Morgunblaðið - 07.04.2017, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. APRÍL 2017
Halldór Jónsson bendir á að í inn-kaupareglum Reykjavík-
urborgar 28. gr. segi „um hæfi bjóð-
enda: „Óheimilt að gera samning við
þá sem hafa verið sakfelldir fyrir
spillingu, sviksemi, peningaþvætti
eða þátttöku í skipu-
legri brota-
starfsemi.“
Félag ætti ekki aðvera dæmt þó
að stjórnendur séu
samviskulausir. Þó
er það venjan hér-
lendis en stjórarnir
sleppa. Það er öfugt
við Bandaríkin þar
sem þeir fara í stein-
inn fyrir misgerðir.
Þegar Kristján áSprengisandi spyr Dag, borgar-
stjóra, um viðhorfið til samninga
hans við Ólaf Ólafsson 2017, þá svar-
ar Dagur því efnislega til, að Sjálf-
stæðisflokkur og Framsóknar-
flokkur þurfi að gera hreint fyrir
sínum dyrum vegna hrunsins 2008.
Muna menn ekki Ingibjörgu Sól-rúnu sem svaraði allri gagn-
rýni á innsoginu: EEEEN Sjááááálf-
stæðisflokkurinn. Þetta er bara
háttur ósvífninnar sem einkennir
vinstrimenn. Hún glórði upp á móti
myndavélinni sem litla ofsótta kon-
an og allir vorkenndu henni og kusu.
Þannig spilar Katrín Jakobs sig líka.
Dagur lofar ýmist, 400 íbúðum,1000 íbúðum, 3500 íbúðum eða
7000 íbúðum til að leysa húsnæð-
isvandann þó engin sé byggð. Og
fólkið trúir honum og kýs hann. The
people just loves idiots. Svo felldi
Dagur að gera íbúðalóðir í Geld-
inganesi. Er eitthvað að marka það
sem þetta lið er að bulla í pólitík-
inni?“
En veit Halldór hvort Dagur C B.þegar óvíst er hver Óli C?
Dagur B.
Eggertsson
Hver er ekki hvað?
STAKSTEINAR
Ólafur Ólafsson
Rauðagerði 25 · 108 Reykjavík · Sími 440 1800 · www.kaelitaekni.is
Okkar þekking nýtist þér
Varmadælur
Hagkvæmur kostur til
upphitunar
Verð frá aðeins
kr. 180.000 m.vsk
Midea MOB12
Max 4,92 kW
2,19 kW við -7° úti og
20° inni hita (COP 2,44)
f. íbúð ca 90m2..
• Kyndir húsið á veturna
og kælir á sumrin
• Fyrir norðlægar slóðir
• Fjarstýring fylgir
• Hægt að fá WiFi sendi
svo hægt sé að stjórna
dælunni úr GSM síma
Veður víða um heim 6.4., kl. 18.00
Reykjavík 6 súld
Bolungarvík 1 alskýjað
Akureyri 4 alskýjað
Nuuk -8 skýjað
Þórshöfn 5 rigning
Ósló -1 léttskýjað
Kaupmannahöfn 6 skúrir
Stokkhólmur 1 skýjað
Helsinki 2 léttskýjað
Lúxemborg 15 heiðskírt
Brussel 15 heiðskírt
Dublin 12 súld
Glasgow 11 súld
London 14 léttskýjað
París 15 heiðskírt
Amsterdam 15 heiðskírt
Hamborg 13 þoka
Berlín 10 súld
Vín 15 skýjað
Moskva 0 heiðskírt
Algarve 19 heiðskírt
Madríd 6 heiðskírt
Barcelona 9 heiðskírt
Mallorca 18 heiðskírt
Róm 14 heiðskírt
Aþena 18 léttskýjað
Winnipeg 6 skýjað
Montreal 1 alskýjað
New York 1 rigning
Chicago 6 rigning
Orlando 30 skýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
7. apríl Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 6:23 20:38
ÍSAFJÖRÐUR 6:22 20:49
SIGLUFJÖRÐUR 6:05 20:32
DJÚPIVOGUR 5:51 20:08
„Þetta eru vís-
bendingar um al-
veg gerbreytta
stöðu íslenskrar
tónlistar í sam-
félagi þjóðanna,“
segir Jakob Frí-
mann Magnús-
son, fram-
kvæmdastjóri
Miðborgarinnar
okkar, í samtali
við Morgunblaðið og vísar til þess að
umboðsskrifstofan bandaríska Willi-
am Morris Agency í Kaliforníuríki
hefur sýnt áhuga á að setja upp
Airwaves-hátíð þar vestanhafs. Er
um að ræða eina virtustu og elstu
umboðsskrifstofu í heiminum.
