Morgunblaðið - 07.04.2017, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 07.04.2017, Blaðsíða 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. APRÍL 2017 Mest seldu ofnar á Norðurlöndum Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Annir eru þessar vikurnar í kjall- aranum í Gömlu-Gróðrarstöðinni við Krókeyri á Akureyri. Þar ræð- ur ríkjum Rakel Jónsdóttir skóg- fræðingur og dagarnir á vormán- uðum snúast um að gæðaprófa trjáplöntur frá skógarplöntu- framleiðendum. Þær verða gróð- ursettar á næstunni í skógarreitum skógarbænda og Skógræktarinnar víða um land. Tilgangur gæðapróf- ana er að reyna að stemma stigu við afföllum í nýgróðursetningum skógarbænda. Helsta verkefnið er að kanna hvort rótarkerfi plantnanna sé nógu þróttmikið. „Yfirleitt er þetta allt í góðu lagi frá framleiðendum. Þeir ráða þó ekki við veðrið og stundum hefur haustið komið of snemma eða veturinn verið of harð- ur og þá hafa vissulega komið fram gallar í plöntunum,“ segir Rakel. Hún tekur þó fram að slíkt sé und- antekning. Spurð um gæði plantn- anna í vor eftir mildan vetur segir Rakel, að þau séu almennt góð. Staðlaðar aðstæður Mest er gróðursett af lerki, greni og furu, en einnig birki og eru flest sýnin í gæðaprófununum af þessum tegundum. Plönturnar eru yfirleitt ársgamlar þegar þær eru gróð- ursettar og koma frá fjórum fram- leiðendum skógarplantna; Sól- skógum á Akureyri, Barra á Egilsstöðum, Álmi og Kvistum á Suðurlandi. Í fyrra nam fram- leiðslan rúmlega þremur milljónum plantna, en árið fyrir hrun var framleiðslan tvöfalt meiri eða um sex milljónir plantna. Þegar plöntur koma til prófunar frá framleiðendum eru þær settar í mold í sérstakt ræktunarborð, svo- kallað RGC-borð (Root Growth Capacity). Aðferðin sem er notuð er mest notaða aðferðin í heiminum við könnun á gæðum skógar- plantna. Ræktunarborðið heldur stöðluðu hitastigi þannig að rót- arhiti á plöntunum í borðinu er 20 gráður og lofthita í herberginu er haldið við sama hitastig. Ræturnar hafa minna frostþol Eftir þriggja vikna rækt- unartímabil í borðinu eru plönturn- ar teknar upp úr moldinni og ræt- ur þeirra taldar. Prufuræktunin er við staðlaðar aðstæður, hita og ljós, sem eru nákvæmlega eins frá ári til árs. Þannig sést fljótlega hvort eitthvað er að plöntum í ræktun, hvort rótarkerfið er nægilega þróttmikið og eins hvort breytingar séu á milli ára. „Við leggjum áherslu á rót- arkerfið vegna þess að það hefur miklu minna frostþol heldur en yf- irvöxturinn,“ segir Rakel. „Hann getur alveg þolað yfir 20 gráða frost, jafnvel 30 gráður, þegar plantan er komin með frostþol. Rótin þolir hinsvegar mun minna frost, yfirleitt ekki nema -10°C. Við náttúrlegar aðstæður einangrar jarðvegurinn rótarkerfið og lítil hætta er á rótarkali. En þegar plantan er í ræktunarbakka og sit- ur í bakkanum fyrir ofan jarðvegs- yfirborð á veturna þá er henni mun hættar við rótarkali. Ef rótarkerfið hefur kalið mikið getur plantan ekki framleitt rætur og þá er voðinn vís þegar hún er gróðursett að vori. Rótarkal er erf- itt að greina nema með þessari að- ferð, það er ekki sýnilegt í gróðr- arstöðinni að vori rétt áður en plönturnar eru afhentar. Fylgst með grámyglu Auk þess að kanna þrótt rót- arkerfisins er einnig fylgst með því hvort einhverjar skemmdir eru á plöntunum, sjúkdómar eða óværa. Rakel segir að rótarkal sé helsta viðfangsefnið og eins hvort grá- mygla hafi komist í barr því það geti líka haft áhrif á lífsþróttinn. Þetta eftirlit er gert skömmu fyrir gróðursetningu og er liður í því að tryggja skógarbændum gæða- plöntur svo vinna þeirra fari ekki til spillis. Rakel lauk meistaragráðu í skóg- fræði frá Landbúnaðarháskólanum í Svíþjóð 2011 þar sem hún lagði áherslu á ræktun og yfirvetrun skógarplantna. Hún situr m.a. í stjórn NordGen Forest, sem er skógarhluti Norrænu erfða- auðlindastofnunarinnar. Þróttur rótanna lykilatriði  Skógræktin gæðaprófar trjáplöntur í Gömlu-Gróðrarstöðinni á Akureyri  Verða gróðursettar víða um land á næstunni  Rótarkal er dulinn óvinur Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Innan um plönturnar Rakel Jónsdóttir skógfræðingur við ræktunarborðið, en aðstæður eru alþjóðlega staðlaðar. Sýnishorn Mest er gróðursett af lerki, greni og furu og eru flest sýnin í gæðaprófununum af þeim tegundum. Gróðursetning vorsins er þegar hafin. Í vetur hefur verið mikil ásókn ferðamanna í íshella, en veturinn er besti tíminn til að skoða íshella með tilliti til öryggis og aðgengis. Þetta kemur fram á heimasíðu Vatnajök- ulsþjóðgarðs, en þar er jafnframt bent á að áhætta fylgi því að fara í íshella og hún aukist eftir því sem líði á veturinn. „Íshellar myndast yfirleitt vegna vatnsstreymis eða jarðhita. Þeir færast til og breytast með skriði jöklanna og eru því ekki varanleg fyrirbrigði heldur eyðast þeir vegna bráðnunar. Hækkandi loft- hiti veldur einnig því að veggir ís- hellanna veikjast og geta þeir hrun- ið bæði að hluta til og í heilu lagi. Þarf þá varla að spyrja að leiks- lokum, en a.m.k. tvö banaslys hafa orðið á Íslandi sl. áratug vegna ís- hruns,“ segir á heimasíðu þjóð- garðsins. Fyrir ofan sprungur og svelgi Þar segir jafnframt: „Auk örygg- isbúnaðar er nauðsynlegt að kunna að velja leið á jökli, þar sem gengið er á hörðum ís til að komast að ís- helli. Of oft hefur sést til leiðsögu- manna ganga með viðskiptavini fyrir ofan sprungur og svelgi, þar sem afleiðingar falls geta orðið mjög alvarlegar. Slíkt er með öllu óásættanlegt, og þar sem ekki verð- ur hjá því komist að fara um slíkt svæði verður að tryggja göngu- menn með öryggislínu sem fest er í sigbelti. Öryggismál eru lykilþáttur í sjálfbærri ferðaþjónustu. Því er það allra hagur að rétt sé staðið að mál- um eigi greinin að dafna til fram- tíðar. Það á jafnt við um íshella sem annað og því mikilvægt að ferða- menn og leiðsögumenn þeirra hafi öryggi sitt og annarra í fyrirrúmi þegar íshellar og jöklar eru skoð- aðir.“ aij@mbl.is Morgunblaðið/RAX Fegurð Íshellir í Vatnajökli. Áhættan eykst er líður á veturinn  Ásókn ferða- manna í íshella

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.