Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.2018, Síða 70
70 fólk Helgarblað 5. janúar 2018
Lítt þekkt
ættar-
tengsl
hin hLiðin
Sigmundur Davíð mest kynæsandi teiknimyndapersónan
Rithöfundurinn Stefán Máni hefur í gegnum tíðina
skrifað bækur um dekkri og skuggalegri hliðar samfé-
lagsins. Fyrir þessi jól gaf hann út bókina Skuggarnir
sem er í svipuðum stíl og hlaut góða dóma. Við fengum
Stefán Mána til að sýna lesendum DV á sér sína eigin
skuggahlið og svara nokkrum furðulegum spurningum.
Ef þú þyrftir að breyta, hvað mynd-
irðu vilja heita annað en Stefán
Máni eða vera annað en rithöfund-
ur? Sirius Black – Galdramaður.
Hverjum líkist þú mest? Clint Eastwood.
Hvað halda margir um þig sem
er alls ekki satt? Að ég reyki. Og sé
alvarlegur.
Í hverju finnst þér þú vera betri en
aðrir? Að keyra bíl, ekki spurning. En bara
áfram. Skil ekki afturábak.
Hvað viltu að standi skrifað á leg-
steininum þínum? Hann kom, sá og fór.
Hvernig myndirðu lýsa litnum gulur
fyrir blindum manni? Tilfinningin þegar
þú heyrir röddina í manneskjunni sem þú
ert skotin í.
Hvaða bók vildir þú hafa skrifað?
Biblíuna.
Ef þú þyrftir að dansa til að bjarga
lífinu, undir hvaða lagi myndirðu vilja
dansa? Scars of the crucifix með Deicide.
Hvað ætti ævisagan þín að heita? Til
Helvítis og til baka til að baka. (Ef Jói Fel leyfir …)
Hvað er það furðulegasta sem þú
hefur keypt? Ofskynjunartyggjó.
Hvaða ósið hefur þér reynst erfiðast
að láta af? Að stela og ljúga og þannig.
Um hvað geta allir í heiminum verið
sammála? Að þjóðarhugtakið sé hugvilla
og að friður sé góð hugmynd.
Ef þú mættir bæta við ellefta boð-
orðinu, hvernig hljómaði það? Þú
skalt eigi vera leiðinlegur á netinu.
Hvaða áhugamál myndirðu ekki
sætta þig við að maki þinn stund-
aði? Stjórnmál.
Hvað er það merkilegasta sem
hefur gerst í heiminum á þínum
líftíma? Freddie Mercury.
Hvaða frægu persónu leistu upp til
en sérð eftir því í dag? Fred Flintstone.
Hver er mest kynæsandi teikni-
myndapersónan? Sigmundur Davíð.
Hvaða tveir hlutir eru hræðilegir sitt í
hvoru lagi en frábærir saman? VG og XD.
Hver er lélegasti fimmaur sem
þú hefur heyrt? Veistu í hvernig bók
Gestapómenn skrifa? Gestapók.
Hvað er löglegt í dag en verður það
líklega ekki eftir 25 ár? Áfengi.
Hvaða kvikmynd þætti þér helst við
hæfi að breyta í söngleik? Svartur á leik.
Hvað verður orðið hallærislegt eftir
5 ár? Snjallsímar.
Hvað ættu allir að prófa að minnsta
kosti einu sinni í lífinu? Að finna ástina.
Ef þú myndir borða sjálfan þig,
hvort myndirðu hverfa eða tvöfald-
ast? Kúgast aðallega.
Ef þú værir ritstjóri dagblaðs
og sama daginn myndi Lagar-
fljótsormurinn finnast, Davíð
Oddsson kæmi út úr skápnum og
Donald Trump verða myrtur. Hver
yrði stærsta fyrirsögnin í blaðinu
þínu daginn eftir? „Loksins, loksins.“
Ef þú kæmir einn daginn heim úr
vinnunni og þar væri enginn nema
Geir Ólafsson í sturtu, myndirðu
hringja í lögregluna? Nei, ég myndi
rassskella hann.
Hver er tilgangurinn með þessu
jarðlífi? Enginn.
Stefán Máni Telur að
goðsögnin Freddie Mercury
sé það merkilegasta sem
hafi gerst á hans æviskeiði.
