Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.2018, Blaðsíða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.2018, Blaðsíða 30
Hollari lífsstíll Helgarblað 5. janúar 2018KYNNINGARBLAÐ Hátíðirnar eru að baki með þungum mat, fituríkum og sætum. Mjög margir huga að léttara mataræði en þá spillir ekki fyrir að sá matur sé líka bragðgóður. Það gildir um súpurnar á Súpubarn- um, sem eru fjölbreyttar, vel kryddað- ar og matarmiklar. Súpurnar eru allar gerðar úr grænmeti og eru ýmist vegetarian eða vegan, að sögn Rakelar Þórhalls- dóttur, eiganda Súpubarsins. Þrátt fyrir það eru grænmetisætur og veganfólk aðeins hluti viðskiptavina. Flestir koma einfaldlega til að ná sér í góða súpu. „Hann Ölli vinnur með um 50 uppskriftir og á hverjum morgni býr hann til sex súpur fyrir daginn,“ segir Rakel og vísar þar til súpumeistar- ans Örlygs Ólafssonar. „Tex-Mex- og Malasíu-súpan eru dæmi um súpur sem eru mjög vinsælar hjá okkur. Súpurnar okkar eru allar bragðmikl- ar en þær eru líka mjög ólíkar hver annarri. Þær eru mjög matarmiklar allar saman og við leggjum upp úr því að fólk geti borðað sig mett af súpunni,“ segir Rakel, en brauð frá Brauð og Co. fylgir með súpunum. Súpubarinn býður jafnframt upp á eins lítra skammta af súpu sem fólk getur tekið með sér heim í kvöldmat- inn: „Venjulega seljum við skammt fyrir einn, bæði take-a-away og til að borða á staðnum, en lítraskammtur- inn er hugsaður til að taka með sér heim í kvöldmatinn. Hægt er að geyma hann kaldan í ísskápnum þar til fólk er í stuði til að fá sér súpu, því þetta geymist vel.“ Súpubarinn var fyrst opnaður að Borgartúni 26 og er sá staður opinn frá 11–15, með áherslu á hádegið. Fyrir rúmlega tveimur mánuðum var Súpubarinn síðan opnaður að Berg- staðastræti 4 og sá staður er opinn frá 11 á morgnana til 20 á kvöldin og frá 12–18 um helgar. Þau opna síðan nýjan stað fljót- lega, þar sem Hagavagninn hefur verið við Vesturbæjarlaugina. Sá Seðjandi súpur fyrir alla sem vilja hollara mataræði á nýju ári staður verður með nokkuð öðrum áherslum en Súpubarinn og verð- ur spennandi fyrir svanga sund- laugargesti og aðra áhugasama að kynna sér hvað þar verður á boðstól- um þegar staðurinn verður opnaður – innan tíðar. Sjá nánar: Súpubarinn á Facebook. SúpuBaRinn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.