Fréttablaðið - 04.11.2017, Qupperneq 36
U ndanfarnar vikur í lífi hins katalónska C a r l e s P u i g d e -mont hafa verið viðburðaríkari en flestir eiga að venj-
ast. Eftir að hafa staðið í fremstu
víglínu í sjálfstæðisbaráttu spænska
héraðsins hefur handtökuskipun
verið gefin út á hendur honum.
Puigdemont á yfir höfði sér þrjátíu
ára fangelsi en mun væntanlega
ekki gefast upp í baráttunni.
Skiptar skoðanir eru á Puigde-
mont. Ýmsir telja hann frelsishetju
og verndara katalónsku þjóðar-
innar. Aðrir segja hann öfgafullan
uppreisnarmann sem geri allt til
að slíta Spán í sundur. Spánverjar
og Katalónar eru þó sameinaðir í
því að augu þeirra beinast nú, og
hafa undanfarið beinst, að þessum
umdeilda manni.
Baráttan hefst
Þegar Puigdemont var svarinn í
embætti forseta héraðsstjórnar
Katalóníu hefur hann líklegast
búist við því að sjálfstæðisbaráttan
yrði erfið. Hann óraði þó ef til vill
ekki fyrir því að hann myndi flýja
land vegna viðbragða spænska
ríkisins.
„Við höfum náð miklum árangri,
en við munum ekki þreytast. Við
erum full vonar. Ekkert er ómögu-
legt,“ sagði hinn nýi forseti þegar
hann ávarpaði Katalóna stuttu
eftir að hann var svarinn í emb-
ætti, umkringdur katalónskum
fánum.
Orð hans um að hann myndi
sameina Katalóníu í hinni erfiðu
sjálfstæðisbaráttu féllu spænsku
ríkisstjórninni ef til vill ekki í geð.
En þótt Katalónar hafi ekki sam-
einast, eins og fjöldamótmæli gegn
sjálfstæði í héraðshöfuðborg-
inni Barcelona hafa sýnt,
hefur Puigdemont uppfyllt
loforð sitt um að boða til
kosninga og lýsa yfir sjálfstæði.
Hættulegur
glæpamaður
eða katalónsk
frelsishetja
Allra augu beinast að Carles Puigdemont,
fyrrverandi forseta héraðsstjórnar Kata-
lóníu. Hann er eftirlýstur og á flótta í
Belgíu. Ástæðan er kosningar um sjálfstæði
héraðsins og sjálfstæðisyfirlýsingin sem
kostaði Katalóníu sjálfsstjórnarréttindin.
1. Katalónar gengu til kosninga
þann 1. október og kaus meiri-
hluti með því að lýsa yfir sjálf-
stæði. Spánverjar segja kosning-
arnar ólöglegar og rúmlega 800
særðust í átökum við lögreglu á
kjördag. Kjörsókn var um fjörutíu
prósent vegna sniðgöngu sam-
bandssinna og aðgerða lögreglu
en níutíu prósent kjósenda sam-
þykktu að lýsa yfir sjálfstæði.
2. Forseti héraðsstjórnar Katalóníu
undirritaði óljósa sjálfstæðisyfir-
lýsingu eftir kosningar og fór
fram á viðræður við yfirvöld á
Spáni. Spánverjar kröfðust þess
í kjölfarið að yfirlýsingin yrði
dregin til baka. Allt kom fyrir ekki
og Spánverjar sviptu héraðið
sjálfsstjórn, ráku héraðsstjórnina
og leystu upp þingið.
3. Katalónska þingið kom saman
stuttu áður en Spánverjar sviptu
héraðið sjálfsstjórn og sam-
þykkti að lýsa yfir sjálfstæði.
4. Ríkissaksóknari Spánar fer fram
á ákæru yfir þeim sem stóðu
að sjálfstæðisyfirlýsingunni og
kosningunum. Níu ráðherrar
héraðsstjórnarinnar mættu fyrir
rétt á fimmtudag og átta eru í
gæsluvarðhaldi. Fimm, meðal
annars Carles Puigdemont,
fyrrverandi forseti héraðs-
stjórnarinnar, eru á flótta í Belgíu
og hefur evrópskrar handtöku-
skipunar verið krafist.
5. Puigdemont ætlar ekki að sækja
um hæli í Belgíu. Hann ætlar
heldur ekki til Madrid til þess að
mæta fyrir rétt og vill lögmaður
hans að skjólstæðingur sinn sé
yfirheyrður í Belgíu.
