Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.2018, Blaðsíða 34
Helgarblað 5. janúar 2018KYNNINGARBLAÐHollari lífsstíll
Endalausir möguleikar og nýir
réttir væntanlegir á Salatsjoppunni
„Við opnuðum í byrjun apríl 2017.
Okkur hefur verið rosalega vel tekið.
Það var allt brjálað að gera fyrstu
mánuðina,“ segir Karen Sigurbjörns-
dóttir hjá Salatsjoppunni, Tryggva-
braut 22, Akureyri.
„Við erum komin með stóran hóp af
fastakúnnum, fólki sem kemur aftur
og aftur og marga erum við farin að
þekkja með nafni, sem er mjög gam-
an. Við erum aðeins utan við mið-
bæinn en það eru margir vinnustaðir
í nágrenninu og starfsfólkið kemur
mikið hingað í hádeginu,“ segir Karen
en kúnnahópur Salatsjoppunnar er
breiður enda margir sem vilja gæða
sér á hollu og ljúffengu salati.
„Það er bæði hægt að velja af
matseðlinum og líka púsla saman
sjálfur, sem er mjög vinsælt. Það eru
endalausir möguleikar. En margir
treysta sér ekki til þess og vilja frekar
velja úr þessum fjölbreyttu og girnilegu
réttum sem eru í boði,“ segir Karen.
Á heimasíðunni salatsjoppan.is
gefur að líta upplýsingar og mynd-
ir af helstu salatréttunum. Að sögn
Karenar eru Piri Piri-salatið og
Japanskt salat vinsælustu réttirnir
og hafa slegið rækilega í gegn. Í Piri
Piri er Piri Piri-kjúklingur, bygg, maís,
epli, fetaostur, saltaðar jarðhnetur og
Honey Mustard. Í Japönsku salati er
Teriyaki-kjúklingur, mangó, tómatar,
rauðlaukur, stökkar núðlur, möndlu-
flögur og soja-sesamdressing.
Salötin eru vissulega holl og fremur
hitaeiningasnauð en það fer líka eftir
hverjum og einum. Hér er ekki um
sérfæði að ræða og hægt er að velja
sér bæði léttari salöt og bitastæðari
mat.
Í næstu viku kemur nýr og
spennandi matseðill á Salatsjoppuna
og þá er um að gera að fylgjast með
á vefsíðunni salatsjoppan.is og Face-
book-síðunni Salatsjoppan.
Nýtt og betra líf með jóga
Upphaflega var hugmyndin að baki Reykjavik Yoga að bjóða ferðamönnum upp á jógatíma,
svona tækifæri til að halda við iðkun-
inni á meðan maður er á ferðalagi.
Sjálf ferðast ég frekar mikið og mér
finnst gott að geta farið í tíma er-
lendis. Síðan tók þetta á sig þá mynd
að í bland við ferðamennina tóku
erlendir heimamenn að sækja tímana
og í seinni tíð eru Íslendingar farnir að
bætast meira við. Þetta er því orðin
mjög fjölbreytt blanda af ferðamönn-
um, erlendum heimamönnum og
Íslendingum.“
Þetta segir Bjarney Hinriksdótt-
ir hjá jógastöðinni Reykjavik Yoga,
Frakkastíg 16, Reykjavík. Hún rekur
stöðina ásamt Klöru Kalkusova sem
er jógakennari frá Tékklandi. Seg-
ir Bjarney að þeim sem sæki tíma í
stöðina líki vel að vera í svo fjölbreytt-
um og fjölþjóðlegum hópi.
Að sögn Bjarneyjar hefur jógaiðk-
un mjög jákvæð áhrif á líkamlega og
andlega heilsu. Auk þess að komast
í betra form minnkar m.a. streita hjá
fólki og núvitund eykst. Aðspurð segir
hún að jóga breyti lífi fólks þegar til
lengdar lætur.
„Margir byrja í jóga út af hreyf-
ingunni, því þetta styrkir vöðvana og
bætir liðleika, gerir svo margt fyrir
líkamann. En fljótlega komast flest-
ir að því að þetta styrkir ekki síður
andlega þætti og opnar fyrir ákveðna
sjálfskoðun. Andlegi þátturinn, hug-
leiðsla og sjálfsnæring, eru stór hluti af
okkar tímum og fólk fer að upplifa meiri
andlega og líkamlega vellíðan. Það fær
jafnvel nýja sýn á lífið. Við leggjum mikla
áherslu á núvitund og erum með núvit-
undarhugleiðslu sem hluta af tímunum.“
Bjarney segir að núvitundaræf-
ingar hafi gífurlegan andlegan ávinn-
ing, hjálpi fólki að takast á við lífið
almennt og þjálfi hugann í að vera í
núinu.
Aðspurð segir Bjarney að jóga geti
verið líkamlega krefjandi, sérstaklega
fyrir byrjendur. Hins vegar eru tím-
arnir í Reykjavik Yoga þannig hannað-
ir að þeir henta jafnt byrjendum sem
lengra komnum. Á næstunni verða
síðan í boði sérstakir byrjendatímar.
Nánari upplýsingar á heimasíðunni
reykjavikyoga.com, Facebook-síðunni
Reykjavik Yoga og í síma 825-2417.
REYKJAViK YOgA