Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.02.2017, Page 45
Black Sabbath við upphaf ferils síns fyrir bráðum fimmtíu árum.
Sigurður Sverrisson lítur svo á
að þetta hafi verið lokaútkallið;
ferill Black Sabbath verði ekki
lengri úr þessu. Bandið hefur þó
ekki formlega lagt upp laupana
og Tony Iommi gaf í skyn nýver-
ið, í samtali við vefsíðuna Ulti-
mate Classic Rock, að þeir fé-
lagar eigi mögulega eftir að
sýsla eitthvað meira saman í
framtíðinni enda þótt tónleika-
hald sé ekki partur af þeim
áformum. „Ég er ekki hættur
að semja og hver veit nema ég
eigi eftir að gera eitthvað með
strákunum og þá í hljóðverinu
en alls ekki túra,“ sagði hann.
Iommi hefur einnig rætt um
að hann hafi áhuga á að endur-
útgefa efni og jafnvel semja nýtt
með söngvaranum Tony Mart-
in, sem var í bandinu á níunda
og tíunda áratugnum.
Aldur og heilsa spila líka inn í
þessar pælingar en Iommi hefur
glímt við krabbamein undan-
farin misseri. Sú barátta virðist
nú ganga vel.
Ekki endilega hættir
höndum tekið þegar hann samdi við
Ozzy Osbourne, söngvara sveitar-
innar, um að halda tónleika á Akra-
nesi árið 1992 en sólóferill hans stóð
þá sem hæst. Skömmu síðar velti
Ozzy hins vegar fjórhjóli (sjá menn
hann ekki örugglega fyrir sér á slíku
tryllitæki?), lemstraðist og varð að
aflýsa tónleikunum. Þá hljóp Black
Sabbath í skarðið en önnur goðsögn,
Ronnie James Dio, frontaði þá band-
ið. „Það var auðvitað frábært en ég
þufti aftur á móti að bíða í aldar-
fjórðung eftir því að sjá Ozzy á sviði;
núna í Bretlandi.“
Grjóthart „sjóv“
Hann segir Ozzy hafa staðið fyllilega
undir væntingum, eins og bandið
allt. „Auðvitað stillir maður vænt-
ingum í hóf fyrir svona tónleika;
þessir menn eru ekki 25 ára, heldur
að verða sjötugir. Samt sem áður
var þetta ótrúlega flott „sjóv“ –
grjóthart. Riffin hjá Tony Iommi eru
alveg mögnuð, það er eins og gítar-
arnir séu tveir en ekki einn. Ozzy var
líka sprækari en ég hafði reiknað
með; gerði mjög vel. Auðvitað er
röddin ekki sú sama og þegar hann
var upp á sitt besta og lagavalið tók
líka mið af því; þetta voru nær ein-
göngu lög af fyrstu fjórum plöt-
unum. Sabbath Bloody Sabbath var
til dæmis alveg hvíld,“ segir Sig-
urður.
Spurður um hljóminn svarar Sig-
urður: „Frábær – og það á bæði við
um bandið og húsið.“
Og Ozzy var kóngur um stund.
„Heldur betur. Tæplega sjötugur
maður að stýra tuttugu þúsund
manna kór sem étur úr lófanum á
honum. Hverjum þætti það
ekki gaman?“
Ekki þarf að fjölyrða um
áhrif Black Sabbath á
málmsöguna, ekki síst á
bönd sem komið hafa fram
frá 1980. Iron Maiden,
Metallica, Slayer,
Sepultura og
ótal fleiri
hafa marg-
vottað meisturunum virðingu sína, í
orði og á borði.
„13. febrúar 1970. Þann dag fædd-
ist þungarokkið,“ segir Sigurður.
„Þá kom fyrsta plata Black Sabbath
út, samnefnd sveitinni.“
Óskaði þess að vera eldri
Að sögn Sigurðar var aldursbil tón-
leikagesta breiðara en hann bjóst
við. Fólk á miðjum aldri var að von-
um áberandi en líka unglingar og
fólk á þrítugsaldri. „Menn eldast
auðvitað með böndunum sínum en
Black Sabbath nær greinilega til
yngri kynslóðanna líka. Það má
heldur ekki gleyma því að þessir
lokatónleikar voru auðvitað stór-
viðburður.“
Á tónleikunum í Manchester hitti
hann ríflega tvítugan Breta að máli
sem harmaði hlut sinn í þessu lífi.
