Morgunblaðið - 07.04.2017, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 07.04.2017, Blaðsíða 25
MINNINGAR 25 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. APRÍL 2017 ✝ Páll Vígkon-arson, fv. framkvæmdastjóri, fæddist í Reykja- vík 5. júlí 1931. Hann lést 28. mars 2017 á Landspít- alanum. Foreldar hans voru Vígkon Hjör- leifsson húsasmíða- meistari og kona hans, Sigríður Pálsdóttir. Páll stundaði nám í Iðnskólanum í Reykjavík. Hann lauk sveinsprófi í prentsmíði árið 1953 og prentmynda- ljósmyndun 1965. Hann hlaut meistararéttindi 1966. Páll var verkstjóri hjá prentmyndastof- unni Litrófi 1955-1957, stofn- andi og framkvæmdastjóri Myndamóta hf. 1957-1989 og framkvæmdastjóri H. Pálssonar frá 1989 til starfsloka. Páll sat um árabil í stjórnum félaga og fyrirtækja í prent- geiranum, m.a. í stjórn Félags ís- lenska prentiðn- aðarins 1974-1982. Páll var virkur innan Oddfellow- reglunnar og gegndi þar ýmsum trún- aðarstörfum. Eftirlifandi eig- inkona Páls er Erna Arnar. Synir þeirra eru Bernhard Örn og Hákon. Fósturdóttir Páls og dóttir Ernu er Rannveig E. Arnar. Útförin fer fram frá Dómkirkjunni í dag, 7. apríl 2017, klukkan 13. Á sólríkum Kaliforníudegi bárust mér fréttir um fráfall afa míns á Íslandi. Harmi slegin átti ég í fyrstu erfitt með and- ardrátt en eftir skamma stund fylltist hugur minn af yndisleg- um minningum um afa. Afi var alltaf fullur orku og áhuga og var sögumaður á heimsmæli- kvarða. Hver saga einkenndist af kímni, frásagnargáfu og vissu skáldskaparleyfi sem hann tók sér, sem örvaði ímyndunarafl mitt mikið. Sem barn hlustandi á frásagnir hans upplifði ég lífs- þrótt hans. Spurningarnar streymdu: hvar, hvers vegna, hvenær og hvað! Þessi reynsla örvaði áhuga minn á að kynna mér heiminn og að taka hvert tækifæri sem mér bauðst. Hann var fagurkeri sem sóttist eftir öllu því góða sem lífið bauð upp á og hann naut slíkra stunda til fullnustu. Með fráfalli hans er það kannski rétt að ég segi eina þá sögu að hætti hans sem hann sagði mér í hvert skipti sem við hittumst. Fyrir mig markaði þessi saga þá ást og umhyggju sem hann ávallt sýndi fólki í kringum sig. Þetta er sagan um hvernig hann hitti ömmu í fyrsta sinn. „Shireen,“ sagði hann, „það var mesta lukkan í mínu lífi þegar ég hitti ömmu þína af tilviljun í Kaupmanna- höfn. Hún var og er enn fallegasta kona sem ég hef aug- um litið. Hún er ólík öllum öðr- um konum, alveg sérstök“. Svo benti hann á ömmu, sem var aldrei langt í burtu. Og henni leið vel. Þessi orð breyttust aldrei í þau 33 ár sem við töl- uðum saman. Þessi orð festust í mínu minni. Þau sýndu að ást og umhyggja getur enst lengur en 60 ára hjónaband, og að það er hollt að rækta sér áherslu á jákvæðni og hamingjuríkar stundir. Hann sagði ávallt „ég vil lifa fleiri skemmtilegar stundir en færri leiðinlegar“ sem var leiðandi prinsipp í hans lífi. Ég var heppin að geta fylgst með ástríkum eiginmanni, tengdaföður, afa, og svo ástrík- um langafa sonar míns, Trist- ans. Við berum öll nafn hans, Pálsson. Nafn hans og sögur hans eru hluti af okkur og börn- um okkar. Ég elskaði afa inni- lega, ég mat hans mikils, ég er stolt af því að vera barnabarn hans og er heppin að njóta já- kvæðra áhrifa hans á mitt líf. Þó að það