Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.02.2017, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.02.2017, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19.2. 2017 „Vonandi kemur vetur í vetur!“ Skíðamenn Íslands hafa ekki áttsjö dagana sæla í vetur.Reyndar má segja að sums staðar hafi þeir einmitt ekki átt nema sjö sæla daga, eða þar um bil! Stjórn- endur skíðasvæða liggja flestir á bæn í von um að loks fari að snjóa. Aðeins á Sauðárkróki er ástandið gott. Nægur snjór hefur verið í Tindastóli í vetur og opið flesta daga síðan í desember. Hópar hafa komið úr Reykjavík allar helgar frá ára- mótum til æfinga. Á föstudaginn voru flestar skíða- leiðir opnar í Hlíðarfjalli við Ak- ureyri. Guðmundur Karl Jónsson forstöðumaður sagði þokkalega mik- inn snjó á öllum skíðaleiðum. Snjóframleiðslan sannar sig Veturinn hefur hvorki verið fugl né fiskur. „Hinn 15. febrúar í fyrra hafði verið opið í 60 daga, á sama tíma 2015 í 41 dag; þá var góður snjór en þetta var lægðaveturinn mikli og mjög oft skítaveður. 15. febrúar núna hafði verið opið í 34 daga í Hlíðarfjalli.“ Guðmundur fagnar öllum snjó: „Í vikunni komu 15 millimetrar! Það skipti máli. Við þurfum ekki stórhríð til að fylla upp í allt. En ef hér væri ekki snjóframleiðsla hefðum við lík- lega ekkert opnað í vetur.“ Einar Bjarnason, rekstrarstjóri í Bláfjöllum, hefur verið í bransanum síðan 1981. „Ég man ekki að ástandið hafi verið svona slæmt nánast um allt land á sama tíma. Við megum þakka frábærum troðaramönnum að staðan sé þó ekki verri en hún er hér í Blá- fjöllum. Þeir hafa unnið daga og næt- ur við að sækja snjó í allar hvilftir til að setja í brekkurnar.“ Einar segir að ekki þurfi að snjóa mikið til að færið verði gott. „Þótt veðrið hafi ekki verið mjög slæmt niðri í byggð hefur verið rok og rign- ing hér upp í fjöllunum síðustu daga, eiginlega rignt eldi og brennisteini.“ Ekkert hefur verið opið í Skálafelli í vetur vegna snjóleysis. Á Dalvík kom gott „snjóskot“ í október og til stóð að opna skíða- svæðið en í mikilli tveggja daga hláku tók upp 70 cm af troðum snjó. Ótrúlegt, en satt. „Hægt er að renna sér og við höf- um haldið úti æfingum fyrir krakk- ana. Það verður þó sífellt erfiðara enda hefur verið hláka í þrjár vikur,“ sagði Snæþór Arnþórsson, formaður Skíðafélags Dalvíkur, fyrir helgi. Hann kveðst þó tiltölulega bjart- sýnn. „Vonandi kemur vetur ein- hvern tíma í vetur!“ sagði Snæþór. Ágætt færi hefur verið í Skarðsdal á Siglufirði síðan um áramót. „Hér var opið meira og minna allan janúar og færið ljómandi en nú erum við aft- ur á byrjunarreit,“ segir Egill Rögn- valdsson forstöðumaður. „Um síð- ustu helgi var hávaðarok og mjög hlýtt. Staðan er því ekki góð en við erum að bíða eftir nýrri sendingu! Vonandi kemur hún fljótlega.“ Venjulega er svæðið opnað 1. des- ember en tæpum mánuði seinna að þessu sinni. „Mig vantar 3.000 gesti miðað við sama tíma í fyrra. Mars og apríl verða vonandi góðir.“ Marvin Ómarsson, fram- kvæmdastjóri Skíðamiðstöðvar Austurlands í Oddsskarði, segir tölu- vert þurfa að snjóa til að hægt verði að opna svæðið. „Hér hefur ekki ver- ið frost í tvær vikur, ekki einu sinni næturfrost, og ég held að hitinn hafi verið í 18 stig í vikunni. Ég er hættur að fylgjast með hitamælunum!