„Ég vildi óska þess að ég væri eldri;
ég hef misst af þessu öllu saman,“
varð honum að orði. „Hann steinlá
greinilega fyrir þessari músík,“ seg-
ir Sigurður.
Skyldi engan undra.
19.2. 2017 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 45
KVIKMYNDIR Leikkonan Octavia Spencer fagnar því
hversu margir þeldökkir leikarar eru tilnefndir til Ósk-
arsverðlauna að þessu sinni en sú staðreynd að engir
voru tilnefndir í fyrra vakti mikla reiði og umtal. Spen-
cer er sjálf tilnefnd í flokknum „besta leikkona í auka-
hlutverki“, fyrir frammistöðu sína í Hidden Figures,
ásamt tveimur öðrum þeldökkum leikkonum, Naomie
Harris og Violu Davis. Í samtali við breska blaðið The
Guardian kveðst Spencer alls ekki vilja að þeldökkir
leikarar séu bara tilnefndir húðlitar síns vegna, ekki
frekar en asískir eða suðuramerískir, en eigi að síður
beri að fagna þessari framför. Ruth Negga, Denzel
Washington og Mahershala Ali eru líka tilnefnd til Ósk-
arsins fyrir bestan leik í aðalhlutverki.
Litríkari Óskar
Octavia
Spencer
AFP
MÁLMUR Atriði Metallica á Grammy-
verðlaunahátíðinni á dögunum fór ekki vel af
stað en slökkt var á hljóðnema James Het-
fields söngvara. Þegar hann áttaði sig á því
reyndi hann að hlaupa uppi gestasöngkon-
una, Lady Gaga, til að deila hljóðnema með
henni en það var þrautin þyngri, þar sem hún
var yfirspennt og minnti einna helst á haust-
lamb sem sloppið hefur úr sláturhúsi. Hljóðið
komst í lag en Hetfield var ekki skemmt og
að flutningi Moth Into Flame loknum spark-
aði hann hljóðnemastandinn niður og fleygði
gítarnum út af sviðinu. Hljóðmaðurinn hefur
vonandi verið hlaupinn út í nóttina.
Hljóðið Gaga og Hetfield ekki hress
James Hetfield og Lady Gaga á Grammy.
AFP
Smáratorgi 1, 201 Kópavogi, sími 588 6090, vl@simnet.is
Verkfæralagerinn
Mán.-fim. kl. 9-18, fös. kl. 9-18:30, lau. kl. 10-18, sun. kl. 12-17
Miklu meira en bara ódýrt!
SONAX bílavörur í miklu
úrvali á mjög góðu verði.
9.999
Háþrýstidælur
1400W 135Bör
Ozzy Osbourne, Tony Iommi
og Geezer Butler eru allt
upprunalegir meðlimir Black
Sabbath en sveitin var stofn-
uð árið 1968. Fjórði stofn-
meðlimurinn, trymbillinn Bill
Ward, er enn í fullu fjöri en
ekki tókst að semja við hann
fyrir gerð síðustu breiðskífu,
13, og lokatúrinn.
„Það voru mikil vonbrigði
að Bill Ward skyldi ekki koma
fram á þessum lokatónleik-
um,“ segir Sigurður, „þó ekki
væri nema til að taka eitt til
tvö lög og þakka samfylgdina.
Ég held að listamennirnir hafi
engu fengið um það ráðið.
Þetta snýst allt um bisness og
Sharon Osbourne [eiginkona
og umboðsmaður Ozzys] er
grjóthörð bisnesskona. En
svona er þetta, maður
fær ekki allt í þessu
lífi!“.
Sigurður segir
staðgengil Wards,
Tommy Clufetos, fín-
an trymbil en þó
fullharðan fyr-
ir tónlist
Sabbath.
Maður fær
ekki allt
Bill Ward
Skagalið Black Sabbath haustið 1992: Geezer Butler, Tony Iommi, Ronnie James Dio og Vinny Appice.