Morgunblaðið - 07.04.2017, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 07.04.2017, Blaðsíða 28
28 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. APRÍL 2017 ✝ SesseljaHauksdóttir fæddist í Reykjavík 12. júní 1948. Hún lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi 22. mars 2017. Foreldrar Sesselju eru Júlía Guðmundsdóttir, f. 3. júlí 1921, og Haukur Þor- steinsson, f. 14. des- ember 1921, d. 11. september 2007. Systkini Sesselju eru: 1) Þorsteinn, f. 3. apríl 1951, kvæntur Lilju Vikar Finn- bogadóttur. 2) Guðmundur, f. 17. september 1953, í sambúð með Jette Skov. 3) Sigurður, f. 23. janúar 1957, kvæntur Vigdísi Helgu Jónsdóttur. 4) Margrét, f. 8. maí 1963, d. 2. febrúar 2010. Sesselja giftist 12. ágúst 1972 1979, gift Kjartani Ásþórssyni, f. 16. september 1977. Þeirra börn eru Aron Smári, f. 7. október 2006, Karen Dís, f. 30. sept- ember 2009, og Thelma Sól, f. 9. febrúar 2012. 3) Arnar Þór, f. 20. maí 1986. Sesselja ólst upp hjá for- eldrum sínum, fyrst í Reykjavík, síðar á Háhóli í Álftaneshreppi á Mýrum og loks að Miðdal í Laug- ardal. Hún og Ómar bjuggu fyrst við Vesturberg í Reykja- vík, síðan í tíu ár á Álftanesi í Bessastaðahreppi og loks í Garðabæ. Frá árinu 2007 bjó Sesselja í Kópavogi, síðast að Kópavogstúni 12. Langstærstan hluta starfsævi sinnar vann Sesselja að leik- skólamálum í landinu, sem kenn- ari, leikskólastjóri og frá árinu 1991, til starfsloka 2015, var hún leikskólafulltrúi hjá Kópa- vogsbæ. Samtímis gegndi hún fjölda trúnaðarstarfa fyrir Fé- lag leikskólakennara á Íslandi. Útför Sesselju fer fram frá Grafarvogskirkju í dag, 7. apríl 2017, og hefst athöfnin klukkan 15. Ómari Hlíðkvist Jó- hannssyni, f. 10. janúar 1946, d. 11. desember 2005. Börn þeirra eru: 1) Haukur Hlíðkvist, f. 19. september 1971, kvæntur Helgu P. Finnsdóttur, f. 20. september 1971. Börn þeirra eru Hrafn Hlíðkvist, f. 5. nóvember 1996, Hekla Hlíðkvist, f. 22. janúar 2001, og Hugrún Hlíðkvist, f. 20. júlí 2006. 2) Freyja Hlíðkvist, f. 5. febrúar 1973. Dóttir hennar er Salka Hlíðkvist, f. 9. ágúst 1999. Seinni maður Sesselju er Þor- steinn G. Benjamínsson, f. 7. jan- úar 1949. Hans börn eru 1) Guð- mundur Valgeir, f. 20. janúar 1975. 2) Inga Dögg, f. 4. ágúst Mamma var nagli. Svo skilningsrík, hvetjandi, réttsýn, hlý, femínísk, gáfuð, húm- orísk hugsjóna- og baráttukona. Svo óendanlega mikið stærri en krílið sem hún var. Það er gulls ígildi að fá að kynn- ast slíku fólki á lífsleiðinni og hrein forréttindi að eiga það sama fólk að mömmu og vera alin upp sam- kvæmt þessum lífsgildum. Í uppvexti mínum var aum- ingjaskapur ekki í boði. Ég skyldi standa með minni sannfæringu, elta drauma mína og allt hugsan- legt flipp og fíflaskap. Án þess að það kæmi niður á lífsgæðum ann- arra, náttúrunni eða öllu mínu um- hverfi. Annað væri aumingjaskap- ur. Ég skyldi sýna öllum og öllu lífi virðingu og áhuga. Annað væri aumingjaskapur. Ég skyldi njóta hverrar stundar lífsins. Bæði góðu stundanna og líka þeirra skelfi- legu. Þeim bæri að fagna, því þá gæfist tækifæri til að upplifa feg- urðina við að uppgötva að hægt væri að takast á við vandamálin. Og aldrei skyldi ég vanmeta dýr- mæti þess að láta mér leiðast. Í huga mömmu var ekkert fal- legra og klárara til í