Morgunblaðið - 07.04.2017, Síða 28
28 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. APRÍL 2017
✝ SesseljaHauksdóttir
fæddist í Reykjavík
12. júní 1948. Hún
lést á líknardeild
Landspítalans í
Kópavogi 22. mars
2017. Foreldrar
Sesselju eru Júlía
Guðmundsdóttir, f.
3. júlí 1921, og
Haukur Þor-
steinsson, f. 14. des-
ember 1921, d. 11. september
2007. Systkini Sesselju eru: 1)
Þorsteinn, f. 3. apríl 1951,
kvæntur Lilju Vikar Finn-
bogadóttur. 2) Guðmundur, f.
17. september 1953, í sambúð
með Jette Skov. 3) Sigurður, f.
23. janúar 1957, kvæntur Vigdísi
Helgu Jónsdóttur. 4) Margrét, f.
8. maí 1963, d. 2. febrúar 2010.
Sesselja giftist 12. ágúst 1972
1979, gift Kjartani Ásþórssyni, f.
16. september 1977. Þeirra börn
eru Aron Smári, f. 7. október
2006, Karen Dís, f. 30. sept-
ember 2009, og Thelma Sól, f. 9.
febrúar 2012. 3) Arnar Þór, f.
20. maí 1986.
Sesselja ólst upp hjá for-
eldrum sínum, fyrst í Reykjavík,
síðar á Háhóli í Álftaneshreppi á
Mýrum og loks að Miðdal í Laug-
ardal. Hún og Ómar bjuggu
fyrst við Vesturberg í Reykja-
vík, síðan í tíu ár á Álftanesi í
Bessastaðahreppi og loks í
Garðabæ. Frá árinu 2007 bjó
Sesselja í Kópavogi, síðast að
Kópavogstúni 12.
Langstærstan hluta starfsævi
sinnar vann Sesselja að leik-
skólamálum í landinu, sem kenn-
ari, leikskólastjóri og frá árinu
1991, til starfsloka 2015, var hún
leikskólafulltrúi hjá Kópa-
vogsbæ. Samtímis gegndi hún
fjölda trúnaðarstarfa fyrir Fé-
lag leikskólakennara á Íslandi.
Útför Sesselju fer fram frá
Grafarvogskirkju í dag, 7. apríl
2017, og hefst athöfnin klukkan
15.
Ómari Hlíðkvist Jó-
hannssyni, f. 10.
janúar 1946, d. 11.
desember 2005.
Börn þeirra eru: 1)
Haukur Hlíðkvist, f.
19. september 1971,
kvæntur Helgu P.
Finnsdóttur, f. 20.
september 1971.
Börn þeirra eru
Hrafn Hlíðkvist, f.
5. nóvember 1996,
Hekla Hlíðkvist, f. 22. janúar
2001, og Hugrún Hlíðkvist, f. 20.
júlí 2006. 2) Freyja Hlíðkvist, f.
5. febrúar 1973. Dóttir hennar
er Salka Hlíðkvist, f. 9. ágúst
1999.
Seinni maður Sesselju er Þor-
steinn G. Benjamínsson, f. 7. jan-
úar 1949. Hans börn eru 1) Guð-
mundur Valgeir, f. 20. janúar
1975. 2) Inga Dögg, f. 4. ágúst
Mamma var nagli.
Svo skilningsrík, hvetjandi,
réttsýn, hlý, femínísk, gáfuð, húm-
orísk hugsjóna- og baráttukona.
Svo óendanlega mikið stærri en
krílið sem hún var.
Það er gulls ígildi að fá að kynn-
ast slíku fólki á lífsleiðinni og hrein
forréttindi að eiga það sama fólk
að mömmu og vera alin upp sam-
kvæmt þessum lífsgildum.
Í uppvexti mínum var aum-
ingjaskapur ekki í boði. Ég skyldi
standa með minni sannfæringu,
elta drauma mína og allt hugsan-
legt flipp og fíflaskap. Án þess að
það kæmi niður á lífsgæðum ann-
arra, náttúrunni eða öllu mínu um-
hverfi. Annað væri aumingjaskap-
ur. Ég skyldi sýna öllum og öllu lífi
virðingu og áhuga. Annað væri
aumingjaskapur. Ég skyldi njóta
hverrar stundar lífsins. Bæði góðu
stundanna og líka þeirra skelfi-
legu. Þeim bæri að fagna, því þá
gæfist tækifæri til að upplifa feg-
urðina við að uppgötva að hægt
væri að takast á við vandamálin.