sé eðlilegt að finna fyrir sorg og söknuði, er mun mikilvægara að vita að hann lifði hamingjuríku lífi og að við fengum tækifæri á að eyða ótöldum stundum með honum. Kveðja, Shireen Maria Palsson. Á æskuárum mínum á Kirkjubóli í Korpudal, Önund- arfirði, var gestkvæmt á sumr- in. Minnisstæðast er mér er ég stóð, strákhnokkinn, úti og fyrir garðshornið renndi sér límósína í hlaðið. Út sté hár og glæsi- legur frændi minn, klæddur ljósum kakífötum og frú Erna í sumarkjól. Börnin prúðbúin í aftursætinu. Fyrir mér var þetta sem upphaf amerískrar bíómyndar þar sem hann lék að- alhlutverkið en er nú að ljúka. „The end!“ Páll var gamansamur, góður sögumaður. Sagði gjarnan frá því er hann var ungur að nema prentmyndaiðn í Kaupmanna- höfn og hitti föngulega stúlku. Ávarpaði hana á sinni fínu dönsku og þau ræddu saman um hríð. Kom þá í ljós að þau voru bæði íslensk en þar var komin Erna Arnar, hans eig- inkona og stoð og stytta í lífinu. Þau stofnuðu síðan Myndamót á efstu hæð Morgunblaðshússins, prentmyndagerð og auglýsinga- stofu. Á þessum tíma vorum við bræðurnir að hefja innflutning á raftækjum. Ómetanleg var sú faglega aðstoð sem Páll og hans starfsfólk veitti okkur við mark- aðssetningu og átti vafalaust þátt í velgengni okkar. Það ber að þakka. Hákon og Berglind hafa síðan fram haldið starfinu sem H. Pálsson, auglýsingastofa og tölvuþjónusta. Ánægjulegt að sjá árangursríku ævistarfi skil- að til afkomenda sinna. Frændi var lífsnautnamaður. Ferðaðist um heiminn, stundaði laxveiði, sem varð tilefni að mörgum veiðisögum, úr Laug- ardalsánni, Langá og víðar. Sumarbústaðurinn á Þingvöllum var þeirra unaðsreitur. Í seinni tíð leitaði hugurinn vestur þar sem hann dvaldi ung- ur hjá frændfólki og vinum á sumrin. Ættrækinn í meira lagi, sótti reglulega elsta frændfólkið í kaffi á sunnudögum. Stofnaði bridsklúbb með jafnöldrum sín- um að vestan sem ég tek enn þátt í. Eitt það besta sem hent hef- ur mig á lífsleiðinni er að ganga í Oddfellowregluna. Það var ein- mitt frændi minn sem gaf mér kost á því og fyrir það verð ég honum ævinlega þakklátur. Hann gekk í stúkuna okkar, Þorfinn Karlsefni nr. 10, IOOF árið 1966. Leiða má líkum að því að þess vegna hefur ávallt verið nokkuð um bræður af ön- firskum uppruna í stúkunni. Jafnan á mánudögum hringdi ég í hann og við vorum samferða á fundi og aðra viðburði í stúk- unni. Í seinni tíð hefur fund- arsókn hans strjálast eins og gengur. Það var okkur því sér- stakt ánægjuefni að hann kom eftir áramótin til að veita við- töku viðurkenningu okkar fyrir hálfrar aldar starf eins og hefð er fyrir í okkar félagsskap. Við það tækifæri rifjuðust upp öll þau mikilvægu ábyrgðar- og forystustörf sem hann hafði tek- ið að sér og rækt með mynd- arskap og framsýni fyrir okkar stúku og regluna í heild, meira en ég hafði hugmynd um. Fyrir hönd okkar Þorfinnsbræðra flyt ég honum þakkir fyrir að leið- arlokum. Frú Ernu, Rannveigu, Bernhard, Hákoni og fjölskyld- um færum við innilegar sam- úðarkveðjur. Hvíl í friði, kæri frændi og vinur. Össur Stefánsson. Við brotthvarf vinar streyma fram minningar. Ég man það eins og það hafi gerst í gær þegar ég kom fyrst í heimsókn til Benna, æskuvinar míns, í Aratún 40, árið 1969. Foreldrar hans, Erna