heiminum en börn. Þau voru tærasta og full- komnasta lífsformið. Undantekn- ingalaust. Hún naut einskis meira en að njóta samvista við barna- börnin, bað um að fá þau lánuð, til að auðga líf sitt. Grundvöllur þroska var að halda í barnið í sjálfri sér. Fastur liður í tilverunni voru vatnsslagir allra í fjölskyld- unni, í Skorradalnum og í Casa Setta á Spáni. Öll ílát voru nýtt, allt endaði á floti, bæði innan- og utandyra, og allir holdvotir. Fyrr var slagnum ekki lokið. Bleytan skipti engu máli, einungis gleðin sem fylgdi leiknum. Mamma var alltaf skæðust. Það er sérstök upplifun að hlaupa eins hart og maður getur undan snarvitlausri miðaldra konu með beinkrabba, á bikiníi, með garðslöngu í hönd. Hvað við mamma gátum rifist. En rifrildin ristu aldrei djúpt, þau ristu í raun ekki baun. Við vorum nefnilega nánast alltaf sammála. Það þurfti bara að skerpa á smáat- riðum. Ég hef lúmskan grun um að þetta hafi verið útspekúlerað uppeldisráð hjá henni mömmu. Að fá mig til að æsa mig svolítið og koma skoðunum mínum í orð. Hún kenndi mér að skoðanaskipti væru nauðsynleg. Mamma átti í sérstöku sam- bandi við náttúruna. Hún gat kastað tætingslegri rótarlufsu í áttina að mold og þar með óx upp stæðileg planta. Hún þekkti allar plöntur í náttúru landsins og tal- aði um þær eins og persónulega vini sína. Reyndar gekk henni allt- af skrambi illa að halda lífi í inni- plöntum, enda sá hún jurtir sem órjúfanlegan þátt náttúrunnar þarna úti. Aldrei lét hún þennan ömur- lega sjúkdóm yfirtaka líf sitt. Eftir að krabbinn kom aftur upp gaf hún bara enn frekar í í að nýta hverja stund og njóta. Krabbinn var þarna, en hún skyldi aldeilis ekki láta hann ráða för, ekki með- an hún fengi einhverju ráðið. Og það gekk eftir. Því mamma var líka frek. Hún átti mörg dásamleg ár eftir, óskiljanlega mörg ár að mati ýmissa lækna, ár sem hún tók á lífsviljanum, lífsgleðinni, lífs- aðdáuninni. Mamma fékk mér dásamlega fallegt veganesti út í lífið. Ég mun áfram gera mitt allra besta í að neyta þess veganestis. Því mamma var nagli. Freyja Hlíðkvist Ómars- og Sesseljudóttir. Amma Setta var og mun alltaf vera fyrirmynd mín og ég mun alltaf líta upp til hennar. Hún var einstaklega skemmtileg, góðhjört- uð, hugmyndarík, jákvæð, hug- rökk og ég gæti haldið endalaust áfram. Samband okkar var einstakt og við skemmtum okkur alltaf, hvort sem það var í sólbaði á Spáni, notalegri sumarbústaðaferð, gönguferð um Indíánaskóg eða við að skreyta piparkökuhús. Seinustu dagar ömmu voru yndislegir, þrátt fyrir aðstæður. Öll fjölskyldan var hjá henni og við rifjuðum upp allar frábæru minningarnar, sem voru aldeilis ekki fáar. Og ég veit að ömmu þótti vænt um að hafa okkur hjá sér. Elsku amma mín, ég sakna þín endalaust mikið og get ekki hugs- að mér hvernig það verður að geta ekki talað við þig eða hitt þig. Þú hefur gert líf allra í kringum þig betra og líflegra. Þú munt alltaf vera uppáhalds ferðafélagi minn, því þær ferðir sem við fórum í saman voru allar mjög skemmti- legar og eitt stórt hláturskast. Ég elska þig og vona að þér líði vel. Þín uppáhaldseinkadóttir einkadóttur þinnar, Salka. Amma mín var yndisleg, hún kenndi mér svo margt. Hún kenndi mér að vera sjálfstæð og að trúa á sjálfa mig. Hún er fyr- irmynd og ég leit