Víkurfréttir - 18.12.2014, Qupperneq 21
Nurofen Apelsin
Íbúprófen mixtúra fyrir börn
á aldrinum 6 mánaða til 12 ára
Fæst í Lyfjum & heilsu
Nurofen Apelsin 40 mg/ml mixtúra, dreifa. Inniheldur Íbúprófen. Til skammtímameðferðar gegn vægum til miðlungi alvarlegum verkjum eða hita. Skammtar og lyfjagjöf: Til inntöku. Dagsskammtur af Nurofen er 20-30 mg/kg
líkamsþyngdar tekin inn í 3-4 aðskildum skömmtum á u.þ.b. 6 til 8 klst. fresti. Mælt er með því að sjúklingar sem eru viðkvæmir í maga taki Nurofen með mat. Ekki ráðlagt fyrir börn yngri en 6 mánaða eða undir 8 kg. Aðeins til
skammtímanotkunar. Leita skal til læknis ef einkenni versna. Ef lyfið er notað án lyfseðils og einkenni barnsins eru viðvarandi í meira en 3 daga skal leita til læknis. Lágmarka má aukaverkanir með því að nota lægsta virka skammt í eins
stuttan tíma og hægt er til að meðhöndla einkenni. Ekki má taka lyfið ef þú: Hefur ofnæmi fyrir íbúprófeni, bólgueyðandi gigtarlyfjum, hveiti eða einhverju innihaldsefnanna, sögu um berkjukrampa, astma, nefslímubólgu eða ofsakláða í
tengslum við inntöku acetýlsalicýlsýru eða annarra bólgueyðandi gigtarlyfja, sögu um blæðingar eða rof í meltingarvegi í tengslum við fyrri meðferð með bólgueyðandi gigtarlyfjum, virk sár, eða sögu um endurtekin sár/blæðingar í maga,
virka blæðingu í heila eða annars staðar, alvarlega lifrarbilun, alvarlega nýrnabilun, alvarlega hjartabilun, storkuvandamál, óútskýrðar truflanir á blóðmyndun svo sem blóðflagnafæð, ert á síðasta þriðjungi meðgöngu, tekur önnur bólgueyðandi
gigtarlyf eða meira en 75 mg af acetýlsalicýlsýru daglega, ert með hlaupabólu, hefur nýlega gengist undir stóra skurðaðgerð, hefur ofþornað. Gæta skal sérstakrar varúðar og ræða við lækni eða lyfjafræðing ef þú ert með, hefur
einhvern tíman fengið eða átt hættu á að fá: Bandvefssjúkdóm, þarmasjúkdóm, hjarta og/eða æðasjúkdóm, skerta nýrnastarfsemi, lifrarsjúkdóm, óþol fyrir sykrum eða ef þú tekur önnur lyf. Regluleg notkun verkjalyfja getur leitt til
varanlegra truflana á nýrnastarfsemi. Andþyngsli geta komið fyrir ef barnið hefur astma, langvinnt nefrennsli, sepa í nefi eða ofnæmissjúkdóma. Örsjaldan hefur verið greint frá alvarlegum viðbrögðum í húð í tengslum við notkun bólgueyðandi
gigtarlyfja. Hætta skal notkun Nurofen Apelsin strax við fyrstu merki um útbrot á húð, sár á slímhúðum eða önnur einkenni ofnæmisviðbragða. Lyf svo sem Nurofen Apelsin geta tengst aukinni hættu á hjartaáfalli eða heilaslagi. Ekki nota
meira en ráðlagðan skammt og ekki lengur en ráðlagt er. Ef blæðing eða sár koma fram í meltingarvegi ætti að hætta meðferð strax. Hættan á blæðingum, sáramyndun eða rofi í meltingarvegi eykst við notkun stærri skammta af bólgueyðandi
gigtarlyfjum, hjá sjúklingum með sögu um sár í meltingarvegi, einkum ef þeim hafa fylgt blæðingar eða rof og hjá öldruðum. Lyfið getur dulið einkenni sýkinga og hita. Sjúklingar með sögu um aukaverkanir í meltingarfærum, sérstaklega
aldraðir, ættu að hafa samband við lækni án tafar og greina frá öllum óvenjulegum einkennum frá meltingarvegi. Lesið leiðbeiningar á umbúðum og í fylgiseðli fyrir notkun. Geymið þar sem börn hvorki ná til né sjá. Markaðsleyfishafi:
Reckitt Benckiser Healthcare A/S. Umboð á Íslandi: Artasan ehf., Suðurhrauni 12a, 210 Garðabæ.
• Hitalækkandi
• Verkjastillandi
• Bólgueyðandi
Fæst án lyfseðils í apótekum
Sýnt hefur verið fram á að Nurofen apelsin slær
á hitann eftir aðeins 15 mínútur og áhrifanna
gætir í allt að 8 klukkustundir
www.lyfogheilsa.is
Nurofen VIKURFR-L&H copy.pdf 1 18/11/14 20:20