Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.2018, Side 31
Hollari lífsstíllHelgarblað 5. janúar 2018 KYNNINGARBLAÐ
Yoga Shala
Fjölbreyttir jógatímar og innrauður hiti
Ég hef upplifað það margoft að jóga breytir lífi fólks og það er yndislegt að verða vitni að því.
Jógaiðkun fer stöðugt vaxandi og
þetta er engin bóla,“ segir Ingibjörg
Stefánsdóttir hjá Yoga Shala. Stöðin
flutti í Skeifuna 7, 3. hæð, í janúar árið
2017 en hefur verið starfandi allar
götur frá 2005.
„Það eru til svo margar aðferðir við
að iðka jóga, það er að þróast eins
og allt annað. Það eru komnir margir
stílar og þú getur í raun bara valið
það sem hentar þér. Það þarf ekki
alltaf að vera líkamlega krefjandi,“
segir Ingibjörg sem hefur upplifað
mikla þróun í faginu og fylgist vel
með.
„Við bjóðum upp á fjölbreytta jóga-
tíma. Meðal annars bjóðum við upp
á svokallað ashtanga vinyasa jóga
sem er grunnurinn að mörgu annars
konar jóga eins og t.d. kraftjóga og
jógaflæði sem hefur fylgt í kjölfarið.
Þetta er nokkuð líkamlegt afbrigði
af jóga en hugleiðslan er alltaf með,
öndun og slökun. Við bjóðum einnig
upp á jógaflæði, jóga nidra djúpslök-
un, Baptiste kraftjóga, jógakennara-
nám og skemmtilega viðburði.“
Ingibjörg segir að líkamlegur
ávinningur af jógaiðkun sé styrkur,
mýkt og liðleiki. andlegi ávinningurinn
er m.a. minni streita og kvíði, aukin
andleg vellíðan, meiri núvitund og
jákvæðni.
Innrauður hiti slær í gegn
„Við erum fyrsta stöðin sem
fór að nota innrauðan hita í
salnum. Í stað þess að dæla
heitu lofti inn í salinn erum við
með hitapanela í loftinu sem
eru hljóðlausir og verma salinn
á þann hátt að það er verið að
hita þig en ekki loftið í kringum
þig. Notkun á innrauðum hita hefur
þau áhrif að blóðflæði eykst til allra
vefja líkamans sem hefur jákvæð
áhrif á einstaklinga með t.d. vöðva-
bólgu og gigt. Innrauði hitinn er hjálpa
mörgum og hefur slegið rækilega í
gegn,“ segir Ingibjörg.
Fjölbreytt námskeið eru í boði hjá
Yoga Shala og allir geta fundið eitt-
hvað við sitt hæfi. Ingibjörg segir að
námskeiðið Stirðir strákar hafi slegið
rækilega í gegn og er það fullbókað
hvað eftir annað. „Kyrrðarjóga fyrir
konur hefur líka slegið í gegn þar
sem lögð er áhersla á hugleiðslu og
djúpslökun með aðferðum jóga nidra.
hver sem er getur stundað þessa
tegund af jóga því aðferðin er í raun
áreynslulaus streitulosun þar sem um
liggjandi, leidda hugleiðslu og djúp-
slökun er að ræða.
Námskeiðið Jóganæring er nýtt hjá
okkur og er líka fyrir konur. Það sam-
anstendur af jógaflæði, hugleiðslu,
öndunaræfingum, djúpslökun – og
fræðslu um næringu með áherslu á
jákvæðar breytingar.“
grunnnámskeiðin eru líka alltaf
vinsæl og í gangi reglulega.
Nánari upplýsingar um námskeiðin
er að finna á vefsíðunni
yogashala.is og Facebook-síðu
Yoga Shala Reykjavík. Einnig eru
upplýsingar veittar í síma 553-0203
eða í gegnum tölvupóst á netfangið
yoga@yogashala.is.
Fæst í næstu verslun hberg@hberg.is / sími 565 6500 / www.hberg.is
án viðbætts sykurs
góð byrjun á nýju ári