mikið upp til hennar. Þegar ég var lítil leyfði hún mér alltaf að koma skoðunum mínum á framfæri og hunsaði mig aldrei. Amma lék alltaf með mér og Sölku, hún hafði mikið ímyndun- arafl, sem gerði tíma okkar saman ótrúlega skemmtilegan. Amma var alltaf dugleg að búa til sögur og við fórum oft í gönguferðir í Drekaskóg og Indíánaskóg. Þar bjó amma alltaf til nýjar sögur um dreka og indíána sem bjuggu í skóginum. Takk, elsku amma, fyrir allar yndislegu stundirnar. Takk fyrir Spánarferðirnar og sumarbústað- arferðirnar. Takk fyrir allar sög- urnar og að vera alltaf til staðar. Ég mun sakna þín óendanlega mikið. Þín Hekla. Mig langar að minnast góðrar vinkonu minnar og samstarfs- félaga til 25 ára, Sesselju Hauks- dóttur eða Settu eins og við vorum vön að kalla hana. Leiðir okkar Settu lágu saman sumarið 1991 þegar við hófum báðar störf hjá Kópavogsbæ við leikskóladeildina. Ég blaut á bak við eyrun, nýkomin úr framhalds- námi í sérkennslufræðum, réðst til starfa sem ráðgjafarfóstra en hún reynslubolti, leikskólakennari og kennari að hefja störf sem leik- skólafulltrúi. Setta var glæsileg kona í litrík- um fötum og alltaf með langar óaðfinnanlegar lakkaðar neglur. Hún kom líka fyrir sjónir sem fag- lega sterkur og metnaðarfullur leikskólakennari sem ég bar strax mikla virðingu fyrir. Á þessum tíma voru tilfærslur hjá bænum þar sem við, sem höfðum með dag- heimilin og leikskólana að gera, vorum að færast frá því að heyra undir félagsmál yfir á fræðslu- skrifstofu. Þessi breyting var Settu mikið hjartans mál og lagði hún ríka áherslu á að leikskólinn væri fyrsta skólastigið í menntun barna og ætti því málaflokkurinn að tilheyra menntasviði. Þegar svo fóstrunafnið vék fyrir starfsheit- inu leikskólakennari þá var hún ötull talsmaður þessa og minnti alla á þessa breytingu og gerði harðorða athugasemd ef einhverj- um varð á að nota fóstruheitið. Setta helgaði starfskrafta sína alla tíð þess að vera málsvari barna. Hún var góður fagmaður, vel lesin og fylgdist gaumgæfilega með öllum nýjungum á sviði leik- skólamála. Hún lagði ríka áherslu á það að börn fengju frelsi til að þroskast á lýðræðislegan hátt, þar sem virðing væri borin fyrir sjálf- ræði þeirra og skoðunum. Setta var góður félagi og gleði- gjafi í leik og starfi. Margt var brallað í „fikt- og föndurdeildinni“ og oft heyrðist dillandi hlátur á skrifstofunni. Góður vinur og samstarfsmað- ur er fallinn frá eftir langvarandi veikindi – veikindi sem hún vildi ekki sértaklega ræða um né láta hafa áhrif á athafnir sínar. Hún hélt sínu striki og með húmorinn á lofti þrátt fyrir dvínandi krafta fram á síðustu stundu. Hafðu þökk, elsku Setta mín, fyrir samfylgdina og einlæga vin- áttu sem mun lýsa minningu þína um ókomna tíð. Við sjáumst síðar. Sú nótt sem leggst nú yfir okkur með ógnarmyrkur á skjá, á skjá er undarlega undur svört mun tjaldið færast frá og blámi á ströndum Fuglar himins leysa festar og lyfta okkur hátt á flug, á flug svo undarlega undur hratt ber okkur heim til þín og blámi yfir vængjum (Eygló Eyjólfsdóttir) Þín vinkona Anna Karen Ásgeirsdóttir Í ljósi þess hve lágvaxnar við Setta höfum alltaf verið finnst mér gaman að rifja upp gamlar minn- ingar frá því ég var lítil stelpa og leit upp til Settu, sem mér