Morgunblaðið - 30.06.2017, Qupperneq 18
18 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. JÚNÍ 2017
Fyrirtæki og verslanir
Sumarleikföng í úrvali
www.danco.is
Heildsöludreifing
45 cm boltar
Flottir á
trampólín
arBolt
Kútar
Sá kúl rpu u
Vatnsbyssur
Fötur
YooHoo
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Veiðimenn segja gjarnan að ekkert
jafnist á við það að vera úti í nátt-
úrunni og fanga bráð, hvort sem er
á sjó eða landi. Hjónin Ólafur Vig-
fússon og María Anna Clausen, sem
eiga og reka veiðivöruverslunina
Veiðihornið í Síðumúla í Reykjavík,
hafa nær 40 ára reynslu af veiðum
og leggja nú mest upp úr fluguveiði
í fjarlægum löndum.
Kíríbatí eða Jólaeyja rétt sunnan
við miðbaug í Kyrrahafinu er
draumastaður Ólafs og Maríu Önnu
um þessar mundir og þangað er
ferðinni næst heitið í haust með
fernum öðrum hjónum. Þau hafa
farið víða og segja alla staði hafa
margt til síns ágætis, en það sé
engu líkt að kasta flugu við rifin á
Jólaeyju. „Þarna vöðum við í sjón-
um innan við hákarla,“ segir
Ólafur.
Leiðsögumaður með í sjónum
Veiðarnar á Jólaeyju ganga
þannig fyrir sig að farið er með
fólkið á báti á milli sand- eða kóral-
rifja, þar sem það fer frá borði og
veiðir þar til náð er aftur í það.
Leiðsögumaður er með þeim í sjón-
um og vísar veginn. Ólafur segir að
hákarlarnir séu litlir og ekki sé
mikil hætta af þeim enda séu þeir
yfirleitt meinlausir. „Í fyrsta sinn
sem ég sá hákarl hnippti leið-
sögumaðurinn í mig, sagði mér að
hafa ekki áhyggjur heldur um-
gangast hann af virðingu. Svo barði
hann með flugustönginni í sjóinn!“
Hjónin hafa farið í veiðiferðir til
margra misjafnra staða og allt
gengið upp. „Þetta hefur verið eitt
ævintýri,“ segir María og Ólafur
tekur undir það. Þau eru byrjuð að
undirbúa ferðir á næsta ári og
segja að stöðugt fleiri hafi áhuga á
að fara með.
Bera virðingu fyrir
hákörlum í úthafinu
Hjónin stunda
fluguveiði á fjar-
lægum slóðum
Risafiskur Við Jólaeyju er tegundin Giant Trevally, þessi um 50 pund.
Annar heimur Það er engu líkt að veiða í heitum, söltum sjó, segja hjónin.
Jólaeyja Ólafur Vigfússon og María Anna Clausen með Peachface, eina tegund af Triggerfish. Seychelleseyjar Þar má meðal annars veiða Bonefish, eða silfurbogga.