Fimm atriði sem þú þarft að vita um ástandið í Katalóníu
Sjálfstæðisbaráttan á hjarta Puigdemont,“ sagði Jami Mata-mala, einn nánasti vinur hins
brottrekna forseta, í viðtali við
CNN á dögunum. Sagði Matamala
að aðgerðir Puigdemont væru engin
sýndarmennska. Þær væru útpældar
og sýndu hvaða mann hann hefur að
geyma.
Þessi náni vinur segir að örin eftir
harðræði Francisco Franco, ein-
ræðisherra Spánar frá 1939 til 1975,
séu djúp. Franco bannaði á sínum
tíma katalónska tungu og beitti sér
af hörku gegn katalónskum hefðum
og menningu héraðsins. Við andlát
einræðisherrans hafi framtíðin hins
vegar virst björt og Katalónía hafi
fljótlega fengið sjálfsstjórnarvöld.
„Við héldum að Franco-stefnan
hefði runnið sitt skeið. Við héldum
að við byggjum við lýðræði, en það
sem gerðist á kjördag sýnir okkur
að spænskt lýðræði er ekki áreiðan-
legt,“ sagði Matamala og vitnaði
til þess að fjölmargir hefðu særst
í átökum við spænsku lögregluna
þegar kosið var um sjálfstæði þann
1. október síðastliðinn.
Annar náinn vinur Puigdemont,
Antoni Puigverd, sagði í viðtali við
CNN að hann væri ekki stuðnings-
maður sjálfstæðisbaráttunnar.
Þrátt fyrir það væru þeir perluvinir.
„Puigdemont hefur aldrei verið drif-
inn af persónulegum metnaði. Hann
hefur einungis metnað fyrir því að
bæta hag Katalóna. Þetta skapar
vandamál fyrir spænska ríkið. Þeir
geta ekki eyðilagt feril hans því hann
veit það sjálfur að hann er að fórna
ferli sínum,“ sagði Puigverd í byrjun
október. Þessi orð um að Puigde-
mont væri að fórna ferli sínum rætt-
ust síðan í lok október þegar Spán-
verjar lögðu forsetaembættið niður.
Með sjálfstæðisbaráttuna í hjarta
Ko s n i n g a b a n d a -lagið JxSí, eða Sameinuð um
já, fékk flest þing-
sæti á katalónska
h é r a ð s þ i n g i n u
eftir kosningar árið
2015 þótt sætum
bandalagsins hafi
reyndar fækkað um
níu. Það dugði ekki til
að mynda meirihluta á
héraðsþinginu og gekk CUP til
liðs við bandalagið enda flokkurinn
einnig hlynntur sjálfstæði.
Með sjálfstæðissinna í meirihluta
á þinginu var leiðin greið til að boða
til kosninga um sjálfstæði héraðsins.
Það rættist þann 1. október síðastlið-
inn, þrátt fyrir að stjórnlagadómstóll
Spánar hafi úrskurðað kosningarnar
ólöglegar.
Tæp fjörutíu prósent Katalóna
kusu um framtíð
héraðsins í kosning-
unum. Kjörsóknin
var ekki hærri vegna
ákalls katalónskra
sambandssinna um að
sniðganga kosningarnar
og vegna þess að spænska
lögreglan reyndi að koma í veg
fyrir þær. Níutíu prósent þeirra sem
mættu á kjörstað greiddu atkvæði
með sjálfstæði.
Katalónar eru nú sundraðir. Könn-
un El Mundo frá því í október sýnir
fram á að ef gengið yrði til kosninga
í héraðinu nú, líkt og Spánverjar hafa
fyrirskipað að verði gert í desember,
myndu JxSí og CUP missa meirihluta
sinn.
Óeining um sjálfstæði
Harkaleg viðbrögð
Þær fjórar vikur frá því Katalónar
gengu til kosninga og
þar til héraðið lýsti
loks yfir sjálfstæði
voru viðburðaríkar.
Puigdemont beið
í nokkra daga að
kosningum lokn-
um, eftir að öll
atkvæði höfðu
v e r i ð t a l i n ,
með að gefa út
nokkra yfirlýs-
ingu. Þegar að
því kom þótti
y f i r l ý s i n g i n
afar óskýr.
