Fréttablaðið


Fréttablaðið - 04.11.2017, Qupperneq 94

Fréttablaðið - 04.11.2017, Qupperneq 94
Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Guðmundur Ólafsson Hrafnistu í Hafnarfirði, áður til heimilis að Bogahlíð 14, Reykjavík, lést á Hrafnistu 29. október sl. Útför hans fer fram frá Grafarvogskirkju föstudaginn 10. nóvember kl. 13.00. Vigfús L. Guðmundsson Ólöf J. Guðmundsdóttir Þóra A. Guðmundsdóttir Kristján Imsland Ingvar Guðmundsson Svava Mathiesen barnabörn og langafabörn. Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, Þórhallur Hróðmarsson Bjarkarheiði 19, Hveragerði, sem lést föstudaginn 27. október, verður jarðsunginn frá Hveragerðiskirkju föstudaginn 10. nóvember kl. 14.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, en þeim sem vildu minnast hans er bent á Hjartaheill, sími 552-5744. Anna Jórunn Stefánsdóttir Vilborg Una Þórhallsdóttir Zielke John Zielke Stefán Ingimar Þórhallsson Kristín Arna Hauksd. Pétur Nói Stefánsson og Tómas Breiðfjörð Stefánsson Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, Hulda Pétursdóttir frá Patreksfirði, lést þann 1. nóvember á hjartadeild Landspítalans. Útförin verður auglýst síðar. Sigríður Björg Gísladóttir Sigþór Pétur Svavarsson Unnur Berglind Svavarsdóttir Kjartan Gunnsteinsson og aðrir aðstandendur . Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð, hlýhug og vináttu vegna andláts okkar ástkæra Jóns Agnarssonar Holtsflöt 9, Akranesi. Jónína B. Jónsdóttir Guðjón Smári Agnarsson Guðfinna Björk Agnarsdóttir Sigurður Sævar Sigurðsson Ólöf Agnarsdóttir Sigurjón Skúlason Björg Agnarsdóttir Þór Arnar Gunnarsson Heiðrún Hermannsdóttir Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is • Símar: 565 5892 & 896 8242 ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Auðbrekku 1, Kópavogi síðan 1996 ALÚÐ • VIRÐING • TRAUST • REYNSLA Símar allan sólarhringinn: 581 3300 & 896 8242 • www.utforin.is Komum heim til aðstandenda og ræðum skipulag útfarar ef óskað er. Margrét Ásta GuðjónsdóttirSverrir EinarssonKristín Ingólfsdóttir Útfarar- og lögfræðiþjónusta Vesturhlíð 2 Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is Útfararstofa kirkjugarðanna Við erum til staðar þegar þú þarft á okkur að halda Við önnumst alla þætti undirbúnings og framkvæmd útfarar ásamt vinnu við dánar- bússkiptin. Við þjónum með virðingu og umhyggju að leiðarljósi og af faglegum metnaði. Sigrún Óskarsdóttir, guðfræðingur 4 . n ó v e m b e r 2 0 1 7 L A U G A r D A G U r46 t í m A m ó t ∙ F r É t t A b L A ð i ð tímamót Það hittist þannig á að ég er í fríi þannig að kannski verð ég góður við sjálfan mig og fer í fjallgöngu, sund eða eitthvað álíka ef það viðrar til þess. Svo fæ ég mér kaffi með börnunum mínum,“ segir Karl Ágúst Úlfsson, leikari og leikstjóri, rithöfundur og útgefandi. Trúlega þyrfti enn fleiri línur til að segja frá því hvað hann gerir líka. Karl Ágúst er sextugur í dag en hann segist ekki vera mikið afmælis- barn. Yfirleitt sé það þannig að eitthvað annað sé að gera en að halda upp á afmælið. Karl Ágúst lauk námi frá Menntaskólanum í Hamrahlíð 1977, og útskrifaðist frá Leik- listarskóla Íslands árið 1981 og lék í mörg ár á sviði, í s j ó n - v a r p i og í kvikmyndum. Karl Ágúst lauk meist- aragráðu í leikritun og handritagerð við Ohio University árið 1994 en hann hefur varið vikunni í einangrunarbúð- um í Hvítársíðu að æfa nýtt verk sem hann skrifaði fyrir skömmu. „Ég hef ekki oft haldið upp á afmælið mitt en ef það gerist er það ekki með neinum stórfenglegum tilburðum. Þetta hefur oft farið fram hjá mér. Það er oft þannig með leikara. Það er eittvað annað í gangi og maður gefur afmælinu ekki gaum. Ég er í Hvítársíðu með leikhóp á vegum Gaflaraleikhússins þar sem við erum í svokölluðum einangrunar- búðum eða hreinlega boot camp. Við erum að byrja vinnu við verk sem ég skrifaði og kallast Í skugga sveins. Við héldum upp í sveit, leikstjóri, leik- arar, leikmyndahönnuður og tónlistar- maður en eiginlegar æfingar hefjast svo eftir mánuð.“ Karl Ágúst hefur einnig lagt nokkra stund á kennslu, bæði í leikritun og skapandi skrifum og kennt við Háskóla Íslands, Endurmenntunarstofnun, Listaháskólann, Leiklistarskóla Banda- lags leikfélaga, Leiklistarskóla Færeyja og Mesa State College í Colorado. Auk þess hefur hann flutt fjölda fyrir- lestra og verið virkur í félagsstörfum, meðal annars í stjórn Félags íslenskra leikara og Félags leikskálda og hand- ritahöfunda auk þess sem hann sat í stjórn Rithöfundasambands Íslands í níu ár. Hann var bæjarlistamaður Garða- bæjar árið 2007 en sama ár hlutu þau Ásdís Olsen Menntaverðlaunin fyrir brautryðjendastarf á sviði námsefnis- gerðar. Hann segir dýrmætt að geta komist út í sveit og einangra sig frá amstri dagsins til að vinna. „Frjálsir leikhópar, sem eru ekki háðir töxtum hjá stórum leikhúsum leyfa sér stundum nokkurra daga einangrun til að sparka sér í gang. Það er dýrmætt að geta komist burtu í nokkra daga.“ benediktboas@365.is Sextugur stórleikari sem heldur ekki upp á daginn  Karl Ágúst Úlfsson, leikari og leikstjóri, fagnar stórafmæli í dag en hann er sextugur. Hann segist ekki vera mikið afmælisbarn en býst þó við að gera sér einhvern dagamun. Fá sér kaffi með börnunum sínum og jafnvel skella sér í sund, sé veðrið til þess. það er varla pláss til að telja upp allt sem afmælisbarnið Karl Ágúst Úlfsson gerir en hann er nýbúinn að skrifa leikverkið Í skugga sveins og var að foræfa það í Hvítársíðu. Hann er í fríi í dag og ætlar að taka því rólega. Fréttablaðið/anton brinK besta grín í íslenskri sjón- varpssögu var Spaugstofan sem Karl Ágúst stofnaði árið 1985. Síðan skemmtu þeir landsmönnum í hverri viku og gera stundum enn. 0 4 -1 1 -2 0 1 7 0 4 :3 3 F B 1 2 0 s _ P 0 9 9 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 9 4 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 2 2 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 E 2 5 -B 5 3 8 1 E 2 5 -B 3 F C 1 E 2 5 -B 2 C 0 1 E 2 5 -B 1 8 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 B F B 1 2 0 s _ 3 _ 1 1 _ 2 0 1 7 C M Y K
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.