Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.2017, Page 48
Helgarblað 8. desember 2017
65. tölublað 107. árgangur Leiðbeinandi verð 995 kr. dv.is/frettaskot askrift@dv.is Sími 512 7000
Fjölskyldu-
fyrirtæki
Vinstri
grænna!
Auðvelt að versla á byko.is
SKREYTUM SAMAN
Öll verð eru birt með fyrirvara um prentvillur og/ eða myndabrengl.
Tilboð gilda til 13. desember. eða á meðan birgðir endast
Gerðu
frábær
kaup!
smáraftæki
25%
AFSLÁTTUR
RAFHLÖÐUBORVÉL
2x18V-Li 275 stk
15.995kr.
740800067
Almennt verð: 19.995kr.
MATARSTELL
með gylltu og bláu, gylltu
eða silfur skrauti
11.245kr./stellið
41100142/45/46
Almennt verð: 14.995kr.
275 stk
88968024 90cm 1.295 kr. 970 kr.
88968028 120cm 2.995 kr. 2.245 kr.
88968029 150cm 4.995 kr. 3.745 kr.
88968030 180cm 8.395 kr. 6.295 kr.
88968031 210cm 9.995 kr. 7.495 kr.
88968041 210cm hvítt 11.995 kr. 8.995 kr.
Stærð alm. verð m/afslætti
39 stk
fyrir
6
6 gervijólatré
á tilboði
25%
AFSLÁTTUR
Hægt að
tengja saman
margar seríur
25%
AFSLÁTTUR AF
ÚTISERÍUM
LJÓS
Laser 8 mismunandi
myndir með tímastilli
5.595kr.
51880638
Almennt verð: 7.495kr.
Tilboð!
Skoðaðu
handbókina
á byko.is
Tengdadóttirin
aðstoðar Katrínu
n Katrín Jakobsdóttir, for-
sætisráðherra og formaður
Vinstri hreyfingarinnar -
græns framboðs, tilkynnti á
dögunum að hún hefði ráð-
ið tvær kjarnakonur sem að-
stoðarmenn. Um er að ræða
þær Lísu Kristjánsdóttur og
Bergþóru Benediktsdóttur.
Bergþóra er tengdadótt-
ir Steingríms J. Sigfússon-
ar, fyrrverandi formanns VG
og þingmanns flokksins til
margra ára – í sambúð með
elsta syni hans. Hún
hefur starfað sem
framkvæmdastjóri
þingflokks VG
og var áður
mannauðsstjóri
hjá Plain Vanilla.
Egill horfir á
South Park
n Óhætt er að fullyrða að
Egill Helgason, með bók-
menntaþáttinn Kiljuna á RÚV,
sé einn máttarstólpa menn-
ingar á Íslandi. Því vekur það
óneitan lega athygli að hann
skuli viðurkenna að hann
horfi á bandarísku teikni-
myndaþættina South Park
þó að þættirnir séu vissu-
lega hörð ádeila á bandarískt
samfélag sem samfélagsrýn-
inum fellur eflaust vel í geð. Í
færslu á Facebook vitnar Egill
í South Park, sem Sýn kallaði
Trufluð tilvera á sínum tíma,
og þá staðreynd að þættirn-
ir gerðu nýverið grín að því að
efnisveitan Netflix setti hvað
sem er í loftið. Egill vitnaði í
þættina þegar hann greindi
frá því að hann hafi horft á
þættina The Punisher á
Netflix og gefur hann
þeim lélega einkunn:
„Taumlaus og algjör-
lega blygðunarlaus
dýrkun á ofbeldi.
Einkennilega
ljótt,“
segir
Egill.
É
g myndi ekki segja að þetta
væri fyrir alla en ég myndi
samt mæla með þessu fyrir
bæði kynin. Þú lærir svo ótrú-
lega margt, ekki síst sjálfsaga og
að standa á eigin fótum,“ segir hin
tvítuga Iðunn Getz Jóhannsdóttir
en hún ber tvo afar ólíka starfstitla.
Hún er lærður förðunarfræðing-
ur en hefur undanfarna mánuði
gegnt herþjónustu í Ósló og meðal
annars staðið vaktina fyrir utan höll
norsku konungsfjölskyldunnar.
Iðunn ólst upp í Garðabæ til 16
ára aldurs, hjá norskri móður og
íslenskum föður, en fjölskyldan
fluttist búferlum til Þrándheims
árið 2013. Herskylda kvenna hefur
verið í gildi í Noregi frá árinu 2015
og var Iðunn á lokaári í mennta-
skóla þegar hún fékk herkvaðn-
ingu. Hún ákvað að eigin sögn að
henda sér út í djúpu laugina og að
loknu inntökuprófi tók við þriggja
mánaða grunnþjálfun.
„Þarna lærðum við allt mögu-
legt, eins og hvernig beita á vopni,
kveikja á prímus, setja upp tjald,
beita skyndihjálp og nota kort
og áttavita. Það var líka farið sér-
staklega út í stríðstækni í skógi
og síðan voru bóklegir tímar og
líkamsþjálfun.“
Iðunn hóf í kjölfarið störf hjá
einni af herdeildum konungs-
hirðarinnar í Ósló í apríl á þessu
ári. Starfið snýst að miklu leyti
um að gæta öryggis í opinberum
byggingum og í konungshöllinni,
og einnig á öðrum heimilum með-
lima konungsfjölskyldunnar. Með-
limir herdeildarinnar standa einnig
vaktina á þjóðarhátíðardaginn og
við ýmis tilefni eins
og setningu þingsins.
Starfið innan hersins er sögn Iðunn-
ar afar fjölbreytt og enginn dagur
eins. Þá fylgja því ýmis fríðindi.
„Fyrir utan það þá hef ég fengið
að kynnast sjálfri mér svo mikið bet-
ur. Ég er sjálfstæðari og öruggari og
duglegri við að gefa af mér en áður.
Auk þess hef ég séð hversu mikið ég
get gefið af mér andlega og líkam-
lega, miklu meira en ég vissi að ég
væri fær um. Þú getur alltaf gert
meira en þú heldur.“ n audur@dv.is
Iðunn er hermaður í Noregi„Þú getur alltaf gert
meira en þú heldur.