Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.2018, Síða 64
64 fólk Helgarblað 5. janúar 2018
Mick Jones „Þegar
ég var lítill strákur og
sá Buddy Holly í sjón-
varpinu var framtíðin
ákveðin.“
Þ
etta verður hápunktur
túrsins hjá okkur,“ segir
Mick sem er nú staddur á
heimili sínu í New York.
„Ég bað skipuleggjendur túrsins
um nokkra aukadaga á Íslandi þar
sem við ætlum að reyna að ferðast
aðeins um landið.“
Hefur þú komið áður til Íslands?
„Nei, aldrei. Ég hef ætlað að
fara í nokkur skipti en ekki komist
vegna anna. Ættingjar mínir hafa
farið og ég er mjög forvitinn um
landið.“
Ætla að spila smellina
Hljómsveitin Foreigner var stofn-
uð af nokkrum Bretum og Banda-
ríkjamönnum í New York árið
1976 og sló strax í gegn með sam-
nefndri plötu ári seinna. Á þeim
rúmum 40 árum sem Foreigner
hefur verið starfandi hafa miklar
mannabreytingar átt sér stað en
Mick er sá eini sem hefur verið
allan tímann, enda stofnandi og
aðallagahöfundur sveitarinnar.
Hann er langþekktasti meðlimur
sveitarinnar auk söngvarans, Lou
Gramm, sem hætti árið 2003.
Foreigner voru næstum gleymd-
ir en hafa gengið í endurnýjun líf-
daga með tónleikaferðalagi sínu
árið 2017. Eruð þið í góðu formi?
„Við erum í frábæru formi.
Ég man ekki eftir að við höfum
nokkurn tímann verið jafn þétt-
ir. Í upphafi ferilsins vorum við
drifnir áfram af áhuga en nú er
miklu meiri kraftur í okkur. Að-
dáendurnir virðast ekki fá nóg og
þeir tónleikar sem við spiluðum
á árið 2017 voru langt yfir okkar
væntingum.“
Munuð þið spila þekktustu
lögin?
„Við ætlum að hafa tónleikahá-
tíðarandrúmsloft á staðnum.
Við höfum aldrei spilað á Íslandi
áður og fólk vill fá að heyra okkar
þekktustu lög. Þegar ég sjálfur fer
á tónleika vona ég alltaf að mestu
smellirnir séu spilaðir. Það er fátt
verra en þegar söngvari segir að nú
verði spiluð einhver B-hlið af nýrri
plötu. Þær eru yfirleitt ekki góðar.
Ég vil ekki vinna þannig, ég vil gefa
fólkinu það sem það vill fá.“
Síðasta plata Foreigner, Can't
Slow Down, kom út fyrir níu árum.
Er von á nýrri plötu í fyrirsjáan-
legri framtíð?
„Með þessum auknu vinsæld-
um sem við höfum fengið að
undanförnu kemur það til greina.
Ef við förum í upptökur verður það
undir lok ársins þegar við höfum
svolítinn lausan tíma.“
Hafið þið samið eitthvað nú
þegar?
„Það er dálítið í potti sem við
erum að hræra í.“
Grét þegar hann hitti Bítlana
Mick er sjálflærður á gítar og hélt
til Frakklands þegar hann var
átján ára gamall til að spila fyrir
Johnny Hallyday heitinn, hinn
franska Elvis. Þar kynntist hann
líka Bítlunum.
Vildirðu alltaf vera rokkgítar-
leikari?
„Þegar ég var lítill strákur og
sá Buddy Holly í sjónvarpinu var
framtíðin ákveðin. Hann var eins
og Kristur. Það hafði svo mikil
áhrif á mig að sjá þennan undar-
lega mann með gleraugun spila á
Fender. Hann bjó yfir einhverjum
galdri. Mér hefur alltaf liðið vel
með gítar hangandi á öxlinni og
svo er það líka frábær leið til að ná
í stelpur. Það má ekki gleyma því,“
segir Mick og hlær.
Mick sá Bítlana á sviði í fyrsta
skipti árið 1964 og vingaðist við þá
eftir tónleikana.
Hvernig var að sjá slíkar stór-
stjörnur?
„Ég var algerlega bergnuminn.
Ég stóð við hliðina á sviðinu þar
sem þeir spiluðu og tárin runnu
niður kinnarnar. Ég réð ekki við
mig þótt mér fyndist þetta kjána-
legt af mér. Að gráta á tónleikum.
Að sjá þá spila öll þessi lög, þetta
var ótrúleg reynsla fyrir ungan
mann.“
Ekki alltaf sætar grúppíur
Stofnmeðlimir Foreigner komu
flestir úr öðrum hljómsveitum
og sjálfur hafði Mick náð örlítilli
frægð með hljómsveitinni Spooky
Tooth. Foreigner varð hins vegar
gríðarlega vinsæl strax og fyrstu
fimm plötur hljómsveitarinnar
fóru á topp 5 í Bandaríkjunum.
