Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.2018, Qupperneq 2
2 Helgarblað 5. janúar 2018fréttir
Þessar fréttir bar hæst í vikunni
Brögð í tafli: „Svik og ekkert annað“
Lilja Þorvarðsdóttir vakti athygli á samfélagsmiðlastjörnum, eða
svokölluðum áhrifavöldum, sem keyptu sér fylgjendur á samfé-
lagsmiðlum, þá sérstaklega Instagram.
dv.is
Brynjar er kominn í vinstristjórn
Brynjar Níelsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, sagði í útvarps-
þættinum Harmageddon að hann væri kominn í vinstristjórn.
„Það er mikil eyðsla framundan. Það eru miklar kröfur og stjórn-
málamenn eiga erfitt með að standa í lappirnar,“ sagði Brynjar.
Pressan.is
Dýrfinna stígur fram
Dýrfinna Benita, tónlistar- og myndlistarkona, segir að þrír
karlmenn hefðu ráðist á hana og kærasta hennar, Þórð Inga
Jónsson. Hún segir árásina hafi verið vegna þess að hún sakaði
fyrrverandi kærasta sinn um nauðgun. dv.is
34
„Það er undarlegt
að í hvert sinn sem
kona er valin
íþróttamaður ársins krefjast
sumir þess að kjósa aðskilið
um íþróttamann og
íþróttakonu ársins. Ef hins
vegar karl er kosinn virðast
þeir hinir sömu bara nokkuð
sáttir.“
Eiríkur Jónsson sagði að sömu
menn og kvarta undan misrétti
þegar kona er valin íþrótta-
maður ársins segi ekkert þegar maður
verður fyrir valinu. Geir Þorsteinsson,
fyrrverandi formaður KSÍ, var ekki sáttur
við að Ólafía Þórunn hefði verið valin
íþróttamaður ársins 2017. Hann kallaði
eftir því á Twitter að íþróttamaður og
íþróttakona ársins yrðu valin.
81
„Hvað
nákvæmlega var
rangt hjá Sævari?
Endilega útskýrðu það. Eða
ertu bara að fara í manninn
af því að vísindalegar
staðreyndir passa ekki við
tilfinningar þínar?“
Palli Thordarson svaraði
Sigurbirni Ágústi Ragnarssyni
Hjelm í ummælum DV.is. „Fékk
maðurinn flugeld í hausinn vælandi um
bann á flugeldum og nú líkamsrækt, er
ekki best að hætta þessari athyglisýki og
halda sig við stjörnurnar, best geymdur
þar,“ sagði Sigurbjörn um Sævar. Sævar
Helgi Bragason, stjörnufræðikennari og
vísindamiðlari, gagnrýndi „infrarauða
hitann“ hjá Reebok fitness.
21
„Best að banna
almenna sölu
alfarið.“
Stefán H. Kristinsson sagði
að best væri að banna alfarið
almenna sölu á flugeldum.
Umræðan um flugeldasölu var eldfim í
vikunni.
32
„Hugrökk stelpa“
Bubbi Morthens
sagði að Dýrfinna
Benita væri
hugrökk. Í viðtali við DV segir Dýrfinna að
þrír karlmenn hefðu ráðist á hana og
kærasta hennar, Þórð Inga Jónsson. Að
sögn Dýrfinnu má rekja árásina til þess að
hún sakaði fyrrverandi kærasta sinn, Inga
Kristján Sigurmarsson, um nauðgun.
Vinsæl
ummæli
við fréttir DV í vikunni
E
ins og fjölmiðlar greindu
frá í gær þá sætir Þorvaldur
Gissurarson, forstjóri
og eigandi eins stærsta
verktakafyrirtækis landsins,
ÞG verk, rannsókn bandarísku
alríkislögreglunnar fyrir
ofbeldisfulla hegðun í flugi
WOW air frá Íslandi til
Los Angeles. Samkvæmt
heimildum DV var Þorvaldur
á leið í tveggja vikna frí til
Mexíkó ásamt kærustu sinni
en uppákoman varð til þess
að þær fyrirætlanir runnu út
í sandinn.
Að sögn sjónarvotta missti
Þorvaldur stjórn á skapi sínu
eftir að áhöfn flugvélarinnar
neitaði honum um gin og tónik. Brást
hann fyrst við með skömmum en síðan
reyndi hann að bíta, sparka og hrækja
að flugþjónum vélarinnar. Tókst
forstjóranum meðal annars að sparka
í andlitið á einum flugþjóninum.
Blessunarlega voru tveir fílefldir
flugþjónar í áhöfn flugvélarinnar
og tókst þeim að yfirbuga
Þorvald eftir nokkra baráttu.
Var hann því næst teipaður
niður í sæti vélarinnar og
gríma sett yfir andlit hans til
þess að verja áhöfnina fyrir
frekari hrákum. Þorvaldur var
síðan handtekinn við komuna
til englaborgarinnar.
„Ég bið starfsfólk um borð
í þotu WOW og aðra farþega
í fluginu innilega afsökunar á
framferði mínu. Þá vil ég þakka
öllum þeim sem veittu mér liðsinni
í þessum erfiðu aðstæðum,“ sagði
Þorvaldur í einlægri yfirlýsingu til
Fréttablaðsins vegna málsins.
Sagði hann enn fremur að
hann hefði áður undirgengist
áfengismeðferð og að hann hefði
verið án áfengis í tæp tvö ár áður
en kom að flugferðinni umræddu.