“ Opið hefur verið 12 daga í vetur. „Oft hafa komið snjólausir kaflar, að- allega vegna ríkjandi norðanátta og úrkomuleysis, en það er heldur betur óvenjulegt að vera með yfirfulla læki og 14 stiga hita í febrúar. Annars er mesta úrkoman hér alltaf í mars svo við reynum að vera bjartsýn. Snjór- inn kemur – eða það hlýtur að vera. Ég hugsaði reyndar alveg eins fyrir þremur vikum …“ Gott á göngusvæðinu Opið var átta daga í janúar á alpa- greinasvæði Ísfirðinga í Tungudal. „Þar af þurfti ég í tvo daga að keyra fólk upp í brekkur í snjóbíl,“ segir Hlynur Kristinsson forstöðumaður. Aðstæður á göngusvæðinu á Selja- landsdal eru hins vegar allt aðrar. „Við leggjum mikla áherslu á okkar frábæra göngusvæði og aðstæður þar hafa verið mjög góðar. Iðk- endahópurinn er stór og á góðum degi um helgar eru þar 300 til 350 manns í braut. Hingað hafa líka kom- ið hópar annars staðar af landinu í æfingabúðir.“ Rólegt hefur verið í vetur á skíða- svæði Snæfellsnes, í Gráborg fyrir ofan Grundarfjörð. „Hér hefur ekki verið neinn snjór og því ekkert hægt að hafa opið í vetur,“ segir Rósa Guð- mundsdóttir, formaður Skíða- svæðis Snæfellinga. „Þetta er mikið högg fyrir okkur. Við byrjuðum upp á nýtt í fyrra með því að endurnýja lyft- una og keyptum troðara í sumar! Heppnin er því ekki með okkur – en við verðum þeim mun tilbúnari næsta vetur.“ Snjólétt hefur verið í vetur í Vetraríþróttamiðstöð Íslands í Hlíðarfjalli við Akureyri sem víðast annars staðar. Flestar skíðaleiðir eru þó opnar nú. Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Einstakt að ástandið sé jafn slæmt svo víða – 3.000 færri á skíðum á Siglufirði en á sama tíma í fyrra – Hvorki nýr troðari né lyfta ræst í Grundarfirði í vetur – 70 cm af snjó tók upp yfir nótt – Stjórnandi í Oddsskarði hættur að fylgjast með hitamælunum. Skíðamót Íslands er fyrirhugað á Akureyri í lok mars. „Auðvit- að höfum við áhyggjur af því hvort hægt verði að halda mót- ið en vonum það besta,“ segir Jón Viðar Þorvaldsson, fram- kvæmdastjóri Skíðasambands Íslands. „Við höfum þurft að fresta töluvert af mótum í vet- ur, bæði í alpagreinum og göngu, en erum dugleg við að skoða langtímaspár,“ sagði Jón. Guðmundur Karl Jónsson, forstöðumaður í Hlíðarfjalli, segir aðstæður þannig að Landsmótið og Andrésar andar leika væri hægt að halda með bravör nú um helgina. „Sex vik- ur eru í Landsmót og Andrésar andar leikarnir eru á dagskrá eftir tvo mánuði. Ég er alltaf bjartsýnn en núna hugsum við ekki nema fjóra daga fram í tímann!“ segir Guðmundur. Hugsum bara fjóra daga fram í tímann „Hér hefur ekkert snjóað sem heitið getur í vetur,“ segir Agnar Sverrisson, rekstrar- stjóri skíðasvæðisins í Stafdal í Seyðisfirði. Opið var fyrir skíðamenn í um 20 daga í janúar þrátt fyrir lítinn snjó. „Við getum ekki opnað meira fyrr en kemur vetur. Ég auglýsi hér með eftir honum!“ segir Agnar. Það er ýmist of eða van í Stafdal. „Ekki eru nema þrjú ár síðan við mokuðum upp átta og hálfs metra löng lyftumöstur. Þá snjó- aði hér allt í kaf og 30 vinnustundir fóru í það á troð- aranum að moka upp eina lyftu. Maður veit aldrei hvað maður fær í þessu lífi.“ Ýmist of eða van ’ Í vikunni komu 15 millimetrar! Það skipti máli. Við þurfum ekki stórhríð til að fylla upp í allt. En ef hér væri ekki snjó- framleiðsla hefðum við líklega ekkert opnað í vetur. Guðmundur Karl Jónsson, forstöðumaður skíðasvæðisins í Hlíðarfjalli INNLENT SKAPTI HALLGRÍMSSON skapti@mbl.is

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.