Morgunblaðið - 07.04.2017, Blaðsíða 32
32 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. APRÍL 2017
✝ SigurjónSteinsson
fæddist á Hring í
Stíflu 22. maí 1929.
Hann lést á HSN
Siglufirði 25. mars
2017.
Foreldrar Sig-
urjóns voru Steinn
Jónsson bóndi, f.
12. mars 1898, d. 6.
mars 1982, og El-
ínbjörg Hjálm-
arsdóttir, f. 24. október 1888, d.
29. september 1964. Sigurjón
kvæntist eftirlifandi eiginkonu
sinni, Svölu Bjarnadóttur hjúkr-
unarfræðingi, f. 6. apríl 1937,
26. desember 1964. Synir þeirra
eru: a) Sigurður f. 19. desember
1965, kvæntur Huldu Magn-
7. júlí 1998, Fanney, f. 29. júní
1922, d. 4. apríl 1901, Jón Gest-
ur, f. 25. ágúst 1924, d. 12. júní
1926, Hulda, f. 4. febrúar 1927.
Systkini samfeðra: Hreinn, f. 26.
mars 1934, d. 9. desember 1916,
Regína, f. 26. mars 1937, Jó-
hann, f. 7. september 1945, og
Sigrún, f. 29. apríl 1951. Sig-
urjón flutti frá Nefstöðum í
Fljótum til Siglufjarðar vorið
1961. Hann starfaði sem vörubíl-
stjóri alla tíð eða allt þar til
hann seldi vörubifreið sína árið
2014, þá 85 ára gamall. Sigurjón
var mikill harmonikkuunnandi,
hann var sjálflærður og byrjaði
að spila á harmonikku 14 ára
gamall. Hann spilaði víða og
kom m.a. fram í mörg ár á sölt-
unarsýningum Síldarminja-
safnsins á Siglufirði.
Útför Sigurjóns fer fram frá
Siglufjarðarkirkju í dag, 7. apríl
2017, klukkan 14.
úsardóttur, f. 24.
febrúar 1962, börn
þeirra eru Linda
Hrönn, f. 2. mars
1986, gift Halldóri
Páli Jóhannssyni og
eiga þau saman
eina dóttur, Heru
Sóleyju, f. 24. nóv-
ember 2008. Sig-
urjón Ólafur, f. 4.
júlí 1994, og Helga
Eir, f. 9. febrúar
1996. b) Júlíus Helgi, f. 26. ágúst
1971, í sambúð með Hönnu
Bryndísi Þórisdóttur Axels, f. 2.
febrúar 1970, dætur Hönnu
Bryndísar eru Silja Ýr, f. 7. febr-
úar 1992, og Lydía Ýr, f. 16. jan-
úar 1995. Systkini Sigurjóns:
Ingólfur, f. 1. september 1919, d.
Elsku Ninni minn, nú er komið
að leiðarlokum. Ég veit ekki
hvernig lífið verður núna án þín,
við vorum samrýnd hjón og eftir
að við hættum að vinna gerðum
við nánast allt saman, fórum okk-
ar daglegu rúnta og gengum oft
suður á fjörð, ég mun sakna þess.
Ég veit að strákarnir okkar sem
þú varst svo stoltur af passa upp á
mig.
Ég sendi þér kæra kveðju
nú komin er lífsins nótt,
þig umvefji blessun og bænir
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því,
þú laus ert úr veikinda viðjum
þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég átti
þá auðnu að hafa þig hér,
og það er svo margs að minnast
svo margt sem um hug minn fer,
þó þú sért horfinn úr heimi
ég hitti þig ekki um hríð,
þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sigurðardóttir)
Þú varst minn besti vinur. Ég
elska þig og mun hitta þig á ný í
Sumarlandinu góða.
Þín Svala.
