Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.2018, Side 72
Helgarblað 5. janúar 2018
1. tölublað 108. árgangur Leiðbeinandi verð 995 kr. dv.is/frettaskot askrift@dv.is Sími 512 7000
Auðvelt að versla á byko.is
-30% AF HARÐPARKETI -30% AF FLÍSUM -30% AF HÁÞRÝSTI-DÆLUM
-30% AF EINHELL RAFMAGNSVERKFÆRUM -40% AF HOUSE OF YARN
GARNI -40% AF PLASTBOXUM -30% AF POTTUM OG PÖNNUM -30% AF
BARNABÍLSTÓLUM -40% AF GLÖSUM, BOLLUM OG KÖNNUM -30% AF HUNDA-
OG KATTAMAT -30% AF MYNDARÖMMUM -40% AF SPILUM OG LEIKFÖNGUM
-40% AF KLUKKUM -40% AF JÓLAVÖRU -30% AF LJÓSUM - 30% AF LOFTAÞILJUM
-30% AF MOTTUM OG DREGLUM -40% AF BAÐFYLGIHLUTUM
-30% AF BÍLAHREINSIVÖRUM -30% AF ÖRYGGISSKÓM -30% AF ÁLTRÖPPUM OG
STIGUM -30% AF CAT VINNUSOKKUM -30% AF JÁRNHILLUM -30% AF TRANEMO
VINNUFÖTUM -40% AF KAFFI- OG MATARSTELLUM
VALDAR VÖRUR Á ENN BETRI AFSLÆTTI!
Komdu og gerðu góð kaup!
BÚMM!
KA
VÁ!Ég er villtur!
Vinstri sinnaður
tengdasonur
n Sitt sýndist hverjum um
áramótaskaup Ríkisútvarps-
ins, eins og endranær. Leik-
stjóri þess, og einn af handrits-
höfundum, var Arnór Pálmi
Arnarson sem getið hefur sér
gott orð fyrir sjónvarpsþættina
Ligeglad. Arnór Pálmi fagnaði
frumsýningu skaupsins í sal
við Fiskislóð ásamt vinum og
vandamönnum. Einn gestur í
gleðinni var Margrét Bjarna-
dóttir, dóttir fjármálaráðherra
landsins. Margrét og Arnór
Pálmi fóru að rugla saman reyt-
um á síðasta ári og blómstra
víst saman. Bjarni er eflaust
hugsi yfir ráðahagn-
um því pólitískar
skoðanir Arn-
órs Pálma halla til
vinstri. Þá herma
heimildir DV að
hann hafi veitt Píröt-
um atkvæði sitt
sem er auðvit-
að dauðasynd
hjá Engeying-
um.
Hryllingur í
bústað Sigurðar
n Einn þáttur í nýjustu þátta-
röð Black Mirror sem sýndir
eru á Netflix gerist allur á Ís-
landi, líkt og hefur komið fram.
Þáttunum mætti lýsa sem
dystópískum framtíðarhryll-
ingi og er ljóst af þættinum
sem gerist á Íslandi að framtíð
landsins er ekki björt, allir tala
ensku og Ráðhúsið er orðið
hótel.
Athygli vekur að morðkvendið
sem þátturinn fjallar um virðist
búa í sumarbústaði Sigurðar
Einarssonar, fyrrverandi
stjórnarformanns Kaupþings.
Húsið, Veiðilækur, er
eitt dýrasta sumar-
hús landsins en
markaðsvirði
þess er á milli 400
og 500 milljónir.
Bræður berjast á flugeldamarkaði
S
einustu dagar ársins í flug-
eldasölu fara senn í hönd.
Salan hefur á flestum stöð-
um gengið vel, sérstaklega
hjá björgunarsveitunum landsins.
Eins og áður hefur verið hávær
umræða um aðkomu einkaaðila
að flugeldamarkaðinum og er það
vilji margra að björgunarsveitirnar
fái hreinlega einkarétt á sölu flug-
elda.
Erfitt er að henda reiður á
fjölda þeirra einkaaðila sem selja
flugelda en þeir eru þó allnokkrir,
meðal annars Púðurkerlingin,
Stjörnuljós flugeldar og Net
flugeldar. Svo skemmtilega vill
til að bræður reka hvor sína
flugeldasöluna og eru því í
samkeppni á þessum umdeilda
markaði.
Það eru þeir Einar S. Ólafsson,
sem rekur Alvöru flugelda, og
Rúnar Ólafsson, sem rekur
Stóra flugeldamarkaðinn við
Smiðshöfða. Einar virðist talsvert
umsvifameiri en hann er með
tvo sölustaði í Kópavogi sem og
sölustað á Akureyri. Þeir bræður
ráku flugeldasöluna saman fyrsta
árið en síðan skildi leiðir. Einar vildi
ganga sinn veg en Rúnar annan veg.
DV hafði samband við þá
bræður til þess að ræða við þá um
hvort að rígur væri milli þeirra
út af samkeppninni. Óhætt er að
segja að blaðamaður hafi fengið
óblíðar móttökur. Fyrst var hringt
í Einar og sagði hann orðrétt:
„Finnst þér þetta upphefjandi fyrir
þig sem persónu?“ og þvertók fyrir
að rígur væri til staðar.
Því næst hringdi blaðamaður í
Rúnar og þar tók ekki betra við „Þú
og þinn sorpmiðill eruð að reyna
að búa til einhverja þvælu. Hættu
að búa til þvælu,“ sagði Rúnar
þegar blaðamaður hafði samband
og kvaðst ekki vilja tjá sig um málið.
DV óskar þeim bræðrum alls hins
besta á lokaspretti vertíðarinnar. n
Einar Ólafsson Rekur
Alvöru flugelda og er
umsvifamikill á markaði.