Fréttablaðið - 04.11.2017, Qupperneq 116
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is,
Hafsteinn Hafsteinsson hafsteinn@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI
512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Jóhann Waage johannwaage@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Ólafur H. Hákonarson olafurh@365.is, FÓLK OG
SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is,
Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
Lífið í
vikunni
29.10.17-
04.11.17
HaLa niður fyrir meira
en miLLjarð
Íslendingar hala niður stolnu
efni fyrir meira en milljarð króna
samkvæmt útreikningum FRÍSK,
félags rétthafa í sjónvarps- og kvik-
myndaiðnaði. „Mér finnst mjög
sorglegt að sjá fólk deila
slóðum á efni eins og ekk-
ert sé eðlilegra á netinu,
sérstaklega á íslenskt
efni, þegar hægt er að
nálgast það á löglegan
máta á auðveldan hátt,“
sagði Jóhanna Margrét
Gísladóttir, dagskrárstjóri
Stöðvar 2.
„GríðarLeGur Heiður“
„Þetta er að sjálfsögðu gríðarlegur
heiður. Það er alltaf sérstakt að fá
platínuplötu en ég get alveg viður-
kennt að það er extra sérstakt í
Bandaríkjunum enda erum við
búsettir þar og höfum verið mest í
Ameríku síðustu þrjú ár eða svo,“
sagði Jökull Júlíusson, söngvari
Kaleo, um þá staðreynd að Kaleo
náði platínusölu á smáskífuna
Way Down We Go
eftirminniLeGir fyrr-
verandi þinGmenn
Á síðustu fjórum árum hafa
ótal margir fengið sér sæti sem
alþingismenn en snúið sér svo
að öðru. Lífið rifjaði upp nokkra
eftirminnilega
fyrrverandi
þingmenn. Þau
sem komust á
lista eru meðal
annars Elín
Hirst, Róbert
Marshall, Birg-
itta Jónsdóttir
og Benedikt
Jóhannesson.
SýninGin Píka
Linda Jó-
hannsdóttir,
eigandi
Pastel-
paper,
opnaði
í vikunni
sýningu undir
yfirskriftinni
Píka. „Hugmyndin kviknaði út frá
þeirri margþættu merkingu sem
orðið „píka“ hefur, miðað við
orðið „typpi“. Og hversu sorglegt
það sé að fólk eigi oft erfitt með
að segja „píka“,“ sagði Linda í sam-
tali við Lífið.
D Ý P R I O G B E T R I S V E F N
Með því einu að snerta takka getur þú stillt
rúmið í hvaða stöðu sem er og með öðrum
færð þú nudd. Saman hjálpa rúmið og dýnan
þér að ná há marks slökun og dýpri og betri
svefni. Svo vaknar þú endurnærð/ur og til
búin/n í átök dagsins.
FAXAFENI 5
Reykjavík
588 8477
DALSBRAUT 1
Akureyri
588 1100
SKEIÐI 1
Ísafirði
456 4566
H E I L S U R Ú M
A F S L ÁT T U R
25%
KO M D U N Ú N A !
S T I L L A N L E G I R D A G A R
AÐ SOFA BETUR OG LÍÐA BETUR ER OKKUR ÖLLUM DÝRMÆTT
STILLANLEGIR
DAGAR
Þ R Á Ð L AU S FJ A R S T Ý R I N G
LEDvasaljós
Klukka
Vekjaraklukka
Upp/niður höfðalag
Upp/niður fótasvæði
Rúm í flata stöðu
2 minni
Nudd
Bylgjunudd
S T I L L A N L E G U H E I L S U R Ú M I N F R Á C &J :
· Inndraganlegur botn
· Lyftigeta yfir 2 x 450 kg per botn
· Mótor þarfnast ekki viðhalds
· Tvíhert stálgrind undir botni
· Tveir nuddmótorar með tímarofa
· Þráðlaus fjarstýring með klukku,
vekjara og vasaljósi
· LED lýsing undir rúmi
· Hliðar og endastopparar svo dýnur
færist ekki í sundur
Tilboð 427.350 kr.
STILLANLEG RÚM – VERÐDÆMI
Með tveimur Serta Therapist heilsudýnum,
2 x 90 x 200 cm. Fullt verð: 569.800
Tilboð 472.350 kr.
Með Tempur Micro Tech Hybrid heilsudýnum,
2 x 90 x 200 cm. Fullt verð: 629.800
Þetta er fimm laga EP sem ég gaf út í samstarfi við Björn Val. Ég flaug suður og var þar í viku að taka þetta allt upp – ég var búinn að semja þetta
allt saman fyrir það. Ég skellti mér
svo aftur suður og eftirvinnsla hófst.