Og aldrei skyldi ég vanmeta dýr-
mæti þess að láta mér leiðast.
Í huga mömmu var ekkert fal-
legra og klárara til í heiminum en
börn. Þau voru tærasta og full-
komnasta lífsformið. Undantekn-
ingalaust. Hún naut einskis meira
en að njóta samvista við barna-
börnin, bað um að fá þau lánuð, til
að auðga líf sitt. Grundvöllur
þroska var að halda í barnið í
sjálfri sér. Fastur liður í tilverunni
voru vatnsslagir allra í fjölskyld-
unni, í Skorradalnum og í Casa
Setta á Spáni. Öll ílát voru nýtt,
allt endaði á floti, bæði innan- og
utandyra, og allir holdvotir. Fyrr
var slagnum ekki lokið. Bleytan
skipti engu máli, einungis gleðin
sem fylgdi leiknum. Mamma var
alltaf skæðust. Það er sérstök
upplifun að hlaupa eins hart og
maður getur undan snarvitlausri
miðaldra konu með beinkrabba, á
bikiníi, með garðslöngu í hönd.
Hvað við mamma gátum rifist.
En rifrildin ristu aldrei djúpt, þau
ristu í raun ekki baun. Við vorum
nefnilega nánast alltaf sammála.
Það þurfti bara að skerpa á smáat-
riðum. Ég hef lúmskan grun um
að þetta hafi verið útspekúlerað
uppeldisráð hjá henni mömmu. Að
fá mig til að æsa mig svolítið og
koma skoðunum mínum í orð. Hún
kenndi mér að skoðanaskipti væru
nauðsynleg.
Mamma átti í sérstöku sam-
bandi við náttúruna. Hún gat
kastað tætingslegri rótarlufsu í
áttina að mold og þar með óx upp
stæðileg planta. Hún þekkti allar
plöntur í náttúru landsins og tal-
aði um þær eins og persónulega
vini sína. Reyndar gekk henni allt-
af skrambi illa að halda lífi í inni-
plöntum, enda sá hún jurtir sem
órjúfanlegan þátt náttúrunnar
þarna úti.
Aldrei lét hún þennan ömur-
lega sjúkdóm yfirtaka líf sitt. Eftir
að krabbinn kom aftur upp gaf
hún bara enn frekar í í að nýta
hverja stund og njóta. Krabbinn
var þarna, en hún skyldi aldeilis
ekki láta hann ráða för, ekki með-
an hún fengi einhverju ráðið. Og
það gekk eftir. Því mamma var
líka frek. Hún átti mörg dásamleg
ár eftir, óskiljanlega mörg ár að
mati ýmissa lækna, ár sem hún
tók á lífsviljanum, lífsgleðinni, lífs-
aðdáuninni.
Mamma fékk mér dásamlega
fallegt veganesti út í lífið. Ég mun
áfram gera mitt allra besta í að
neyta þess veganestis.
Því mamma var nagli.
Freyja Hlíðkvist Ómars- og
Sesseljudóttir.
Amma Setta var og mun alltaf
vera fyrirmynd mín og ég mun
alltaf líta upp til hennar. Hún var
einstaklega skemmtileg, góðhjört-
uð, hugmyndarík, jákvæð, hug-
rökk og ég gæti haldið endalaust
áfram.
Samband okkar var einstakt og
við skemmtum okkur alltaf, hvort
sem það var í sólbaði á Spáni,
notalegri sumarbústaðaferð,
gönguferð um Indíánaskóg eða
við að skreyta piparkökuhús.
Seinustu dagar ömmu voru
yndislegir, þrátt fyrir aðstæður.
Öll fjölskyldan var hjá henni og
við rifjuðum upp allar frábæru
minningarnar, sem voru aldeilis
ekki fáar. Og ég veit að ömmu
þótti vænt um að hafa okkur hjá
sér.
Elsku amma mín, ég sakna þín
endalaust mikið og get ekki hugs-
að mér hvernig það verður að geta
ekki talað við þig eða hitt þig. Þú
hefur gert líf allra í kringum þig
betra og líflegra. Þú munt alltaf
vera uppáhalds ferðafélagi minn,
því þær ferðir sem við fórum í
saman voru allar mjög skemmti-
legar og eitt stórt hláturskast.
Ég elska þig og vona að þér líði
vel.
