Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.02.2017, Page 32
Marc Jacobs skapaði
áhugaverða stemningu á
sýningu sinni fyrir vetur-
inn. Fyrirsæturnar gengu
um götur Manhattan í
fáguðum fatnaði
hönnuðarins. Feld-
ur, hattar og mild-
ir litir einkenndu
þessa líflegu línu.
CALVIN KLEIN
AFP
VICTORIA BECKHAM
MARC JACOBS
PROENZA SCHOULER
Vetrartískan
2017
Fyrsta lína Raf Simons fyrir Calvin
Klein, sem margir hafa beðið eftir
með eftirvæntingu, var listræn og
kraftmikil. Hönnuðurinn vann mikið
með plastáferð og sterka liti svo úr
varð spennandi lína sem tískuspekúl-
antar telja að eigi eftir að umturna
Calvin Klein.
Í vetrarlínu Proenza Schoul-
er lögðu yfirhönnuðirnir Jack
McCollough og Lazaro Hern-
andez áherslu á fáguð snið og
dökka liti í bland við nokkra
örlítið skærari liti og háglans-
áferð. Yfirskrift línunnar var
„Sterkt, ekki veikt“ en þau hug-
tök skinu greinilega í gegn.
Victoria Beckham sýndi sterka línu fyrir
veturinn. Sniðin voru víð og stór og ein-
kenndist línan af miklum krafti.
Í febrúar sýna tískuhúsin línur sínar
fyrir næsta vetur og gefa þannig tón-
inn fyrir þá strauma og stefnur sem
verða áberandi veturinn 2017-2018.
Tískuvikunni í New York lauk í
vikunni og hér gefur að líta nokkrar
línur sem stóðu upp úr.
Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is
TÍSKA
32 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19.2. 2017
Fangamynd Jeremy Meeks vakti athygli þegar hún lak á internetið 2014 þar sem Meeks
þótti afar fagur fangi. Meeks hlaut þá viðurnefnið heiti fanginn en á mánudag gekk hann
tískupallinn fyrir Philipp Plein. Þess má geta að Meeks skrifaði undir samning við
fyrirsætuskrifstofu áður en honum var sleppt úr fangelsi 2016.
„Heiti fanginn“ gengur tískupalla