Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.2017, Síða 26
26 fólk - viðtal Helgarblað 8. desember 2017
→ Inni- og útimerkingar
→ Sandblástursfilmur
→ Striga- og
ljósmyndaprentun
→ Bílamerkingar
→ Gluggamerkingar
→ Prentun á símahulstur
→ Frágangur
... og margt fleira
Skoðaðu
þjónustu
okkar á
Xprent.is
SundaBorG 1, reykjavík / SímI 777 2700 / XPrent@XPrent.IS
að vera. Ég var ekki bara að eyði-
leggja líf mitt heldur stórskaða
börnin mín. Þá brotnaði ég nið-
ur, hringdi á Vog og bað þá að taka
við mér.“
Föstudaginn langa fór hann á
síðasta fylleríið sitt og daginn eftir
innritaði hann sig á Vog. „Páska-
dagsmorgun 27. mars vaknaði ég
edrú og lít á það sem minn fyrsta
edrú-dag. Ég grínast með að ég
hafi ekki verið frumlegri en svo
að velja páskadag til að rísa upp
frá dauðum.“
Eilíft líf ekki bundið við tíma
Davíð skráði sig fyrst í guðfræði-
nám 26 ára gamall vegna þess
að honum þótti námsefnið sjálft,
tungumál og heimsmynd Hebr-
ea og Grikkja, svo heillandi.
Hann ætlaði sér þá ekki að verða
prestur heldur fræðimaður og
grúskari. Hann hefur ávallt verið
trúaður á æðri mátt og eftir sigur-
inn á áfengisbölinu tók hann upp
þráðinn í guðfræðinni en þá til
að vígjast. Kom það mörgum Ís-
lendingum í opna skjöldu í ljósi
fyrri starfa hans.
„Ég er með óhefðbundinn
bakgrunn en ég held að ég sé ekki
jafn óhefðbundinn prestur og
margir telja. Ýmislegt sem ég segi
eða geri vekur oft meiri athygli
en þegar kollegar mínir segja eða
gera nákvæmlega sömu hluti.“
Hefur þú lent í mótlæti frá
öðrum prestum eða safnaðar
meðlimum?
„Nei. Ég hef heyrt það utan úr
bæ að fólk eigi erfitt með að taka
mig alvarlega sem prest og það
er bara allt í lagi. Það eru aðrir
prestar sem það fólk getur leitað
til. Ég veit að sóknarbörn mín á
Útvarpi Sögu líta ekki á mig sem
björtustu von kristindómsins á
Íslandi. En ég veit það af langri
reynslu að maður fær hnífana
frekar í bakið en í andlitið. Ég hef
gengist við minni fortíð og fólk
veit að gæinn í hempunni hef-
ur breyst mikið frá þeim tíma
sem hann var að ritstýra Bleiku
og bláu.“ Davíð segir kynslóðina
sem hafði gaman af Radíus-
bræðrum nú vaxna upp og kyn-
slóðina sem þeir gengu fram af að
hverfa. „Krökkunum sem ég er að
vinna með finnst merkilegast að
ég hafi talað fyrir Sigmar í Svampi
Sveinssyni.“
Hefur reynslan af alkóhólisma
styrkt þig í prestsstörfunum?
„Já, hiklaust, og ekki bara sem
prest heldur sem manneskju. Að
hafa þurft að róa lífróður til að
halda geðheilsunni og náð í land
hefur styrkt mig sem prest, föður,
afa, bróður og vin.“
Erfiðast að fá hringingar
um miðjar nætur
Trúir þú á líf eftir dauðann?
„Ég trúi á eilíft líf en við
mælum það ekki í tíma heldur
gæðum. Tími er fullkomlega efn-
islegt hugtak og verður til með
miklahvelli. Tími er ekki til í hinni
andlegu vídd tilverunnar. Þegar
ég segi að ég trúi á eilíft líf þýð-
ir það ekki að ég trúi á einhverja
óendanlega langa tilvist í ein-
hverri hliðarveröld, heldur óend-
anlega góða tilvist í hinni and-
legu vídd.“
En hvað með helvíti?
„Ég trúi að laun syndarinnar
séu dauði. Dauði er ekki eilíft líf í
kvöl heldur endir tilvistar. Ég skil
talið um eldsofninn þannig.“
Hvað er erfiðast við
prestsstörfin?
„Lang erfiðast er þegar síminn
hringir um miðja nótt og ég er
beðinn að koma í hús þar sem
orðið hefur andlát og lögreglan
metur það svo að ábyrgðarlaust
sé að skilja fólkið eftir eitt í því
ástandi. Ég kem þá á staðinn og
reyni að vera til staðar og hjálpa
fólki til að fá nógu mikla ró til að
geta farið að sofa.“
Hvað gerir þú?
