Morgunblaðið - 06.05.2017, Qupperneq 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. MAÍ 2017
Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is
Kletthálsi Reykjavík
Reykjanesbæ
Vorverkin á
MÚRBÚÐARVERÐI
Gróðurmold 20 l
490
Hjólbörur, 80 lítra
3.990
Lavor Space 180
háþrýstidæla
24.990
180 Max bar
510min Litrar
Pallahreinsir, bursti
og aukaspíssar. Sterkir Cibon strákústar
45cm 1.395 kr.
60cm 1.895 kr.
Cibon Fúgu vírbursti
3x10 laga m/skafti 1.490 kr.
Fimm bjúgnefjur sáust á Stekkakeldu við Höfn í Hornafirði í
fyrradag. Flækingsfugl þessi hefur aðeins sést tvisvar áður
og hér og með þessum fundi hafa sést tíu fuglar af þessari
tegund hér á landi. Brynjúlfur Brynjólfsson hjá Fuglaathug-
unarstöð Suðausturlands kom auga á bjúgnefjurnar og mynd-
aði. Hann segir að bjúgnefja hefði fyrst sést hér á landi við
Hvalnes í Lóni árið 1954. Fimmtíu árum síðar, í apríl 2004,
fann hann fjórar í Flóanum við Höfn.
Bjúgnefjur verpa mest við norðurhluta Miðjarðarhafsins en
einnig upp með ströndum Evrópu alveg norður til Svíþjóðar
og Bretlandseyja. Vetrarstöðvar þeirra eru í Afríku.
Bjúgnefjurnar fimm sem komu við í Hornafirði hafa vænt-
anlega verið í farflugi að sunnan og lent hingað til lands í
hvassviðrinu sem borið hefur hingað marga flækingsfugla
undanfarna daga. helgi@mbl.is
Ljósmynd/Brynjúlfur Brynjólfsson
Sjaldséðar bjúgnefjur stinga niður fæti í Hornafirði
Agnes Bragadóttir
agnes@mbl.is
Ögmundur Jónasson, fyrrverandi
samgönguráðherra og þingmaður
VG, skrifar harðorðan pistil á heima-
síðu sína ogmundur.is, um Vaðlaheið-
argöngin og kjördæmapotara, sem
hann nefnir í fyrirsögn pistilsins
„kraftaverkamenn“ íslenskra stjórn-
mála. Steingrímur J. Sigfússon gefur
lítið fyrir gagnrýni Ögmundar, en
segir að sér finnist leitt ef Ögmundur
geti ekki unnt Norðlendingum þess
að gleðjast yfir þessum áfanga.
Ögmundur sagði í samtali við
Morgunblaðið í gær, að með því að
skrifa ofangreindan pistil hafi hann
viljað minna á það sem hann hafi sagt
frá upphafi um andstöðu sína við gerð
ganganna, því sér þætti ástæða til
þess að þessu væri haldið til haga,
„vegna þess að stjórnmálin og mis-
tökin sem þar eru gerð, eru til þess að
læra af þeim,“ sagði Ögmundur.
Aðspurður hvernig hann teldi að
fyrrverandi formaður VG, Stein-
grímur J. Sigfússon, þingmaður VG í
Norðausturkjördæmi og Kristján L.
Möller, fyrrverandi samgöngu-
ráðherra og þingmaður Samfylking-
arinnar í Norðausturkjördæmi,
tækju þeirri gagnrýni sem fram
kæmi í pistlinum á kjördæmapotara,
sagði Ögmundur: „Ég velti því ekk-
ert mikið fyrir mér. Þessi sjónarmið
sem ég set fram í pistlinum eru þau
sömu og ég hafði frá upphafi. Þegar
verið er að gera fögnuðinum um að
haftið í göngunum hafi verið sprengt,
svona hátt undir höfði, finnst mér
sjálfsagt að þessi sjónarmið mín komi
fram á nýjan leik. Það voru alls ekki
allir sammála um þessa framkvæmd
og mér finnst mjög mikilvægt að við
færum okkur út úr þessum farvegi
ákvarðanatöku. Því miður er þetta
ekki liðin tíð.“
– Áttu von á því að þú munir keyra
um Vaðlaheiðargöng eftir að þau
verða komin í gagnið?