Við köttuðum eitt lag af plötunni og
settum inn annað lag sem ég gerði
með Helga Ársæli – það heitir Púki
og mér fannst það passa miklu betur
inn,“ segir Halldór Kristinn Harðar-
son, eða KÁ-AKÁ, sem eins og glöggir
gætu lesið úr rappnafninu kemur frá
höfuðborg norðurlands, Akureyri.
Hann var fyrir skemmstu að gefa út
plötuna Bitastæður og það má segja
að með henni vekji hann rappútgáfu
á Akureyri úr ákveðnum dvala sem
hefur að mestu ríkt síðan Skytturnar
gáfu út Illgresið hér um árið.
„Þetta er svona uppgjör á seinustu
tímum. Ég vildi ekki hafa þetta neitt
of flókið – þetta eru bara fimm trap
„bangers“ sem fá þig til að hreyfa þig
og þú færð ekkert leið á. Bara mjög
einföld hugsun framkvæmd á góðan
hátt.“
Það er sem sagt ekkert hægt að
vanga við nein lög þarna? „Nee, ég
reyni að sleppa við þau. Ég er dálítið
ofvirkur karakter og gæti aldrei
hlustað á sjálfan mig þannig, held
ég,“ segir Halldór en viðurkennir
samt að hann eigi eitt stykki ástarlag
inn á lager.
Það eru einhverjir góðir gestir
þarna ekki satt? „Það er náttúrlega
Birkir Bekkur í introinu sem tekur
gott símtal á mig og talar inn á tal-
hólfið mitt. Svo er Emmsjé Gauti
með mér í laginu Meir. Ég er auð-
vitað búsettur fyrir norðan þannig
að ég tók allt mitt upp í laginu og
svo hoppaði hann í það, henti þarna
í átta bars með stæl.“
Verð ég þá ekki að spyrja - hvernig
gengur það að vera rappari á Akur-
eyri í dag? „Jú auðvitað. Það gengur
bara vel að vera rappari á Akureyri
núna. Það byrjaði kannski sem smá
„ströggl“ – en ég er að spila miklu
meira núna en ég bjóst við miðað við
allt og það gengur bara fínt. Ég er að
fá athygli fyrir sunnan líka, og bara
um allt land – ég er hættur að spá í
því að ég sé Akureyringur að rappa,
ég er bara rappari landins. Ég tengi
mig auðvitað alltaf við Akureyri samt
og „reppa“ það þangað til að ég dey.
En þetta er ekki bara norðlensk sena
fyrir mér lengur.
Þannig að geta allir gert þetta? „Já,
maður verður bara að þora. Útfrá því
að ég fór að gera rapp eru kannski
aðeins fleiri að gera eitthvað fyrir
norðan – ég ætla ekki að segja að það
sé mér að þakka en ég á kannski ein-
hvern þátt í því.
Hvað er svo á döfinni hjá þér? Í
rauninni bara að lifa aðeins á þessari
plötu sem ég var að gefa út, leyfa fólki
aðeins að melta hana. Síðan er ég að
fara að skjóta myndband við eitt lag
af plötunni, ég geri það líklega núna
í vikunni og eða þeirri næstu. Svo er
það bara Airwaves, tvö gigg í dag. Já
og auðvitað bara að halda áfram að
gera „bangers“ og njóta þess að vera
til.
Og gefa út ástarlagið? „Já auð-
vitað.“
Plötuna Bitastæður með KÁ-AKÁ
má nálgast inn á Spotify.
stefanthor@frettabladid.is
rappari landsins frá
akureyri
KÁ-AKÁ segir það vera fínt að vera rappari á Akureyri. MyND/BJÖRN JÓNSSON
kÁ-akÁ er rappari
frá Akureyri sem
hefur verið að gera
það gott. Hann sendi
frá sér EP plötuna
Bitastæður sem
hann segir vera
einfalda pælingu -
bara trap „bangers“
sem fá fólk til að
hreyfa sig. KÁ-AKÁ
segir það fínt að vera
rappari á Akureyri.
éG er Hættur að
SPÁ í því að éG Sé
akureyrinGur að raPPa, éG
er bara raPPari LandinS.
4 . n ó v e m b e r 2 0 1 7 L A U G A r D A G U r68 L í f i ð ∙ f r É T T A b L A ð i ð
0
4
-1
1
-2
0
1
7
0
4
:3
3
F
B
1
2
0
s
_
P
1
1
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
1
0
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
E
2
5
-A
6
6
8
1
E
2
5
-A
5
2
C
1
E
2
5
-A
3
F
0
1
E
2
5
-A
2
B
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
1
2
0
s
_
3
_
1
1
_
2
0
1
7
C
M
Y
K