Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.2018, Síða 38
38 Helgarblað 5. janúar 2018
Sláðu á
þráðinn!
Hinn 18 ára gamli Ruben
Zarate, frá Chicago, ruddist
inn í hljóðkútaverslun þar í
borg og heimtaði peninga.
Því miður hafði hann ekki
mikið upp úr krafsinu því
stærstur hluti reiðufjárins
var í rammlæstum peninga-
skáp. Ruben ákvað á staðn-
um að hann myndi reyna
aftur síðar og til að spara sér
erfiðið lét hann starfsmenn
fá símanúmer sitt; þeir gætu
þá hringt í hann þegar veg-
legri upphæð var í kassan-
um.
Sakamál
Fötin skapa
manninn
Milton nokkur J. Hodges
varð ekki loðinn um lóf-
ana eftir að hafa gert tilraun
til að ræna Lowes Home
Improvement-verslunina
í Kissimmee á Flórída. Til-
raunin mistókst hrapal-
lega og Milton flúði þvert
yfir götuna og komst þar
yfir nokkuð háa girðingu. Ef
hugmyndin var að leynast
í mannfjölda hinum megin
varð Milton fyrir vonbrigð-
um. Handan girðingarinn-
ar var nefnilega Cypress
Cove-nektar- og heilsustað-
ur og var lögreglan því ekki
í vandræðum með að koma
auga á Milton, eina mann-
inn í fötum.
13 13 morð voru eignuð Richard Ramirez, en talið er að fórnarlömb hans kunni að hafa verið fleiri. Morðin framdi Ramirez árin 1984 og 1985 og beitti öllum mögulegum aðferðum við þau, meðal annars
skotvopnum, eggvopnum og barsmíðum. Hann andaðist í fangelsi 7. júní 2013.
Robin lenti
í Ribböldum
n Robin Chard varð á vegi óvandaðra kumpána n Fannst í morgunsárið
„Þar spiluðu þeir
Queen-lagið
Bohemian Rhapsody og
endurtóku í sífellu lag-
línuna „Mama, just killed
a man“ og hlógu hátt og
mikið.
Robin Chard Komst ekki lifandi heim af knæpunni.
hjá Christopher hlátur í huga við
frásagnir Christophers og Josephs.
Í það minnsta var sextán ára dreng,
sem var þar staddur, nóg boðið og
hafði hann samband við lögreglu.
Joseph og Christopher sóru af
sér allar sakir er þeir voru hand-
teknir. Það var ekki fyrr en þeim
voru sýndar upptökur úr eftirlits-
myndavélum og fleiri sönnunar-
gögn sem þeir játuðu.
Samtals voru þeir kumpánar
með 67 dóma á bakinu og var
Christopher laus gegn tryggingu
vegna líkamsárásar. Nokkrum
klukkustundum fyrir morðið hafði
lögreglan veitt Joseph áminningu
eftir að hann skaut úr loftriffli að
stelpu nokkurri.
Aldrei of löng fangelsisvist
Þegar dómarinn, í desember 2004,
dæmdi kumpánana í lífstíðarfang-
elsi án möguleika á reynslulausn,
sagði hann við Christopher Smith:
„Það er deginum ljósara að þetta
var líkamsárás á saklausan, mið-
aldra mann og eina ástæðan var
sú að þið vilduð valda einhverjum
sársauka.“
Christopher var gert að afplána
að minnsta kosti 17 ár en Joseph
var dæmdur til 14 ára fangelsis-
vistar. Eiginkona Robins hafði á
orði að sama hve lengi þeir þyrftu
að dúsa á bak við lás og slá þá yrði
það aldrei nógu lengi. n
Joseph Mee Montaði sig af morðinu.
M
aður getur ráðið
allmörgu um þær
vendingar sem til-
veran tekur, en
ótal margt er þó háð tilvilj-
unum og duttlungum for-
sjónarinnar. Sú varð raunin
hjá Bretanum Robin Chard,
47 ára fjölskylduföður frá
Heworth í Gateshead.
Þann 23. apríl, 2004,
hafði Robin gert sér glaðan
dag á knæpu í Newcastle en
þegar hann hafði ekki skilað
sér heim klukkan 1.20 varð
eiginkona hans áhyggjufull.
Þegar hún hringdi í farsíma
Robins heyrði hún ókunn-
uga rödd: „Þú hefur hringt í
rangt númer.“ Síðan var lagt
á og eftir það var ekki hægt
að ná sambandi við sím-
ann.
Finnst skammt frá heim-
ili sínu
Eftir að hafa haft samband
við lögregluna hafði eigin-
kona Robins samband við
ættingja og vini og hafin
var leit að honum.
Klukkan átta að morgni
þess 24. apríl fann ná-
granni Chard-hjónanna
illa leikið lík Robins í tæp-
lega 400 metra fjarlægð
frá heimili hjónanna. Síð-
ar kom í ljós að á leið sinni
frá lestar stöðinni í Heworth hafði
Robin orðið á vegi tveggja útúr-
dópaðra ódáma sem gerðu sér að
leik að myrða hann, að því er virð-
ist vegna þess eins að hann var
snyrtilega til fara.
Óteljandi högg og spörk
Það var Christopher sem lagði
fyrst til atlögu við grunlausan fjöl-
skylduföðurinn og sló hann aftan
frá. Þegar Christopher og Joseph
loks létu af höggum og spörk-
um höfðu þeir brákað höfuðkúpu
Robins og brotið í honum 14 rif-
bein. Að lokum urðu þeir hon-
um að bana með því að þrýsta
andliti hans ofan í jörðina þar til
hann kafnaði. Síðan höfðu þeir á
brott með sér farsíma Robins og
30 sterlingspund sem þeir fundu
á honum. Fljótlega varð ljóst að
tvímenningarnir, Joseph Mee og
Christpher Smith, reiddu ekki
vitið í þverpokum því þeir fóru að
guma sig af „afrekum“ sínum.
Sungu „Mama, just killed a man“
Það gerðu þeir heima hjá
Christopher en þangað fóru þeir
í kjölfarið og þar spiluðu þeir
Queen-lagið Bohemian Rhapsody
og endurtóku í sífellu laglínuna
„Mama, just killed a man“ og
hlógu hátt og mikið.
Annar þeirra montaði sig af því
að hafa svarað símhringingunni
frá eiginkonu Robins, og svarað:
„Eiginmaður þinn mun ekki koma
heim í nótt.“
Joseph Mee sýndi vinum þeirra
félaga hvernig hann hefði spark-
að í höfuð Robins; hann hefði sett
sig í stellingar þekkts rúbbíleik-
manns, Jonnys Wilkinson.
Með tugi dóma á bakinu
En ekki var öllum sem voru heima
Christopher Smith Sló Robin fyrsta höggið.