Freyr

Árgangur

Freyr - 01.04.2006, Síða 38

Freyr - 01.04.2006, Síða 38
Dæmi um færslur í minnisbók daqsetninq tímasetning vatnshæð cm rennsli l/s athugasemd 3.1.2005 12:00 123 28 enginn ís í laeknum 5.1.2005 14:00 124 29 mælistaðurinn íslaus 7.1.2005 13:00 123 28 10.1.2005 11:00 120 24 12.1.2005 12:00 115 19 óvenju lítið rennsli 13.1.2005 14:00 135 47 mikil rigning 13.1.2005 16:00 146 69 mikill vöxtur 13.1.2005 18:00 153 86 enn að vaxa 13.1.2005 21:00 155 91 hámarki náð 14.1.2005 10:00 138 52 Dæmi um samband vatnshæðar og rennslis fundið með mælingum Rennslisly kill Dæmi um ársferil rennslis dagsetning -e—mæltrennsli ------meðalrennsli — - — minnsta rennsli Vatnshæð sem lesin er af kvarðanum er skráð í minnisbók eða jafnvel lófatölvu á skipulegan og skýran hátt. Því oftar sem vatnshæðin er mæld, því nákvæmari og áreiðanlegri verður niðurstaðan. Hins vegar er oft látið nægja að mæla vatnshæðina daglega eða annan til þriðja hvern dag í reynd. Auk vatnshæðar er lágmark að skrá dagsetningu og tímasetningu álestrarins, en góð regla er að skrá einnig stutta lýsingu á aðstæðum og sjálfsagt er að reikna út rennslið ef rennslislykillinn er fyrir hendi. Eins og þegar hefur verið nefnt þarf að breyta vatnshæðinni yfir f rennsli sam- kvæmt rennslislykli. Þar sem ekki er varan- leg mælistífla þarf að finna út samband rennslis og vatnshæðar með þvf að mæla rennsli og vatnshæð við mismunandi vatns- hæð. Myndin hér að ofan sýnir dæmi um sam- band vatnshæðar og rennslis sem hefur ver- ið fundið með mælingum. Rétt er að fylgj- ast með hvort sambandið milli vatnshæðar og rennslis breytist með því að mæla rennsli öðru hvoru samhliða því að lesa á kvarðann. ÁRSFERILL RENNSLIS Virkjað rennsli er ákveðið með hliðsjón af fyrirsjáanlegri orkunotkun og möguleikum á að miðla rennsli. Ef orkunotkunin er stöð- ug allan ársins hring og miðlunarmöguleik- ar engir, er virkjað rennsli ákveðið sem minnsta rennsli á tímabilinu. Á meðfylgjandi mynd má sjá hvernig ársferill rennslis gæti litið út. Samkvæmt þeirri mynd er minnsta rennsli (virkjað rennsli) á tímabilinu 20 l/s. SAMANTEKT Eitt það fyrsta sem þarf til þess að geta lagt skynsamlegt mat á hvort virkjun sé hag- kvæm eða ekki eru upplýsingar um rennsli og fallhæð. í greininni hefur verið bent á aðferðir sem hægt er að nota við að mæla þessar stærðir. Það er þó rétt að minna á að þótt rennsli og fallhæð séu mikilvægar stærðir er ekki síður mikilvægt að taka til at- hugunar fleiri þætti sem hafa áhrif á það hvort tiltekinn virkjunarkostur er hagkvæm- ur eða framkvæmanlegur. Má þar nefna svæðisskipulag, náttúruvernd, lífríki, orku- notkun, orkuverð og fjármagnskostnað, svo dæmi séu tekin. HEIMILDIR OG TILVÍSANIR ESHA European Small Hydro Power Association. 1998. Layman’s Handbook on how to Develop a Small Hydro Site. Commission of the European Communities, Directorate General for Energy. Sótt á www.esha.be hinn 22.3.2006. Jóna Finndís Jónsdóttir, Kristinn Einarsson, Snorri Zóphóníasson, Bjarni Kristinsson og Sverrir Elefsen. 2002. Leiðbeiningar um mælingar á vatnsrennsli í smáám og lækjum. Vatnamælingar Orkustofnunar. Sótt á www.os.is/page/smavirkj- anir hinn 22.3.2006. RetScreen International. 2004. Small Hydro Project Analysis. Minister of Natural Resources of Canada. Sótt á www.retscre- en.net/ang/g_small.php hinn 22.3.2006. US Department of the Interior. 2001. The Water Measurement Manual. Water Resources Research Laboratory. Sótt á www.usbr.gov/pmts/hydraul- ics_lab/pubs/wmm hinn 20.3.2006. US Geological Survey. 1982. Measurement and computation of streamflow: Volume I. Measure- ment of Stage and Discharge. Geological Water Supply Paper 2175, U.S.A. Sótt á http://pubs.usgs.gov/wsp/wsp2175 hinn 20.3.2006. VGK. 2003. Litlar vatnsaflsvirkjanir - kynning og leiðbeiningar um undirbúning. Iðnaðarráðuneyt- ið. Sótt á www.os.is/page/smavirkjanir hinn 22.3.2006. 34 FREYR 04 2006

x

Freyr

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.