Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.2018, Qupperneq 66
66 menning - sjónvarp Helgarblað 5. janúar 2018
Láttu þér ekki vera kalt
Sími 555 3100 www.donna.is
hitarar og ofnar
Olíufylltir ofnar 7 og 9
þilja 1500W og 2000 W
Keramik hitarar
með hringdreifingu
á hita
Hitablásarar
í úrvali
Ný vefverslun: www.donna.is
Erum nú á Facebook: donna ehf
nýtt og gott
The End of the F***ing World
Breskir grínþættir fullir af kolsvörtum
húmor. Tveir unglingar, hann er siðblindingi
og hún hatar leiðinlega lífið, fara að heiman
í leit að betra lífi. Fyrsta þáttaröðin var
frumsýnd í Bretlandi í haust við góðar undir-
tektir og mætir á Netflix í janúar.
Glacé (The Frozen Dead)
Franskir spennuþættir um rannsókn
á hryllilegu morði í smábæ í Pýrenea-
fjöllum. Um er að ræða sex klukkutíma
langa þætti byggða á bók. Þættirnir
gerast í miklum kulda og henta því vel á
köldum janúarkvöldum.
Friends
Loksins á Netflix. Vinina þarf vart að kynna.
Eins og segir í tilkynningu frá Netflix þá
getur þú horft á allar tíu þáttaraðirnar á
tveimur vikum ef þú hættir í vinnunni og
horfir á Vini í átta klukkutíma á dag.
American Vandal
Ádeiluheimildaþættir þar sem fylgst
er með rannsókn á skemmdarverkum
í bandarískum menntaskóla. Gert er
óspart grín að sakamálaheimildaþáttum
en að sama skapi nær myndin að draga
áhorfendur inn í eltingarleikinn við
skemmdarvarginn sem getur ekki hætt
að krota getnaðarlimi á veggi skólans.
Somebody Feed Phil
Maðurinn að baki Everybody Loves
Raymond, Phil Rosenthal, ferðast um víða
veröld og eldar góðan mat ásamt vinum og
vandamönnum. Hann fer meðal annars til
Ísrael, Mexíkó og Víetnam í leit að góðum
mat og bröndurum til að fylgja með.
„Á náttborðinu mínu er bókin The Sun and
her Flowers eftir Rupi Kaur. Ég fékk hana í
jólagjöf en hún er önnur bók Rupi. Fyrsta er
Milk and Honey sem er mitt uppáhald. Þetta
eru ljóðabækur. Bókin fær fjórar af fimm
stjörnum.“
Bókin á náttborði
Manuelu Óskar
- „Hún er ekki hrædd við að
láta skoðanir sínar í ljós“
Hvað segir pabbi?
Hún hefur alltaf haft gaman af því að segja
sögur, leika og haft frumkvæði af alls kyns
bralli, alveg frá blautu barnsbeini,“ segir
Garðar Garðarsson, faðir Sögu Garðars-
dóttur, leikkonu og handritshöfundar. Hann
segir að Saga hafi verið svolítill prakkari í
sér en þó alltaf einlæg. „Hún er ekki hrædd
við að láta skoðanir sínar í ljós og er með
mikla réttlætiskennd en setur það alltaf
fram á skemmtilegan máta. Það er það sem
er skemmtilegt við hana.“ Saga var einn af
handritshöfundum áramótaskaupsins 2017
og var áberandi í mörgum atriðum. Garðar
segir skaupið vel lukkað að þessu sinni:
„Mér fannst þetta alveg frábært skaup en
maður veit alltaf að það eru tvær hliðar á
þessu, það er alltaf hluti sem verður alltaf
kolvitlaus en í þessu tilfelli voru óvenju
margir sem nutu þess, manni heyrist það.“
Saga Garðarsdóttir
Gríma á framtíðina fyrir sér
K
vikmyndin Svanurinn var
sýnd á hátíðarsýningu
í Háskólabíói miðviku-
daginn 3. janúar. Söguna
skrifaði rithöfundurinn Guð-
bergur Bergsson og er þetta fyrsta
kvikmyndin sem gerð er eftir
verki hans. Bókin hlaut Íslensku
bókmenntaverðlaunin árið 1991.
Svanurinn er einnig fyrsta mynd
leikstjórans Ásu Helgu Hjörleifs-
dóttur í fullri lengd en hún nam
kvikmyndagerð við Columbia-
háskóla í New York.