„Ég hef ekki hugmynd um það.
Það er afskaplega fallegt að keyra
um Víkurskarðið, og ég er ekki viss
um að ég vilji verða af þeirri fegurð,“
sagði Ögmundur. „Ég mun ekki
svara gagnrýni Ögmundar, en segi
þó að mér finnst leitt, ef Ögmundur
getur ekki unnt Norðlendingum þess
að gleðjast yfir þessum áfanga í
framkvæmdinni,“ var það eina sem
Steingrímur J. Sigfússon vildi segja,
þegar Morgunblaðið ræddi við hann í
gær.
Í pistli Ögmundar segir m.a.: „Ráð-
herra samgöngumála (Ögmundur –
innskot. blm.) sem ábyrgur var fyrir
málaflokknum var því andvígur að
ráðist yrði í framkvæmdina á þeim
forsendum sem fyrir lágu. Sú afstaða
var virt að vettugi í ríkisstjórn og síð-
ar á þingi.“
Ögmundur skrifar undir lok pistils-
ins, sem birtur var 3. maí sl.: „Vaðla-
heiðargöngin eru dæmi um ranga
forgangsröðun. Þau eru líka dæmi
um yfirgang og pólitíska frekju.
Vinnubrögðin í þessu máli skýra
hvers vegna pólitískir flokkar tapa
tiltrú.“
Enn á móti gangagerðinni
Ögmundur Jónasson kallar kjördæmapotara „kraftaverkamenn“ Segir Vaðla-
heiðargöngin vera dæmi um ranga forgangsröðun, yfirgang og pólitíska frekju
Morgunblaðið/Þorgeir Baldursson
Ögmundur
Jónasson
Steingrímur
J. Sigfússon
Vaðlaheiðargöng Síðasta haftið í göngunum var sprengt 28. apríl sl.
„Saman munum við geta breytt hlut-
unum,“ sagði Björt Ólafsdóttir, um-
hverfis- og auðlindaráðherra, þegar
ráðherrar í ríkisstjórn Íslands skrif-
uðu í gær undir samstarfsyfirlýs-
ingu um gerð aðgerðaáætlunar í
loftslagsmálum sem liggja skal fyrir
í lok ársins.
Markmið áætlunarinnar er að Ís-
land geti staðið við skuldbindingar
sínar samkvæmt Parísarsamn-
ingnum í loftslagsmálum til 2030
með því að draga úr losun gróð-
urhúsalofttegunda og auka bindingu
koldíoxíðs úr andrúmslofti. „Ég tel
það mjög mikilvægt að þetta verk-
efni sé á Íslandi unnið þvert á þau
svið sem geta lagt hönd á plóginn.
Það er gríðarlega mikilvægt að þetta
sé ekki unnið í einu ráðuneyti,“ sagði
Björt. freyr@mbl.is
Samstaða
mikilvæg
Aðgerðaáætlun í
loftlagsmálum
Morgunblaðið/Eggert
Aðgerðaáætlun Ríkistjórnin kynnti
málið í Ráðherrabústaðnum.
Nemendur efstu bekkja grunnskólans í Vík í Mýrdal
áttu þess kost í gær að kynnast ýmsu framandi þegar
Háskólalest Háskóla Íslands hafði þar viðkomu. Lestin
heimsækir fjóra staði í maímánuði og hvarvetna er
áhugaverð dagskrá. Frá því lestinni góðu var ýtt af stað
á teinunum fyrir sjö árum hefur hún heimsótt 30 staði á
landinu – og meðal þess sem býðst er að líta til stjarna í
öflugum kíki eins og krakkar í Mýrdalnum gerðu.
Vísindalest Háskóla Íslands hafði viðkomu í Vík í Mýrdal í gær
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Horft til himins í vísindasjónaukanum