Elsku pabbi, ein af fyrstu minn-
ingunum sem koma upp í hugann
var að vera með þér í vörubílnum,
ég gat eytt heilu og hálfu dögunum
með þér og fannst alltaf jafn gam-
an, svo þegar ég varð eldri rædd-
um við mikið um bíla því þar áttum
við sameiginlegt áhugamál. Ég sat
í sófanum heima hjá þér og
mömmu stuttu eftir að þú fórst í
Sumarlandið og var að skoða eitt-
hvað á netinu og sá gamlan vörubíl.
Ég stóð upp til þess að sýna þér því
að mér fannst þú vera í eldhúsinu
en áttaði mig á að þú varst ekki
þar. Ég er svo þakklátur fyrir hvað
við áttum góðan tíma saman. Þó að
ég væri lengi í burtu á sjó reyndi
ég alltaf að hringja á tveggja daga
fresti og þú varst alltaf svo glaður
að sjá mig þegar ég kom í land.
Hlutverkin víxluðust hjá okkur síð-
ustu árin, þá keyrði ég fyrir ykkur
mömmu þegar þið þurftuð að fara
út úr bænum.
Ég sakna þín óskaplega mikið,
elsku pabbi minn, og ég veit að þú
fylgist með okkur og ég passa upp
á mömmu fyrir þig. Ég elska þig,
pabbi minn, og þú kemur og nærð í
mig þegar minn tími kemur.
Þér kæra sendi kveðju
með kvöldstjörnunni blá
það hjarta, sem þú átt,
en sem er svo langt þér frá.
Þar mætast okkar augu,
þótt ei oftar sjáumst hér.
Ó, Guð minn ávallt gæti þín,
ég gleymi aldrei þér.
(Bjarni Þorsteinsson.)
Þinn sonur
Júlíus.
Í dag kveð ég merkilegan
mann, stóran og sterkan en jafn-
framt blíðan og góðan. Ég var svo
heppinn að eiga þennan mann sem
föður og að hafa haft hann sem
stóran hluta af lífi mínu í yfir 50 ár,
í lífi sem einkenndist af endalaus-
um stuðningi við mig og mína,
nánast sama um hvað var að ræða.
Elsku pabbi, ég kveð þig með
óendanlegum söknuði en þakka
jafnframt fyrir öll árin okkar sam-
an. Ég veit þú situr og vakir yfir
okkur og tekur eflaust eitt og eitt
lag á nikkuna á meðan. Hvíl í friði.
Þinn sonur,
Sigurður.
Þó að við vitum að þetta sé okk-
ar allra leið, að hverfa að lokum
frá þessu jarðlífi, er eins og það
komi okkur alltaf á óvart og við er-
um einhvern veginn aldrei viðbúin
þegar höggvið er skarð í ástvina-
hópinn, hvað þá þegar það ber svo
brátt að.
Mig langar að rita örfáar línur
til að minnast Sigurjóns tengda-
föður míns, eða Ninna eins og
hann var ætíð kallaður. Kynni
okkar hófust fyrir um 27 árum er
ég og Siddi sonur hans hófum okk-
ar samband. Ég tel mig hafa verið
mjög lánsama að fá að kynnast
þessum einstaka manni, manni
sem var alltaf til taks, alltaf boðinn
og búinn að aðstoða á allan þann
hátt sem hann mögulega gat.
Hann var umhyggjusamur og
blíður en jafnframt ákveðinn.
Hann bar alltaf hag fjölskyldu
sinnar fyrir brjósti og held að það
sé ekkert sem hann hefði ekki fyr-
ir okkur gert. Barnabörnunum
þremur, Lindu, Sigurjóni og
Helgu, reyndist hann einnig ein-
stakur afi, bar þau alltaf á höndum
sér og hafði mikið yndi af þeim.
Þegar þau voru yngri þurfti ekki
nema eitt símtal til afa: „Afi, viltu
koma að sækja mig.“ Þá var hann
mættur á svæðið um leið. Það var
alltaf svo gott að vera hjá afa
Ninna og ömmu Svölu. Stundirnar
voru þeim ekki síður dýrmætar
eftir að þau komust á fullorðinsár,
ég veit að þau eiga eftir að sakna
afa síns mikið en eiga frábærar og
skemmtilegar minningar um ynd-
islegan afa sem á eftir að ylja þeim
um hjartarætur um ókomna tíð.
