Víkurfréttir - 18.12.2014, Síða 44
44 fimmtudagurinn 18. desember 2014 • VÍKURFRÉTTIR
-viðtal pósturu eythor@vf.is
„Ég fór að skoða hvaða mögu-
leikar væru í boði og miðaustur-
lönd voru álitlegur kostur sökum
góðviðris og betri launakjara en
gengur og gerist annars staðar í
heiminum,“ Einar segir að ferlið
hafi gengið eins og oft vill verða
þegar leitað er eftir nýju starfi.
Maður þekkir mann og að lokum
fór það svo að vinur Einars gaf
honum samband við slökkviliðs-
stjóra hjá Shell í Qatar. „Þetta ger-
ist í september 2013 og í kjölfarið
hófst eitt erfiðasta ráðningarferli
sem ég hef upplifað, sem var við-
tal eftir viðtal, læknisskoðanir og
allskonar hindranir sem maður
þurfti að komast yfir. Það var svo
í desember sem ég fékk að vita að
ég fengi stöðuna. Þetta gerðist því
allt saman mjög hratt og í febrúar
2014 var ég fluttur út. Ég er mikill
fjölskyldumaður og gat því ekki
verið án fjölskyldunnar í allt of
langan tíma. Þegar að ég sá fram
á að þetta væri fjölskylduvænn
staður fór ég á fullt í ferlið að fá
þau út. Um miðjan júní vorum
við svo sameinuð á ný,“ segir
Suðurnesjamaðurinn Einar en
Rúna Lís Emilsdóttir kona hans
og Einar Aron sonur þeirra flutt-
ust þá til Qatar.
Erlent vinnuafl í meirihluta
Landið Qatar saman stendur aðal-
lega af einni stórri borg sem heitir
Doha og nokkrum hverfum sem
umliggja hana. Doha er uppfull
af stórhýsum og glæsibílum líkt
og úr einhverri bíómynd að sögn
Einars. „Þar eru frábærar strendur
og þar sem þetta er nú eyðimörk
þá er fullt af sandi. Landið er ekki
stórt eða með íbúafjölda upp á 2,1
milljónir. Þar af eru heimamenn
einungis um 450 þúsund talsins.
Annars er um að ræða svokallaða
expats (erlent vinnuafl) sem búa
og vinna í landinu. Uppbyggingu
á þessu landi mætti líkja við tölvu-
leikinn Sim City því hér rísa stór-
hýsi og leikvangar á hverjum degi,“
segir Einar en sem dæmi má nefna
að íbúum í landinu fjölgaði um heil
fimm prósent í septembermánuði
s.l.. Heimsmeistarakeppnin í fót-
bolta verður svo haldin í landinu
árið 2022 og því eru miklar fram-
kvæmdir í gangi.
Heimamenn góðir
og gjafmildir
Einar segist kunna vel við heima-
menn sem séu gjafmildir góðhjart-
aðir.
„Qatarí, eins og þeir eru kallaðir
hér, geta verið við fyrstu sýn frekar
hrokafullir. Það er bara þeirra siður
að vera í sínum Thobe (nokk-
urskonar kufl) með sólgleraugu
innandyra og líta á mann eins og
maður sé nýbúinn með síðasta
Rolo molann þeirra. Á þessum tíu
mánuðum sem ég hef búið hér, hef
ég ennþá ekki hitt heimabúa sem er
annað en frábær. Þeir vilja allt fyrir
mann gera. Þú skalt ekki dirfast
að reyna borga nokkurn skapaðan
hlut þegar farið er með Qatarí
einhvert, það er óvirðing við þá.
Heima á klakanum berjumst við
öll við að enda ekki með reikning-
inn í enda kvölds,“ segir Einar um
heimamennina sem kallast Qatarí.
Slökkviliðsmenn frá
öllum heimshornum
Einar starfar hjá stórfyrirtækinu
Shell í stærstu eldsneytisvinnslu
í heiminum. Um er að ræða svo-
kallaða Gas To Liquid verksmiðju.
Einar starfar í hóp sem kallast FIT,
First Intervention Team, sem sjá
um alhliða slökkvi- og björgunar-
vinnu á vinnusvæðinu. Þannig geta
slökkviliðsmennirnir fengist við
allt frá eldsvoðum, eiturefnaútkalla,
sigbjörgun til sjúkraflutninga. „Við
erum að fást við margar gerðir af
útköllum og er þetta rosalega gott í
reynslubankann hjá manni,“ Einar
byrjaði sem almennur slökkviliðs-
maður en eftir sjö mánaða starf
fékk hann stöðuhækkun og er
núna svokallaður Leading firefig-
hter, sem er eins konar hópstjóri
á sinni vakt. Hann segir það frá-
bæra reynslu að vinna með fólki frá
öllum heimshornum, en í hans hóp
er fólk frá 11 mismunandi löndum.
Fjölskylduvæn menning
Einar og fjölskylda kunna ákaf-
lega vel við sig í Qatar og eru afar
þakklát fyrir að fá gullið tækifæri
til að kynnast heiminum og annarri
menningum. Þegar Einar á svo frí
nýtur hann lífsins með fjölskyld-
unni. „Möguleikarnir eru enda-
lausir hér í þessu magnaða landi.
Við eigum 18 feta hraðbát ásamt
vinafólki og það er ekki leiðin-
Paradís við Persaflóa
Slökkviliðsmaðurinn Einar Már og fjölskylda búa í smáríkinu Qatar í Mið-Austurlöndum.
Slökkviliðsmaðurinn Einar Már Jóhannesson hefur ásamt fjölskyldu sinni komið sér vel fyrir í í Qatar, smáríki í Mið-Austurlöndum, sem er eitt efnaðasta land heims.
Fjölskyldan upplifir þar framandi menningu og steikjandi hita sem Íslendingar eiga erfitt með að afbera. Einar segir að það hafi alltaf heillað hann að vinna erlendis en
hann starfar nú hjá olíurisanum Shell. Eftir tíu ár í starfi slökkviliðsmanns á Íslandi langaði hann að öðlast frekari reynslu í starfi og ákvað að halda á vit ævintýranna við
Persaflóa.
Flatmagað í sundlauginni.
Feðgarnir Einar Már og Einar Aron ásamt hundinum
Loka, nýjasta fjölskyldumeðliminum.
Einar ásamt Faisal vini sínum,
þegar sá síðarnefndi hélt upp á afmæli sitt á glæsilegri snekkju.