Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.02.2017, Síða 12
H
in endalausa víðátta.
Það var það sem
heillaði hjónin og
ævintýrafólkið Birtu
Björnsdóttur og Jón
Pál Halldórsson sem fyrir fimm árum
rifu sig upp og fluttu til Barcelona en
núna búa þau í hálfgerðri sveit í ná-
grenni borgarinnar.
Heima á Íslandi hafði parið notið
mikillar velgengni, hvort á sínu sviði
þar sem Jón Páll starfaði sem einn
vinsælasti tattúlistamaður landsins og
Birta gerði það gott með fatamerki
sínu Júníform. Ef þau voru ekki í
vinnunni voru þau að breyta eða bæta
hús sitt í Miðstræti og sanka að sér
framandi gæludýrum.
Þau eru ekki hætt að breyta og
gera upp heimili eða enn að safna í
kringum sig dýrum; uglum, eðlum,
páfagaukum, hundum og naggrísum.
Þau gera það bara á suðlægari slóðum
ásamt börnum sínum tveimur. Það er
fallegur febrúardagur og þau fara
með blaðamann í útsýnisferð um hús-
ið í gegnum skypemyndavélina. Páfa-
gaukurinn talandi er greinilega mjög
spenntur yfir þessu viðtali okkar, get-
ur ekki hamið sig og grípur óspart inn
í. Þegar við hlæjum fer hann líka að
skellihlæja. Hlátrasköllin verða svo
rosalega löng þökk sé fuglinum.
Jón Páll: „Þetta er hinn spænski
gargandi djöfull Paco. Einmitt núna
eru þó ekki mörg gæludýr á heimilinu
miðað við það sem er venjulegt. Uglan
og kamelljónið eru nýdáin og skjald-
bakan týnd.“ Jón Páll hvíslar að nag-
grísirnir mættu líka alveg missa sín.
Birta segist innilega ósammála því
og minnir Jón Pál á að hann hafi
keypt þann fyrsta.
Jón Páll: „Hamsturinn lifir og
hundurinn má lifa enda mjög
skemmtilegur og óvænt viðbót við
heimilið. Páfagaukurinn er eins og
hann er og þú hefur séð, stundum
finnst mér að hann mætti bara líka
hverf …“
Birta: „Líf og dauði dýra er sem
sagt eðlilegur gangur tilverunnar á
heimili sem þessu. Kamelljónið var
orðið gamalt og lést úr elli en uglan
okkar hún veiktist eitthvað, við vitum
ekki alveg hvað gerðist þar.“
Jón Páll: „Núna langar okkur bæði í
nýja uglu, varptíminn fer að byrja en
það er bara hægt að kaupa uglu einu
sinni á ári, hjá löggiltum uglurækt-
anda á Suður-Spáni. Uglan þarf að
hafa gott rými og við ætlum að smíða
gott hús úti fyrir hana til að hún geti
flogið um.“
Birta: „Við erum eiginlega hættu-
leg saman því við fáum alls kyns
flugur í hausinn. Að vera sífellt að
bæta á okkur dýrum er til dæmis
Jón Páll og Birta hafa verið
saman í 17 ár og segja lykil-
inn að góðu sambandi með-
al annars vera þann að sitja
aldrei auðum höndum.
Ljósmyndir/Jón Páll Halldórsson
Við erum hætt að bíða
Birtu Björnsdóttur og Jón
Pál Halldórsson hafði
dreymt um að breyta lífi
sínu og upplifa ævintýri
á hverjum degi í stað
þess að vera alltaf að
bíða eftir því. Í sveit rétt
utan við Barcelona vinna
þau að sköpun sinni,
uppeldi barna og
óvenjulegra gæludýra.
VIÐTAL
12 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19.2. 2017