Jakob Frímann segir fund verða
haldinn í næstu viku um þessa hug-
mynd með forsvarsmönnum William
Morris. „Við ætlum að taka fundinn,
hlusta og leyfa þeim að lýsa hug-
myndinni og út á hvað hún gengur
nákvæmlega,“ segir Jakob Frímann
og bætir við að framhald málsins
muni væntanlega skýrast í kjölfarið.
Ekki lengur púkalegir
Þá segir Jakob Frímann þennan
áhuga erlendis frá til marks um
breytt viðhorf til íslenskra tónlistar-
manna. „Við erum að feta bjartari
braut en þegar það eitt að vera ís-
lenskur tónlistarmaður stóð í vegi
fyrir því að hægt væri að fullnusta
samninga – því það þótti svo púka-
legt,“ segir hann.
Iceland Airwaves-tónlistarhátíðin
verður haldin í 19. skipti dagana 1. til
5. nóvember næstkomandi. Verður
hátíðin haldin í Reykjavík og á Ak-
ureyri, þar sem boðið verður upp á
dagskrá í tvo daga. Er stefnt að því
að nota tvo til þrjá tónleikastaði á
Akureyri og að fram komi 20 til 26
tónlistaratriði. khj@mbl.is
Hugmynd um Air-
waves vestanhafs
Ræða við umboðsskrifstofu eftir helgi
Jakob Frímann
Magnússon
Ragnheiður Jóna
Ingimarsdóttir,
menningar-
fulltrúi Eyþings,
hefur verið ráðin
framkvæmda-
stjóri vegna und-
irbúnings hátíð-
arhalda í tilefni
aldarafmælis
sjálfstæðis og
fullveldis Íslands.
Þingsályktun um hvernig minnast
skuli aldarafmælis sjálfstæðis og
fullveldis Íslands var samþykkt á Al-
þingi í október 2016 og afmælis-
nefndin kjörin í desember sama ár.
Verkefni hennar er að undirbúa við-
burði, verkefni og hátíðarhöld allt
árið 2018, þegar öld er liðin frá því
að íslenskt ríki, sjálfstætt, frjálst og
fullvalda, var á ný stofnað með sam-
bandslögunum 1918.
Í nefndinni eru: Einar K. Guð-
finnsson, Þórunn Sigurðardóttir,
Einar Brynjólfsson, Þorsteinn Sæ-
mundsson, Páll Rafnar Þorsteins-
son, Guðlaug Kristjánsdóttir og
Kristján Möller.
Ragnheiður Jóna hefur tíu ára
reynslu af störfum á vettvangi
menningar og lista og hefur undan-
farin ár starfað sem menningar-
fulltrúi Eyþings.
Hún lauk MA-prófi í menningar-
stjórnun frá Háskólanum á Bifröst
og BA-prófi í nútímafræði frá Há-
skólanum á Akureyri.
Framkvæmdastjóri
100 ára fullveldis
Fullveldið aldargamalt á næsta ári
Ragnheiður Jóna
Ingimarsdóttir