Fréttablaðið - 04.11.2017, Síða 86

Fréttablaðið - 04.11.2017, Síða 86
Eftir þrjá áratugi í menn-ingarblaðamennsku þar sem Friðrika Benónýs-dóttir skrifaði um bækur annarra, tók viðtöl við ótal höfunda og fjallaði um bókmenntir með margvíslegum hætti er hún nú búin að venda sínu kvæði í kross. Flutt til Parísar ásamt sambýlismanni sínum, Magnúsi R. Einarssyni, útvarps- og tónlistar- manni, og búin að senda frá sér tvær bækur með örfárra vikna millibili. Fyrst komu Eldheit ástarbréf sem Friðrika valdi, þýddi og tók saman til útgáfu. En í kjölfarið Vályndi, glæpasaga, sem er önnur skáldsaga hennar. Sú fyrsta, Nema ástin, kom út fyrir sléttum 20 árum, haustið 1997. Báðar hafa bækurnar hlotið góðar viðtökur en Friðrika virðist nú ekki kippa sér upp við upphefð- ina. „Þegar ég hætti á Fréttablaðinu þá hringdi Tómas, útgefandi hjá Sögum, í mig og sagði að fyrst að ég væri nú orðin atvinnulaus þá hefði ég ekkert skárra að gera en að skrifa skáldsögu handa honum,“ segir Friðrika og hlær við tilhugsunina. „Þannig að ég fór að gramsa í ein- hverjum textabrotum sem ég átti í tölvunni, sá að það var alveg hægt að gera eitthvað úr þessu, svo ég bara lét vaða.“ Hluti af samfélagi Við tók því nýr starfsferill en Frið- rika lét ekki þar staðar numið heldur flutti nokkru síðar til Par- ísar. Hvers vegna skyldi þessi sögu- fræga borg hafa orðið fyrir valinu? „Það var nú þannig þegar ég var ung að þá ætluðu allir í minni klíku að flytja til Parísar og skrifa. Við lásum öll Veislu í farangrinum eftir Hem- ingway alveg í drep og alla þessa gæja. Þetta var draumaáfangastað- urinn og flestir fóru fljótlega eftir menntaskóla en ég fór í staðinn að eiga börn og vinna fyrir salti í graut- inn. Svo vaknar maður bara einn daginn sextugur og hugsar; shit! Ef ég ætla að gera þetta þá verður það að vera núna.“ Ákvaðstu þá bara að flytja til Par- ísar eða tóku þið Magnús þá ákvörð- un saman? „Já, ég reyndar passaði mig á að láta hann koma með hug- myndina því annars hefðum við aldrei farið,“ bætir Friðrika við og skellihlær um leið og hún útlistar planið nánar. „Ég tók Magnús með mér til Parísar í fyrrasumar í tilefni af sextugsafmælinu mínu og fór með hann á alla uppáhaldsstaðina mína. Sýndi honum hvað þetta er æðisleg og dásamleg borg – seldi honum alveg hugmyndina án þess að hann hefði hugmynd um að það væri verið að selja honum eitthvað. Í flugvélinni á leiðinni heim þá sagði hann: „Heyrðu, ég á örugglega nóg í eftirlaunasjóðnum nú þegar, ég hætti bara að vinna eftir áramótin og við flytjum til Parísar.“ Ég var ekki lengi að taka hann á orðinu því þessi borg er svo fögur og full af sögu, auk þess sem hrynjandin í lífinu þarna hentar mér vel. En auðvitað ber að taka fram að maður er stikkfrí frá þjóðfélaginu, þarf ekki að vera einn og hálfan tíma á dag í metro í stressi að kom- ast á skrifstofuna og allt þetta. París er í raun eins og samansafn af fjöld- anum öllum af litlum þorpum og ég var bara búin að koma þrisvar á uppáhaldskaffihúsið mitt í götunni okkar þegar allir tóku mér fagnandi, kysstu mig á báðar kinnar og vissu hvernig ég vil hafa kaffið mitt. Það er góð tilfinning að finna að maður er velkominn og hluti af samfélagi þó svo það sé bara lífið á einu litlu kaffihúsi.“ Húmors- og náttúruleysi Vályndi eftir Friðriku virðist skera sig frá mörgum íslenskum glæpa- sögum. Stíllinn er þéttur, persónu- sköpunin djúp og áherslan ekki síst á hið mannlega, jafnvel fremur en á glæpinn. Friðrika gengst við þessu og segir að vissulega hafi þetta verið henni hugleikið. „Ég verð líka að játa, kannski á maður ekki að vera að segja svona, að mér hefur stundum fundist eins og íslenskir krimmar séu skrifaðir til þess að höfða til útlendinga. Það eru alltaf þessar andskotans náttúrulýsingar, myrkur og snjór og það var alveg á hreinu að ég ætlaði ekki að vera með neitt slíkt í þessari bók. Mér hefur líka oft fundist vanta húmor í krimma og þar virðast allir reyndar líka vera meira og minna náttúrulausir svo mig langaði til þess að snúa aðeins upp á þetta form og hafa þetta ekki alveg málað eftir númerum – þó svo auðvitað eigi maður ekkert að vera að segja svona,“ segir Friðrika og hlær aðeins óörugg um hvort það sé í lagi að slá svona fram en er snarlega minnt á að hún er búin að leggja gagnrýn- anda gleraugunum. En hvað er það við krimmana með öllum sínum morðum og heimsins hörmungum sem fær þig til þess að slaka á? „Morð í skáld- sögu er yfirleitt bara ástæða til þess að skyggnast betur inn í mannlegt eðli. Skoða hvernig fólk bregst við öfgakenndum aðstæðum eins og morð hlýtur að kalla fram. Sérstak- lega í svona litlu samfélagi eins og þar sem ég sviðset mína bók á Húsa- vík. Þú ert bara venjuleg manneskja sem fór í partí á Jónsmessunótt en morguninn eftir vaknarðu og ert grunaður um morð. Hvernig ætl- arðu að vinna þig út úr því? Þann- ig að góður krimmi verður að vera sambland af því að skoða mannlegt eðli ofan í kjölinn og vera skemmti- leg krossgáta um leið. Eins finnst mér skrítið að skrifa um einhvers konar fjöldamorð á Íslandi eða eitthvað sem fólk planar mánuðum saman. Mér finnst betra að vera með þetta í andartakinu, láta persónurnar stjórnast af til- finningum og skoða þær út frá því. Skoða þær út frá einhverju sem er bara hér og nú. Aðalatriðið er ekki endilega hver er morðinginn, heldur hvaða áhrif það hefur á fólkið í við- komandi samfélagi og þá sérstak- lega smáu afmörkuðu samfélagi. Þess vegna valdi ég að hafa sögu- sviðið á Húsavík en ég er sjálf úr Þingeyjarsýslunni, Reykjadal. Hef reyndar ekki búið þar síðan 1980 svo þessi Húsavík er meira og minna skálduð og ég vona að Húsvíkingar fyrirgefi mér það. Skáldskapur er bara skáldskapur en samt er hann ákveðinn veruleiki.“ Sviðsetning og einlægni Talandi um mikilvægi þess að skoða mannlegt eðli þá er óhjákvæmilegt að horfa til þess að Friðrika er líka með bókina Eldheit ástarbréf sem samanstendur af ástarbréfum fjölda einstaklinga frá ýmsum tímum. En er fólk ekki einmitt eins nakið og það verður í slíkum bréfum? „Jú, þú verður ekki mikið einlægari um sjálfan þig en í bréfi til ástarinnar þinnar. En það sem mér finnst svo áhugavert er að á sama tíma ertu alltaf að leika. Alltaf að sviðsetja þá persónu sem þú vilt að ástin þín sjái. Bréfin í bókinni ná yfir 400 ára tíma- bil og það er gaman að sjá hvernig samfélagið hefur þróast. Hvað er leyfilegt að segja á hverjum tíma.“ En hvernig valdirðu bréfin? „Fyrst ætlaði ég að hafa þetta bréf höfunda sem hefðu skipt hvað mestu máli í bókmenntum síns tíma. Svo var það ekki að gera sig vegna þess að sumir af þessum gæjum voru svo hund- leiðinlegir. Þannig að ég valdi þetta meira út frá því hversu sönn mér fannst tilfinningin vera. Valdi þetta út frá einlægni. Það sem mér fannst hvað merkilegast var að ungir núlif- andi karlmenn voru almennt til í að láta birta ástarbréfin sín en konurn- ar mun fremur veinuðu af skelfingu við tilhugsunina. Stundum hefur maður enga skýringu á hlutunum og lætur bara við það sitja. Það sem eftir stendur er að þetta er skemmti- legt aflestrar og forvitnileg skoðun á mannlegu eðli í senn. Alveg bráð- skemmtileg vinna.“ Krimminn er í senn krossgáta og skoðun á mannlegu eðli Friðrika Benónýsdóttir segir að þegar hún var ung hafi allir í hennar klíku ætlað að flytja til Parísar og skrifa. Í upphafi ársins lét hún verða af því ásamt sambýlismanni sínum og þau kunna vistinni afar vel. FréttaBlaðið/anton Brink Magnús Guðmundsson magnus@frettabladid.is Friðrika Benónýs- dóttir flutti til Parísar snemma á árinu og sendi nýverið frá sér bæði glæpasöguna Vályndi og Eldheit ástarbréf. Mér heFur líka oFt Fundist vanta húMor í kriMMa og þar virðast allir reyndar líka vera Meira og Minna náttúrulausir svo Mig langaði til þess að snúa aðeins upp á þetta. 4 . n ó v e m b e r 2 0 1 7 L A U G A r D A G U r38 H e L G i n ∙ F r É T T A b L A ð i ð 0 4 -1 1 -2 0 1 7 0 4 :3 3 F B 1 2 0 s _ P 0 8 6 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 7 5 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 3 5 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 E 2 5 -E 1 A 8 1 E 2 5 -E 0 6 C 1 E 2 5 -D F 3 0 1 E 2 5 -D D F 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 A F B 1 2 0 s _ 3 _ 1 1 _ 2 0 1 7 C M Y K
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.