Fréttablaðið - 04.11.2017, Page 4
Tölur vikunnar 29.10.2017 Til 04.11.2017
2,2%
var atvinnuleysið á þriðja árs-
fjórðungi þessa árs. Að jafnaði voru
198.600 manns á aldrinum 16-74
ára á vinnumarkaði. Af þeim voru
194.300 starfandi og 4.300 án vinnu
og í atvinnuleit.
244 starfsmenn
lögðu fram kvörtun til Vinnu-
eftirlitsins á árunum 2004 til ársins
2015 vegna ofbeldis eða áreitni á
vinnustað.
11.200
krónur
geta ríkisstarfsmenn fengið
greiddar fyrir mat í heilan dag á
ferðalögum sínum innanlands á
vegum ríkisins.
163
milljónir
króna fengu þingmenn
greiddar á árunum 2013 til árs-
loka 2016 vegna aksturs eigin
bifreiða.
69,4
milljónir króna eru biðlaunagreiðsl-
urnar sem þingmennirnir 15 sem
ekki náðu endurkjöri eiga rétt á
næstu mánuði.9
þúsund
kindur vill skógarbóndinn
Gunnar Jónsson, eigandi Króks
í Norðurárdal, að ekki sé farið
með um lönd hans þegar farið
er með fé af fjalli á haustin.
Þrjú í fréttum
Skutl, þreyta og
kvennaframboð
Inga Sæland,
formaður Flokks
fólksins,
kvaðst ekki
kannast við
bandalag Flokks
fólksins og
Miðflokksins
í stjórnarmynd-
unarviðræðum sem
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson
ýjaði að. „Við spjölluðum nú bara
saman í dag og Sigmundur var svo
elskulegur að biðja bílstjórann
sinn að skutla mér heim,“ sagði
Inga eftir að hún sást í aftursæti
bifreiðar Sigmundar við Bessa-
staði.
Ásmundur Friðriksson,
þingmaður Sjálf-
stæðisflokksins,
kvaðst hafa
verið argur og
þreyttur þegar
hann neitaði
að upplýsa um
akstursgreiðslur sem
hann fengi. Við blaðamann sagði
hann að fréttamenn væru ekki að
spyrja hvað lögfræðingar Rauða
krossins væru að fá fyrir að senda
bréf til innanríkisráðuneytisins
vegna hælisleitenda. Ásmundur
bað starfsfólk Rauða krossins
afsökunar.
Stefanía
Óskarsdóttir,
dósent við stjórn-
málafræðideild
HÍ,
sagðist efast
um að kvenna-
framboð næði
einhverju flugi. Á
annað hundrað konur mættu
á fund þar sem ályktað var að
niðurstöður kosninganna væru
í hróplegu ósamræmi við tilefni
þeirra. Fundað var um hugsanlegt
kvennaframboð.
LANDSINS MESTA ÚRVAL BÓKA
Bókabúð Forlagsins | Fiskislóð 39 | www.forlagid.is
Opið alla virka daga 10–18 | laugardaga 11–15
Yfir 400 myndir af glæsivögnum
Ómissandi bók fyrir
alla bílaáhugamenn!
Ný íslensk bók um sögu
Mercedes-Benz
Heilbrigðismál Lítill sem enginn
munur er á ávinningi þess fyrir
sjúklinga að gangast undir kransæða-
víkkun þar sem stoðnet er notað og
að gangast undir lyfjameðferð.
Tvíblinda rannsóknin ORBITAL
er sú fyrsta sinnar tegundar og hefur
vakið gríðarlega athygli. Hún setur
spurningarmerki við aðferð sem
notuð hefur verið á hundruð þús-
unda sjúklinga með stöðuga hjarta-
öng um allan heim á undanförnum
áratugum.
Stoðnet er agnarsmá járngrind
sem opnar stíflaðar æðar. Þessi litlu
tæki hafa bjargað lífi fjölmargra ein-
staklinga sem fengið hafa hjartaáföll.
Tvö hundruð einstaklingar með
stöðuga hjartaöng, eða stöðugan
brjóstverk, tóku þátt í rannsókninni.
Að lokinni sex vikna lyfjameðferð fór
hópurinn í hjartaþræðingu. Af þeim
fengu 105 stoðnet. Hinir 95 fóru
einnig í hjartaþræðingu en eftir að
læknarnir höfðu þrætt örmjóan æða-
legg í slagæð þeirra biðu þeir í örfáar
mínútur og drógu legginn út án
þess að koma stoðneti
fyrir. Þetta er í eitt af
örfáum skiptum í
sögu hjartasjúkdóma-
fræðinnar þar sem
fölsk aðgerð er fram-
kvæmd.