fannst svo stór og glæsileg skvísa. Eitt sinn var hún á leið á sveitaball og hafði túberað hárið í stóra hey- sátu, eins og þá var í tísku, og úðað hárlakki óspart á kollinn og í leið- inni um allt húsið í Miðdal, þar sem fjölskyldan bjó. Setta var elst, næst komu þrír skemmtilegir og stríðnir bræður, upplifun mín í þá daga, og loks Margrét langyngst systkinanna. Þetta kvöld datt þeim bræðrum í hug að skipta um spreybrúsa og í stað hárlakksins settu þeir brúsa af einhverju bíla- efni og fylgdust spenntir með stóru systur sinni gera sig klára fyrir ballið í von um að hún úðaði bílaefninu í hárið. Ég hafði veru- legar áhyggjur af því hvernig færi fyrir mikilfenglegu hári hennar, en Setta lét ekki plata sig. Þetta var í þá gömlu góðu daga þegar Júlla, Haukur og börn bjuggu í Miðdal og ég dvaldi öll sumur í bú- stað fjölskyldu minnar í nágrenn- inu. Þá var gaman að koma í Mið- dal, þar sem alltaf var mikið fjör. Mæður okkar Settu eru vinkon- ur til margra áratuga en vegna tíu ára aldursmunar okkar Settu tengdumst við ekki mikið fyrr en á síðari árum þegar allt rennur sam- an og aldur er verulega afstæður. Setta kom með hugmyndina að Mömmukaffinu sem varð til þess að við hittumst í kaffi; þrjár gaml- ar og góðar vinkonur og við mið- aldra dæturnar. Eftir fyrsta hitt- inginn stakk Setta upp á að næst myndum við dæturnar tala minna svo þær gömlu kæmust að. Svona var gaman hjá okkur. Þegar Setta veiktist af krabba- meini í annað sinn og heilsu henn- ar hrakaði fórum við að hafa meira samband, en ég hafði í millitíðinni reynslu af slíkum veikindum. Nú er ég ákaflega þakklát fyrir þenn- an tíma sem við áttum saman. Við deildum með okkur þessari sam- eiginlegu reynslu en aðallega fór tíminn í að segja skemmtisögur og hlæja. Setta var vinsæl og því auð- velt að hóa saman mannskap í hópinn sem við vinir hennar köll- uðum Setturnar, til að skipuleggja heimsóknir og aðstoða hana eftir að heilsan fór versnandi. Rúmlega fjörutíu manns voru í hópnum; vinir, vinnu- og kórfélagar og les- hringurinn sem Setta stofnaði á sínum tíma. Ekki datt mér í hug að við hefðum ekki lengri tíma saman, en mikið er ég ánægð með hversu vel og skipulega við nýtt- um hann því hver kannast ekki við að ætla að hittast einhvern daginn en allt í einu er það orðið of seint, tíminn floginn og tækifærin með. Setta var svolítið suðræn í útliti með þetta svarta hár og brúnu augu, geislandi bros og alltaf vel til höfð og falleg. Hún var sterkur karakter, leiðtogi, sem nýttist henni vel í starfi, og svo mikill töff- ari að það gat verið erfitt að fá hana til að þiggja aðstoð þótt veik væri. En það þurfti ekki að þekkja Settu vel til að sjá hvað hún var skemmtileg og heillandi kona. Setta var svo miklu stærri mann- eskja en sentímetrarnir sögðu til um. Hólmfríður Ben Benediktsdóttir. Þar kom að því að Setta okkar þyrfti að láta í minni pokann þó að hún hafi verið ótrúlega hörð af sér og barist gegn krabbameininu af því harðfylgi sem henni einni var lagið. Setta vann að málefnum leik- skólabarna óslitið í yfir 40 ár, oft stóð hún í ströngu gagnvart hin- um ýmsu hagsmunaaðilum en allt- af var hún með velferð og nám barna í fyrirrúmi. Þar gaf hún lítið eftir, stóð á sínu og ruddi brautina. Hún var einn öflugasti talsmaður