Elsku Ninni minn, þakka þér
fyrir allar góðu stundirnar og allt
það sem þú gerðir fyrir mig og
mína. Megi góður Guð geyma þig.
Þín tengdadóttir,
Hulda.
Í dag kveð ég yndislega afa
minn, orð fá því ekki lýst hversu
mikið mér þykir vænt um hann og
hvað ég sakna hans mikið. Frá því
að ég var pínulítil þótti mér alltaf
gaman að vera hjá ömmu og afa og
var afi alltaf svo góður við mig.
Hann var mikið meira en bara afi
minn, hann var góður vinur minn
og við gátum alltaf setið og spjall-
að og hlegið saman. Ég fann það
líka hversu vænt afa þótti um mig,
en hann vildi helst bara hafa mig
heima á Sigló, en þegar ég flutti til
Danmerkur var hann svo hræddur
um að ég kæmi aldrei aftur heim.
Ég er svo þakklát fyrir allar
góðu minningarnar okkar saman,
elsku afi minn, þú ert flottasti eng-
illinn á himnum.
Þín afastelpa
Helga Eir.
Mig langar til að minnast vinar
míns Sigurjóns Steinssonar, eða
Ninna eins og hann var oftast kall-
aður, í örfáum orðum.
Ninni var sannur Fljótamaður,
ættaður úr Stíflunni þar sem hann
ólst upp. Hann byrjaði snemma að
spila á harmonikku og var fyrir-
myndin systir hans sem einnig
spilaði. Ekki voru hljóðfæraleikar-
ar á hverjum bæ og var því
snemma farið að spila fyrir dansi á
skemmtunum bæði í Fljótum og
Ólafsfirði. Það var ekki talið eftir
sér að labba á skíðum yfir Lág-
heiðina með harmonikkuna á bak-
inu ef einhver skemmtun var í
Ólafsfirði. Það var alla tíð áberandi
í leik Ninna að hann var vanur að
spila dansmúsík, því alltaf var
passað að spila í danstakti og takt-
fast.
Ninni flutti til Siglufjarðar upp
úr 1960, hóf þar búskap og fór
strax að keyra vörubíl á bílastöð-
inni. F 200 var alltaf með flottustu
vörubílunum, enda maðurinn
snyrtimenni fram í fingurgóma og
með hæfilega bíladellu.
Eftir komuna til Siglufjarðar
lagðist harmonikkuleikurinn af að
mestu og aðeins tekið í nikkuna í
góðra vina hópi.
Það var svo fyrir 25 árum að
nokkrir harmonikkuleikarar og
aðrir tóku sig saman og stofnuðu
Harmonikkufélag Siglufjarðar.
Eftir nokkra umhugsun gekk
Ninni til liðs við þann hóp og var
þá ekki aftur snúið. Ninni spilaði
með félaginu meðan það var við
lýði og var spilandi allar götur síð-
an. Hann var duglegur að spila á
söltunarsýningum hjá Síldar-
minjasafninu og öðrum viðburðum
þar.
Það var svo eftir samveruna í
Harmonikkufélaginu að við Ninni
fórum að spila saman við hin ýmsu
tækifæri, hann á nikkuna og ég á
bassann. Oft var trommari fenginn
til hjálpar. Síðan þróaðist þetta út
í meiri spilamennsku og var stofn-
uð fimm mann hljómsveit, Heldri-
menn. Æfingatími þeirrar hljóm-
sveitar var alla laugardags-
morgna frá kl. 10 til 12 og ekki
slegið slöku við. Sú hljómsveit
spilaði við hin ýmsu tækifæri og
náði að gefa út einn geisladisk. Þá
hafði Ninni þegar spilað inn á disk
upp á sitt einsdæmi.
Á síðasta ári var farið að þynn-
ast í hópi þeirra Heldrimanna
vegna veikinda og dauðsfalla en
ekki lagði Ninni nikkuna á hilluna.
