Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.02.2017, Qupperneq 29
Morgunblaðið/Ásdís
Ragnhildur, Sigrún, Elsa,
Már, Jón, Erla, Birna, Halla,
Anna Guðrún og Lilja.
19.2. 2017 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29
Skerið brauðið í sneiðar og
setjið undir grill í ofninum
smástund á hvorri hlið, þar
til það er gullinbrúnt. Pensl-
ið brauðsneiðar með ólífu-
olíu, saltið og piprið.
Skolið kjúklingabaunir vel
og hakkið í matvinnsluvél
ásamt einum bolla af kjúk-
lingasoði.
Steikið tómatamaukið í
ólífuolíu. Setjið hvítlaukinn
út á pönnuna, salt, pipar og
smátt skorna steinseljuna.
Kreistið safa úr einni sítrónu
yfir. Blandið kjúklingabauna-
stöppunni saman við tóm-
atamaukið ásamt parmes-
an-ostinum og hitið saman
þar til osturinn hefur bráðn-
að. Smyrjið blöndunni á
brauðið og skreytið með
steinselju.
Uppskrift frá Inu Garten.
Fyrir 12
2 baguette brauð
ólífuolía, til að pensla brauð
með og til steikingar
salt og pipar
4 dósir kjúklingabaunir
1 bolli kjúklingasoð
4-5 tómatar, skornir smátt
1 búnt steinselja
hvítlauksrif, smátt skorið
sítrónusafi úr einni sítrónu
½ bolli parmesan-ostur, rifinn
Ristuð brúsketta frá Toscana
Fyrir 8-12
200 g ósaltað smjör við stofuhita, og smá
klípa til að smyrja með
120 g sigtaður flórsykur og smá auka til að
skreyta kökuna með
230 g 70% dökkt hágæðasúkkulaði
4 stór egg, skilin
4 msk. kartöflumjöl (potato starch)
7 msk. fíngerður sykur (gott að mala hann í
matvinnsluvél)
Hitið ofninn í 175°C. Smyrjið hringlaga
form, 28 cm í þvermál. Leggið smjör-
pappír í botninn.
Í stórri skál þeytið smjörið og flórsyk-
urinn saman þar til slétt og mjúkt.
Bræðið súkkulaði. Hellið volgu súkku-
laðinu yfir smjörblönduna og hrærið
áfram. Hrærið eggjarauðunum saman
við, einni í einu. Hrærið svo kartöflumjöl-
inu út í með sleif.
Í annarri skál þeytið eggjahvíturnar vel.
Hellið sykrinum saman við smátt og
smátt og þeytið áfram þar til nokkuð stíft.
Blandið svo þessu varlega saman við
súkkulaðið.
Hellið deiginu í kökuformið.
Bakið í 15 mínútur. Kakan mun hefast
og yfirborðið verða eins og þurrt og
sprungið. Takið út úr ofni og látið hana
kólna alveg, í a.m.k. tvo tíma.
Kakan mun falla aðeins saman.
Takið kökuna úr forminu og með sigti
látið snjóa flórsykri yfir kökuna.
Berið fram með mascarpone-rjóma.
MASCARPONE-RJÓMI
2 dollur mascarpone
1 peli rjómi
vanilla úr einn vanillustöng (eða ½-1 tsk.
vanilludropar)
2-3 msk. flórsykur
Þeytið saman í hrærivél.
Hveitilaus ítölsk súkkulaðikaka
Rósmarín kasjúhnetur
Fyrir 8-12 manns
500 g kasjúhnetur
2 msk. rósmarín, sax-
að mjög smátt
½ tsk. cayenne-pipar
2 tsk. ljós púðursykur
1 msk. salt (maldon
flögur eru góðar)
1 msk. bráðið smjör
Hitið ofninn í
170°C. Setjið hnet-
urnar í ofnskúffu og
inn í ofninn í 5 mín-
útur.
Blandið hráefn-
unum saman í skál
og hitið í örbylgju í
smá stund. Hellið
því síðan yfir hnet-
urnar, hrærið að-
eins og berið fram
volgt.
Þetta er hættu-
lega gott!
Frá Inu Garten.