Fréttablaðið - 04.11.2017, Page 20
Jo
hn
P
ed
en
©
2
01
5
KVÖLDSTUND MEÐ
PAT METHENY
ANTIO SANCHEZ · LINDA MAY HAN OH · GWILYM SIMCOCK
17. NÓVEMBER í ELDBORG
MIÐASALA
TIX.IS, HARPA.IS OG
Í SÍMA 528 5050
Fótbolti Heimir Hallgrímsson,
landsliðsþjálfari, tilkynnti í gær
stóran landsliðshóp sem fer í
æfingaferð til Katar á næstu dögum
en fram undan eru æfingaleikir gegn
bæði heimamönnum og sterku liði
Tékka.
Um alþjóðlega leikdaga er að
ræða og gat Heimir því valið alla
leikmenn sem gátu gefið kost á sér.
Heimir tekur með sér alla leikmenn
sem voru með í síðasta verkefni, að
þeim Emil Hallfreðssyni og Jóni
Daða Böðvarssyni undanskildum
en báðir eiga við meiðsli að stríða.
Þá bætast þeir Ingvar Jónsson,
markvörður Sandefjord í Noregi,
og Theódór Elmar Bjarnason, sem
nýlega gekk í raðir Elazigspor í Tyrk-
landi, í hópinn.
„Leikmennirnir sem við völdum
eru þeir sem mest hafa verið með
Samkeppnin nú þegar hafin
26 leikmenn fara með íslenska landsliðinu í æfingaferð til Katar síðar í mánuðinum. Leikir gegn heima-
mönnum og Tékkum marka upphaf undirbúnings liðsins fyrir HM í Rússlandi næsta sumar.
okkur í aðdraganda þess að við
tryggðum okkur HM-sætið,“ sagði
Heimir við Fréttablaðið á blaða-
mannafundi KSÍ í gær. „Þetta eru því
að hluta til verðlaun fyrir þá að við
tökum svona stóran hóp með okkur.
En um leið vita menn að það eru að
minnsta kosti fimm úr þessum hópi
sem ekki fara með til Rússlands og
því samkeppni um sæti í lokahópn-
um hafin.“
Sín hlutverk á hreinu
Heimir sagði að um afslappaða ferð
verði að ræða. Leikirnir séu ekki
jafn mikilvægir og leikir Íslands hafi
verið að undanförnu og að það hafi
verið ósk hans að fara með liðið í
hlýtt loftslag og afslappað umhverfi.
„Þessi ferð er hugsuð til að við
fáum þar tækifæri til að ræða meira
saman og plana framhaldið og
undir búninginn fyrir HM í sumar.
Við viljum fara yfir hvað við getum
lært af síðustu lokakeppni,“ sagði
Heimir sem gerir þó vitanlega
kröfur til þeirra sem koma til með
að spila leikina.
„Ég vil sjá að þeir sem spila þessa
leiki séu með leikfræðin á hreinu
sem og sín hlutverk á vellinum. Þeir
sem hafa fengið tækifærið hingað
til hafa staðið sig vel og ég vona að
okkur takist að stækka þann hóp
enn frekar.“
Vonandi erfitt verkefni
Ísland mun spila æfingaleiki í janúar
og jafnvel febrúar en þó án þeirra
atvinnumanna Íslands sem spila í
sterkustu deildum Evrópu. Næsti
alþjóðlegi leikdagur verður svo í
mars og lokahnykkur undirbúnings-
ins fyrir HM í Rússlandi hefst síðari
hluta maímánaðar.
Heimir fær því að gefa mörgum
leikmönnum tækifæri fyrir stóru
stundina næsta sumar en hann segir
að svipað fyrirkomulag hafi gefist
vel fyrir tveimur árum, er liðið var
að undirbúa sig fyrir EM í Frakk-
landi.
„Menn notuðu tækifærið með
landsliðinu sem gulrót til að leggja
enn meira á sig og spila vel með
sínum félagsliðum. Allir sóknar-
menn okkar voru að skora reglulega
og þegar Íslendingur var að spila var
hann yfirleitt valinn maður leiksins.
Það var afar erfitt að velja lokahóp-
inn fyrir EM og ég vona að það verði
erfitt fyrir HM.“
eirikur@frettabladid.is
Ég vil sjá að þeir
sem spila séu með
leikfræðin á hreinu og sín
hlutverk á vellinum.