Stoðnetin gerðu sitt
hjá þeim sem þau fengu.
Blóðflæði jókst verulega.
Sex vikum síðar sýndu
báðir hópar minni
einkenni og voru þrek-
meiri. Enginn marktækur
munur var á hópunum.
„Þetta er alveg stórmerkilegt og
er í raun brautryðjendastarf. Rann-
sakendurnir eiga mikið hrós skilið,“
segir Þorbjörn Guðjónsson, hjarta-
læknir. Hann bendir þó á að hér sé
um að ræða rannsókn á stabílum
kransæðasjúkdómi og þýðið, sem sé
lítið, sé skipað tiltölulega hraustum
einstaklingum með einnar æðar
sjúkdóm.
Fjölmargar rannsóknir hafa sýnt
fram á jákvæðan árangur og betri lífs-
gæði sjúklinga eftir kransæðavíkkun.
Þó er ekki hægt að útiloka lyfleysu-
áhrif þrátt fyrir að aðgerðin sýni
aukið blóðflæði.
Á Landspítalanum hafa
þúsundir kransæðavíkkana verið
framkvæmdar og í 90 prósent tilvika
eru stoðnet notuð.
„Niðurstaða [rannsóknarinnar]
er eitthvað sem við öll getum verið
sammála um, að það er sjálfsagt að
reyna lyfjameðferð áður en sjúklingi
er vísað til hjartaþræðingar,“ segir
Ingibjörg Guðmundsdóttir, deildar-
stjóri æðaskurðdeildar Landspítala.
Hún segir að um það bil 700
kransæðavíkkanir séu gerðar á ári.
Stór hluti þeirra sé vegna stöðugrar
hjartaöngvar.
Stoðnet voru tekin í notkun
snemma á tíunda áratug síðustu
aldar. Þau útheimta ekki meiriháttar
aðgerð eins og hjáveituaðgerð.
Rannsóknarhöfundar ORBITAL
segja að hjartasérfræðingar hafi
hingað til ekki tekið vel í hugmyndir
um lyfleysurannsókn á virkni krans-
æðavíkkana. Það sé almennt viður-
kennt að kransæðavíkkun beri ótví-
ræðan árangur og að það geti talist á
siðferðilega gráu svæði að beita lyf-
leysumeðferð á einstaklinga í þessum
aðstæðum.
„Við vitum það að lyfjameðferð er
árangursrík í fólki með stabílan sjúk-
dóm, en ef lyfjameðferð virkar ekki
eða reynist þeim erfið, þá er eðlilegt
að vísa fólki í hjartaþræðingu,“ segir
Ingibjörg.
ORBITAL-rannsóknin tók aðeins
til einstaklinga með stöðuga hjarta-
öng og niðurstöður hennar hafa
engin áhrif á þá sem gangast undir
kransæðavíkkun vegna bráðs krans-
æðaheilkennis, þar á meðal vegna
kransæðastíflu með eða án ST-hækk-
unar. kjartanh@frettabladid.is
Spurningarmerki sett við notkun
stoðneta eftir sögulega rannsókn
Aðferð sem notuð hefur verið á hundruð þúsunda sjúklinga er að mestu tilgangslaus samkvæmt nýrri
rannsókn sem birt var í The Lancet. Varpar einstöku ljósi á ávinning kransæðavíkkana þar sem stoðnet eru
notuð til að lina þjáningar hjartasjúklinga. „Þetta er alveg stórmerkilegt,“ segir hjartalæknir.
Stoðnet eru úr ryðfríu
stáli, kóbalti og krómi.
Þau halda kransæða-
þrengslum betur opnum.
Fréttablaðið/Getty.
Um 700 kransæðavíkkanir eru gerðar árlega á landspítala en á heimsvísu hundruð þúsunda. Fréttablaðið/Getty
4 . n ó v e m b e r 2 0 1 7 l a u g a r D a g u r4 f r é T T i r ∙ f r é T T a b l a ð i ð
0
4
-1
1
-2
0
1
7
0
4
:3
3
F
B
1
2
0
s
_
P
1
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
1
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
2
5
-9
7
9
8
1
E
2
5
-9
6
5
C
1
E
2
5
-9
5
2
0
1
E
2
5
-9
3
E
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
1
2
0
s
_
3
_
1
1
_
2
0
1
7
C
M
Y
K