Þín uppáhaldseinkadóttir
einkadóttur þinnar,
Salka.
Amma mín var yndisleg, hún
kenndi mér svo margt. Hún
kenndi mér að vera sjálfstæð og
að trúa á sjálfa mig. Hún er fyr-
irmynd og ég leit mikið upp til
hennar. Þegar ég var lítil leyfði
hún mér alltaf að koma skoðunum
mínum á framfæri og hunsaði mig
aldrei.
Amma lék alltaf með mér og
Sölku, hún hafði mikið ímyndun-
arafl, sem gerði tíma okkar saman
ótrúlega skemmtilegan. Amma
var alltaf dugleg að búa til sögur
og við fórum oft í gönguferðir í
Drekaskóg og Indíánaskóg. Þar
bjó amma alltaf til nýjar sögur um
dreka og indíána sem bjuggu í
skóginum.
Takk, elsku amma, fyrir allar
yndislegu stundirnar. Takk fyrir
Spánarferðirnar og sumarbústað-
arferðirnar. Takk fyrir allar sög-
urnar og að vera alltaf til staðar.
Ég mun sakna þín óendanlega
mikið.
Þín
Hekla.
Mig langar að minnast góðrar
vinkonu minnar og samstarfs-
félaga til 25 ára, Sesselju Hauks-
dóttur eða Settu eins og við vorum
vön að kalla hana.
Leiðir okkar Settu lágu saman
sumarið 1991 þegar við hófum
báðar störf hjá Kópavogsbæ við
leikskóladeildina. Ég blaut á bak
við eyrun, nýkomin úr framhalds-
námi í sérkennslufræðum, réðst
til starfa sem ráðgjafarfóstra en
hún reynslubolti, leikskólakennari
og kennari að hefja störf sem leik-
skólafulltrúi.
Setta var glæsileg kona í litrík-
um fötum og alltaf með langar
óaðfinnanlegar lakkaðar neglur.
Hún kom líka fyrir sjónir sem fag-
lega sterkur og metnaðarfullur
leikskólakennari sem ég bar strax
mikla virðingu fyrir. Á þessum
tíma voru tilfærslur hjá bænum
þar sem við, sem höfðum með dag-
heimilin og leikskólana að gera,
vorum að færast frá því að heyra
undir félagsmál yfir á fræðslu-
skrifstofu. Þessi breyting var
Settu mikið hjartans mál og lagði
hún ríka áherslu á að leikskólinn
væri fyrsta skólastigið í menntun
barna og ætti því málaflokkurinn
að tilheyra menntasviði. Þegar svo
fóstrunafnið vék fyrir starfsheit-
inu leikskólakennari þá var hún
ötull talsmaður þessa og minnti
alla á þessa breytingu og gerði
harðorða athugasemd ef einhverj-
um varð á að nota fóstruheitið.
Setta helgaði starfskrafta sína
alla tíð þess að vera málsvari
barna. Hún var góður fagmaður,
vel lesin og fylgdist gaumgæfilega
með öllum nýjungum á sviði leik-
skólamála. Hún lagði ríka áherslu
á það að börn fengju frelsi til að
þroskast á lýðræðislegan hátt, þar
sem virðing væri borin fyrir sjálf-
ræði þeirra og skoðunum.
Setta var góður félagi og gleði-
gjafi í leik og starfi. Margt var
brallað í „fikt- og föndurdeildinni“
og oft heyrðist dillandi hlátur á
skrifstofunni.
Góður vinur og samstarfsmað-
ur er fallinn frá eftir langvarandi
veikindi – veikindi sem hún vildi
ekki sértaklega ræða um né láta
hafa áhrif á athafnir sínar. Hún
hélt sínu striki og með húmorinn á
lofti þrátt fyrir dvínandi krafta
fram á síðustu stundu.
Hafðu þökk, elsku Setta mín,
fyrir samfylgdina og einlæga vin-
áttu sem mun lýsa minningu þína
um ókomna tíð.
Við sjáumst síðar.