Heimir Hallgrímsson
landsliðsþjálfari
Sá besti 2011 hefur engu gleymt
Einstakur Marcus Walker spilaði sinn fyrsta leik hér á landi síðan 2011 þegar hann lék með KR b í 100-108 tapi fyrir Breiðabliki í 16-liða úrslitum
Maltbikars karla í gær. Walker, sem var besti leikmaður KR þegar liðið varð Íslands- og bikarmeistari árið 2011, sýndi að hann hefur engu gleymt og
var stigahæstur á vellinum með 42 stig. KR-ingar leiddu lengi vel en munurinn á úthaldi sagði til sín í seinni hálfleiknum. Fréttablaðið/eyþór
Domino’s-deild karla í körfubolta
Keflavík - þór þ. 98-79
Keflavík: Cameron Forte 27/11 fráköst,
Ágúst Orrason 13, Reggie Dupree 13/6
stoðs., Ragnar Örn Bragason 11, Magnús
Már Traustason 10, Hilmar Pétursson 6/6
stoðs., Daði Lár Jónsson 6, Guðmundur
Jónsson 5, Þröstur Leó Jóhannsson 5, Jón
Arnór Sverrisson 2.
þór þ.: Jesse Pellot-Rosa 29, Halldór
Garðar Hermannsson 21/7 stoðsendingar,
Þorsteinn Már Ragnarsson 11, Emil Karel
Einarsson 7/8 fráköst, Snorri Hrafnkels-
son 4, Davíð Arnar Ágústsson 4, Ólafur
Helgi Jónsson 2/7 fráköst, Styrmir Snær
Þrastarson 1.
Nýjast
Stig liðanna
efst
KR 8
Keflavík 8
Tindastóll 8
ÍR 8
Grindavík 6
Njarðvík 6
Neðst
Haukar 4
Stjarnan 4
Þór Ak. 4
Valur 2
Þór Þ. 2
Höttur 0
Helgin
laugardagur:
09.00 abu Dhabi ladies Sport 4
09.00 turkish airlines Golfst.
12.20 Stoke - leicester Sport
14.20 augsburg - leverk. Sport 2
14.55 a. Villa - Sheff. Wed. Sport
17.00 laugardagsmörkin Sport
17.20 West Ham - liverpool Sport
17.20 Dortmund - bayern Sport 2
19.40 barcelona - Sevilla Sport
20.30 Shriners Hospitals Golfst.
02.00 UFC 2017 Sport
Sunnudagur:
08.30 turkish airlines Golfst.
11.50 Spurs - C. Palace Sport
14.05 Man. City - arsenal Sport
16.15 Chelsea - Man. Utd. Sport
16.50 Selfoss - ÍbV Sport 2
18.00 Panthers - Falcons Sport 3
18.30 Messan Sport
19.40 real M. - las Palmas Sport 4
19.50 Haukar - ÍbV Sport 2
20.30 Shriners Hospitals Golfst.
21.20 Cowboys - Chiefs Sport 3
Olís-deild kvenna í handbolta:
l13.30 Stjarnan - Fjölnir
l13.30 Grótta - Selfoss
S20.00 Haukar - ÍbV
Olís-deild karla í handbolta:
S17.00 afturelding - Víkingur
S17.00 Selfoss - ÍbV
S18.00 Haukar - Grótta
S19.30 Fram - Fjölnir
S19.30 FH - Ír
S19.30 Stjarnan - Valur
Maltbikar kvenna í körfubolta:
l14.00 þór ak. - Snæfell
l15.00 Grindavík - Keflavík
S16.00 breiðablik - Haukar
S19.15 Njarðvík - Stjarnan
Maltbikar karla í körfubolta:
S16.00 Ír - Snæfell
S16.30 Kr - Vestri
S16.00 breiðablik - Haukar
S19.15 Njarðvík - Stjarnan
Maltbikar karla í körfubolta
Kr b - breiðablik 100-108
Maltbikar kvenna í körfubolta
Fjölnir - Skallagrímur 69-87
HEIMIR TIL FæREyJA
Heimir Guðjónsson, fyrrverandi
þjálfari FH, er tekinn við færeyska
liðinu HB. Heimir gerir tveggja ára
samning við HB sem endaði í 5.
sæti færeysku úrvalsdeildarinnar á
síðasta tímabili. Heimir var látinn
fara frá FH í haust eftir 17 ára
samfellda dvöl hjá félaginu. Undir
hans stjórn varð FH fimm sinnum
Íslandsmeistari.
4 . n ó v e M b e r 2 0 1 7 l A U G A r D A G U r20 S p o r t ∙ F r É t t A b l A ð i ð
sport
0
4
-1
1
-2
0
1
7
0
4
:3
3
F
B
1
2
0
s
_
P
1
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
9
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
2
5
-A
1
7
8
1
E
2
5
-A
0
3
C
1
E
2
5
-9
F
0
0
1
E
2
5
-9
D
C
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
1
2
0
s
_
3
_
1
1
_
2
0
1
7
C
M
Y
K