MynD SiGTryGGUr Ari
Magnús Ólafur Garðarsson Lögreglan
rannsakar meint stórfelld auðgunarbrot
og skjalafals forstjórans fyrrverandi.
Magnús Ólafur Garðarsson Lögreglan
rannsakar meint stórfelld auðgunarbrot
og skjalafals forstjórans fyrrverandi.
Fallni forstjórinn
og fornleifa-
fræðingurinn
Á
rið hefur verið viðburða-
ríkt hjá systkinunum Magn-
úsi Ólafi Garðarssyni og Völu
Garðarsdóttur.
Magnús Ólafur
hefur staðið í
ströngu í tengsl-
um við fall um-
deildasta fyrirtæk-
is landsins, United
Silicon, sem og
meintan vítaverð-
an akstur á Tesla-
glæsibifreið sinni.
Magnús Ólafur er
grunaður um stór-
fellt auðgunarbrot
og skjalafals á með-
an hann starfaði
fyrir United Silicon
og stendur rann-
sókn málsins yfir.
Vala hefur undanfarin miss-
eri stýrt fornleifauppgreftri á Land-
símareitnum. Þar er ráðgert að
byggja upp glæsilegt hótel en þær
fyrirætlanir hafa fallið í grýttan jarð-
veg hjá hópi sem kallar sig Varð-
menn Víkurgarðsins.
Um mikið tilfinningamál er að
ræða og hefur Vala tekist hart á við
talsmenn Varðmanna. Á dögun-
um steig hún fram og sakaði ónafn-
greinda menn innan hópsins um að
hafa kallað hana „unga sæta forn-
minjafræðinginn“ og klipið hana
svo í rassinn. Ekki eru öll kurl komin
til grafar í málinu.
Vala
Garðars-
dóttir
Fornleifa-
fræðingurinn
hefur staðið
í ströngu
varðandi
uppbyggingu
á Land-
símareitnum
S
ambýli manna og dýra er
oft náið og er Lækurinn í
Hafnarfirði gott dæmi um
það. Fyrir nokkrum árum
sendi Guðmundur Fylkisson, lög-
reglumaður og íbúi í Hafnarfirði,
bréf til bæjaryfirvalda um hvort
hann mætti taka að sér að varp-
staðina og reyna að minnka af-
föll unga á Læknum. Beiðnin var
samþykkt og „Project Henrý“ varð
að veruleika.
„Þetta
byrjaði
þannig að
fyrir mörg-
um árum
þá las
ég frétt um Henrý Bærings-
son sem býr á Ísafirði, hann
sótti um að taka í fóstur
óræktaða spildu gegnt heim-
ili hans. Hann sá um spilduna
á eigin kostnað og í eigin tíma,
setti þar upp þökur og spildur,“
segir Guðmundur. „Af því ég er
nú Strandamaður og ólst upp við
æðarfuglinn og að sinna honum,
á líka fjögur börn og búinn að búa
í Hafnarfirði síðan 1998, þá fannst
mér svolítið afskiptaleysi þarna
gagnvart fuglunum við Lækinn.
Því ég sendi bréf til bæjarins og
bað um leyfi til að hlúa að fuglun-
um þar á eigin kostnað.“
Líkt og á Ísafirði var leyfið veitt
og Guðmundur hóf að skoða hvað
var hægt að gera til að koma fleiri
ungum á legg. „Það var eitt og
annað í umhverfinu sem þurfti að
laga, það kom fullt af ungum en
þeir voru étnir mjög hratt og fáir
sem komust á legg. Bæði mávur-
inn og lækurinn sjálfur eru ung-
um hættulegir. Lækurinn liggur í
hæðum og ef einn ungi fer niður
þá kemst hann ekki aftur til baka,
svo koma bara allir ungarnir á eft-
ir honum. Við Strandgötuna er
síðan ræsi og rör og þar drukkna
þeir.“
Farið var í nokkrar aðgerðir.
Bærinn útbjó tröppur fyrir ung-
ana til að komast til baka upp
lækinn, við ræsið í Strandgötu
er sett fínna net yfir ræsið þegar
ungar koma í byrjun júní og byrj-
un júlí. „Við erum að koma 15–
20 ungum á legg á hverju sumri,“
segir Guðmundur sem telur að
árin séu orðin sex eða sjö síðan
verkefnið byrjaði.
