Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.02.2017, Qupperneq 18

Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.02.2017, Qupperneq 18
Dr. Magnea Karlsdóttir, sérfræðingur hjá Matís, Sigurjón og Jóhann V. Gunnarsson hjá Þorbirninum. Sigurjón dáist að pæklun þorskafla í saltfiskverkun Þorbjarnarins í Grindavík. É g hef unnið hérna í 39 ár en líður eins og ég hafi alltaf verið að skipta um starf; þetta hefur verið svo fjölbreytt og skemmtilegt,“ trúir Sigurjón Arason, yfirverk- fræðingur Matís og prófessor við matvæla- og næringarfræðideild Háskóla Íslands, mér fyr- ir þegar hann gengur með mér um sali Matís í Grafarholtinu. Sigurjón er ekki sú gerð vís- indamanns sem rykfallið hefur á tilraunastof- unni, heldur leiða fiskrannsóknirnar sem hann hefur komið að hann hingað og þangað. Hann vinnur ekki aðeins með öðrum vísindamönnum og nemendum heldur einnig náið með atvinnu- lífinu; svo sem fyrirtækjum í veiðum og fram- leiðslu og aðilum sem þróa tæki og hátækni- búnað til vinnslu sjávarafurða. „Það er ekki nóg að vísindamaðurinn svali sinni eigin for- vitni, þessi vinna hlýtur að þurfa að vera fyrir samfélagið líka,“ segir hann. Markmið rannsóknanna er að stuðla að framförum í sjávarútvegi og betri nýtingu afla, sem hefur í för með sér aukna verðmæta- sköpun. Árangurinn hefur ekki látið á sér standa, en þeir eru nokkrir milljarða tugir sem íslensku þjóðarbúi hafa hlotnast í gegnum tíð- ina vegna innleiðingar þekkingar sem orðið hefur til með samstarfi Matís, Háskóla Íslands, sjávar- útvegsfyrirtækja sem og annarra fyrirtækja og fleiri opinberra aðila. Sigurjón áætlar að fisk- rannsóknir Matís og HÍ skili á ári hverju 50 til 100 milljörðum króna til þjóðarbúsins; þ.e. af- koman er betri sem þessu nemur vegna téðra rannsókna. „Við getum samt alltaf gert betur; skilað meiri hagnaði. Þekkingin er alltaf að aukast.“ Alþjóðlegur vinnustaður Það er líf í tuskunum hjá Matís enda er fyrir- tækið kallað „brúin sem tengir vísindin við at- vinnulífið“. Þá hangir útibú frá Háskóla Ís- lands saman við Matís, sem hentar Sigurjóni vel enda er hann með sinn fótinn á hvorum staðnum. Þetta eftirmiðdegi er fólk ýmist niðursokkið í rannsóknir á tilraunastofum, að stinga saman nefjum á fundum eða á þönum um sali og ganga. Sigurjón víkur sér fimlega undan konu sem gengur greiðlega á eftir okk- ur. „Hún ekur um á mótorhjóli þessi og er kvik eftir því,“ segir hann kankvís. Konan skellir upp úr og kveðst vera að leita að nemanda sín- um. Fólk af ýmsu þjóðerni starfar hjá Matís og stundar nám við HÍ og við göngum í fangið á doktorsnema frá Víetnam sem Sigurjón hefur verið að leiðbeina. Hún vonast til að ljúka námi á næsta ári. „Það hefur verið gott samstarf milli Íslands og Víetnam á þessum vettvangi allar götur síðan Davíð Oddsson fór þangað í opinbera heimsókn meðan hann var forsætis- ráðherra. Hann hitti meðal annars sjávar- útvegsráðherra landsins, sem hafði mikinn áhuga á því sem við Íslendingar höfum verið að gera í greininni. Þetta hefur komið sér vel markaðslega í Asíu og verið mjög farsælt sam- starf enda eru Víetnamar harðduglegt fólk sem telur ekki eftir sér að vinna í tuttugu tíma á sólarhring. Eins og við,“ segir Sigurjón. Tæki og róbótar létta lífið Hann sýnir mér einnig margvísleg tæki og græjur. Tekur meðal annars upp prik og bein- ir því að kviðnum á mér. „Með þessu tæki get ég skotið á það hve fituprósentan er há,“ hótar hann. Sama og þegið! Alls kyns mælitæki og róbótar gera vísindamönn- unum lífið léttara og þetta er alltaf að verða full- komnara. Hann ber saman gömul og ný tæki, sem þjóna sama tilgangi en það nýja vinnur margfalt hraðar. Sigurjón barðist lengi fyrir stórum kælihermum, sem Matís hannaði og byggði fyrir um tveimur áratugum. Hann sýnir mér þá og segir þá hafa lyft grett- istaki. Athygli vekur að öllu er vandlega læst og aðeins umsjónarmenn hverrar rannsóknar um sig hafa aðgang. Sigurjón er með fiskinn í blóðinu, ef svo má að orði komast. Ólst upp í Neskaupstað og byrjaði að vinna í fiski um tíu ára aldurinn. Síðar var hann nokkrar vertíðir til sjós með föður sínum á Höfn í Hornafirði, en sá síðar- nefndi var brautryðjandi í humarveiðum hér við land. Eftir stúdentspróf spáði Sigurjón í læknis- fræðina en ákvað þess í stað að velja efnafræði og efnaverkfræði enda „fleiri líkamar að skoða í sjónum“. Hann hefur alltaf haft brennandi Gæfa að fá að vaða í slorinu Nýting sjávarfangs hefur tekið stakkaskiptum á umliðn- um áratugum vegna rannsókna Matís og Háskóla Íslands, í samstarfi við fyrirtæki í sjávarútvegi. Að sögn Sigurjóns Arasonar, yfirverkfræðings og prófessors, sem hefur helg- að ævistarf sitt þessum rannsóknum, skilar þetta þjóðar- búinu verðmætaaukningu upp á 50 til 100 milljarða á ári hverju. Hann er stoltur af árangrinum og samstarfinu við fyrirtækin í landinu. „Ég er svo lánsamur að hafa fengið að vaða í slorinu með iðnaðinum,“ segir hann. Ljósmyndir: Kristinn Ingvarsson kri@hi.is Texti: Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is ’ Það er ekki nóg að vís-indamaðurinn svalisinni eigin forvitni, þessivinna hlýtur að þurfa að vera fyrir samfélagið líka. VÍSINDI 18 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19.2. 2017

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.