„Ég veit það eiginlega ekki. Ég
væri löngu brunninn upp ef ég
væri aðeins borinn uppi af sjálf-
um mér. Ég held að ég sé borinn
uppi af einhverjum öðrum á slík-
um stundum.“
Hefur þú brotnað niður eftir
slíkar heimsóknir?
„Ég hef ekki brotnað niður, en
hef þurft að eiga stund með sjálf-
um mér og guði eftir ákveðin
verk efni.“
En hvað er mest gefandi?
„Mér finnst afskaplega
gefandi að finna að ég hef orðið
einhverjum að liði. Annaðhvort
við eitthvert vandamál sem hrjáir
hann eða við að kveðja ástvin.
Það erfiðasta sem maður gerir
getur líka verið það mest gefandi
því á þeim stundum getur návist
manns verið til mest gagns.“
Davíð segir að sú fækkun sem
átt hefur sér stað í Þjóðkirkjunni
sé eðlileg þróun og gerist hraðar
í nágrannalöndunum. „Ég held
að mesti óvinur Þjóðkirkjunnar sé
skipulagið sjálft. Þetta er svo stór
og mikil stofnun að fólk upplifir
hana sem bákn. Staðreyndin er sú
að fólk er upp til hópa ánægt með
kirkjuna í hverfinu sínu en nán-
ast öll óánægjan beinist að yfir-
stjórninni. Viðbragðið við þessari
þróun ætti að vera að Þjóðkirkj-
an sjáist vera grasrótarkirkja. Við
þurfum að rífa píramídann og
búa til raðhúsalengju.“
Myndi kæra Útlendingastofnun
Alla tíð hafa mannréttindamál
skipt Davíð miklu máli og hefur
hann verið meðlimur í Amnesty
International síðan á unglingsár-
um. Í átta ár sat hann í stjórn sam-
takanna og í fimm ár var hann
formaður Íslandsdeildar. Í seinni
tíð hefur hann látið málefni hæl-
isleitenda og flóttafólks sig miklu
varða. Hann segir að hvernig Ís-
lendingar taki á móti kvótaflótta-
fólki sé til fyrirmyndar en öðru
máli gegni um hælisleitendur.
„Ég fæ ekki betur séð en að
Útlendingastofnun sé hvað eftir
annað að brjóta bæði barnasátt-
mála Sameinuðu þjóðanna
og íslensk barnaverndarlög. Í
íslenskum barnaverndarlögum
segir að þau nái yfir öll börn á
yfir ráðasvæði íslenska ríkisins.
Öll börn eiga rétt á umgengni við
báða foreldra og fjölskyldur hafa
verið brotnar upp, til dæmis þegar
Tony Omos var sendur úr landi.
Í barnasáttmálanum, sem á að
heita lögfestur á Íslandi, segir að
allar ákvarðanir um börn verði að
taka með hag barnanna að leiðar-
ljósi. Fólkið er sent út í algjöra
óvissu. Það er smánarblettur á ís-
lenskum stjórnvöldum hvernig
komið er fram við fjölskyldur og
börn sem leita hér hælis.“
Hann segir að skýlaus grund-
völlur sé til að kæra Útlendinga-
stofnun fyrir þessar aðgerðir og
hann myndi gera það sjálfur ef
hann væri hagsmunaaðili sam-
kvæmt lögum. „Ég fagna því að
ný ríkisstjórn segist ætla að taka
við fleira flóttafólki en ég vona
að hún geri skurk í því að skikka
Útlendingastofnun til að virða
íslensk barnaverndarlög og
barnasáttmálann.“
Eins og flestir vita er Dav-
íð fyrrverandi sambýlismaður
Katrínar Jakobsdóttur forsætis-
ráðherra. „Ég vona það besta og
óska henni velfarnaðar en bjart-
sýni mín varðandi þessa ríkis-
stjórn í heild er hófleg. Ég hef
enga ástæðu til þess að efast um
að Katrín verði góður forsætisráð-
herra. En hún er ekki ein í þessari
ríkisstjórn og í henni situr fólk, án
þess að ég nefni nein nöfn, sem ég
vona að verði fyrir góðum áhrif-
um og breyti háttum sínum.“ n
„Þegar ég
sá þau
börn vaxa úr
grasi þá rann mér
til rifja að ég ætti
enn eitt barn
Ritstýrði Bleiku og bláu
„Það er persónan sem kveikir
lostann, ekki kjötið.“
Mynd SigtRygguR ARi