Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.02.2017, Blaðsíða 30
Heimsmeistari
á Álftanesi
Cesar Rodriguez er mexíkóskur heimsmeistari í taekwondo og goðsögn
í heimalandinu. Hann er nú Íslendingur og segir fjölskylduna hafa
elt barnabarnið til Íslands. Hann kennir fólki á öllum aldri afbrigði af
taekwondo sem nefnist soobahkdo sem er íþrótt fyrir líkama og sál.
Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is
Cesar er lifandi goðsögn í Mexíkó. Í dag njóta Álftanesbúar góðs af kunnáttu
hans í soobahkdo þar sem hann kennir fólki á öllum aldri hjá UMFÁ.
Cesar er velþekktur í heima-landi sínu og segir dóttirhans, Viri, að hvert
mannsbarn þar þekki hann í sjón.
Hingað flutti hann árið 2008 og
var þá ráðinn landsliðsþjálfari tae-
kwondo á Íslandi. Nú er hann ís-
lenskur ríkisborgari og þjálfar
fólk á öllum aldri á Álftanesi í
soobahdko.
Barnabarnið í fyrsta sæti
Þessi tvöfaldi heimsmeistari í tae-
kwondo er frá Mexíkóborg. Þegar
barnabarn hans, Apríl Mjöll,
fæddist ákvað fjölskyldan að flytja
til Íslands. Eftir flutninginn hing-
að kom fljótlega í ljós að Cesar
gat kennt Íslendingum ýmislegt í
íþróttinni. Hann var ráðinn þjálf-
ari íslenska landsliðsins í tae-
kwondo sem keppti á heimsmeist-
aramótum árin 2009 og 2013 auk
þess sem hann hefur stundað
kennslu.
„Hann kom fyrst til að þjálfa
taekwondo en fór svo út í það sem
kallast soobahkdo. Hann hefur
þróað kennsluna lengi og það er
nú mikill áhugi á Álftanesi,“ segir
Viri dóttir hans. Cesar er nú með
35 ára reynslu í kennslu og hefur
nú síðustu átta ár kynnt soo-
bahkdo fyrir Íslendingum. Þrír Ís-
lendingar þreyta nú próf til að fá
svarta beltið. „Að fá svarta beltið í
þessari hefðbundnu sjálfsvarnar-
íþrótt krefst mikillar þolinmæði,
hæfni og ábyrgðar. Þessir þrír
nemendur hafa undirbúið sig fyrir
prófið í átta ár og prófið sjálft tek-
ur marga mánuði. Þeir verða
fyrstu íslensku nemendurnir sem
fá svarta beltið í soobahkdo og rita
þar með nafn sitt í sjálfsvarnar-
íþróttasögu Íslands,“ segir Cesar
og brosir, enda stoltur af nem-
endum sínum.
Soobahkdo fyrir sálina
Cesar og Viri útskýra að hver sem
er geti stundað soobahkdo, allt frá
börnum upp í gamalmenni.
Soobahkdo á rætur að rekja til
Suður-Kóreu, eins og taekwondo,
og var til á undan taekwondo. Þau
segja soobahkdo ekki hugsað sem
keppnisíþrótt. „Það er meiri fókus
á virðingu, heilindi og á samhæf-
ingu líkama og öndunar en að
keppa,“ segja þau og líkja því við
jóga að þessu leyti. „Þetta snýst
ekki um að keppa heldur um að
vera í sambandi við sjálfan sig.
Þannig er það ekki einungis fyrir
líkama heldur líka sál,“ segir hann.
„Það getur einnig hjálpað börnum
með ADHD því þau verða einbeitt-
ari,“ segir Cesar.
Í landsliðinu í 15 ár
Cesar var níu ára gamall þegar
hann byrjaði að æfa taekwondo og
var orðinn bestur í Mexíkó í sínum
aldursflokki þegar hann var tólf
ára. Hann varð tvisvar heims-
meistari í íþróttinni sem fulltrúi
Mexíkó, árið 1982 og 1984. Hann
er eini Mexíkóinn sem hefur verið
í taekwondo-landsliði fimmtán ár í
röð. „Ef maður tapar í einni
keppni missir maður sæti sitt.
Hann er sá eini sem hefur haldið
sætinu svona lengi,“ segir Viri
stolt af föður sínum.
Í kjölfarið tók hann við mexí-
kóska landsliðinu en sjálfur keppti
hann síðast árið 1992 og hefur helg-
að líf sitt kennslu, en hann hefur
kennt allar götur síðan 1984. Í dag
er hann þjálfari 20-25 manna hér-
lendis á ýmsum aldri.
Hefur áhrif á samfélagið
Viri segir föður sinn vera lifandi
goðsögn í heimalandinu. „Hann
hefur veitt mér innblástur til að
gefast aldrei upp og það hefur
hann gert fyrir fleiri. Við erum að
tala um stjórnmálamenn í Mexíkó,
leikara og fólk sem náð hefur
langt í lífinu sem segir í dag, ég
hef æft undir leiðsögn Cesar
Rodriguez. Hann er sjálfur svo
hógvær en þú ættir að sjá hvaða
áhrif hann hefur á samfélagið sitt.
Hann hefur oft hjálpað ungmenn-
um sem hafa átt við fíkniefnavanda
að stríða. Þannig hefur hann áhrif
á heilu fjölskyldurnar. Og það er
fallegt. “
Lék í Rambo
Sjálfsvarnaríþróttin hefur leitt
Cesar víða. Hann á „kvikmynda-
feril“ að baki, en hann lék í Rambo
árið 1984 með Sylvester Stallone.
Þar lék hann víetnamskan her-
mann sem sýndi sjálfsvarnarlist.
„Það var skemmtilegt, góð
reynsla!“ segir hann og brosir.
Cesar segir lífið á Íslandi ákaf-
lega gott. „Mér líkar það vel, allt-
af,“ segir hann, en þau hafa nú bú-
ið hér tæp níu ár. Þau hafa aðeins
þrisvar heimsótt Mexíkó síðan þau
fluttu hingað og segja skammdegið
ekki trufla heldur þvert á móti.
„Við elskum myrkrið, það er svo
dularfullt. Við kveikjum þá bara á
kertum,“ segir Cesar og ljóst er að
hér fer maður sem kann að finna
gleðina í litlu hlutunum. Ástríða
Cesars í dag er að kenna Íslend-
ingum soobahkdo og er hann með
opna tíma fyrir börn og fullorðna á
Álftanesi. .
Cesar Rodriguez og augasteinninn hans, barnabarnið Apríl Mjöll. Hún er
ástæða þess að öll fjölskyldan flutti til Íslands fyrir níu árum.
Morgunblaðið/Ásdís
Morgunblaðið/Eggert
HEILSA Í tómatsósu, sem þykir ómissandi með hamborgara og frönskum, ermikill sykur, 4 grömm eru í einni matskeið. Flestir láta sér ekki duga
eina matskeið og innbyrða því 12-20 grömm af sykri í slíkri máltíð.
Sykurinn leynist víða
30 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19.2. 2017