Morgunblaðið - 07.04.2017, Page 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. APRÍL 2017
Mest seldu ofnar
á Norðurlöndum
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Annir eru þessar vikurnar í kjall-
aranum í Gömlu-Gróðrarstöðinni
við Krókeyri á Akureyri. Þar ræð-
ur ríkjum Rakel Jónsdóttir skóg-
fræðingur og dagarnir á vormán-
uðum snúast um að gæðaprófa
trjáplöntur frá skógarplöntu-
framleiðendum. Þær verða gróð-
ursettar á næstunni í skógarreitum
skógarbænda og Skógræktarinnar
víða um land. Tilgangur gæðapróf-
ana er að reyna að stemma stigu
við afföllum í nýgróðursetningum
skógarbænda.
Helsta verkefnið er að kanna
hvort rótarkerfi plantnanna sé
nógu þróttmikið. „Yfirleitt er þetta
allt í góðu lagi frá framleiðendum.
Þeir ráða þó ekki við veðrið og
stundum hefur haustið komið of
snemma eða veturinn verið of harð-
ur og þá hafa vissulega komið fram
gallar í plöntunum,“ segir Rakel.
Hún tekur þó fram að slíkt sé und-
antekning. Spurð um gæði plantn-
anna í vor eftir mildan vetur segir
Rakel, að þau séu almennt góð.
Staðlaðar aðstæður
Mest er gróðursett af lerki, greni
og furu, en einnig birki og eru flest
sýnin í gæðaprófununum af þessum
tegundum. Plönturnar eru yfirleitt
ársgamlar þegar þær eru gróð-
ursettar og koma frá fjórum fram-
leiðendum skógarplantna; Sól-
skógum á Akureyri, Barra á
Egilsstöðum, Álmi og Kvistum á
Suðurlandi. Í fyrra nam fram-
leiðslan rúmlega þremur milljónum
plantna, en árið fyrir hrun var
framleiðslan tvöfalt meiri eða um
sex milljónir plantna.
Þegar plöntur koma til prófunar
frá framleiðendum eru þær settar í
mold í sérstakt ræktunarborð, svo-
kallað RGC-borð (Root Growth
Capacity). Aðferðin sem er notuð
er mest notaða aðferðin í heiminum
við könnun á gæðum skógar-
plantna. Ræktunarborðið heldur
stöðluðu hitastigi þannig að rót-
arhiti á plöntunum í borðinu er 20
gráður og lofthita í herberginu er
haldið við sama hitastig.
Ræturnar hafa minna frostþol
Eftir þriggja vikna rækt-
unartímabil í borðinu eru plönturn-
ar teknar upp úr moldinni og ræt-
ur þeirra taldar. Prufuræktunin er
við staðlaðar aðstæður, hita og ljós,
sem eru nákvæmlega eins frá ári
til árs. Þannig sést fljótlega hvort
eitthvað er að plöntum í ræktun,
hvort rótarkerfið er nægilega
þróttmikið og eins hvort breytingar
séu á milli ára.
„Við leggjum áherslu á rót-
arkerfið vegna þess að það hefur
miklu minna frostþol heldur en yf-
irvöxturinn,“ segir Rakel. „Hann
getur alveg þolað yfir 20 gráða
frost, jafnvel 30 gráður, þegar
plantan er komin með frostþol.
Rótin þolir hinsvegar mun minna
frost, yfirleitt ekki nema -10°C. Við
náttúrlegar aðstæður einangrar
jarðvegurinn rótarkerfið og lítil
hætta er á rótarkali. En þegar
plantan er í ræktunarbakka og sit-
ur í bakkanum fyrir ofan jarðvegs-
yfirborð á veturna þá er henni mun
hættar við rótarkali.
Ef rótarkerfið hefur kalið mikið
getur plantan ekki framleitt rætur
og þá er voðinn vís þegar hún er
gróðursett að vori. Rótarkal er erf-
itt að greina nema með þessari að-
ferð, það er ekki sýnilegt í gróðr-
arstöðinni að vori rétt áður en
plönturnar eru afhentar.
