Morgunblaðið - 07.04.2017, Blaðsíða 10
Í ályktun frá Samiðn er skorað á fjár-
málaráðherra að tryggja fjármuni svo
Ríkisskattstjóri geti áfram verið þátt-
takandi stéttarfélaganna í vinnu-
staðaeftirliti. Nú hafi RSK ákveðið að
hætta þessu samstarfi og beri meðal
annars fyrir sig að Alþingi hafi ákveð-
ið að skera niður fjárveitingu upp á 40
milljónir sem sérstaklega hafi verið
ætlaðar þessu eftirlitsstarfi. Slíkt sé
miður. Þetta starf hafi skilað góðum
árangri, þar sem hluti þeirra útlend-
inga sem starfa á Íslandi njóti ekki
þeirra starfskjara sem kjarasamning-
ar og lög eigi að tryggja.
Vel sé búið að starfsmönnum
„Eins og kunnugt er hefur orðið
mikil fjölgun erlendra starfsmanna á
íslenskum vinnumarkaði og spár
benda til að enn eigi eftir að fjölga í
þeim hópi. Erlendir starfsmenn eru
mikilvægir fyrir atvinnulífið og mik-
ilvægt að vel sé búið að þeim hvað
varðar aðbúnað og launakjör. Reynsl-
an segir okkur að hættan á félagsleg-
um undirboðum og undanskotum frá
skatti eykst verulega við aðstæður
sem þessar og öflugt og skilvirkt
vinnustaðaeftirlit því nauðsynlegt,“
segir Samiðn.
Í annarri áyktun Samiðnar er fagn-
að hugmyndum sem uppi séu um
breytingar á lögum um réttindi og
skyldur erlendra fyrirtækja sem
senda erlenda starfsmenn tímabund-
ið til Íslands. Nú sé meðal annars gert
ráð fyrir ábyrgð notendafyrirtækis í
byggingastarfsemi eða mannvirkja-
gerð á vangoldnum lágmarkslaunum
starfsmanna erlendra verktaka í
þeirra þjónustu og starfsmannaleiga.
Þetta hefur verið kallað keðjuábyrgð
og er skorað á félagsmálaráðherra að
tryggja að frumvarp að breytingun-
um verði lagt fyrir Alþingi og það af-
greitt á yfirstandandi þingi. Jafn-
framt er því beint til Alþingis að
tryggja að ábyrgðin taki einnig til
starfsmanna íslenskra undirverktaka
svo jafnræði erlendra og íslenskra
starfsmanna sé tryggt. sbs@mbl.is
Vinnustaðaeftirlit
verði tryggt áfram
RSK fái fé Hætta á undanskotum
Morgunblaðið/Eggert
Framkvæmdir Fólk erlendis frá er
mikilvægt á vinnumarkaði hér.
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. APRÍL 2017
Laugavegi 52 | 101 Reykjavík
Sími 552 0620 | gullogsilfur.is
TOPPUR ehf
Bifreiðaverkstæði
TOPPUR er viðurkennt
þjónustuverkstæði fyrir
Skemmuvegi 34 • Kópavogi • Sími 557 9711 • toppur@toppur.is
Landvernd hefur sett af stað hug-
myndasamkeppni meðal félags-
manna og almennings um hvernig
nýta megi jörðina Alviðru í Ölfusi í
þágu náttúru- og umhverfisverndar.
Magnús Jóhannesson bóndi gaf
Landvernd og Héraðsnefnd Árnes-
inga jörðina árið 1973. Landvernd
rak þar umhverfisfræðslusetur í
mörg ár en eftir bankahrunið hefur
botninn dottið úr starfseminni. Er
ekkert svona setur starfandi í dag.
Skólar hafa lítið sóst eftir því að
komast í Alviðru og Landvernd rek-
ur það til gildistöku nýrra grunn-
skólalaga 2008, sem kveða á um að
ekki megi lengur rukka foreldra um
ferðakostnað fyrir vettvangsferðir.
Húsnæðið í Alviðru þarfnast einn-
ig endurbóta og vill Landvernd fá
hugmyndir um hvernig nýta megi
jörðina þannig að ákvæði gefandans,
Magnúsar, séu betur virt.
Samkeppnin stendur til 21. apríl
nk. og verðlaun verða veitt fyrir þrjú
efstu sætin. Nánari upplýsingar um
samkeppnina eru á landvernd.is.
Landvernd með hugmynda-
samkeppni um Alviðru
Vilja nýta jörð-
ina betur í þágu
umhverfisverndar
Ljósmynd/Landvernd
Alviðra Landvernd fékk jörðina til afnota 1973 frá Magnúsi Jóhannessyni.
Engey RE 91, nýr ísfisktogari HB
Granda, kemur til hafnar í Reykja-
vík í dag frá Akranesi þar sem sjálf-
virku lestarkerfi ásamt búnaði á
vinnsludekki var komið fyrir í skip-
inu.
Samkvæmt upplýsingum frá
Granda er búnaðurinn sá fyrsti sinn-
ar tegundar. Fyrirtækið Skaginn 3X
hefur hannað, þróað og smíðað á
Akranesi og á Ísafirði. Búnaðurinn
muni stórbæta vinnuumhverfi sjó-
manna um borð auk þess sem hann
muni auka afkastagetu skipsins og
hámarka virði afurða úr afla þess.
