Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.2017, Qupperneq 23

Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.2017, Qupperneq 23
umræða 23Helgarblað 8. desember 2017 Óleystar gátur um fornsögur F yrir tveimur vikum birtist eftir mig grein á þessum vett­ vangi um Njáls sögu þar sem ég meðal annars ræddi um líkindi hennar við frægasta verk Sturlu Þórðarsonar; þann part af Sturlungu sem kallast Íslendinga­ saga. Tilefnið var birting á niður­ stöðum nýlegrar stílfræðilegrar rannsóknar á nokkrum íslensk­ um miðaldaverkum. Sama rann­ sókn var svo tekin til umfjöllunar í fréttaskýringaþættinum Kveikur á RÚV, og í framhaldi af þessu öllu urðu miklar umræður, ekki síst um uppruna Njáls sögu, meðal annars á Facebook. Það er í sjálfu sér gaman að svona umræður eigi sér stað, því að oft og tíðum þótti eitthvað hálf ósæmilegt að ræða um upp­ runa eða hugsanlega höfunda að baki okkar frægustu miðaldabók­ menntum. „Fræðasamfélaginu“ þóttu þannig pælingar eitthvað lítilsigldar, einhvers konar nef­ tóbaksfræði og menn áttu að láta sér nægja að sögurnar væru nafn­ lausar og hefðu bara á einhvern hátt sprottið upp úr þjóðarsálinni, kannski sem samvinnuverk efni síúðrandi munka í klaustrum. En í seinni tíð hafa hins vegar æ fleiri áttað sig á því að á bak við stórar og úthugsaðar bækur eins og til að mynda Njálu, Grettlu eða Eglu stendur að sjálfsögðu einhver höf­ undur sem hefur formað og út­ hugsað verkið; framvinduna og aðalpersónur. Og það sem meira er þá hafa virtir fræðimenn stigið fram og tengt okkar helstu mið­ aldahöfunda við bestu sögurnar; má þar nefna ritgerðir Vésteins Ólafssonar um Eglu og Snorra Sturluson, og rit Sigurðar Nordal úr ritröðinni Studia Islandica um Sturlu Þórðarson og Grettlu. Verða að rökstyðja aðra skýringu Mestar umræður hafa að undan­ förnu orðið um Sturlu Þórðarson sem hugsanlegan höfund Njáls sögu, og hvaða skoðun sem menn vilja hafa í því efni þá er vert að hafa í huga að raktar hafa verið og bent hefur verið á svo margar og gegnumgangandi hliðstæður á milli áðurnefndrar Íslendingasögu Sturlu og svo Njáls sögu, að þær eru í sjálfu sér hafnar yfir vafa. Frá­ sagnir þessara tveggja bóka fylgja í öllum aðalatriðum, og og oft og tíðum út í æsar, nákvæmlega sama frásagnarmynstri, svo að segja má að þær séu eins og tvær myndir sem litaðar hafa verið eftir sömu númerum, en með ólíkum litum. Þetta höfðu bæði erlendir og inn­ lendir fræðimenn rekið augun í og skoðað, og fyrir nokkrum árum tók ég mig til og dró saman í rit­ gerð allar helstu hliðstæðurnar, og bætti við þeirri uppgötvun sem ég hafði sjálfur gert, að einnig í form­ gerð eru þessar bækur tvær eins og spegilmynd hvor af annarri; báðar skiptast þær í þrjá skýrt afmarkaða efnishluta sem lýsa má með ná­ kvæmlega sömu orðum. Ég hef sjálfur dregið þá ályktun af þessari hliðstæðu á milli tveggja bóka sem skrifaðar eru um svip­ að leyti, í landi án bókaprentunar eða dreifingar, að um sama höf­ und hljóti að vera að ræða. En hvort sem menn eru sammála þeirri ályktun eða ekki þá breytir það engu um líkindin og hliðstæð­ urnar á milli umræddra verka; séu menn ósammála mér og mínum skoðanabræðrum verða þeir að koma með og rökstyðja aðra skýr­ ingu. Vert er þess að geta að ýmsir af okkar helstu fræðimönnum hafa sýnt þessum athugunum vinsemd og áhuga, en samt hef ég líka fund­ ið að sumum úr þeirra ranni hef­ ur þótt sem þetta væru með öllu óþarfar pælingar – það er eins og það trufli heimsmynd þeirra að hugsa um svona mál. Ánægður með munkaumræðuna Ég nefndi hér í upphafi niður­ stöður nýrrar stærðfræðilegrar stílgreiningar á íslenskum forn­ sögum sem birtar voru í nýjasta hefti Skírnis og varð tilefni þeirr­ ar umræðu sem hefur verið í gangi undanfarna daga, en ein af niður­ stöðunum var semsé sú að það væru samkvæmt henni minni líkur á að Sturla Þórðarson hafi samið Njálu en að til að mynda Snorri Sturluson hefði skrifað Eglu. Eftir að þetta varð heyrin­ kunnugt fannst mér eins og sum­ ir, sem aldrei höfðu gefið þessum kenningum gaum, að minnsta kosti svona opinberlega, yrðu mjög fegnir og teldu að þar með væri þessi umræða úr sögunni og að nú væri allt sem fyrr; sögurn­ ar með öllu nafnlausar og enginn möguleiki á að komast