Allir eru velkomnir að vera með
Hann sinnir Læknum þegar hann
hefur tíma, hann biður aðra ekki
um aðstoð, en allir eru velkomn-
ir að hjálpa til. „Ég á þetta ekki,
þótt ég hafi ýtt verkefninu úr vör
og stundum hef ég mikinn tíma til
að sinna því og stundum lítinn,“
segir Guðmundur. Hópur af fólki
hefur hjálpað Guðmundi með
ýmsum hætti, til dæmis séð um
gjafir til fuglanna.
„Ég vildi bara að það væri
skýrt á milli mín og bæjarins að
ég hefði eitthvað um Lækinn að
segja og mætti gera svona minni
háttar hluti. Ég prófaði til dæm-
is að setja upp veifur, en endurn-
ar eru ekkert hrifnar af því. Á
tímabili var ég með 3g-myndavél
og var að fylgjast með.“
Stefnir á að setja upp
upplýsingaskilti
Árið 2017 fékk verkefnið 60 þús-
und króna styrk frá Dýraverndar-
sambandinu. „Þá var ég að spá
í að gera ungastiga við Austur-
götuna, en þar eru tvær stíflur og
þar eiga ungar enga möguleika á
að komast til baka, en það virð-
ist sem að eftir að tröppurnar
voru settar upp aðeins ofar þá séu
þeir ekkert að fara niður. Þannig
að nú er ég að skoða að setja upp
upplýsingaskilti með myndum
og hvaða fugla megi sjá við Læk-
inn. Þarna eru að koma stokkand-
ar-, álftar- og gæsarungar, ég hef
ekki séð aðra unga. Ég er enginn
fuglafræðingur og þarf að fletta
tegundunum upp, en til dæm-
is þar síðasta vetur voru þarna
nokkur pör af rauðhöfðaöndum,
sem lentu í einhverjum hremm-
ingum og enduðu hjá okkur við
Lækinn yfir veturinn. Gulönd er
sjaldgæf, en par hefur verið í tvo
vetur hjá okkur. Toppönd hefur
komið og skarfurinn, sem er yfir-
leitt við sjó.“
Mannlífið við Lækinn er mikið,
þar eru góðar gönguleiðir og
bekkir, og er hann vel sóttur af
íbúum við Lækinn og öðrum. „Við
Lækinn erum við með Sólvang
hjúkrunarheimili, margir eldri
borgarar búa í nágrenninu og
þeir gefa sig á tal við mann og láta
mann vita ef eitthvað er að. Hér er
leikskóli og grunnskóli auk gamla
Lækjarskólans, Lækur athvarf
fyrir geðfatlaða, hinum megin við
götuna er dýrabúð og dýralækn-
ir og fólk kemur þangað ef það
verður vart við veika eða slasaða
fugla,“ segir Guðmundur. Ljóst er
því að sambýli dýra og manna er
mikið við Lækinn.
Guðmundur hefur verið lengi
í félagsstörfum, en hann byrjaði
sautján ára gamall í slökkvi-
liðinu á Ísafirði. Hann hefur kom-
ið víða við í félagsstörfum, en í
dag, auk þess að sinna Lækn-
um, situr hann í stjórn Dýra-
verndunarfélags Hafnarfjarðar, í
stjórn Hollvinasamtaka Sólvangs
og Öldrunarráði Hafnarfjarðar.
„Ég kalla þetta alltaf samfélags-
þjónustu, maður er bara að reyna
að bæta samfélagið í kringum sig
með litlum atriðum.“ n
Hætturnar og ungarnir Hætturnar eru
víða í umhverfi unganna.
„Ég er bara að reyna að bæta
samfélagið í kringum mig“
Guðmundur hugsar um fuglana við Lækinn
Dóttirin og fuglalífið Katrín Tekla
að sinna fuglunum. MynDir SiGTryGGUr Ari
Traust
manna og
dýra Katrín
Tekla, dóttir
Guðmundar gef-
ur brauð, fuglinn
treystir henni
fullkomlega.
Guðmundur Fylkisson Gefur
af sér bæði í leik og starfi.
ragna Gestsdóttir
ragna@dv.is