Það er sann-
gjarnt að segja,
þótt það sé ef til
vill ónákvæmt,
að Puigdemont
h a f i „ n o k ku r n
veginn“ lýst yfir
sjálfstæði. Vissu-
lega sagðist hann
hafa skrifað undir
yfirlýsingu þess efnis
en hann frestaði gildis-
töku hennar í von um
að fá Spánverja að borð-
inu til viðræðna um sam-
hliða ákvörðun um sjálf-
stæði héraðsins.
Þessu höfnuðu Spán-
verjar. Mariano Rajoy for-
sætisráðherra og Soraya
Sáenz de Santamaria vara-
forsætisráðherra fóru fyrir
spænska ríkinu í hörðum
orðaskiptum og fóru fram
á að Puigdemont skýrði
mál sitt og drægi sjálf-
stæðis yfirlýsinguna óljósu
til baka. Ellegar myndu
Spánverjar svipta Katalóníu
sjálfsstjórnarréttindum.
Puigdemont lét hins
vegar ekki segjast. Sakaði
hann Spánverja um að
beita öfgafullri hörku í
aðgerðum og orðræðu sinni
og neitaði að draga yfirlýsing-
una til baka. Svo fór að þann
21. október síðastliðinn sam-
þykkti Rajoy að svipta héraðið
sjálfstjórn.
Spænska öldungadeildin
kaus um ákvörðunina fimm
dögum síðar og samþykkti.
Þann 27. október brást kata-
lónska héraðsþingið við með því
að lýsa yfir sjálfstæði og degi síðar
hafði spænska ríkið lagt niður
héraðsstjórnina og þingið og tekið
yfir lögreglustörf í héraðinu. Í stað
Puigdemont stýrir fyrrnefnd Soraya
Sáenz de Santamaria nú héraðinu.
Flóttinn og handtakan
Og enn færðist meiri harka í leikinn
þegar ríkissaksóknari Spánar krafð-
ist þess þann 30. október að ráða-
menn í héraðinu, sem að vísu höfðu
þá misst stöðu sína, yrðu ákærðir
fyrir uppreisn og aðra glæpi. Þrjátíu
ára fangelsisdómur eru viðurlögin
við uppreisninni einni.
Við þetta flúði Puigdemont land
með nokkrum af ráðherrum héraðs-
stjórnarinnar og var förinni heitið
til Belgíu. Forsetinn útlægi réð sér
lögfræðing þar í landi en sagði á
blaðamannafundi að hann hygðist
ekki sækja um hæli.
Níu ráðherrar héraðsstjórnar-
innar mættu fyrir rétt í Madrid
til yfirheyrslna á fimmtudaginn.
Tók dómstóllinn þá ákvörðun að
hneppa átta í gæsluvarðhald en
sleppa einum. Puigdemont auk
fjögurra annarra hundsuðu boðun-
ina. Vegna þess fór ríkissaksóknari
Spánar fram á evrópska handtöku-
skipun á fimmmenningana.
Tíminn geymir næstu skref og er
ekki ljóst hvað gerist í framhaldinu.
Miðað við orð Pauls Bekaert, lög-
manns Puigdemont, er þó ólíklegt
að hinn eftirlýsti forseti mæti sjálf-
viljugur til Spánar. Hefur Bekaert
óskað eftir því að Puigdemont verði
yfirheyrður í Belgíu.
Ýmsir deila baráttugleðinni með
Puigdemont. NordicPHotos/AFP
spænska lögreglan þótti
ganga fram af hörku á kjör-
dag. NordicPHotos/AFP
Katalónar Kusu sjálf-
stæði þann 1. oKtóber.
sPánverjar segja
Kosningarnar
ólöglegar og
Puigdemont á yfir
höfði sér 30 ára
fangelsi
Þórgnýr Einar
Albertsson
thorgnyr@frettabladid.is
4 . n ó v e m b e r 2 0 1 7 L A U G A r D A G U r36 H e L G i n ∙ F r É T T A b L A ð i ð
0
4
-1
1
-2
0
1
7
0
4
:3
3
F
B
1
2
0
s
_
P
0
8
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
7
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
2
5
-E
6
9
8
1
E
2
5
-E
5
5
C
1
E
2
5
-E
4
2
0
1
E
2
5
-E
2
E
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
1
2
0
s
_
3
_
1
1
_
2
0
1
7
C
M
Y
K