Hann fékk til liðs við sig ungan
harmonikkuleikara. Oftar en ekki
var ég með á bassann. Spilað var
saman allar götur þar til Ninni
veiktist fyrir skömmu og hvarf úr
þessari jarðvist eftir stutta sjúk-
dómslegu.
Innilegar þakkir fyrir þann
tíma sem við áttum saman í þessu
spiliríi okkar. Aldrei bar skugga á
samkomulagið, aldrei ósætti eða
fýla.
Þín verður sárt saknað. Ekki
hvað síst hjá eldri borgurum sem
nutu þess að dansa við músíkina
þína í Skálarhlíð á sunnudögum.
Við Haukur Orri ætlum að halda
uppi merkinu.
Svölu og fjölskyldunni allri
sendi ég mínar innilegustu sam-
úðarkveðjur.
Hvíl þú í friði, kæri vinur.
Sigurður Ómar Hauksson.
Í dag er borinn til grafar Sig-
urjón Steinsson, Ninni, vörubíl-
stjóri og harmonikkuleikari á
Siglufirði. Við undirrituð, starfs-
menn Síldarminjasafns Íslands,
sjáum á bak traustum samstarfs-
manni og félaga.
Nefna má þrennt sem tengdi
Ninna við safnið: harmonikkuna,
vörubílinn og síldina.
Ungur drengur hreifst Ninni af
tónlistaráhuga og færni sveitunga
sinna í Fljótum. Heima á Hring í
Stíflu hafði hann stolist í harmo-
nikku eldri systur sinnar og fékk
síðan slíkt hljóðfæri í fermingar-
gjöf í fyllingu tímans. Eftir þrot-
lausar æfingar næstu misserin fór
hann að spila á skemmtunum. Og
hversu merkilegt er það nú og frá-
sagnarvert að tíðum gekk hann,
Sigurjón Steinsson
✝ Sesselja HrönnGuðmunds-
dóttir fæddist í
Stykkishólmi 26.
nóvember 1942.
Hún lést 29. mars
2017.
Foreldrar henn-
ar voru Guðmundur
Kristján Ágústsson
lagervörður í
Áburðarverksmiðj-
unni í Gufunesi, f. 4.
desember 1918, d. 3. desember
1978, og Fjóla Sigurðardóttir
húsmóðir, f. 13. apríl 1914. d. 16.
september 1999. Bræður Sess-
elju eru Örn Ágúst Guðmunds-
son, f. 28. september 1938, og
Sigurður Guðmundsson, f. 17.
febrúar 1946. Eiginmaður Sess-
elju var Eðvarð Geirsson flug-
virki, f. 13. júlí 1939, d. 27. júní
1984. Sesselja eignaðist þrjú
börn: 1) Fjólu Eðvarðsdóttur, f.
20. mars 1965, eiginmaður henn-
ar er Justin Wallace. Dætur
Fjólu eru Elísabet
Hrönn Fjóludóttir,
f. 15. september
1986, og Sylvía
Guðrún Fjólud.
Wallace, f. 4. októ-
ber 1996. 2) Geir
Eðvarðsson, f. 8.
desember 1968. 3)
Ingibjörg Sólveig
Eðvarðsdóttir, f. 16.
júlí 1973, eigin-
maður hennar er
Baldur Ingi Sæmundsson. Börn
Ingibjargar eru Eðvarð Geir
Holt, f. 30. júní 1994, Emma Ósk
Baldursdóttir, f. 17. febrúar
2005, Inga Fjóla Baldursdóttir, f.
15. júní 2011, og Ronja Valgý
Baldursdóttir, f. 16. júní 2013.
Sesselja var lengst af heima-
vinnandi húsmóðir en starfaði
hjá Icelandair og Hagstofu Ís-
lands á árunum 1988 til 1995.
Jarðarförin fer fram frá Frí-
kirkjunni í Hafnarfirði í dag, 7.
apríl 2017, klukkan 13.
Amma mín.