Sú nótt sem leggst nú yfir okkur
með ógnarmyrkur á skjá, á skjá
er undarlega undur svört
mun tjaldið færast frá
og blámi á ströndum
Fuglar himins leysa festar
og lyfta okkur hátt á flug, á flug
svo undarlega undur hratt
ber okkur heim til þín
og blámi yfir vængjum
(Eygló Eyjólfsdóttir)
Þín vinkona
Anna Karen Ásgeirsdóttir
Í ljósi þess hve lágvaxnar við
Setta höfum alltaf verið finnst mér
gaman að rifja upp gamlar minn-
ingar frá því ég var lítil stelpa og
leit upp til Settu, sem mér fannst
svo stór og glæsileg skvísa. Eitt
sinn var hún á leið á sveitaball og
hafði túberað hárið í stóra hey-
sátu, eins og þá var í tísku, og úðað
hárlakki óspart á kollinn og í leið-
inni um allt húsið í Miðdal, þar
sem fjölskyldan bjó. Setta var elst,
næst komu þrír skemmtilegir og
stríðnir bræður, upplifun mín í þá
daga, og loks Margrét langyngst
systkinanna. Þetta kvöld datt
þeim bræðrum í hug að skipta um
spreybrúsa og í stað hárlakksins
settu þeir brúsa af einhverju bíla-
efni og fylgdust spenntir með
stóru systur sinni gera sig klára
fyrir ballið í von um að hún úðaði
bílaefninu í hárið. Ég hafði veru-
legar áhyggjur af því hvernig færi
fyrir mikilfenglegu hári hennar,
en Setta lét ekki plata sig. Þetta
var í þá gömlu góðu daga þegar
Júlla, Haukur og börn bjuggu í
Miðdal og ég dvaldi öll sumur í bú-
stað fjölskyldu minnar í nágrenn-
inu. Þá var gaman að koma í Mið-
dal, þar sem alltaf var mikið fjör.
Mæður okkar Settu eru vinkon-
ur til margra áratuga en vegna tíu
ára aldursmunar okkar Settu
tengdumst við ekki mikið fyrr en á
síðari árum þegar allt rennur sam-
an og aldur er verulega afstæður.
Setta kom með hugmyndina að
Mömmukaffinu sem varð til þess
að við hittumst í kaffi; þrjár gaml-
ar og góðar vinkonur og við mið-
aldra dæturnar. Eftir fyrsta hitt-
inginn stakk Setta upp á að næst
myndum við dæturnar tala minna
svo þær gömlu kæmust að. Svona
var gaman hjá okkur.
Þegar Setta veiktist af krabba-
meini í annað sinn og heilsu henn-
ar hrakaði fórum við að hafa meira
samband, en ég hafði í millitíðinni
reynslu af slíkum veikindum. Nú
er ég ákaflega þakklát fyrir þenn-
an tíma sem við áttum saman. Við
deildum með okkur þessari sam-
eiginlegu reynslu en aðallega fór
tíminn í að segja skemmtisögur og
hlæja. Setta var vinsæl og því auð-
velt að hóa saman mannskap í
hópinn sem við vinir hennar köll-
uðum Setturnar, til að skipuleggja
heimsóknir og aðstoða hana eftir
að heilsan fór versnandi. Rúmlega
fjörutíu manns voru í hópnum;
vinir, vinnu- og kórfélagar og les-
hringurinn sem Setta stofnaði á
sínum tíma. Ekki datt mér í hug
að við hefðum ekki lengri tíma
saman, en mikið er ég ánægð með
hversu vel og skipulega við nýtt-
um hann því hver kannast ekki við
að ætla að hittast einhvern daginn
en allt í einu er það orðið of seint,
tíminn floginn og tækifærin með.
Setta var svolítið suðræn í útliti
með þetta svarta hár og brúnu
augu, geislandi bros og alltaf vel
til höfð og falleg. Hún var sterkur
karakter, leiðtogi, sem nýttist
henni vel í starfi, og svo mikill töff-
ari að það gat verið erfitt að fá
hana til að þiggja aðstoð þótt veik
væri. En það þurfti ekki að þekkja
Settu vel til að sjá hvað hún var
skemmtileg og heillandi kona.
Setta var svo miklu stærri mann-
eskja en sentímetrarnir sögðu til
um.
Hólmfríður Ben
Benediktsdóttir.
Þar kom að því að Setta okkar
þyrfti að láta í minni pokann þó að
hún hafi verið ótrúlega hörð af sér
og barist gegn krabbameininu af
því harðfylgi sem henni einni var
lagið.
Setta vann að málefnum leik-
skólabarna óslitið í yfir 40 ár, oft
stóð hún í ströngu gagnvart hin-
um ýmsu hagsmunaaðilum en allt-
af var hún með velferð og nám
barna í fyrirrúmi. Þar gaf hún lítið
eftir, stóð á sínu og ruddi brautina.
