Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.2017, Síða 42
42 Helgarblað 8. desember 2017menning
Kökulist | Firði Hafnarfirði og Valgeirsbakarí | Hólagötu 17 í Reykjanesbæ
Súrdeigsbrauðin
okkar eru alvöru
u Heilkorna
u 100% spelt
u Sykurlaus
u Gerlaus
u Olíulaus
Í
bókinni Anna eins og ég er segir
Anna Kristjánsdóttir sögu sína
sem Guðríður Haraldsdóttir
skráir. Flestir Íslendingar þekkja
til sögu Önnu sem vissi snemma að
hún hefði fæðst í röngum líkama,
fór í kynleiðréttingu og barðist
fyrir tilveru sinni sem kona.
„Ég er mun opinskárri í þessari
bók en ég hef áður verið til dæmis
þegar ég fjalla um bernskuna,“
segir Anna. „Ég var tekin frá for
eldrum mínum vegna drykkju
þeirra og fátæktar og sett á barna
heimili. Frá sjö ára aldri til tólf ára
aldurs ólst ég einungis upp á slík
um heimilum. Ég hef ekkert verið
að tala um það áður því í gamla
daga skammaðist ég mín fyrir að
tala um þetta, enda fylgdi þessu
ákveðin skömm.
Það var erfitt að rifja upp hluti
sem ég hef ekki viljað tala um
áður. Það tekur á að rifja upp
sárar minningar. Á síðustu árum
hefur verið mikil umræða í þjóðfé
laginu um svokölluð barnaheimili
og fleira. Það er miklu auðveldara
fyrir mig að tala um þetta í dag en
hefði verið fyrir tíu árum. Ég hefði
heldur ekki getað staðið í þessum
bókarskrifum meðan foreldrar
mínir voru lifandi, en þeir eru
dánir fyrir mörgum árum.“
Anna leggur áherslu á að
foreldrar hennar hafi aldrei beitt
hana ofbeldi, drykkja
þeirra hafi verið
vandamálið. Hún seg
ir samskipti sín við
foreldrana hafa orðið
betri eftir því sem
hún varð eldri og þau
tjáðu sig aldrei nei
kvætt við hana um
kynleiðréttinguna.
„Ég held að þeim hafi
fundist þetta allt í lagi
og ég er heldur ekki
viss um að þetta hafi
komið þeim svo mikið á óvart,“
segir Anna.
Fékk martraðir
Anna viðurkennir að hafa orðið
mjög kvíðin þegar líða tók að út
gáfu ævisögunnar. „Maður veit
aldrei fyrirfram hvernig mót
tökurnar verða. Ég fékk jafnvel
martraðir,“ segir hún. Hún virðist
þó ekki þurfa að hafa áhyggjur því
þar sem hún hefur lesið upp hafa
viðtökur verið góðar. „Það er yfir
leitt alltaf skemmtilegt að kynna
bókina en engu að síður getur
það stundum verið erfitt. Dæmi
um það er þegar Reynir Trausta
son plataði mig upp á Úlfarsfell
eldsnemma á sunnudagsmorgni
til að lesa upp úr bókinni í vitlausu
veðri. Ég fór líka til Vestmannaeyja
og las upp og þar var ég veður
teppt í tvo daga. Það var allt í lagi
því það er nóg af skemmtilegu
fólki í Eyjum.“
Ætlaði ekki að koma
út úr skápnum
Í bókinni er ekki hvað síst lýst bar
áttu Önnu fyrir tilveru sinni sem
kona. „Ég ætlaði ekki að koma út
úr skápnum,“ segir hún. „Ég bjó
í Svíþjóð og þar var félagsskapur
transfólks og við vorum nokkur
sem vorum mjög ósátt við hvað
stjórn félagsins var treg til að tjá
sig um málefni okkar út á við. Síð
an gerðist það að stjórnin sagði
af sér og einhver varð að taka við.
Ég varð þá formaður félagsins og
gat ekki annað en staðið við stóru
orðin og tjáð mig
opin berlega fyrir
hönd félagsins.“
Hún er spurð hvað
hafi breyst frá því hún
fór í kynleiðréttingu.
„Margt hefur gjör
breyst. Ég miða gjarn
an við árið 2006 þegar
einstaklingur kom út
úr skápnum sem var
búinn að fara í gegn
um það sama og ég.
Um leið fannst mér allt
verða auðveldara. Ég var ekki bara
ein. Það voru líka komnir í sviðs
ljósið einstaklingar sem voru ekki
á leið í aðgerð en flokkuðust samt
sem transpersónur.“
Var komin út í horn
Finnurðu ennþá fyrir fordómum?
„Mjög sjaldan. Það er ein og ein
manneskja sem getur einfaldlega
alls ekki sætt sig við þetta og mun
aldrei gera. Það fólk verður bara
eins og hvert annað nátttröll, því
miður.
Ertu hamingjusöm og sátt í
dag?
„Hvað er að vera hamingju
söm. Það er spurningin. Ég er sátt.
Hamingja er mun flóknara mál.“
Ertu fegin að hafa skipt um kyn?
„Já, annars væri ég ekki lifandi
í dag. Á sínum tíma var þetta lífs
spursmál. Ég var komin út í horn
og þurfti að leysa úr flækjunum.“
Íhald um jól
Anna á þrjú uppkomin börn. Hún
býr með tveimur köttum sínum
og segist ekkert sérstaklega hafa
áhuga á að fara í sambúð. „Ég held
að það sé leitun að þeirri mann
eskju sem vill búa með mér. Ég er
dálítið erfið og mjög sérvitur,“ seg
ir hún.
Aðspurð segist hún vera mikið
jólabarn. „Jólin mín eru ákaflega
hefðbundin. Sumir hlutir tilheyra
bara jólunum. Eins og jólatónlist
Borgardætra, hamborgarhryggur
inn og hangikjötið. Ég er mikið
íhald hvað jólin snertir.“ n
Tekur á að rifja
upp sárar minningar
Kolbrún Bergþórsdóttir
kolbrun@dv.is „Maður veit aldrei
fyrirfram hvernig
móttökurnar verða. Ég
fékk jafnvel martraðir.
Anna Kristjánsdóttir segir sögu sína í nýrri bók
„Ég er mun
opinskárri
í þessari bók en
ég hef áður verið
M
y
n
d
S
ig
tr
y
g
g
u
r
A
r
i