Af hverju gerðist þetta?
„Nokkur eftirvænting var eftir
fyrstu plötunni okkar þar sem
við vorum flestir búnir að vera í
öðrum hljómsveitum. Það voru
tvö nokkuð sterk lög þarna og ég
vonaði að þau gæfu okkur smá
fótfestu. Ég hafði sjálfur engar
svakalegar væntingar og bjóst
ekki endilega við því að þetta yrði
hljómsveitin sem ég yrði í fram á
gamalsaldur. En platan var góð og
einhvern veginn small allt saman.
Ég get ekki útskýrt þetta allt saman
og sérstaklega ekki af hverju hún
seldist svo vel.“
Hvernig tókust þið á við frægð-
ina?
„Ég hafði upplifað smá brjál-
æðistíma með Spooky Tooth og
var aðeins viðbúnari en hinir.“
Var mikið partístand,
grúppíur og eiturlyfjaneysla?
„Já, þannig var tíðarandinn.
En oft voru þetta nú ekkert
mjög sætar stelpur. En svona
var rokklífið: kynlíf, eiturlyf og
rokk og ról. Ég tók þátt í því
en ekki jafn mikið og margir
aðrir. Ég hafði ágæta stjórn
á þessu framan af en á viss-
um tíma þurfti ég að leita
hjálpar.“
Hélt að ferillinn væri búinn
eftir taugaáfall
Mick segir það hafa verið mjög
hvetjandi að komast á samn-
ing hjá Atlantic Records. „Við
vorum fyrsta hljómsveitin hjá
þeim sem seldi yfir milljón ein-
tök af plötu. Við seldum meira
en Rolling Stones, Led Zeppelin,
Genesis og Emerson, Lake &
Palmer hjá þeim.“
Hvaða lagi ertu stolt-
astur af?
„Ég held ég verði að
velja Feels Like the
First Time. Það opn-
aði svo margar dyr fyrir okkur. Ég
hef enn mjög gaman af því að spila
það. Þetta er glaðlegt lag og mark-
aði ákveðna stefnu fyrir okkur.“
Er einhver eftirsjá á ferlinum?
„Ég held að ég ætti ekki að leyfa
mér neina eftirsjá. Á einhvern hátt
leiddu örlögin mig eftir ákveðnum
götum. Þegar ég var sautján ára,
bjó í París og heimurinn opnaðist
fyrir mér. Ef ég lít til baka þá myndi
ég ekki breyta neinu. Ég er mjög
þakklátur fyrir það sem ég hef náð
að gera á ferli mínum.“
Fyrir fimm árum fór Mick í
hjartaaðgerð sem átti eftir að hafa
miklar afleiðingar. Hann fékk röng
lyf eftir aðgerðina, gekk illa að
jafna sig og fékk taugaáfall. „Þetta
sendi mig á verulega vondan stað
og það tók mig ár að jafna mig.
Enginn getur skilið þetta fullkom-
lega án þess að hafa lent í þessu
sjálfur. Ég molnaði algerlega niður
og leitaði sálfræðiaðstoðar. Ég
þurfti að læra að hugsa jákvætt
aftur.“
Hvernig hamlaði þetta þér?
„Ég hélt að ég gæti aldrei spil-
að tónlist aftur. Ekki keyrt bíl eða
hjólað á reiðhjóli. Ég var hrædd-
ur við allt. Þetta var auðvitað mjög
hamlandi og ég hélt að ferillinn
væri búinn. En ég komst yfir þetta
með stuðningi fjölskyldunnar og
hljómsveitarinnar. Ég tel mig mjög
heppinn mann.“ n
„Ég var hræddur við allt“
n Foreigner á Íslandi í vor n Fengu ekki sætustu grúppíurnar n Nýjar vinsældir
Foreigner „Svona
var rokklífið: kynlíf,
eiturlyf og rokk og
ról.“
Gítarleikarinn og lagasmiðurinn Mick Jones
hélt nýverið upp á 73 ára afmælið sitt. Mick
hefur verið í bransanum síðan hann var 17
ára með ýmsum hljómsveitum en einnig sem
sólólistamaður. Þekktastur er hann fyrir störf sín
með rokkhljómsveitinni Foreigner en hljómsveitin
heimsækir Ísland þann 18. maí næstkomandi. DV hafði
samband við Mick sem er spenntur fyrir heimsókninni.
Kristinn Haukur Guðnason
kristinn@dv.is
„Ég hélt að
ég gæti
aldrei spilað
tónlist aftur.
Ekki keyrt bíl eða
hjólað á reiðhjóli.