Fylgst með grámyglu
Auk þess að kanna þrótt rót-
arkerfisins er einnig fylgst með því
hvort einhverjar skemmdir eru á
plöntunum, sjúkdómar eða óværa.
Rakel segir að rótarkal sé helsta
viðfangsefnið og eins hvort grá-
mygla hafi komist í barr því það
geti líka haft áhrif á lífsþróttinn.
Þetta eftirlit er gert skömmu fyrir
gróðursetningu og er liður í því að
tryggja skógarbændum gæða-
plöntur svo vinna þeirra fari ekki
til spillis.
Rakel lauk meistaragráðu í skóg-
fræði frá Landbúnaðarháskólanum
í Svíþjóð 2011 þar sem hún lagði
áherslu á ræktun og yfirvetrun
skógarplantna. Hún situr m.a. í
stjórn NordGen Forest, sem er
skógarhluti Norrænu erfða-
auðlindastofnunarinnar.
Þróttur rótanna lykilatriði
Skógræktin gæðaprófar trjáplöntur í Gömlu-Gróðrarstöðinni á Akureyri
Verða gróðursettar víða um land á næstunni Rótarkal er dulinn óvinur
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Innan um plönturnar Rakel Jónsdóttir skógfræðingur við ræktunarborðið, en aðstæður eru alþjóðlega staðlaðar.
Sýnishorn Mest er gróðursett af lerki, greni og furu og eru flest sýnin í
gæðaprófununum af þeim tegundum. Gróðursetning vorsins er þegar hafin.
Í vetur hefur verið mikil ásókn
ferðamanna í íshella, en veturinn er
besti tíminn til að skoða íshella með
tilliti til öryggis og aðgengis. Þetta
kemur fram á heimasíðu Vatnajök-
ulsþjóðgarðs, en þar er jafnframt
bent á að áhætta fylgi því að fara í
íshella og hún aukist eftir því sem
líði á veturinn.
„Íshellar myndast yfirleitt vegna
vatnsstreymis eða jarðhita. Þeir
færast til og breytast með skriði
jöklanna og eru því ekki varanleg
fyrirbrigði heldur eyðast þeir
vegna bráðnunar. Hækkandi loft-
hiti veldur einnig því að veggir ís-
hellanna veikjast og geta þeir hrun-
ið bæði að hluta til og í heilu lagi.
Þarf þá varla að spyrja að leiks-
lokum, en a.m.k. tvö banaslys hafa
orðið á Íslandi sl. áratug vegna ís-
hruns,“ segir á heimasíðu þjóð-
garðsins.
Fyrir ofan sprungur og svelgi
Þar segir jafnframt: „Auk örygg-
isbúnaðar er nauðsynlegt að kunna
að velja leið á jökli, þar sem gengið
er á hörðum ís til að komast að ís-
helli. Of oft hefur sést til leiðsögu-
manna ganga með viðskiptavini
fyrir ofan sprungur og svelgi, þar
sem afleiðingar falls geta orðið
mjög alvarlegar. Slíkt er með öllu
óásættanlegt, og þar sem ekki verð-
ur hjá því komist að fara um slíkt
svæði verður að tryggja göngu-
menn með öryggislínu sem fest er í
sigbelti.
Öryggismál eru lykilþáttur í
sjálfbærri ferðaþjónustu. Því er það
allra hagur að rétt sé staðið að mál-
um eigi greinin að dafna til fram-
tíðar. Það á jafnt við um íshella sem
annað og því mikilvægt að ferða-
menn og leiðsögumenn þeirra hafi
öryggi sitt og annarra í fyrirrúmi
þegar íshellar og jöklar eru skoð-
aðir.“ aij@mbl.is
Morgunblaðið/RAX
Fegurð Íshellir í Vatnajökli.
Áhættan
eykst er
líður á
veturinn
Ásókn ferða-
manna í íshella