Hún var einn öflugasti talsmaður
leikskólans og leikskólabarna og
naut þess að vera leikskólakenn-
ari, leikskólastjóri og leikskóla-
fulltrúi. Setta og sú sem þetta rit-
ar voru skólasystur í fyrsta
hópnum er hóf framhaldsnám í
stjórnun við Fósturskóla Íslands
árið 1983 ásamt fleiri frábærum
leikskólakennurum.
Þegar Fóstrufélag Íslands og
Landssamband slökkviliðs- og
sjúkraflutningamanna voru að
huga að og undirbúa stofnun fag-
stéttarfélaga lét Setta ekki sitt
eftir liggja. Hún tók þátt í nefnd
um eignatilfærslu úr sjóðum
Starfsmannafélags Reykjavíkur-
borgar til fagstéttarfélaganna
ásamt Guðmundi Vigni en Óskar
Magnússon hrl. fór fyrir gagn-
stæðum sjónarmiðum fyrir hönd
starfsmannafélagsins. Í þeirri
nefnd var oft hart tekist á og sátu
sá er þetta ritar og Setta löngum
stundum við borðstofuborðið á
Laugateignum og undirbjuggu til-
lögur fyrir hönd fagstéttarfélag-
anna. Tillögur Settu og Guðmund-
ar Vignis urðu undir á
fjölmennasta aðalfundi í sögu
Starfsmannafélags Reykjavíkur-
borgar árið 1988.
Þetta fannst leikskólakennur-
um afar ósanngjarnt en tóku samt
pjönkur sínar og yfirgáfu starfs-
mannafélögin. Þar var Setta ötull
baráttu- og talsmaður og lagði
stofnun stéttarfélags leikskóla-
kennara lið. Við tók síðan ógleym-
anleg ferð nýstofnaðs fagstéttar-
félags til Parísar. Í ferðinni var
stofnað svokallað „Fóstruvina-
félag“ maka þeirra leikskólakenn-
ara sem voru með í ferðinni og
starfaði það um stund á fremur
léttum nótum.
Við hjónin áttum einnig
ógleymanlegar stundir, fyrst með
Settu og Ómari en síðar með
henni og Þorsteini, í sönghópnum
okkar góða sem hittist með jöfnu
millibili þó svo dregið hafi úr sam-
verustundum hans síðustu árin.
Þar spilaði Setta undir á gítarinn
og sungin voru jafnt ættjarðar- og
dægurlög langt fram á nótt. Þar
hafa orðið miklar breytingar frá
því hópurinn varð til. Selma Dóra,
Ómar, Siggi hennar Sólveigar og
nú Setta eru horfin yfir móðuna
miklu. Við sem eftir erum syrgj-
um þessa kæru vini okkar og fé-
laga sárt. Þakklæti fyrir allar
góðu stundirnar í gegnum tíðina
eru okkur efst í huga nú.
Við færum fjölskyldu Settu
okkar innilegustu samúðarkveðj-
ur og vitum að minning um sterka,
glaða og staðfasta baráttukonu lif-
ir áfram.
Arna og Guðmundur Vignir.
Elsku besta vinkona mín,
„bestasta“ eins og við sögðum svo
oft.
Það er með miklum söknuði og
trega að ég skrifa hér nokkur
minningarbrot af okkar löngu vin-
áttu, Setta mín. Við vorum meira
eins og systur. Þetta byrjaði allt í
Dalnum okkar fallega, Laugar-
dalnum. Þú áttir heima í Miðdal
og ég í Prentarabústað nr. 4 þar
sem ég dvaldi flest sumur.
Þú varst algjör orkubolti,
skemmtileg, uppátækjasöm og til í
allt. Mér fannst því mjög spenn-
andi að kynnast þessari spræku
stelpu í sveitinni. Það var alltaf
nóg að gera hjá okkur í Dalnum,
það var farið í Gilið og Tröll-
skessusætið. Það var labbað upp á
Gullkistu og farið á hestbak. Þú
varst algjört náttúrubarn og smit-
aðir mig algjörlega af því áhuga-
máli. Við söfnuðum laufblöðum af
alls konar trjá- og blómategund-
um og þurrkuðum þau svo inn í
bókum. Þetta var svo skoðað árið
eftir og allt greint í bak og fyrir.
Þetta var svo yndislegur tími með
þér, elsku Setta mín, og ég var svo
lánsöm að hafa kynnst þér. Þú
hafðir svo sannarlega græna fing-
ur!