og Páll, tóku á móti mér eins og ég væri einhver sérstakur, ekki bara einhver strákur úr hverfinu. Seinna sá ég að þau komu svona fram við alla vini Benna. Einhvern veginn hafði Páll þá gáfu að umgangast ungt fólk eins og fullorðnar manneskjur. Þannig urðu tengslin og sam- ræðurnar dýpri. Páll kom fram við mig af einstakri hlýju of gestrisni. Hann þreyttist aldrei á að uppfræða aðra um sína eig- in reynslu og hvatti til framfara og bjartsýni. Í gegnum árin fylgdist hann vel með því sem ég var að gera og tók oft á sig aukakrók til að aðstoða erlenda stafsmenn mína, með því t.d. að bjóða þeim aðstoð, taka þá með í golf, svona rétt til að auðvelda þeim aðlögun að landi og þjóð. Leiðir okkar lágu víðar sam- an á lífsveginum en í Garða- bænum. Við hittumst m.a. í Kansas og Kaliforníu. Góðar minningar, skemmtilegar sögur, ljúffengar máltíðir og barferðir lifna við í huga mér er ég kveð Pál. Ég er forsjóninni þakklátur fyrir að hafa fengið að kynnast Páli og fjölskyldu. Friðrik R. Jónsson. Tíminn er merkilegt hugtak. Hann hefur ekkert upphaf og engan endi, líður áfram með jöfnum hraða og stoppar aldrei. Hann mælir tíma okkar í tilver- unni, ævi okkar, bernskunni, unglings og fullorðinsárum. Vin- ur minn Páll Vígkonarson var Reykvíkingur. Fyrstu spor sín steig hann í Vesturbænum. Þeg- ar litið er yfir æviskeið Páls Vígkonarsonar sjáum við fyrir okkur hlýtt og gott æviskeið með mörgum gæfuríkum stund- um. Bernskan með sína gleði og gáska, unglingsárin með sína drauma og fullorðinsárin þar sem draumarnir urðu að veru- leika. Á unglingsárunum stefndi Páll á arkitektúr sem framtíð- arstarf. Sá draumur gekk þó ekki eftir, hann lærði prentiðn hér í Reykjavík en fór síðan til framhaldsnáms í Kaupmanna- höfn. Þar kynntist hann konu- efni sínu, ungri Reykjavíkur- stúlku sem þó átti uppruna sinn austan lækjar. Svona eru gæfu- sporin. Að vera á réttum stað á réttum tíma. Ungur stofnaði Páll Vígkon- arson fyrirtæki sitt Myndamót. Þar hefur hann nefnt við mig annað gæfuspor sitt er hann gerði samkomulag við Bjarna Benediktsson, sem þá var rit- stjóri Morgunblaðsins, um sam- vinnu Morgunblaðsins og Myndamóta. „Sjálfs þitt afl, var þín stoð“, svo ég vitni í Einar Benediktsson. Það var við inn- göngu mína í Oddfellowregluna að við Þórey kynntumst þeim Páli og eiginkonu hans, Ernu Arnar. Það voru okkur góð kynni sem leiddu af sér margar góðar stundir. Hæst risu þær þegar þau Páll og Erna skutu yfir okkur skjólshúsi er dráttur varð á afhendingu húsnæðis sem við höfðum samið um og keypt. Marga góða þætti er hægt að telja fram um Pál Víg- konarson en hér er mál að ljúka. Því vil ég með þessum fá- tæklegu skrifum þakka þér, Páll, fyrir þau skref sem við höfum stigið saman í tímans rás, með tilvitnun í kvæðið Höfðingi smiðjunnar, sem Davíð Stefánsson orti svo fallega til okkar iðnaðarmanna. Þessi orð lýsa lífsstíl þínum vel. Hann tignar þau lög, sem lífið með logandi eldi reit. Hann lærði af styrkleika stálsins að standa við öll sín heit. Hann lærði verk sín að vanda og verða engum til meins. Þá væri þjóðinni borgið, ef þúsundir gerðu eins. Ásgrímur Jónasson. Svona týnist nú tíminn eins og sagt er. Fólk kemur og fer, það fækkar í hópnum. Það sem áfram lifir er ljúfar minningar