Engey kom til landsins 25. janúar
sl. að lokinni 15 sólarhringa siglingu
frá Celiktrans-skipasmíðastöðinni í
Istanbúl í Tyrklandi þar sem skipið
var smíðað. Nautic ehf. sá um hönn-
un skipsins. Samtals eru klefar fyrir
17 manns um borð í skipinu, 15 eins
manns klefar og einn tveggja manna
klefi. Móttökuathöfn verður við
Norðurgarð í Reykjavíkurhöfn
klukkan 14 í dag. Engey verður síð-
an almenningi til sýnis á morgun,
laugardag, frá kl. 13-16. Reiknað er
með að Engey fari í sína fyrstu veiði-
ferð í lok apríl.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Nýstárlegt skip Engey kom til landsins í janúar og vakti þá athygli fyrir
nýstárlegt útlit. Formleg móttökuathöfn verður við Norðurgarð í dag.
Tekið formlega
á móti Engey
Nýtt vinnslukerfi frá Skaganum 3X
Agnes Bragadóttir
agnes@mbl.is
Í nýrri skýrslu Ríkisendurskoðunar
til Alþingis um starfsnám á fram-
haldsskólastigi kemur fram að að-
gerðir stjórnvalda á undanförnum
árum til að efla starfsnám á fram-
haldsskólastigi hafi ekki náð tilætl-
uðum árangri. Að mati Ríkis-
endurskoðunar hljóti ómarkviss
stefnumörkun og ófullnægjandi að-
gerðir stjórnvalda að eiga umtals-
verðan þátt í því að starfsnám standi
enn höllum fæti.
Kristján Þór Júlíusson mennta-
málaráðherra sagði í samtali við
Morgunblaðið í gær að nú myndi
fara fram ákveðin vinna í ráðuneyt-
inu við að greina skýrsluna og hugsa
hver næstu skref yrðu af hálfu
stjórnvalda. „Ég er mjög eindreginn
talsmaður þess að verk- og starfs-
nám verði eflt og hef mikinn áhuga á
því að finna leiðir til þess,“ sagði
Kristján.
Í skýrslunni kemur fram að ný lög
um framhaldsskóla, nr. 92/2008, hafi
átt að verða starfsréttindanámi til
framdráttar og opna skólum leið til
að efla starfsnám og nám tengt þjón-
ustugreinum. Frá 2008 til skólaárs-
ins 2014-15 hafi nemendum verk- og
starfsnámsbrauta hins vegar fækkað
um 7% og brautskráningum þeirra
fækkað um 18%. Frá því að lögin
tóku gildi hafi stjórnvöld unnið að
ýmsum áætlunum um aðgerðir til úr-
bóta án þess að þeim hafi verið
hrundið í framkvæmd með skipu-
lögðum hætti.
Stendur höllum fæti
Ríkisendurskoðun telur að ómark-
viss stefnumörkun og ófullnægjandi
aðgerðir stjórnvalda eigi umtals-
verðan þátt í því að starfsnám standi
enn höllum fæti.
Í skýrslunni kemur fram að ríkis-
endurskoðun telur að ný aðalnám-
skrá fyrir framhaldsskóla sem tók
gildi 2011 og átti að fullu að vera
komin til framkvæmda 2015 sé ekki
komin til framkvæmda hvað varðar
starfsnám.
Í janúar á þessu ári hafi einungis
níu af rúmlega 100 námsbrautum
sem telja megi til starfsnáms hlotið
staðfestingu og fimm að auki hafi
beðið staðfestingar. Því sé ljóst að
meirihluti starfsnáms á framhalds-
skólastigi fari fram á óstaðfestum
námsbrautum. Þetta verði að teljast
„alvarlegur veikleiki á stjórnsýslu
starfsmenntunar“.
Ríkisendurskoðun hvetur mennta-
og menningarmálaráðuneytið til að
beita sér fyrir því að skipulag og
hlutverk starfsgreinaráðs verði
endurskoðað og tryggt verði að
starfsgreinanefnd sinni hlutverki
sínu. Auk þess hvetur stofnunin
ráðuneytið til að meta ávinning þess
að skólum verði falin skýr ábyrgð á
þeim þáttum starfsnáms sem krefj-
ast náms og þjálfunar á vinnustað.
Ómarkviss stefnumörkun
Í skýrslu Ríkisendurskoðunar eru stjórnvöld gagnrýnd harðlega fyrir það hvernig staðið hefur verið
að verk- og starfsnámi í framhaldsskólum Aðgerðir til að fjölga nemendum hafa lítinn árangur borið
Fjöldi nemenda á framhaldsskólastigi 2008-2015
Heimild: Hagstofa Íslands
15.000
12.000
9.000
6.000
3.000
0
2008-9 2009-10 2010-11 2011-12 2012-13 2013-14 2014-15
Stúdentsbrautir Starfsnámsbrautir Almennar brautir
Borgarráð hefur
samþykkt ráðn-
ingu Örnu
Schram í stöðu
sviðsstjóra
menningar- og
ferðamálasviðs
Reykjavíkur-
borgar. Alls bár-
ust 25 umsóknir
um stöðuna, 6
umsækjendur drógu umsókn sína
til baka og úrvinnsla fór því fram á
19 umsóknum. Arna hefur starfað
sem forstöðumaður menningar-
mála hjá Kópavogsbæ síðan í febr-
úar 2011. Hún hefur lokið BA-
gráðu í stjórnmálafræði og heim-
speki frá Háskóla Íslands og
Kaupmannahafnarháskóla auk
MBA-gráðu með áherslu á stjórnun,
rekstur og markaðsmál frá Háskól-
anum í Reykjavík.
Ráðin sviðsstjóri
menningar- og
ferðamálasviðs
Arna Schram