á sporið með höfund; þær væru á ein­ hvern hátt eins og sjálfsprottnar úr sagnaarfi þjóðarinnar, kannski færðar á blað af iðjusömum munk­ um. Og birtust athugasemdir, jafnt á eyjan.is þar sem grein mín vart birt og á Facebook, sem sner­ ust um að nú hefði afsannast allt sem menn hafi bent á um skyld­ leika Njálu við atburði ritunar­ tímans, eða Sturlunga aldar, og að auki bókina sem Sturla Þórðarson skrifaði um þá atburði. Í framhaldinu skrifaði ég þessa athugasemd: „Ég hef á hlaup­ um kíkt á umræður um höfund Njálu vegna þáttar í gær í sjón­ varpinu þar sem gerð var grein fyrir merkilegum niðurstöðum úr rannsókn með glænýrri ís­ lenskri aðferð á stílbrigðum, og gæti orðið vísbending um hugs­ anlegan höfund. Menn hafa hoppað fram víða á spjallþráð­ um með svona „I told you so“ fullyrðingar eins og að Njála sé bara „héraðssaga Rang­ æinga“. Án þess að skilgreina hvað sé átt við með „héraðs­ saga“. Það heldur því auðvitað enginn fram að Njála sé saga Rangárþings, þótt getið sé um einhverja sem þar bjuggu á vissu tímabili. Þannig að lík­ lega er verið með hugtak­ inu „héraðssaga“ að tala um sögu sem gerist í héraðinu, og það er svo sem fullgild skilgreining svo langt sem hún nær. Dugir reyndar þá ekki síður fyrir skáldsöguna Hella, eftir Hallgrím Helga­ son. Aðrir hafa alltaf sagst vita að „munkar“ hafi skrif­ að Njálu, án þess að vita eða benda á hverjir þeir munkar voru. Ég er samt ánægður með munkaumræðuna; oftar fara menn í rökþroti eða óvitaskap að tala um papa eða álfa.“ Óþarfi að kalla mig „aðra“ Ágætur vinur minn og samherji, Guðmundur Andri Thorsson, átt­ aði sig á að þegar ég sagði „aðrir hafa alltaf sagst vita að „munkar“ hafi skrifað Njálu“ var ég að vísa til hans og hann svaraði „Óþarfi að kalla mig „aðra“ þó að ég fall­ ist ekki umyrðalaust á hugmynd­ ir þínar um Skáldhöfðingjana sem skrifuðu snilldarverkin í hjáverk­ um frá lögmannsstörfum og marg­ víslegum erindreksti en hafi leyft mér að tengja Íslendingasögurnar við þá bókmenntaiðju sem við vitum að átti sér stað í klaustrum landsins“ og það er auðvitað rétt hjá honum, þótt mér hafi fundist að með sínum athugasemdum hafi hann kosið að horfa alger­ lega framhjá þeim hliðstæðum sem menn hafa uppgötvað við Ís­ lendingasögu Sturlu og atburði Sturlungaaldar. En varðandi þetta með „hjáverk frá lögmannsstörf­ um“ þá var það nú ekki svo að lög­ menn á þjóðveldisöld hafi rekið lögfræðiskrifstofur, heldur voru skyldur þeirra aðallega bundnar við þingdaga á sumrin. Helga Kress kom inn í um­ ræðuna og sagði: „Einu sinni handtaldi ég (fyrir meir en manns­ aldri og birti í fræðigrein) að það væru 550 karlar í Njálu og 100 kon­ ur, þ.e.a.s. fimm og hálfur karl á móti einni konu. Að þessu var gert mikið grín með tilheyrandi upp­ nefningum, m.a.s. á prenti. Nú sé ég mér til bæði ánægju og upp­ reistar æru, að sams konar tölfræði hefur verið endurvakin af mikilli list og fræðilegri alvöru.“ Og spurði í framhaldinu hvort það gæti verið vísbending ef sama kynjahlut­ fall reyndist vera í Íslendingasögu Sturlu. Sjálfur er ég efins um það; augljóslega eru miklu fleiri karl­ ar í Sturlungu, enda segir hún frá mörgum fjöldaorrustum og þylur þá oft nöfn bardagamanna. Margir lögðu orð í belg og vildu meina að það væru kannski fleiri en einn höfundur að bókum eins og Njálu, en hins vegar blasir við að það er einn skapandi hugur á bak við gerð verksins, „master­ mind“, þótt aðalhöfundur gæti hafa verið með aðstoðarmenn og hjálparkokka. Fræðimaður einn benti á að Snorri og Sturla hafi trú­ lega verið með skrifara, sem get­ ur vel verið og breytir í raun engu um höfundarverkið – svo er hins að gæta að þeir voru báðir vel skrifandi, og það hafa komið fram rökstuddar kenningar um að lög­ bókin Járnsíða hafi verið kynnt Ís­ lendingum með rithönd Sturlu. Altént, sá sem samdi Njálu var mjög handgenginn hinu mikla verki Sturlu um Sturlungaöld. Út frá því þarf að ræða málin. n „Það er eins og það trufli heimsmynd þeirra að hugsa um svona mál. Einar Kárason rithöfundur skrifar Þér að segja Snorri Sturluson Fræðimaður einn benti á að Snorri og Sturla hafi trúlega verið með skrifara. Njáls saga Gunnar á Hlíðarenda í ham.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.