og oft stórskemmtileg atvik sem ylja manni við upprifjun, úr veiðiferðum, golfleik og bridge. Er aldur færist yfir og heilsu hrakar styttist í kveðjustundina. Það má velta því fyrir sér hvað telst vera hár aldur, meðalævi fólks á Íslandi er í kringum 86 ár og þykir vera nokkuð hátt borið saman við aðrar þjóðir. En þegar að kveðjustundinni kemur brýst stundum fram tregi, sem kannski mætti kalla sjálfselsku, sem tengist að hluta til áratugalangri vináttu og góð- um félagsskap. Við vorum vanir að vera fjór- ir saman í holli, í golfi eða við spil. Það hefur fækkað í hollinu, Viðar kvaddi 2015 og nú er Páll allur. Sporin við kveðjustundina eru þung því það er á slíkum stundum er minningabrot langr- ar vináttu hrannast upp. Við Páll kynntumst í kringum 1960 og tengdist það prentbransan- um, sem ég þó tengdist ekki heldur æskufélögum mínum úr hollinu góða en þeir voru áhrifa- menn úr þeim geira, hver á sínu sviði. Kynnin voru upphaflega tengd spilamennsku, síðan tóku við veiðiferðir sem allar voru mjög skemmtilegar og eftir- minnilegar en lengst var sam- vera okkar tengd golfinu og við golfleik, hér heima og einnig er- lendis og þá voru oftast eig- inkonurnar með og voru þetta dásamlegar ferðir. Páll var mjög lunkinn í spil- um og hafði ég gaman að sjá hversu klókur hann var að spila úr tvísýnni stöðu og ekki brást honum bogalistin í veiðiskapn- um. Það sem ég undraðist þó oft var hversu laginn hann var í golfinu því ég vissi ekki til þess að hann hefði mikið æft í þeim flókna leik, ef nokkuð, en hann var að mínu áliti „natural gol- fer“ og tel ég mig geta fellt þann dóm þar sem ég var nú einna iðnastur okkar félaganna í þeim fagra leik. Lífshlaup Páls er um margt athyglisvert. Þegar hann hafði lokið námi í iðngrein sinni hér heima fór hann til Danmerkur til frekara náms. Þar safnaði hann fróðleik og náði sér í mik- ilvæga reynslu sem kom m.a. styrkum stoðum undir hans far- sæla fyrirtæki, Myndamót. Mestur fengur af Danmerkur- dvölinni var þó sá að þar kynnt- ist hann hinni bráðfallegu konu sinni, Ernu B. Arnar. Allt lagð- ist með þeim Páli og Ernu og eignuðust þau tvo myndarlega drengi, Bernharð, vísindamann í fremstu röð og eftirsóttan fyr- irlesara, og Hákon, sem strax tengdist rekstri fyrirtækis for- eldra sinna og hefur verið fram- kvæmdastjóri þess síðastliðinn áratug eða lengur. Fyrir átti Erna dótturina Rannveigu og hefur samheldni fjölskyldunnar verið traust. Farsæld Páls er ekki síst Ernu konu hans að þakka, staðfesta og glögg- skyggni eru meðal margra góðra eiginleika hennar. Ég lýk þessum fátæklegu orðum um góðan félaga og þakka honum skemmtilega samfylgd um lífs- ins veg. Ég votta þér, Erna mín, sam- úð mína, sem og fjölskyldunni allri. Ásgeir Nikulásson. Páll Vígkonarson Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinirnir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Gísli Ísleifur Aðalsteinsson ✝ Gísli Ísleifur Aðalsteinsson fæddist 26. sept- ember 1980. Hann lést 14. mars 2017. Útför Gísla var gerð 29. mars 2017. