna fyrir núvitund
í því sem maður gerir og það
er gaman að sjá að „núið“ er í
rauninni mjög friðsælt augnablik
til þess að vera í. Við þurfum að
vera dugleg að minna okkur á að
gærdagurinn og morgundagur-
inn er ekki til akkúrat núna.PÉTUR
ÚLFURINN
og
Haukur Gröndal
Pamela De Sensi
Halla Sólveig Þorgeirsdóttir
GÓI og
STÓRSVEIT
REYKJAVÍKUR
Tónleikar
12. nóvember
kl. 14 og 16
í Silfurbergi, Hörpu
www.harpa.is
4 . n ó v e m b e r 2 0 1 7 L A U G A r D A G U r66 L í f i ð ∙ f r É T T A b L A ð i ð
Lífið
0
4
-1
1
-2
0
1
7
0
4
:3
3
F
B
1
2
0
s
_
P
1
1
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
1
1
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
E
2
5
-B
A
2
8
1
E
2
5
-B
8
E
C
1
E
2
5
-B
7
B
0
1
E
2
5
-B
6
7
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
A
F
B
1
2
0
s
_
3
_
1
1
_
2
0
1
7
C
M
Y
K