Elsku besta amma mín, nú þeg-
ar komið er að kveðjustund er erf-
itt að átta sig á því hvar er best að
byrja. Það er svo margt sem ég er
þakklát fyrir þegar ég hugsa um
tímann okkar saman. Þú varst svo
miklu meira en amma fyrir mér,
þú varst uppalandi og góður vinur
sem var ávallt til staðar fyrir mig.
Þú kenndir mér að vera góð
manneskja og að sjá það sem
skiptir mestu máli í lífinu. Því það
sem er mikilvægast er að sjálf-
sögðu fjölskyldan, vinir og að
passa upp á að eiga góðar stundir
með sínum nánustu. Þrátt fyrir að
þú, elsku amma, þyrftir að berjast
við veikindi nánast allt þitt líf hef
ég ekki hitt sterkari né ákveðnari
konu en þig. Þú vildir lifa og njóta
lífsins, þú kenndir okkur fjölskyld-
unni að gera það sama og aldrei ef-
aðist maður um að þú elskaðir
mann. Það sem ég mun aldrei
gleyma er að í hvert skipti sem ég
kom í heimsókn til þín brostirðu
svo fallega til mín og sagðir: „Elsk-
an mín, ertu komin, það er svo gott
að sjá þig.“ Ég mun aldrei heyra
Sesselja Hrönn
Guðmundsdóttir
✝ Jóna BertaJónsdóttir
fæddist 6. október
1931. Hún lést 2.
apríl 2017 á
Sjúkrahúsi Akur-
eyrar.
Foreldrar henn-
ar voru Ingibjörg
Þórhannesdóttir, f.
17. júní 1902, d. 4.
mars 1941, og Jón
Guðjónsson, f. 18.
mars 1903, d. 9. maí 1969.
Seinni kona Jóns var Þorgerð-
ur Einarsdóttir, f. 5. ágúst
1910, d. 13. september 1985.
Systkini sam-
mæðra voru Krist-
björn og Stella.
Systir samfeðra er
Hrafnhildur og
fóstursystir Gréta.
Börn Jónu Bertu
eru: 1) Þorgerður
Jóna, maki Helgi
Aðalsteinsson.
Þeirra börn, Jón
Þór, Aðalsteinn,
Sumarliði og Mar-
grét Kristín og eru barnabörn-
in 13. 2) Guðmundur Jóhann,
maki Sólveig Þóra Arnfinns-
dóttir. Þeirra börn eru Krist-
inn, Gísli, Heiða Berta, Finnur
Freyr, Steinunn Hödd og Eydís
Ögn. Barnabörnin eru 11. 3)
Sigurður Hrafn, maki Heiða
Kristín Kolbeinsdóttir. Þeirra
börn eru Viktor Andri, Arnór
Snær og Karítas Katla. Jóna
Berta ólst upp á Akureyri og
bjó þar alla sína ævi. Hún vann
við ýmis störf, t.d. vann hún á
Sambandsverksmiðjunum og á
Sjúkrahúsi Akureyrar. Hún
starfaði í yfir tuttugu ár fyrir
Mæðrastyrksnefnd Akureyrar,
lengst af sem formaður nefnd-
arinnar. Á 150 ára afmæli
Akureyrarbæjar var hún gerð
að heiðursborgara bæjarins.
Hún var sæmd Hinni íslensku
fálkaorðu fyrir vel unnin störf
að mannúðarmálum.
Útför hennar verður gerð
frá Akureyrarkirkju í dag, 7.
apríl 2017, klukkan 13.30.
Mesta fyrirmynd okkar er nú
fallin frá. Þó að við séum hlutdræg
var amma Berta best í öllum
heiminum. Hún leysti ráðgátuna
um hvað lífið raunverulega snýst
um. Amma kenndi okkur að lífið
snýst um fjölskylduna. Um ástina.
Um að styðja hvert annað án tak-
marka. Að vera þakklát fyrir
heilsuna og hvert annað. Að verja
tíma saman. Að njóta. Að hjálpa
þeim sem minna mega sín. Að
borða góðan mat með þeim sem
maður elskar. Að biðja bænirnar
sínar. Að vera jákvæður. Að sýna
samferðarmönnum sínum virð-
ingu. Að hafa trú á sjálfum sér. Að
gefast ekki upp þótt á móti blási.