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. Grátnir til grafar göngum vér nú héðan, fylgjum þér, vinur. Far vel á braut. Guð oss það gefi, glaðir vér megum þér síðar fylgja’ í friðarskaut. (Valdimar Briem) Hvíl í friði, kæri vinur. Sigurður Kjartansson. ✝ GuðmundurSigurvin Magnússon fæddist í Reykjavík 28. júní 1957. Hann lést að heimili sínu Þóreyj- arnúpi í V-Húna- vatnssýslu 28. mars 2017. Foreldrar hans voru Magnús Magnússon renni- smiður, f. 24. mars 1936, og Helga Guðmundsdóttir ritari, f. 18. febrúar 1938. Systk- ini Guðmundar eru Rúnar Magnús, húsasmiður, fæddur 30. mars 1959, og Elín Ragnheiður Magnúsdóttir, launafulltrúi, f. 28. apríl 1965. Guðmundur gift- ist Þuríði Ingólfsdóttur, þau skildu. Börn þeirra eru: 1) Ing- ólfur, tæknifræðingur, f. 1981, giftur Noemi Borbath. Sonur þeirra er Theodór Nói. Þau búa í Danmörku. 2) Arnar, lífefna- fræðingur, f. 1990, er í doktorsnámi í Stokkhólmi. Guð- mundur lærði húsa- smíði hjá Trésmiðju Reykjavíkurborgar og vann við smíðar alla tíð, hann var einnig virkur í hjálparstarfi og var með leitarhund, Lukku, sem hann stjórnaði við leit að fólki m.a. eftir snjóflóðið á Flat- eyri. Guðmundur ólst upp í Garðabæ, stofnaði þar heimili og bjó þar til hann flutti til Eg- ilsstaða og bjó þar í nokkur ár með fjölskyldu sinni. Frá 2005 bjó hann með Gerði Hauks- dóttur, samstarfsmanni og vinnufélaga, dóttir hennar er Unnur Blandon. Útför Guðmundar verður gerð frá Garðakirkju á Álftanesi í dag, 7. apríl 2017, klukkan 13. Við kveðjum góðan dreng, Guðmund Sigurvin, með tár í augum og trega í hjarta. Glettinn svipurinn dillandi hláturinn og skemmtilegur húm- or var honum í blóð borinn. Að leita til Gumma í sambandi við smíðar eða annan greiða var allt sjálfsagður hlutur enda var hann oftast störfum hlaðinn. Hann var mikill vinnuþjarkur. Þegar einhver fellur frá sem hefur verið samferða í gegnum lífið kemur jafnan margt upp í hugann. Þessar línur eru ekki skrifaðar í þeim tilgangi að segja ævisögu Gumma eins og hann var oftast kallaður heldur sem þakk- læti fyrir samfylgdina. Það að eitt sinn skal hver deyja er næst- um því það eina sem við vitum með vissu að bíður okkar allra. Hvað annað bíður okkar á morg- un vitum við ekki, því allt er breytingum háð og enginn veit hvenær hinsta kallið kemur. Kall- ið sem allir verða að hlýða hvort sem okkur líkar betur eða verr. Það er nú einu sinni svo að okkur finnst erfitt að skilja hvers vegna sumir eru kallaðir svo fljótt frá ættingjum sínum og vin- um. Jafnvel þótt við stundum höf- um grun um hvert stefnir þá kemur andlátsfregn okkur alltaf á óvart. Nokkur minningarorð vega ekki þungt og segja fátt um fallegt líf heldur er aðeins tilraun til að þakka fyrir samfylgdina. Nú er Gummi farinn inn í ljósið bjarta og hvílir þar í faðmi Guðs. Við þökkum góðum Guði fyrir að hafa gefið okkur þennan góða dreng og biðjum Guð að blessa minningu hans. Fjölskyldunni vottum við okk- ar dýpstu samúð og vonum að þið finnið styrk í góðum minningum um góðan dreng. Farðu í friði vinur minn kær faðirinn mun þig geyma. Um aldur og ævi þú verður mér nær aldrei ég skal þér gleyma. Svo vöknum við með sól að morgni. (Bubbi Morthens.) Sigurður og Helga, Guðríður og Hallgrímur. Guðmundur Sig- urvin Magnússon ÚTFARARÞJÓNUSTA Vönduð og persónuleg þjónusta athofn@athofn.is - www.athofn.is ATHÖFN ÚTFARAÞJÓNUSTA - s: 551 7080 & 691 0919 Inger Steinsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.