leikskólans og leikskólabarna og naut þess að vera leikskólakenn- ari, leikskólastjóri og leikskóla- fulltrúi. Setta og sú sem þetta rit- ar voru skólasystur í fyrsta hópnum er hóf framhaldsnám í stjórnun við Fósturskóla Íslands árið 1983 ásamt fleiri frábærum leikskólakennurum. Þegar Fóstrufélag Íslands og Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna voru að huga að og undirbúa stofnun fag- stéttarfélaga lét Setta ekki sitt eftir liggja. Hún tók þátt í nefnd um eignatilfærslu úr sjóðum Starfsmannafélags Reykjavíkur- borgar til fagstéttarfélaganna ásamt Guðmundi Vigni en Óskar Magnússon hrl. fór fyrir gagn- stæðum sjónarmiðum fyrir hönd starfsmannafélagsins. Í þeirri nefnd var oft hart tekist á og sátu sá er þetta ritar og Setta löngum stundum við borðstofuborðið á Laugateignum og undirbjuggu til- lögur fyrir hönd fagstéttarfélag- anna. Tillögur Settu og Guðmund- ar Vignis urðu undir á fjölmennasta aðalfundi í sögu Starfsmannafélags Reykjavíkur- borgar árið 1988. Þetta fannst leikskólakennur- um afar ósanngjarnt en tóku samt pjönkur sínar og yfirgáfu starfs- mannafélögin. Þar var Setta ötull baráttu- og talsmaður og lagði stofnun stéttarfélags leikskóla- kennara lið. Við tók síðan ógleym- anleg ferð nýstofnaðs fagstéttar- félags til Parísar. Í ferðinni var stofnað svokallað „Fóstruvina- félag“ maka þeirra leikskólakenn- ara sem voru með í ferðinni og starfaði það um stund á fremur léttum nótum. Við hjónin áttum einnig ógleymanlegar stundir, fyrst með Settu og Ómari en síðar með henni og Þorsteini, í sönghópnum okkar góða sem hittist með jöfnu millibili þó svo dregið hafi úr sam- verustundum hans síðustu árin. Þar spilaði Setta undir á gítarinn og sungin voru jafnt ættjarðar- og dægurlög langt fram á nótt. Þar hafa orðið miklar breytingar frá því hópurinn varð til. Selma Dóra, Ómar, Siggi hennar Sólveigar og nú Setta eru horfin yfir móðuna miklu. Við sem eftir erum syrgj- um þessa kæru vini okkar og fé- laga sárt. Þakklæti fyrir allar góðu stundirnar í gegnum tíðina eru okkur efst í huga nú. Við færum fjölskyldu Settu okkar innilegustu samúðarkveðj- ur og vitum að minning um sterka, glaða og staðfasta baráttukonu lif- ir áfram. Arna og Guðmundur Vignir. Elsku besta vinkona mín, „bestasta“ eins og við sögðum svo oft. Það er með miklum söknuði og trega að ég skrifa hér nokkur minningarbrot af okkar löngu vin- áttu, Setta mín. Við vorum meira eins og systur. Þetta byrjaði allt í Dalnum okkar fallega, Laugar- dalnum. Þú áttir heima í Miðdal og ég í Prentarabústað nr. 4 þar sem ég dvaldi flest sumur. Þú varst algjör orkubolti, skemmtileg, uppátækjasöm og til í allt. Mér fannst því mjög spenn- andi að kynnast þessari spræku stelpu í sveitinni. Það var alltaf nóg að gera hjá okkur í Dalnum, það var farið í Gilið og Tröll- skessusætið. Það var labbað upp á Gullkistu og farið á hestbak. Þú varst algjört náttúrubarn og smit- aðir mig algjörlega af því áhuga- máli. Við söfnuðum laufblöðum af alls konar trjá- og blómategund- um og þurrkuðum þau svo inn í bókum. Þetta var svo skoðað árið eftir og allt greint í bak og fyrir. Þetta var svo yndislegur tími með þér, elsku Setta mín, og ég var svo lánsöm að hafa kynnst þér. Þú hafðir svo sannarlega græna fing- ur! Hér er saga af einu af þínum skemmtilegu uppátækjum: Þetta var á fallegum sumar- degi 1967, við kíktum til mömmu minnar og pabba í Ölfusá þar sem þau voru að veiða lax. Pabbi segir okkur þá frá mink sem þar var á flækingi. Það var eins og við manninn mælt, þú raukst á fætur og sagðir: „Ellý, nú förum við á minkaveiðar!