Við erum ríkari og betri mann-
eskjur eftir að hafa fengið að hafa
ömmu Bertu í lífi okkar. Að sama
skapi er heimurinn nú fátækari án
hennar.
Hvíl í friði, elsku amma, og takk
fyrir allt sem þú hefur gefið okk-
ur.
Jón Þór, Aðalsteinn,
Sumarliði og Margrét.
Nú dreymir allt um dýrð og frið
við dagsins þögla sálarhlið,
og allt er kyrrt um fjöll og fjörð
og friður drottins yfir jörð.
(Davíð Stefánsson frá Fagraskógi.)
Í dag, þegar við kveðjum okkar
elskulegu „frænku“, eins og við
kölluðum hana alltaf, leitar ekki
bara á hugann söknuður heldur
ekki síður innilegt þakklæti fyrir
samvistir liðinna ára.
Jóna frænka átti mikla hlýju að
gefa og væntumþykja hennar og
stolt af fjölskyldu sinni og skyld-
fólki var ósvikið.
Okkur er í fersku minni þegar
við fórum í okkar fyrsta ferðalag
saman til Akureyrar, ungt par
með sex mánaða dreng. Þá var
ekki tekið annað í mál, en að gist
væri á Strandgötunni, þar sem
beinlínis var gengið úr rúmi fyrir
unga fólkið. Sannarlega var það
heldur ekki í síðasta skiptið sem
þannig var tekið á móti okkur og
börnunum okkar þegar leiðir lágu
norður.
Jóna frænka var einstök kona,
sem gaman var að ræða við um hin
ýmsu málefni líðandi stundar. Al-
þýðukona með ákveðnar skoðanir,
sem bar hag þeirra sem minna
mega sín í samfélagi okkar ætíð
fyrir brjósti sér. Þetta lýsti sér
einkar vel í starfi hennar fyrir
Mæðrastyrksnefnd Akureyrar til
fjölda ára.
Það fyllti okkur ættingja henn-
ar því miklu stolti þegar forseti Ís-
lands sæmdi hana heiðursmerki
hinnar íslensku fálkaorðu á
Bessastöðum hinn 17. júní 2013
fyrir störf hennar að mannúðar-
málum.
Fyrir rúmri viku þegar við hitt-
umst síðast sáum við og fundum
að líkaminn var orðinn þreyttur
þó að hugurinn væri enn nokkuð
skýr og þótti okkur vænt um mót-
tökurnar þegar við komum. „Nei,
eruð þetta þið, elskurnar?“ en
þannig tók hún alltaf á móti okkur.
Nú að leiðarlokum vottum við
börnum hennar og öllum afkom-
endum okkar innilegustu samúð
um leið og við þökkum þá hlýju og
ástúð sem hún sýndi ætíð okkur
og börnum okkar.
Minningin um einstaka konu
mun lifa.
Þorsteinn og Gerður.
Jóna Berta
Jónsdóttir
Morgunblaðið birtir minn-
ingargreinar endurgjalds-
laust alla útgáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda
Morgunblaðinu greinar eru
vinsamlega beðnir að nota inn-
sendikerfi blaðsins. Smellt á
Morgunblaðslógóið í hægra
horninu efst og viðeigandi lið-
ur, „Senda inn minning-
argrein,“ valinn úr felliglugg-
anum. Einnig er hægt að slá
inn slóðina www.mbl.is/
sendagrein
Skilafrestur | Ef óskað er eftir
birtingu á útfarardegi verður
greinin að hafa borist eigi síðar
en á hádegi tveimur virkum
dögum fyrr (á föstudegi ef út-
för er á mánudegi eða þriðju-
degi).
Þar sem pláss er takmarkað
getur birting dregist, enda þótt
grein berist áður en skila-
frestur rennur út.
Minningargreinar