Hér er saga af einu af þínum
skemmtilegu uppátækjum:
Þetta var á fallegum sumar-
degi 1967, við kíktum til mömmu
minnar og pabba í Ölfusá þar sem
þau voru að veiða lax. Pabbi segir
okkur þá frá mink sem þar var á
flækingi. Það var eins og við
manninn mælt, þú raukst á fætur
og sagðir: „Ellý, nú förum við á
minkaveiðar!“ Þú tókst ryðgaða
skóflu og skipaðir mér að grípa
prik og grjót.
Sagan endaði ekki vel fyrir
vesalings minkinn en við enduð-
um í Mogganum, með smá aur í
vasanum eftir að hafa selt þrjú
skott til sýslumannsins. Þetta var
alveg magnað! Það er af mörgu
að taka og væri efni í heila bók.
Þú varst sannkallaður lista-
maður, algjörlega einstök í öllu,
prjónaskap, saumaskap, trjá-
rækt, málun og skrift, svo ekki sé
minnst á öll fallegu jólakortin frá
þér. Þú varst mikil hugsjónakona
og komst mörgum góðum málum
á framfæri í starfi þínu.
Elsku Setta mín, nú er þínu lífi
hér á jörðu lokið, kæra vinkona.
Þú barðist við þennan illvíga
sjúkdóm af æðruleysi og lést
hann ekki stoppa þig af í að lifa
lífinu, þú varst algjör hetja.
Þar sem ég sit hér og skrifa
þetta mín elskuleg – og tárin
renna ofan í tölvuna hjá mér –
horfi ég á mynd af okkur, við er-
um að syngja saman og allt lífið
blasir við okkur. Við brosum út að
eyrum.
Svona ætla ég að muna þig,
mín yndislega æskuvinkona úr
Dalnum fallega, ég mun sakna
þín meira en orð fá lýst.
Elsku Júlía, Freyja, Haukur,
Þorsteinn, bræðurnir og fjöl-
skyldur ykkar allra, mínar inni-
legustu samúðarkveðjur til ykk-
ar.
Elínborg (Ellý).
Komið er að leiðarlokum hjá
Settu vinkonu okkar.
Ljóst var að hverju stefndi á
þorrablóti „Fóstrugengisins“ í
Skorradalnum hjá Eddu og Bárði
nú á útmánuðum, en ekki lét hún
sig vanta, enda vel studd af Þor-
steini sínum, og tók þátt í borð-
haldi og söng af gleði og ánægju.
Við vinkonurnar kynntumst í
Fóstruskóla Sumargjafar þegar
við hófum þar nám haustið 1966
og höfum haldið hópinn síðan.
Undanfarin þrjátíu ár höfum
við ásamt mökum meðal annars
haft það takmark að fara í eina
helgarferð um landið á hverju
sumri. Aldrei var Flora Islands
langt frá Settu enda fróð um ís-
lenska náttúru og mat fegurð
hennar.
Ómar eiginmaður Settu lést
óvænt í desember 2005. Síðar
kynntist hún Þorsteini sem strax
féll mjög vel að hópnum og
breytti það engu um ferðir okkar
og aðrar skemmtilegar samveru-
stundir.
Við minnumst Settu sem mjög
góðrar vinkonu, sem var afar fé-
lagslynd, glettin, söngelsk, fróð
og víðlesin. Aftur hefur skarð ver-
ið höggvið í hópinn. Hennar er
sárt saknað.
Fjölskyldu Settu sendum við
innilegar samúðarkveðjur.
Anna og Páll,
Edda og Bárður,
Guðrún og Ari,
Magnea og Bjarni.
Það var sunnudagur í Miðdal í
Laugardal og við Setta vorum að
leggja á Grána og Rauð. Nú
skyldi haldið Kóngsveginn upp að
Brúará. Við vorum með smá nesti
meðferðis og hugsuðum okkur
gott til glóðarinnar – nú yrði ald-
eilis skemmtilegt. Sól skein í heiði
og allt var fagurt og bjart. Hófa-
dynurinn notalegur í eyra og blíð-
ur vindur um kinn. Bara við tvær
stelpuskottin á ferð.
Við áðum um það bil miðja
vegu og komum okkur fyrir í
kjarri vaxinni laut sem var full af
blágresi og sóley – nú var mál að
fá sér nestisbita. Við gáfum hvor
annarri nöfn, ég var Trippa og
Sesselja
Hauksdóttir