Kvaðst hann ætla að leita sér hjálpar
sérfræðinga í kjölfar atviksins. n
Fékk ekki annan gin og tónik
Þorvaldur brjálaðist í flugi WOW air til Los Angeles
Ósk: „Skilaboðin eru þau að það sé í lagi að beita einhvern ofbeldi“
Á
meðan hann er á skilorði þá
er ég fangi á eigin heimili,“
segir Ósk Matthíasdóttir í
stuttu samtali við DV. Fyrr-
verandi kærasti Óskar, Helgi Sig-
urðsson einkaþjálfari, var dæmd-
ur í níu mánaða skilorðsbundið
fangelsi fyrir fjölmörg ofbeldisbrot
gegn henni auk þess að veitast
að lögreglumanni. Ósk gagnrýnir
harðlega hve dómurinn er vægur
og að hann sé skilorðsbundinn.
„Skilaboðin eru þau að það sé í lagi
að beita einhvern ofbeldi. Mað-
ur sleppur við fangelsi ef maður
heldur skilorð.“ Þá sér hún fram á
áframhaldandi þolraun því dómn-
um hefur verið áfrýjað til Hæsta-
réttar.
„Alltof oft lokuð inni svo
enginn sjái áverkana“
Það vakti mikla athygli í sum-
ar þegar Ósk steig fram og svipti
hulunni af alvarlegu heimilis-
ofbeldi sem hún hafði orðið fyrir.
Það gerði hún með því að birta slá-
andi myndir af áverkum sínum
á Facebook-síðu sinni auk pistils
sem hún veitti DV leyfi til þess að
vinna frétt upp úr. „Ótrúlegt hve
lengi maður getur þraukað og leik-
ið líf sitt fagurt og hamingjuríkt
þegar raunin er algjör andstæða.
Eftir fleiri tugi heimsókna á slysó.
Alltof oft lokuð inni svo enginn sjái
áverkana,“ sagði Ósk við það til-
efni.
Þá var málarekstur yfirvofandi
í Héraðsdómi Reykjavíkur. Ósk
kærði ekki sjálf ofbeldið heldur var
það ákvörðun lögregluyfirvalda.
Dómur féll síðan þann 20. nóv-
ember síðastliðinn en dómurinn
er ekki aðgengilegur á heimasíðu
héraðsdóms. Það er fyrst nú sem
DV hefur fengið hann í hendur.
Strauk búrhníf yfir háls
Alls gaf lögreglan á höfuðborgar-
svæðinu út tvær ákærur á hendur
Helga og voru þær báðar í tveimur
liðum. Helgi var sakfelldur í öllum
fjórum liðunum en rétt er að geta
þess að hann neitaði allri sök þó
að hann kannaðist við rifrildi og
átök milli sín og Óskar.
Þann 29. september 2016 þótti
sannað að Helgi hefði meðal
annars slegið Ósk þannig að hún
lenti með höfuðið á spegli í íbúð
að Krókavaði í Reykjavík. Upp-
hafið að ofbeldisverkinu tengdist
rifrildi vegna símatengingar. Ósk
hafi yfirgefið íbúðina en Helgi hafi
dregið hana aftur inn með ofbeldi.
Hótaði hann henni með búrhníf
og strauk honum um háls hennar.
Hlaut Ósk yfirborðsáverka á höfði,
opið sár á hálsi, marga yfirborðsá-
verka á úlnlið og hendi auk mars á
mjóbaki og mjaðmagrind.
Slegin með krepptum
hnefa á eyrun
Að morgni föstudagsins 23. des-
ember sama ár veittist Helgi að
Ósk í íbúð í Skipholti. Sparkaði
hann í hægra læri hennar og reif
í hár hennar þannig að hárlokkar
losnuðu. Síðan dró hann Ósk eftir
gólfi íbúðarinnar. Á meðan hótaði
hann henni lífláti. Afleiðingarnar
urðu margvíslegir áverkar á læri
og hársverði.
Næsta brot átti sér stað laugar-
daginn 25. mars á þessu ári, í sömu
íbúð í Skipholti. Helgi veittist þá
að Ósk og greip í kraga á peysu
hennar þannig að hún féll í gólfið.
Í framhaldinu hélt hann henni
niðri og sló hana með krepptum
hnefa í nokkur skipti á bæði eyru.
Síðan greip hann báðum hönd-
um í hálsmálið á peysunni og herti
að þannig að Ósk átti erfitt með
andardrátt. Síðan sló Helgi hana í
síðuna og ýtti við henni. Hlaut Ósk
dreifð eymsli og mar víða um lík-
amann.
Síðasta brotið átti sér stað þegar
Helgi var handtekinn sama dag við
hús á Álftanesi. Missti hann stjórn á
skapi sínu þegar lögreglan freistaði
þess að handtaka hann. Greip hann
í vesti lögreglumanns og þurftu
lögreglumenn að beita varnarúða
til þess að yfirbuga hann.
Eins og áður segir var Helgi
dæmdur í níu mánaða skilorðs-
bundið fangelsi. Skaðabótakröfu
Óskar upp á 250 þúsund krónur,
fyrir ýmsa muni sem höfðu
skemmst, var vísað frá dómi en
Helga var gert að greiða henni 600
þúsund krónur í miskabætur. Að
auki var hann dæmdur til þess að
greiða málsvarnarlaun lögmanna
beggja. n
ritstjorn@dv.is
Hlaut skilorðsbundinn
dóm fyrir að berja Ósk
Ósk Matthíasdóttir Birti
sláandi myndir af áverkum sín-
um eftir heimilisofbeldi í sumar.
Fyrrverandi kærasti hennar var
dæmdur í níu mánaða skilorðs-
bundið fangelsi á dögunum.