“ Þú tókst ryðgaða skóflu og skipaðir mér að grípa prik og grjót. Sagan endaði ekki vel fyrir vesalings minkinn en við enduð- um í Mogganum, með smá aur í vasanum eftir að hafa selt þrjú skott til sýslumannsins. Þetta var alveg magnað! Það er af mörgu að taka og væri efni í heila bók. Þú varst sannkallaður lista- maður, algjörlega einstök í öllu, prjónaskap, saumaskap, trjá- rækt, málun og skrift, svo ekki sé minnst á öll fallegu jólakortin frá þér. Þú varst mikil hugsjónakona og komst mörgum góðum málum á framfæri í starfi þínu. Elsku Setta mín, nú er þínu lífi hér á jörðu lokið, kæra vinkona. Þú barðist við þennan illvíga sjúkdóm af æðruleysi og lést hann ekki stoppa þig af í að lifa lífinu, þú varst algjör hetja. Þar sem ég sit hér og skrifa þetta mín elskuleg – og tárin renna ofan í tölvuna hjá mér – horfi ég á mynd af okkur, við er- um að syngja saman og allt lífið blasir við okkur. Við brosum út að eyrum. Svona ætla ég að muna þig, mín yndislega æskuvinkona úr Dalnum fallega, ég mun sakna þín meira en orð fá lýst. Elsku Júlía, Freyja, Haukur, Þorsteinn, bræðurnir og fjöl- skyldur ykkar allra, mínar inni- legustu samúðarkveðjur til ykk- ar. Elínborg (Ellý). Komið er að leiðarlokum hjá Settu vinkonu okkar. Ljóst var að hverju stefndi á þorrablóti „Fóstrugengisins“ í Skorradalnum hjá Eddu og Bárði nú á útmánuðum, en ekki lét hún sig vanta, enda vel studd af Þor- steini sínum, og tók þátt í borð- haldi og söng af gleði og ánægju. Við vinkonurnar kynntumst í Fóstruskóla Sumargjafar þegar við hófum þar nám haustið 1966 og höfum haldið hópinn síðan. Undanfarin þrjátíu ár höfum við ásamt mökum meðal annars haft það takmark að fara í eina helgarferð um landið á hverju sumri. Aldrei var Flora Islands langt frá Settu enda fróð um ís- lenska náttúru og mat fegurð hennar. Ómar eiginmaður Settu lést óvænt í desember 2005. Síðar kynntist hún Þorsteini sem strax féll mjög vel að hópnum og breytti það engu um ferðir okkar og aðrar skemmtilegar samveru- stundir. Við minnumst Settu sem mjög góðrar vinkonu, sem var afar fé- lagslynd, glettin, söngelsk, fróð og víðlesin. Aftur hefur skarð ver- ið höggvið í hópinn. Hennar er sárt saknað. Fjölskyldu Settu sendum við innilegar samúðarkveðjur. Anna og Páll, Edda og Bárður, Guðrún og Ari, Magnea og Bjarni. Það var sunnudagur í Miðdal í Laugardal og við Setta vorum að leggja á Grána og Rauð. Nú skyldi haldið Kóngsveginn upp að Brúará. Við vorum með smá nesti meðferðis og hugsuðum okkur gott til glóðarinnar – nú yrði ald- eilis skemmtilegt. Sól skein í heiði og allt var fagurt og bjart. Hófa- dynurinn notalegur í eyra og blíð- ur vindur um kinn. Bara við tvær stelpuskottin á ferð. Við áðum um það bil miðja vegu og komum okkur fyrir í kjarri vaxinni laut sem var full af blágresi og sóley – nú var mál að fá sér nestisbita. Við gáfum hvor annarri nöfn, ég var Trippa og Sesselja Hauksdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.