Freyr - 01.04.2006, Qupperneq 8
NAUTGRIPARÆKT
Nautgriparækt
Upplýsingar um ræktunar-
starf, sölu, verðlag og
afkomu greinarinnar
Ljósm. Jón Eiríksson
Afurðir nautgripa eru mjólk, naut-
gripakjöt og húðir. Samkvæmt
gjaldstofni til búnaðargjalds vegna
tekjuársins 2004 voru verðmæti
nautgripaafurða um 9,9 milljarðar
króna eða 49,76% af heildargjald-
stofninum. Áætlað er að mjólkin
skili um 92% verðmætanna. Ekki
eru hlutfallslega miklar breytingar
milli búgreina á milli ára.
FJÖLDI INNLEGGJENDA
Verðlagsárið 2004/2005 var 861 lögbýli
með greiðslumark í mjólk en voru 889 á
sama tíma árið áður. Þetta er rúmlega 3%
fækkun og fækkaði búum með greiðslu-
mark að jafnaði um 0,5 á viku á verðlagsár-
inu 2004/2005. Það er heldur minna en árið
áður, en þá fækkaði um 0,8 bú á viku. Með-
almjólkurinnlegg á bú með greiðslumark
var um 123.113 Itr. en 121.917 Itr. árið á
undan. Miklar framfarir eru í fóðrun og
meðferð gripanna sem ásamt kynbótum
hefur skilað stórauknum afurðum síðustu
ár. Tafla 1. sýnir fjölda lögbýla með greiðslu-
mark í mjólk og stærð kúabúa verðlagsárið
2004/2005.
Fjöldi mjólkurkúa haustið 2005 var
23.675 og hafði þeim fækkað frá árinu
2003 um 1.229, eða 4,9%. Frá árinu 2000
til ársins 2004 hefur mjólkurkúm fækkað
um 12,5% og öðrum nautgripum um tæp
12%. Þessi þróun endurspeglar annars veg-
ar aukna afurðasemi mjólkurkúnna og hins
vegar minnkandi arðsemi nautakjötsfram-
leiðslu. Tafla 2 sýnir fjölda nautgripa 2000-
2005.
Tafla 2. Fjöldi nautgripa 2000 - 2005
Ár Kýr Aðrir nautgripir
2000 27.066 45.069
2001 26.240 43.928
2002 25.508 41.717
2003 24.904 41.131
2004 24.395 40.244
2005 23.675 39.775
Heimild: Bændasamtök íslands
FRAMKVÆMDAGLEÐI RÍKJANDI
Á árinu 2005 var Lánasjóður landbúnaðar-
ins seldur. Kaupandi var Landsbanki íslands.
Lauk þar langri framkvæmdasögu og bein-
um afskiptum ríkisins af framkvæmdum í
landbúnaði. Var lögum um innheimtu og
ráðstöfun búnaðargjalds enn fremur breytt
Tafla 1. Fjöldi 2004/2005 ögbýla með greiðslumark og stærð kúabúa eftir kjördæmum
Fjöldi lögbýla Innlögð mjólk (Itr.) Meðalinnlegg (Itr.) Greiðslumark (þús. Itr.)
Reykjanessvæði 12 1.252.577 104.381 1.202.354
Vesturland 127 14.292.365 112.538 13.381.847
Vestfirðir 39 3.324.640 85.247 3.204.009
Norðurland vestra 135 16.456.046 121.897 16.415.396
Norðurland eystra 191 27.168.934 142.246 26.569.410
Austurland 57 5.916.262 103.794 5.817.650
Suðurland 300 41.052.577 136.842 39.409.334
Alls 861 109.463.401 127.135 106.000.000
Heimild: Bændasamtök íslands
I FREYR 04 2006