Send í sveit
Sagan segir af níu ára gamalli
stúlku frá Grindavík, leikinni af
Grímu Valsdóttur, sem er send
í sveit norður í land til frænku
sinnar og manns hennar sem
eru bændur á litlu mjólkurbýli.
Athygli vekur að stúlkan og aðrar
persónur eru sjaldnast nefndar á
nafn. Stúlkunni finnst sveitalífið
framandi og gamaldags og henni
líður illa þar til að byrja með. En
bændahjónin, sem leikin eru af
Ingvari E. Sigurðssyni og Kötlu
Maríu Þorgeirsdóttur, eru góð-
hjörtuð og smám saman byrjar
stúlkan að aðlagast.
Á bænum þarf stúlkan að
vinna og kynnast harðneskjuleg-
um gangi lífsins í sveitinni. Líf
og dauði hefur þar aðra merk-
ingu en á mölinni. En hún kynn-
ist líka tveimur persónum sem
eru töluvert líflegri en bænda-
hjónin. Annars vegar vinnu-
manni sem reynir að vera rithöf-
undur og dóttur bændahjónanna
sem kemur ólétt heim frá námi
í Þýskalandi, leikin af Þorvaldi
Davíð Kristjánssyni og Þuríði
Blæ Jóhannsdóttur. Strax skynj-
ar maður spennuna milli þeirra
tveggja og stúlkan reynir að
blanda sér í það því hún er skotin
í vinnumanninum.
Gríma frábær
Sumir myndu segja að Svanur-
inn væri „artí“ mynd, með nátt-
úruskotum og tónlist sem virðist
handahófskennd er er sjálfsagt
þrungin merkingu. Svanurinn
sjálfur, eða álftin, birtist stúlkunni
uppi á fjalli við lítið vatn og verða
áhorfendur að túlka það á sinn
hátt.
Svanurinn er að mestu leyti
kvikmynduð í hinum íðilfagra
Svarfaðardal í Eyjafirði sem er
mikill kostur fyrir mynd sem legg-
ur svo mikið upp úr myndmálinu.
Annar kostur er leikur myndar-
innar, þá sérstaklega hjá hinni nú
þrettán ára Grímu. Það er mjög
fágætt að sjá barn leika svo vel og
hún á augljóslega framtíðina fyr-
ir sér. Hinir reyndu leikarar sem
túlka bændahjónin gera það líka
með stakri prýði. Persónur þeirra
eru bældar og meðvirkar.
Yngra fólkið er töluvert
flóknari persónur og vandamál-
ið er að þeirra fortíð er ekki út-
skýrð nægilega vel. Hvorki í upp-
hafi né í lokin. Það getur verið
gott fyrir áhorfandann að þurfa
að geta í eyður kvikmyndar en í
þetta skipti er erfitt að ná tengsl-
um við þessar persónur og skilja
ákvarðanir þeirra. Fleiri hálf-
kveðnar vísur eru í myndinni, til
dæmis hvers vegna stúlkan var
send í sveit. Í bókinni var það fyrir
búðarþjófnað en hún var skrifuð
á annarri öld. Börn eru almennt
ekki send í sveit í dag, hvað þá í
refsingarskyni.
Niðurstaða
Svanurinn er ekkert léttmeti.
Þetta er nokkuð hægfara drama-
mynd sem reynir á áhorfand-
ann. Erfitt er að staðsetja hana í
tíma og kannski skiptir það ekki
máli, frekar en nöfn persón-
anna. Til að byrja með virðist
sagan ekki mjög frumleg, það er
að persóna er sett í ókunnar að-
stæður sem henni líst ekki á en
sættist síðan við. En síðan tvinn-
ast óvæntir og óútskýrðir atburðir
inn í. Hafa ber í huga að myndin
er frumraun leikstjórans Ásu og
fleiri nýgræðinga sem unnu að
gerð myndarinnar og tæknilega
er hún tilkomu mikil. Við eigum
eftir að sjá meira af Ásu, Grímu
og félögum. n
Kristinn Haukur Guðnason
kristinn@dv.is
Kvikmyndir
Svanurinn
Ævisaga, drama, íþróttir
Aðalhlutverk: Gríma Valsdóttir, Þuríður
Blær Jóhannsdóttir, Ingvar Eggert Sigurðs-
son, Katla Margrét Þorgeirsdóttir, Þorvaldur
Davíð Kristjansson
Leikstjóri: Ása Hjörleifsdóttir